Haukar

Haukar

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Haukum í Hafnarfirði.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Haukar stöðvuðu sigur­göngu Eyjakvenna

Haukar lögðu ÍBV að velli, 25-23, í fyrsta leik 19. umferðar Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Þetta var þriðji sigur Hafnfirðinga í röð en með honum fóru þeir langt með að tryggja sér 3. sæti deildarinnar.

Handbolti
Fréttamynd

„Þetta er súrrealísk til­finning“

Darri Aronsson, sem hefur svo sannarlega fengið vænan skerf af meiðslum á stuttum ferli hans sem handboltamaður í fullorðinshandbolta, var ekki viss um að hann gæti tekið þátt í bikarvikunni þegar hann varð fyrir meiðslum í upphafi þessa árs. Darri segir það stórkostlega tilfinningu að standa upp sem bikarmeistari eftir það sem hefur á undan hefur gengið. 

Handbolti
Fréttamynd

„Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“

Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, segir það hafa verið skýrt markmið þegar hann tók við karlaliði félagsins í handbolta að koma liðinu aftur í fremstu röð og berjast um alla þá titla sem í boði eru. Það hafi verið tekið skýrt fram á fyrsta fundi hans með leikmönnum liðsins.  

Handbolti
Fréttamynd

„Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“

„Þá förum við að gefa ódýr mörk en við höfðum verið að spila frábæra vörn og svo var sóknarleikurinn hjá okkur orðin dálítið sóló. Það vantaði bara upp á skynsemi. Valur var skynsamari en við og unnu þess vegna,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari Hauka, eftir tap gegn Val í úrslitum Powerade bikarsins.

Handbolti
Fréttamynd

„Frekar létt að gíra sig upp gegn FH“

Haukar tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleik Powerade-bikarsins eftir fjögurra marka sigur á FH, 25-21. Höllin var stútfull af Hafnfirðingum og var leikurinn fjörugur frá fyrstu mínútu.

Sport