

Fréttir og greinar tengdar forsetakosningum sem fram fóru laugardaginn 1. júní 2024.
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði telur óvíst hvort ríkisstjórnin lifi það af ef Katrín Jakobsdóttir lætur til skara skríða og býður sig fram til forseta. Miðað við atburðarásina síðustu daga sé líklegt að hún fari fram.
Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur og forsetaframbjóðandi, segir framboð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra til forseta annað hvort munu fela í sér stjórnarkreppu eða að hún sitji beggja vegna borðsins þegar kemur að myndun nýrrar ríkisstjórnar.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætlar að upplýsa um ákvörðun sína varðandi framboð til forseta Íslands á allra næstu dögum. Stjórnarsamstarfið standi sterkum fótum hér eftir sem hingað til.
Katrín Jakobsdóttir staðfestir að hún sé alvarlega að hugsa um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands og muni greina frá niðurstöðu sinni á næstu dögum. Tveir forsetaframbjóðendur hafa bæst í hópinn frá í gær, þeir Jón Gnarr og Guðmundur Felix Grétarsson. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar sérstaklega í dag um mögulegt framboð Katrínar Jakobsdóttur.
Þingflokkur Framsóknarflokksins mun klukkan eitt í dag funda í gegnum fjarfundarbúnað meðal annars vegna hugsanlegs forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar segir spennuna á milli Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna smáræði miðað við djúpgremju Sjálfstæðismanna í garð Framsóknarflokksins. Fólk innan þeirra flokka geti varla dvalið í sama herbergi. Hún spáir því að Katrín Jakobsdóttir tilkynni um framboð til forseta í vikunni en það verði ekki til þess að ríkisstjórnin springi.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona er komin í hóp þeirra sem nú eru að safna meðmælendum vegna hugsanlegs forsetaframboðs.
Guðmundur Felix Grétarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í forsetakosningunum í sumar.
Þingkona Sjálfstæðisflokksins telur of mikið gert úr því að þingflokkurinn ætli að ræða mögulegt framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta á fundi í dag. Ekki eru önnur mál á fundi þingflokksins í dag. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir Katrínu enn að hugsa málið.
Jón Gnarr, sem tilkynnti um forsetaframboð sitt fyrr í kvöld, er búinn að safna meðmælunum sem þarf til að bjóða sig fram til forseta. Þetta staðfestir Heiða Kristín Helgadóttir, sem er í kosningateymi Jóns, í samtali við fréttastofu.
Jón Gnarr ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Þetta tilkynnir hann í myndbandi sem birtist á samfélagsmiðlum í kvöld.
Jón Gnarr tilkynnir væntanlega í kvöld hvort hann bjóði sig fram til embættis forseta Íslands eða ekki. Þá styttist í að forsætisráðherra geri upp hug sinn. Stjórnmálafræðingur segir framboð þeirra og nokkurra annarra geta ráðið miklu í kosningabaráttunni.
Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segist ekki átta sig á því hvort tal um mögulegt forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hafi orsakað skjálfta í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hann segist vita að Katrín sé að velta fyrir sér framboðinu.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sér ekki fyrir sér að Vinstri græn geti áfram setið í ríkisstjórn ef Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra býður sig fram til forseta Íslands. Hún sé límið á milli flokksins og hinna ríkisstjórnarflokkanna.
Að sögn Brynhildar Bolladóttur, lögfræðings hjá Landskjörstjórn, hafa aldrei verið fleiri í forsetaframboði en sem stendur eru 60 manns á skrá yfir þá sem nú leita eftir stuðningi. Athygli vekur að af þessum sextíu eru aðeins 16 konur.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir mikilvægt að boðað verði til Alþingiskosninga hið fyrsta, óháð því hvort Katrín Jakobsdóttir fari í forsetaframboð eða ekki.
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að boða þingflokkinn á fund á morgun í ljósi þeirrar óvissu sem er uppi varðandi mögulegt forsetaframboð forsætisráðherra og áhrif þess.
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segist ekki vera viss um að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eigi sigurinn vísan í forsetakosningum bjóði hún sig fram. Hann segir þjóðina vera mikið ólíkindatól þegar það kemur að forsetakosningum.
Lénið jongnarr.is var uppfært í gær og blasti þar tímabundið við snið að framboðssíðu áður en síðan var tekin niður. Sennilega tengist síðan tilkynningu Jóns Gnarr á morgun þar sem hann ætlar að skýra hvort hann hyggist bjóða sig fram til forseta.
Netverjar grafa oft upp ótrúlegustu hluti en svo virðist sem bæði Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, sem báðar hafa verið orðaðar við embætti forseta, hafi stofnað lén eftir eigin nafni. Sami greiðandi er á léni Katrínar og katrinjakobsdottir.is sem stofnað var árið 2006.
Fyrrverandi deildarstjóri á skrifstofu forseta Íslands segir að forseti þurfi fyrst og fremst að vera afar vel menntaður, heiðarlegur og heilsteyptur einstaklingur sem komi vel fram. Þar að auki þurfi hann að búa yfir tungumálakunnáttu, hafa gott bakland og kjark til að taka ákvarðanir þó þær séu ekki vinsælar.
Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir segist ætla að bjóða sig fram til forseta ef Katrín Jakobsdóttir forstætisráðherra gefur kost á sér í embættið. Það geri hún af því hún treysti ekki Katrínu til embættisins.
Taktfastur skilvirkur róður snýst um nokkra hluti. Að fólk fái sæti á réttum stað á bátnum, að árar séu vel mannaðar, að taktinum sé stýrt af festu, hvatningu og gleði af hálfu forystu sem veit hvert stefna skal og hvernig. Fólki líður vel, báturinn er notalegur, snyrtilegur, nægt rými, aðbúnaður er góður og atlæti framúrskarandi. Forystan er mild og sterk.
Nú þegar samkvæmisleikurinn um Bessastaði er að ná hámarki, enda aðeins tveir mánuðir í kosningar 1. júní nk. langar mig hér að velta upp tveim spurningum.
Jón Gnarr, listamaður og fyrrverandi borgarstjóri hyggst loks greina frá því á þriðjudag hvort hann muni gefa kost á sér í komandi forsetakosningum.
Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður og þingmaður Flokks fólksins, íhugar alvarlega að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands.
Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar.is, er hætt við forsetaframboð. Hún stofnaði til meðmælalista fyrir fimm dögum síðan, en segir að sér hafi raunar ekki verið alvara með framboðinu.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að sér hafi ekki snúist hugur um að láta af embætti í sumar. Hann vill þó ekki útiloka að það geti breyst, komi upp ófyrirsjáanlegar aðstæður.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hefur birt grein sem ekki er hægt að skilja öðru vísi en svo að ekki þurfi mikið til að koma svo hún stigi fram og gefi kost á sér í framboði til forseta lýðveldisins.
Ballið á Bessastöðum hófst þegar forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, tilkynnti þjóðinni að hann hyggðist ekki gefa kost á sér áfram. Fréttamiðlar riðu á vaðið með skoðanakannanir þar sem tilgreind voru nöfn ýmissa þekktra einstaklinga.