
McTominay hetjan á Old Trafford
Scott McTominay reyndist hetja Manchester United er hann snéri taflinu við gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Scott McTominay reyndist hetja Manchester United er hann snéri taflinu við gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Chelsea vann sinn þriðja leik í röð í öllum keppnum er liðið heimsótti Burnley í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Þrátt fyrir að hafa þurft að leika allan seinni hálfleikinn manni færri tókst Tottenham að vinna 0-1 sigur gegn nýliðum Luton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, segist vera viss um það að mörkin fari að koma hjá Marcus Rashford, framherja liðsins.
Ange Postecoglou, þjálfari Tottenham, segir það heldur ólíklegt að liðið hans hefði leyft Liverpool að skora mark gegn þeim eftir að markið sem Luis Díaz skoraði var tekið af þeim.
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, segir að Bukayo Saka og Thomas Partey séu báðir líklegir til þess að vera leikfærir fyrir leikinn gegn Manchester City á sunnudaginn.
Cloe Lacasse tryggði Arsenal jafntefli gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Cathy Ferguson, eiginkona Sir Alex Ferguson, er látin 84 ára að aldri.
Sjálfstæð nefnd á vegum ensku úrvalsdeildarinnar hefur skoðað umdeild atvik frá leikjum síðustu helgar og það var ekki bara rangstöðumarkið hans Luis Diaz sem var rangur dómur í leik Liverpool og Tottenham.
Derek Reynolds, stuðningsmaður C-deildarliðs Leyton Orient á Englandi, lést á meðan leik liðsins gegn Lincoln stóð á þriðjudaginn var. Hann var 74 ára gamall.
Bukayo Saka, stjörnuleikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal, hefur verið valinn í enska landsliðið í fótbolta þrátt fyrir að hafa á þriðjudaginn þurft að fara af velli vegna meiðsla í fyrri hálfleik gegn Lens í Meistaradeild Evrópu.
Kevin Keegan, fyrrverandi leikmanns og landsliðsþjálfara Englands, finnst erfitt að hlusta á konur fjalla um enska karlalandsliðið í fótbolta í sjónvarpi.
Norski framherjinn Erling Braut Haaland er orðinn svo kaldur fyrir framan markið í Meistaradeildinni að hann skorar ekki einu sinni á móti uppáhaldsmótherjum sínum.
Reynsluboltinn Mark Hughes var í gærkvöldi látinn taka pokann sinn hjá enska D-deildardeildarliðinu Bradford City þar sem hann hefur verið knattspyrnustjóri.
David Beckham þykir greinilega mikið til koma hvernig Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri hans hjá Manchester United hélt utan um hann verndarvæng eftir að Englendingar tóku sig saman í andstyggilegri herferð gegn Beckham eftir að hann var rekinn af velli í leik Englands og Argentínu í sextán liða úrslitum HM 1998.
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir á von á barni og í gær hélt félagslið hennar West Ham kynjaveislu fyrir Dagnýju á æfingasvæði félagsins.
Erik Ten Hag segist ekki smeykur um að missa starf sitt sem knattspyrnustjóri Manchester United eftir tap liðsins gegn Galatasaray í Meistaradeildinni. Ten Hag stendur við bakið á markverðinum Andre Onana sem gerði slæm mistök í leiknum.
Fyrirliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni hefur verið dæmdur í eins leiks bann vegna slæmrar framkomu í garð dómara eftir tap Chelsea gegn Aston Villa í síðasta mánuði.
Það er ekki nóg með að nöfnin þeirra séu lík, þeir komi báðir frá Norðurlöndum og spili sem framherjar hjá Manchester liði, þá eru þeir farnir að elta afrek hvors annars.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, er á því að leikur Tottenham og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni ætti að vera spilaður á ný eftir mistökin dýrkeyptu hjá myndbandadómurunum um síðustu helgi.
Í nýrri heimildarþáttaröð um líf og atvinnumannaferil bresku knattspyrnugoðsagnarinnar David Beckham, tjá Beckham og aðstandendur hans sig um afar erfiðan tíma í þeirra lífi eftir afdrifarík mistök Beckham á HM 1998. Beckham og fjölskylda hans lentu í afar slæmu aðkasti í kjölfar atviksins.
David Beckham, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu hefur greint frá því af hverju Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri hans hjá Manchester United, sparkaði skó í hann á sínum tíma.
Burnley vann loksins sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið heimsótti Luton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Ensku dómarasamtökin PGMOL hafa gert hljóðbrot af samskiptum dómara og VAR-dómara leiks Tottenham og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór um síðustu helgi.
Þrátt fyrir að hafa eytt rúmlega milljarði punda í leikmannakaup síðan Todd Boehly og Behdad Eghbali keyptu Chelsea segir Jamie Carragher, sparkspekingur Sky Sports, að liðið sé ekki enn nógu gott.
Thiago Silva segir að höggið sem Carlos Vinícius veitti honum í leik Fulham og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær sé ekki leyfilegt í UFC.
Enski framherjinn Ivan Toney, sem situr nú af sér átta mánaða bann vegna 232 brota á veðmálareglum enska knattspyrnusambandsins, mun snúa aftur í lið Brentford og spila æfingaleik með liðinu sem er spilaður á bak við luktar dyr.
Emma Hayes hefur gert frábæra hluti með kvennalið Chelsea undanfarin ár og liðið vann meðal annars tvöfalt á síðustu leiktíð.
Liverpool er hreinlega ekki tilbúið að sætta sig við útkomu helgarinnar þar sem löglegt mark var dæmt af liðinu í fyrsta tap liðsins á leiktíðinni.
Sænska knattspyrnugoðsögnin Zlatan Ibrahimovic, fyrrum leikmaður Manchester United, tjáir sig um stöðu síns fyrrum félags í viðtali við breska fjölmiðlamanninn Piers Morgan og ræðir þar ansi ítarlega stöðu hollenska knattspyrnustjórans Erik ten Hag.