
Newcastle United aftur á sigurbraut | Dramatík hjá Jóa Berg og félögum
Newcastle komst aftur á sigrbraut í enska boltanum í dag er liðið lagði Chelsea á heimavelli. Mikil dramatík hjá Jóhanni Berg og félögum í Burnley.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Newcastle komst aftur á sigrbraut í enska boltanum í dag er liðið lagði Chelsea á heimavelli. Mikil dramatík hjá Jóhanni Berg og félögum í Burnley.
Áhugavert atvik átti sér stað eftir leik Manchester City og Liverpool í dag þar sem framherjinn Darwin Nunez virtist eiga eitthvað ósagt við Pep Guardiola, stjóra Manchester City.
Stórleik Manchester City og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni lauk með 1-1 jafntefli. Áfram munar því einu stigi á toppliðunum en Arsenal getur skotið sér á toppinn með sigri gegn Brentford í dag.
Sean Dyche, knattspyrnustjóri Everton, segir að leikmenn hans séu ekki af baki dottnir þrátt fyrir að tíu stig hafi verið dæmd af liðinu og þetta mál muni einfaldlega blása bæði leikmönnum og aðdáendum eldmóð í brjóst.
Stærsta spurningamerkið fyrir stórleik helgarinnar, viðureign Manchester City og Liverpool, er staðan á ökkla Erling Håland. Hann fór meiddur af velli í leik Noregs og Færeyja á fimmtudag
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, segir að ekki sé hægt að bera mál félagsins, þar sem félagið er sakað um 115 brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, saman við mál Everton.
Howard Webb, yfirmaður dómaramála í ensku úrvalsdeildinni, leitaði til flugmanna til að hjálpa til að bæta VAR-dómgæsluna.
Fyrrverandi leikmaður í ensku úrvalsdeildinni var greindur með einhverfu á þessu ári.
Erling Haaland og Dominik Szoboszlai spila fyrir erkifjendurna Manchester City og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en það vita kannski færri að þeir eru mjög góðir vinir.
Alfie May er ekki beint á milli tannanna á knattspyrnuáhugafólki en hann hefur engu að síður verið að spila mjög vel með liði Charlton Athletic á þessu tímabili.
Harry Maguire, leikmaður Manchester United og enska fótboltalandsliðsins, hefur samþykkt afsökunarbeiðni frá þingmanni í Gana sem henti gaman að honum.
Þrjár goðsagnir úr sögu Manchester City fá af sér styttu fyrir utan Etihad leikvanginn og hún verður vígð á þriðjudaginn kemur.
Norska stórstjarnan Erling Braut Haaland er ekki búinn að gleyma heimahögunum eins og hann sýnir og sannar með því að leggja fram rausnarlega peningagjöf til að hjálpa æskufélaginu sínu að komast í hóp þeirra bestu.
Enn ryðja Bandaríkjamenn sér til rúms í enska boltanum. Fjárfestingahópurinn Castle Sports Group, sem er í eigu Piatak fjölskyldunnar, hefur staðfest yfirtöku sína á League One liðinu Carlisle United.
Isaac Adongo, þingmaður í Gana, hefur loks dregið til baka ummæli sem hann lét falla á síðasta ári um Harry Maguire, þar sem hann líkti varaforseta Gana við enska landsliðsmanninn þegar hann kom til Manchester United.
Enska knattspyrnusambandið hefur rekið Barnsley úr FA bikarkeppninni eftir að félagið tefldi fram ólöglegum leikmanni í endurteknum leik 1. umferðar gegn utandeildarliðinu Horsham.
Margir ráku eflaust upp stór augu þegar þeir sáu úrslitin í leik Englands og Úsbekistans í sextán liða úrslitum á HM U-17 ára í fótbolta karla sem fer fram í Indónesíu.
Sumir leikmenn Manchester United kenna erfiðu undirbúningstímabili um slaka byrjun í vetur og mikil meiðsli í herbúðum liðsins.
Fimmtán ár eru síðan framherjinn Jermain Defoe var seldur frá Tottenham til Portsmouth, en þrátt fyrir það gæti Tottenham verið í vandræðum vegna sölunnar.
Niall Sloane, íþróttastjóri bresku streymisveitunnar ITV, leggur til að leikir í ensku úrvalsdeild kvenna verði leiknir og sýndir í beinni útsendingu á laugardögum klukkan 15:00, en þá eru engir leikir sýndir í karladeildinni.
Enska úrvalsdeildarfélaginu Newcastle verður heimilt að fá leikmenn á láni frá sádi-arabískum félögum í janúar á næsta ári þrátt fyrir að sami aðili eigi bæði liðin.
Sam Kerr, ein besta fótboltakona heims, greindi frá því í dag að hún hefði beðið kærustu sinnar. Hún heitir Kristie Mewis og spilar fyrir bandaríska landsliðið.
Tólf umferðir eru búnar af ensku úrvalsdeildinni og það munar aðeins þremur stigum á fyrsta og fimmta sæti. Sigurlíkur eins af liðunum fimm er samt í algjörum sérflokki.
Tíu stig voru tekin af Everton á dögunum vegna brota félagsins á rekstrarreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Við þetta voru menn fljótir að benda á bæði Manchester City og Chelsea og spá enn verri refsingum fyrir þau.
Benjamin Mendy, leikmaður Lorient í Frakklandi, ætlar í mál við fyrrum vinnuveitanda sinn, Manchester City. eftir að félagið hætti að borga honum laun eftir að leikmaðurinn var kærður fyrir fjölda nauðgana árið 2021. Mendy var sýknaður í öllum ákæruliðum fyrr á þessu ári.
David Dein, fyrrverandi varaforseti Arsenal, segir að Mikel Arteta, knattspyrnustjóri liðsins, hafi svert ímynd þess með ummælum sínum um dómara eftir tapið fyrir Newcastle United á dögunum.
Belgíski knattspyrnumaðurinn Kevin De Bruyne neitar því að hafa komið eitthvað nálægt því að semja nýja lagið hjá kanadíska rapparanum Drake.
Chido Obi-Martin er nafn sem fótboltaáhugafólk á örugglega eftir að heyra mikið af í framtíðinni.
Er of mikið álag á bestu fótboltamönnum heims? Þegar þú skoðar meiðslalistann í ensku úrvalsdeildinni þá blasir svarið eiginlega við.
Nágrannarnir og fjendurnir í Manchester United og City mættust í stórleik ensku úrvalsdeildar kvenna á Old Trafford í dag. Gestirnir fóru með 3-1 sigur af hólmi.