Létu tennisboltum rigna á völlinn | Myndband Stuðningsmenn Blackpool létu tennisboltum og mandarínum rigna inn á völlinn í leik liðsins gegn Burnley í dag. Enski boltinn 18. apríl 2014 18:18
Þrír Liverpool-menn koma til greina sem leikmenn ársins Liverpool-leikmennirnir Steven Gerrard, Luis Suarez og Daniel Sturridge eru allir tilnefndir sem besti leikmann ensku úrvalsdeildarinnar að mati leikmanna sjálfra. Enski boltinn 18. apríl 2014 12:00
Pulis segist ekkert hafa grætt á lekanum Tony Pulis, knattspyrnustjóri Crystal Palace, er fús til að hitta forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar og segja sína hlið á lekamálinu sem var út allt í enskum fjölmiðlum í gær. Enski boltinn 18. apríl 2014 11:45
Katrín hjálpaði Liverpool að vinna Man. City Katrín Ómarsdóttir og félagar hennar í kvennaliði Liverpool hófu titilvörnina í ensku úrvalsdeildinni með sigri í gær en Liverpool vann þá Manchester City 1-0 á heimavelli. Enski boltinn 18. apríl 2014 10:15
Rodgers: Sunderland er víti til varnaðar Brendan Rodgers knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool segir lið sitt verð að læra af jafntefli Manchester City á móti Sunderland. Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og vinni liðið fjóra síðustu leiki sína verður liðið enskur meistari. Enski boltinn 18. apríl 2014 09:00
Fellaini klár í slaginn gegn Everton Miðjumaðurinn Marouane Fellaini hjá Manchester United hefur jafnað sig á meiðslum og er klár í slaginn gegn sínu gamla liði, Everton, um páskadag. Enski boltinn 17. apríl 2014 19:30
Manchester United tilbúið að selja Hernandez Manchester United hefur tilkynnt mexíkóska framherjanum Javier Hernandez að félagið sé reiðubúið að selja hann í sumar en Hernandez hefur verið ósáttur við fá tækifæri á tímabilinu undir stjórn David Moyes. Enski boltinn 17. apríl 2014 17:30
Aron sakaður um að hafa lekið liðinu gegn Palace Cardiff City hefur sent breska ríkissjónvarpinu BBC fimm blaðsíðna skýrslu þar sem kemur fram sú skoðun félagsins að úrslit liðsins gegn Crystal Palace ættu ekki að standa. Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði Íslands er sakaður um að hafa lekið liðinu. Enski boltinn 17. apríl 2014 16:06
Meistaramánuður Stevie G? Gæti sextán ara bið goðsagnarinnar Stevens Gerrards eftir enska meistaratitlinum loksins verið á enda? Sport 17. apríl 2014 09:00
Palace gerði Everton mikinn óleik með fjórða sigrinum í röð Tony Pulis heldur áfram að gera ótrúlega hluti með Crystal Palace en liðið er komið upp í 11. sæti eftir sigur á Everton á útivelli í kvöld. Enski boltinn 16. apríl 2014 16:29
City að missa af titlinum eftir jafntefli gegn botnliðinu Vito Mannone kom í veg fyrir að Sunderland tækist að vinna Manchester City á útivelli í kvöld en markvörðurinn gerði sig sekan um alvarleg mistök. Enski boltinn 16. apríl 2014 16:28
Sir Alex ætlar að bjóða upp vínflöskusafnið sitt Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, safnaði yfir fimm þúsund vínflöskum á stjóratíma sínum á Old Trafford og vínflöskusöfnunin hans var hans leið til að kúpla sig út úr pressunni sem fylgir því að stýra einu besta fótboltaliði heims. Enski boltinn 16. apríl 2014 12:45
ÍBV-treflar á minningarathöfn vegna Hillsborough-harmleiksins Eyjamenn tóku þátt í minningarathöfn vegna Hillsborough-harmleiksins sem fram fór á Anfield í gær en þá var þess minnst að 25 ár eru síðan 96 stuðningsmenn Liverpool létust í troðningi á Hillsborough-leikvanginum í Sheffield í Englandi á undanúrslitaleik Liverpool og Nottingham Forrest í enska bikarnum. Enski boltinn 16. apríl 2014 11:30
Gylfi stóð sig vel í upptökum á Pepsi-auglýsingunni - myndband Það styttist í heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fram fer í Brasilíu í sumar. Íslenska karlalandsliðið var nálægt því að tryggja sér keppnisrétt á mótinu en missti af lestinni á síðustu stundu. Enski boltinn 16. apríl 2014 09:30
Messan: Þetta sögðu Bjarni og Brynjar Björn um leik Liverpool og City Guðmundur Benediktsson fór yfir leik Liverpool og Manchester City í Messunni í gær ásamt gestum sínum þeim Bjarna Guðjónssyni og Brynjari Birni Gunnarssyni. Stórleikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni bauð upp á algjör veislu. Enski boltinn 15. apríl 2014 17:45
Podolski og Giroud skutu Arsenal í fjórða sætið | Myndband Arsenal komst upp fyrir Everton í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með 3-1 sigri á West Ham á heimavelli sínum í kvöld. Enski boltinn 15. apríl 2014 17:42
Diego Costa og Torres býtti í burðarliðnum? Diego Simeone, þjálfari spænska félagsins Atletico Madrid, staðfesti í útvarpsviðtali á Spáni að Chelsea hafi sýnt framherjanum Diego Costa áhuga. Enski boltinn 15. apríl 2014 14:15
Man City með hæsta launakostnaðinn í heimi íþróttanna Sportingintelligence hefur gefið út árlega könnun sína á launakostnaði íþróttafélaga í heiminum og birt hana í peningablaði ESPN-tímaritsins. Enska úrvalsdeildin á bæði félagið í efsta sæti sem og fimm félög inn á topp tuttugu listanum. Sport 15. apríl 2014 12:45
Yaya Toure ekki með í næstu þremur leikjum Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, býst við því að vera án miðjumannsins Yaya Toure í kringum tvær vikur en leikmaðurinn meiddist í tapinu á móti Liverpool um helgina. Enski boltinn 15. apríl 2014 12:15
Gerrard: Tilfinningarnar flæddu vegna Hillsborough Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, hefur viðurkennt það að minningarstund vegna Hillsborough-slyssins fyrir City-leikinn hafi haft mikil áhrif á hann og átt sinn þátt í því að hann missti stjórn á tilfinningum sínum eftir sigurinn á Manchester City á sunnudaginn. Enski boltinn 15. apríl 2014 11:45
Barkley til Liverpool er bara brandari í augum Martinez Liverpool og Everton eru bæði á miklu skriði í ensku úrvalsdeildinni og gætu bæði spilað í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Everton, hlær bara af þeim sögusögnum um að Liverpool sé að fara að reyna að kaupa efnilegasta leikmenn Everton-liðsins. Enski boltinn 15. apríl 2014 11:15
Manchester United býður Kroos 49 milljónir í vikulaun Guardian hefur heimildir fyrir því að Manchester United sé tilbúið að bjóða þýska miðjumanninum Toni Kroos 260 þúsund pund í vikulaun, tæplega 49 milljónir íslenskra króna, til að reyna að tæla hann frá Bayern München í sumar. Enski boltinn 15. apríl 2014 10:30
Podolski: Bikarinn lítil sárabót ef Arsenal missir af Meistaradeildarsætinu Þjóðverjinn Lukas Podolski segir að baráttan um að ná fjórða og síðasta sætinu inn í Meistaradeildina sé mikilvægari fyrir Arsenal en að enda níu ára bið félagsins eftir titli. Enski boltinn 14. apríl 2014 17:30
Arsenal og Hull fá bæði 25 þúsund miða á Wembley Arsenal og Hull City tryggðu sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins um helgina og mætast þar með á Wembley 17. maí næstkomandi. Enski boltinn 14. apríl 2014 16:00
Leikur Liverpool og City í gegnum ástralska Púlara - myndband Liverpool vann dramatískan 3-2 sigur á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær og er nú fjórum leikjum frá því að vinna Englandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í 24 ár. Enski boltinn 14. apríl 2014 15:15
Graham Poll um Suarez: Draumur Púlara en martröð dómara Knattspyrnudómarinn Graham Poll skrifaði pistil í Daily Mail í dag þar sem að hann tók fyrir Luis Suarez, framherja Liverpool en Úrúgvæmaðurinn tefldi einmitt á tæpasta vað í stórleiknum á móti Manchester City um helgina. Enski boltinn 14. apríl 2014 11:30
Terry: Við vildum að Liverpool ynni Man. City John Terry, fyrirliði Chelsea, var bara nokkuð ánægður með sigur Liverpool á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær. Demba Ba tryggði Chelsea 1-0 sigur á Swansea seinna um daginn og Terry og félagar eru því tveimur stigum á eftir toppliði Liverpool. Enski boltinn 14. apríl 2014 10:00
Gerrard: Mikilvægasti mánuðurinn á ferlinum Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, hefur spilað með félaginu frá árinu 1998 en sér nú fyrsta Englandstitilinn í hyllingum eftir 3-2 sigur á Manchester City í toppslag deildarinnar í gær. Enski boltinn 14. apríl 2014 09:30
Misstir þú af mörkum helgarinnar í enska? - allt hér inn á Vísi Þeir sem misstu af enska boltanum um helgina eða vilja bara horfa á það helsta aftur þá er hægt að fá flott yfirlit inn á Vísi. Eins og vanalega er nefnilega hægt að finna margskonar samantektir eftir hverja umferð ensku úrvalsdeildarinnar inn á Sjónvarpsvefnum á Vísi. Enski boltinn 14. apríl 2014 09:00
Pellegrini: Við áttum að fá víti Manuel Pellegrini, stjóri Man. City, var ósáttur við að fá ekki víti þegar Martin Skrtel kýldi boltann í teignum í uppbótartíma í leik Liverpool og Man. City í dag. Enski boltinn 13. apríl 2014 15:06