Borgarilmur - Hressasti ferðalangur sem Ísland hefur alið

Ein ástsælasta leikkona landsins, Ilmur Kristjánsdóttir er í miklu stuði og bregður hér á leik í nýjum og skemmtilegum ferðaþáttum þar sem hún skoðar 8 heimsborgir á sinn hátt. Þættirnir eru í opinni dagskrá á Stöð 2 á miðvikudögum en einnig verður hægt að horfa á þá hér á Vísi.

Ilmur ferðast til átta áfangastaða Icelandair og reynir að komast að hinu sanna hjarta borganna með viðtölum við skemmtilega borgarbúa auk þess sem hún lendir í hinum ýmsu aðstæðum sem hún þarf að klóra sig fram úr. Ilmur skrifar hluta þáttanna sjálf en í hverjum þætti gerist eitthvað óvænt sem hún á ekki von á og þarf þá að stíga út í óvissuna og inn í óttann. Borgirnar átta sem Ilmur heimsækir eru Seattle, Washington D.C. og Boston í Bandaríkjunum, Halifax í Kanada og Brussel, Glasgow, Helsinki og París í Evrópu.

20357
01:51

Vinsælt í flokknum Stöð 2