Ísland í dag - Réttir fyrir tvo undir þúsund krónum!

Það er með ólíkindum hvað hægt er að elda dásamlega rétti fyrir lítinn pening. Þegar athafnakonan Áslaug Harðardóttir missti vinnuna í ferðabransanum vegna Covid dó hún ekki ráðalaus og lét gamlan draum rætast og gaf út ásamt eiginmanni sínum Sverri Björnssyni auglýsingastjóra bók með girnilegum mataruppskriftum þar sem rétturinn fyrir tvo kostar aldrei meira en þúsund krónur og oft miklu minna. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti hjónin í ný uppgerða íbúð þeirra í Garðabænum þar sem þau eru með útsýni beint upp að eldgosinu og þar fékk að smakka dásamlega ódýra rétti hjá Áslaugu og einnig fáum við að sjá hvernig hægt er að matreiða dýrindis pastarétt með risarækjum á mjög ódýran hátt.

26033
11:44

Vinsælt í flokknum Ísland í dag