Galatasaray - Juventus 5-2

Galatasaray er komið með annan fótinn áfram í sextán liða úrslit eftir 5-2 sigur gegn Juventus. Juventus lenti undir snemma leiks þegar Gabriel Sara kom boltanum í netið fyrir Galatasaray en gamla konan svaraði snöggt fyrir sig. Teun Koopmeiners jafnaði leikinn aðeins fimmtíu sekúndum síðar og skoraði síðan glæsimark sem kom Juventus 2-1 yfir eftir rúman hálftíma. Þannig stóð staðan í hálfleik en heimamenn á Hrútavöllum sneru leiknum algjörlega við í seinni hálfleik. Noah Lang jafnaði metin á 49. mínútu og Davinson Sanchez tók 3-2 forystu fyrir Galatasaray á 60. mínútu. Noah Lang skoraði síðan sitt annað mark aðeins sjö mínútum síðar og Sacha Boey potaði fimmta markinu inn áður en leiknum lauk.

108
02:17

Vinsælt í flokknum Fótbolti