Engin niðurstaða í friðarviðræðum

Friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna lauk án niðurstöðu í dag en verður haldið áfram á morgun. Flóttaleið opnaðist loks út úr Mariupol í dag, þar sem íbúar hafa búið við hryllilegar aðstæður dögum saman. Mannfall varð í loftárás Rússa í Kænugarði í morgun og minnst níu létust þegar árás var gerð á sjónvarpsturn í norðurhluta landsins. Úkraínskar konur sem flúðu stríðið og komu til landsins um helgina eru dolfallnar yfir hlýhug Íslendinga, sem þær segja hafa tekið ótrúlega vel á móti þeim

7893
05:23

Vinsælt í flokknum Fréttir