Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leggja 190 milljarða króna í gasvinnsluna í Hammerfest Norska ríkisolíufélagið Equinor og samstarfsaðilar þess á Snøhvit-gasvinnslusvæðinu í Barentshafi hafa ákveðið að leggja 13,2 milljarða norskra króna, andvirði 190 milljarða íslenskra, í uppfærslu gasvinnslustöðvarinnar á Melkøya við bæinn Hammerfest í Norður-Noregi. Áætlaður líftími stöðvarinnar framlengist með þessu um áratug, til ársins 2050, auk þess sem rafvæðing hennar mun draga verulega úr losun koltvísýrings. 30.12.2022 15:20
Banna einnota matvælaumbúðir á skyndibitastöðum eftir áramót Bann við einnota umbúðum á skyndibitastöðum tekur brátt gildi í Frakklandi. Skyndibitastöðum mun ekki vera heimilt að framreiða mat í einnota umbúðum fyrir viðskiptavini sem ætla sér að borða á staðnum í stað þess að taka matinn með sér heim. 29.12.2022 15:47
Mikill fjöldi viðskiptavina hluti af hóplögsókn Viðskiptavinir rafmyntaverkvangsins FTX hafa nú stofnað til hóplögsóknar og freista þess að fá eitthvað af eignum sínum til baka eftir fall fyrirtækisins. Mögulegt er að hóplögsóknin muni ná yfir eina milljón viðskiptavina sem halda því fram að þeir eigi fyrstir rétt á greiðslu frá fyrirtækinu. 28.12.2022 15:40
Gærdagurinn sá versti í átta mánuði hjá Tesla Virði hlutabréfa rafbílaframleiðandans Tesla var í gær lægra en það hefur verið í meira en tvö ár. Fjárfestar í Tesla óttast að Musk einbeiti sér of mikið að samfélagsmiðlinum Twitter. 28.12.2022 13:37
Jólagjöf Norðmanna sögð stór gaslind í Barentshafi Norska olíufélagið Vår Energi, sem er að meirihluta í eigu hins ítalska Eni, tilkynnti á Þorláksmessu um stóran gasfund á svokölluðu Lupa-svæði nærri Golíat-olíusvæðinu í Barentshafi. Frumathugun bendir til að stærð gaslindarinnar jafngildi 57 til 132 milljónum tunna af vinnanlegri olíu. 27.12.2022 15:56
Gagnrýndi starfsmenn fyrir að slappa af og leika sér um helgar Stofnandi kínverska samfélagsmiðla- og leikjarisans Tencent, sagði starfsmönnum nýverið að spilling, leti og lélegir stjórnarhættir hefði komið niður á rekstri fyrirtækisins og grafið undan því. 23.12.2022 16:33
Gengur illa að laða auglýsendur aftur á Twitter Elon Musk og öðrum yfirmönnum Twitter eiga í erfiðleikum með að fá stærstu auglýsendur samfélagsmiðilsins aftur af borðinu en flestir þeirra eru hættir að auglýsa þar. 23.12.2022 12:02
Laus gegn tug milljarða tryggingu sakaður um söguleg fjársvik Umdæmisdómstóll í New York féllst á að sleppa Sam Bankman-Fried, stofnanda rafmyntafyrirtækisins FTX, úr varðhaldi gegn himinhárri tryggingu í gær. Saksóknari sakaði Bankman-Fried um að hafa framið fjársvik af sögulegri stærðargráðu. 23.12.2022 11:42
Rafmyntamógúllinn fluttur með fangaflugi til New York Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, lenti í New York til að svara til saka í einu stærsta fjársvikamáli Bandaríkjanna í nótt eftir að hann var framseldur frá Bahamaeyjum. Tveir samstarfsmenn hans hafa þegar játað sig seka um glæpi. 22.12.2022 08:39
Sagður ætla að selja réttinn fyrir 200 milljónir dala Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber er sagður ætla að bætast í hóp tónlistarmanna á borð við Bruce Springsteen, Bob Dylan og Stevie Nicks, sem hafa á síðustu árum selt réttinn á tónlist sinni til fyrirtækja. 22.12.2022 07:43
Musk hyggst hætta þegar arftakinn er fundinn Bandaríski auðjöfurinn Elon Musk hyggst láta af störfum sem forstjóri samfélagsmiðlarisans Twitter þegar búið er að finna einhvern sem sé „nægilega vitlaus til að taka starfið að sér“. 21.12.2022 07:27
Musk vill takmarka kannanir við áskrifendur Twitter Auðjöfurinn Elon Musk segir að breyting verði gerð á framkvæmd kannana um stefnubreytingar hjá samfélagsmiðlinum. Eingöngu áskrifendur muni fá að taka þátt í þeim en hann tilkynnti þessa breytingu eftir að notendur greiddu atkvæði um að hann ætti að stíga til hliðar sem forstjóri Twitter. 20.12.2022 12:09
Vilja banna ríkisstarfsmönnum að nota Tiktok Bandarískum alríkisstarfsmönnum verður bannað að nota kínverska samfélagsmiðilinn Tiktok á tækjum í eigum ríkisins verði frumvarp að um útgjöld ríkisins að lögum í óbreyttri mynd. Þarlend yfirvöld telja forritið geta ógnað þjóðaröryggi. 20.12.2022 11:13
Bankman-Fried samþykkir að vera framseldur Lögmaður Sams Bankman-Frieds, stofnanda FTX, segir hann tilbúinn að svara til saka í Bandaríkunum vegna falls rafmyntakauphallarinnar. Undirbúningur að framsali hans til Bandaríkjanna hefjist nú. 20.12.2022 10:47
Hafa birt hönnun fyrstu peningaseðlanna með andliti Karls konungs Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, hefur birt útlit nýrra peningaseðla sem munu skarta andliti hins nýja þjóðhöfðingja Bretlands, Karls III konungs. 20.12.2022 08:09
Risatekjur af Thule-herstöðinni færast til grænlensks fyrirtækis Gríðarlegar tekjur af Thule-herstöðinni á Grænlandi færast á ný í hendur grænlensks fyrirtækis með verktaka- og þjónustusamningi við bandaríska flugherinn. Samningurinn var kynntur um helgina og hljóðar upp á nærri fimmtíu milljarða íslenskra króna á ári. 19.12.2022 21:33
Rannsaka kosningaframlög FTX-forkólfa Bandarískir alríkissaksóknarar eru nú sagðir beina sjónum sínum að framlögum stjórnenda rafmyntafyrirtækisins FTX í kosningasjóði stjórnmálamanna. Þeir voru einir stærstu fjárhagslegu bakhjarlar flokkanna tveggja fyrir þingkosningarnar í síðasta mánuði. 19.12.2022 12:36
Blæs til skoðanakönnunar um hvort hann eigi að hætta Elon Musk, forstjóri og eigandi Twitter, hefur blásið til skoðanakönnunar um hvort hann eigi að hætta sem forstjóri. Hann kveðst ætla að fylgja niðurstöðunni. 18.12.2022 23:59
Twitter bannar hlekki á aðra samfélagsmiðla Samfélagsmiðillinn Twitter hyggst banna færslur sem vísa eingöngu á aðra samfélagsmiðla. Miðillinn mun einnig eyða aðgöngum sem aðeins eru notaðir til að auglýsa efni á öðrum samfélagsmiðlum. 18.12.2022 23:01
Vindmyllur orðnar helsti raforkugjafi Færeyinga Umskipti hafa orðið í raforkumálum Færeyinga með opnun nýs vindorkuvers í byrjun mánaðarins og fá þeir núna í fyrsta sinn meirihluta raforku sinnar úr sjálfbærum orkulindum. Í fyrra komu yfir sextíu prósent raforkunnar úr dísilrafstöðvum en núna er vindurinn orðinn stærsti orkugjafinn. 18.12.2022 22:22
Musk leitar að auknu fjármagni Auðkýfingurinn Elon Musk leitar nú að fjárfestum til að kaupa hluti í Twitter á sama verði og Musk greiddi sjálfur fyrir fyrirtækið þegar hann varð stærsti hluthafinn með hlutabréfakaupum upp á 44 milljarða dollara. 17.12.2022 14:50
Álverin óttast áhrif kolefnisgjalds á innflutt ál Íslenskir og evrópskir álframleiðendur óttast að nýtt gjald sem Evrópusambandið hyggst leggja á innflutt ál geti skekkt enn frekar samkeppnisstöðu þeirra á alþjóðamarkaði og gert fyrirtæki sem framleiða álvörur ósamkeppnishæf. Kerfið gæti dýpkað loftslagsvandann í stað þess að draga úr honum. 15.12.2022 07:01
„Gamaldags fjárdráttur“ hjá FTX Skiptastjóri fallna rafmyntafyrirtækisins FTX segir að það sem átti sér stað innan þess hafi ekki verið neitt flóknara en „gamaldags fjárdráttur“. Sam Bankman-Fried, stofnandi FTX, er ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti. 14.12.2022 23:05
Greiðir tveggja milljarða dala sekt í peningaþvættismáli Danske Bank hefur samþykkt að greiða tveggja milljarða Bandaríkjadala sekt í tengslum við rannsókn á peningaþvætti í einu af útibúum bankans. Sektin er liður í sátt bankans við bandarísk, eistnesk og dönsk yfirvöld. 14.12.2022 06:39
Borga ekki leigu og íhuga að borga ekki uppsagnarfrest Elon Musk, nýr eigandi samfélagsmiðlafyrirtækisins Twitter, hefur gert umfangsmiklar breytingar á lögmannateymi fyrirtækisins og virðist undirbúa sig fyrir baráttu fyrir dómstólum. Fyrirtækið hefur ekki greitt leigu fyrir höfuðstöðvar þess í San Francisco og annað skrifstofuhúsnæði víða um heim í nokkrar vikur. 14.12.2022 00:00
Sakaður um að féfletta fjárfesta FTX Bandaríska verðbréfaeftirlitið sakar Sam Bankman-Fried, stofnanda FTX, um að hafa féflett fjárfesta rafmyntafyrirtækisins um árabil. Fénu hafi hann beint í eigin vogunarsjóðs sem hann notaði í áhættufjárfestingar, kaup á lúxusfasteignum og styrki til stjórnmálaflokka. 13.12.2022 14:28
Greiða leiðina að nýstárlegu kolefnisgjaldi á innflutning til Evrópu Evrópsk innflutningsfyrirtæki þyrftu í raun að greiða kolefnisgjald af ákveðnum vörum sem þau flytja inn frá löndum sem hafa minni metnað í loftslagsmálum með nýrri löggjöf sem Evrópuþingið og leiðtogaráð Evrópusambandsins hafa náð samkomulagi um. Reglurnar yrðu þær fyrstu sinnar tegundar í heiminum. 13.12.2022 11:16
Stofnandi FTX handtekinn á Bahamaeyjum Lögreglumenn á Bahamaeyjum handtóku Sam Bankman-Fried, stofnanda fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, eftir að bandarískir saksóknarar höfðuðu sakamál gegn honum. Bankman-Fried er sagður grunaður um fjársvik og peningaþvætti. 13.12.2022 07:39
Áskrifendur fá möguleikann á því að breyta tístum Bandaríski samfélagsmiðillinn Twitter hefur frá og með í dag opnað fyrir kaup á hinu svokallaða bláa merki á samfélagsmiðlinum í gegnum mánaðarlega áskrift. Áskrifendur munu njóta ýmissa möguleika umfram aðra notendur, þar á meðal munu þeir geta breytt tístum eftir á. Iphone-notendur þurfa þó að greiða hærra verð en aðrir. 12.12.2022 11:26
Selur 60 prósenta hlut í félagi sem metið er á um 42 milljarða króna Bandaríski stórleikarinn Brad Pitt hefur selt franska fjölmiðlarisanum Mediawan meirihluta í framleiðslufyrirtækinu Plan B Productions. Bandarískir fjölmiðlar segja að félagið sé metið á 300 milljónir Bandaríkjadala, eða rúma 42 milljarða íslenskra króna. 11.12.2022 20:38
Vilja stöðva stærsta samruna leikjaiðnaðarins Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna (FTC) höfðaði í gær mál gegn Microsoft til að stöðva 69 milljarða dala kaup fyrirtækisins á leikjarisanum Activision Blizzard. Það er gert á grundvelli þess að verði af samrunanum yrði, myndi stærð þess koma niður á samkeppni í tölvuleikja- og leikjatölvuiðnaðinum. 9.12.2022 10:01
Rannsaka stofnanda FTX vegna gruns um markaðsmisnotkun Bandarískir alríkissaksóknarar eru nú sagðir rannsaka hvort að Sam Bankman-Fried, stofnandi fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, hafi gerst sekur um markaðsmisnotkun með því að hafa áhrif á gengi tveggja rafmynta. 9.12.2022 09:26
Fyrsta flug dýrustu flugvélar Grænlands til heimalandsins Grænlendingar fögnuðu í gær nýrri breiðþotu af gerðinni Airbus A330-800neo. Hún er langstærsta fjárfesting þjóðarflugfélagsins Air Greenland, kostaði yfir 700 milljónir danskra króna, eða yfir fjórtán milljarða íslenskra, að sögn grænlenska ríkismiðilsins KNR. 8.12.2022 18:30
Musk tímabundið steypt af stóli Auðjöfurinn Elon Musk tapaði titlinum „ríkasti maður heims“ um stund fyrr í dag og Bernard Arnault og fjölskylda hans, hoppaði upp í fyrsta sæti. Arnault er forstjóri LVMH, móðurfyrirtækis Louis Vuitton. 7.12.2022 23:58
Síðasta Boeing 747-þotan úr flugvélaverksmiðjunni Síðasta eintak júmbóþotunnar, eða Boeing 747, fór út úr samsetningarverksmiðju Boeing í borginni Everett norðan Seattle í Washington-ríki í gærkvöldi. Þetta er fraktvél af undirtegundinni 747-8 og verður afhent bandaríska vöruflutningafélaginu Atlas Air snemma á næsta ári. 7.12.2022 16:20
Rafmyntagrafarar í kröppum dansi Lánveitendur hafa gengið að veðum í hundruð þúsundum véla sem eru notaðar til þess að grafa eftir rafmyntum í kjöfar falls rafmyntakauphallarinnar FTX í síðasta mánuði. Rafmyntagrafarar geta nú margir ekki staðið í skilum á lánum sínum þegar þrengir að þeim úr nokkrum áttum. 2.12.2022 11:08
Zuckerberg líka ósáttur við Apple Mark Zuckerberg, forstjóri META (áður Facebook), segir Apple hafa of mikil völd á sviði smáforrita í síma og snjalltæki. Tók hann þar undir ummæli auðjöfursins Elon Musk, sem lýsti því yfir fyrr í vikunni að hann ætlaði í stríð við Apple, áður en hann dró svo í land með það. 1.12.2022 14:07
Fallni rafmyntakóngurinn segist engin svik hafa framið Sam Bankman-Fried, fyrrverandi forstjóri fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, fullyrti að hann hefði ekki reynt að féfletta neinn þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti eftir gjaldþrotið í gær. Hann segist hvorki óttast saka- né skaðabótamál. 1.12.2022 11:02
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent