Viðskipti erlent

Vilja banna ríkis­starfs­mönnum að nota Tiktok

Kjartan Kjartansson skrifar
Bandarískir alríkisstarfsmenn þurfa að finna annað við tíma sinn að gera en eyða honum á Tiktok verði útgjaldafrumvarp Bandaríkjaþings að lögum.
Bandarískir alríkisstarfsmenn þurfa að finna annað við tíma sinn að gera en eyða honum á Tiktok verði útgjaldafrumvarp Bandaríkjaþings að lögum. Vísir/EPA

Bandarískum alríkisstarfsmönnum verður bannað að nota kínverska samfélagsmiðilinn Tiktok á tækjum í eigum ríkisins verði frumvarp að um útgjöld ríkisins að lögum í óbreyttri mynd. Þarlend yfirvöld telja forritið geta ógnað þjóðaröryggi.

Tiktok er í eigu kínverska fyrirtækisins Bytedance en það nýtur mikillar hylli á meðal ungmenna á vesturlöndum jafnt sem annars staðar í heiminum. Bandarísk stjórnvöld hafa reynt að ná samningum um vernd persónuupplýsinga bandarískra notenda forritsins en án árangurs. Þau óttast að kommúnistastjórnin í Kína fái aðgang að persónuupplýsingum notenda en því hefur Bytedance hafnað.

Fyrir Bandaríkjaþingi liggur nú umfangsmikið frumvarp um tímabundnar fjárheimildir til reksturs alríkisstjórnarinnar. Búist er við því að atkvæði verði greidd um frumvarpið í þessari viku. Verði það samþykkt verður ríkisstjórninni falið að semja reglur um að alríkisstofnanir fjarlægi forritið af öllum tækjum í eigu þeirra.

Nokkur fjöldi alríkisstofnana bannar nú þegar forritið, þar á meðal Hvíta húsið, varnarmála-, heimavarna- og utanríkisráðuneytin, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Nítján ríki af fimmtíu banna ennfremur notkun forritsins á opinberum tölvum að hluta til. Flestar þeirra takmarkana voru settar á undanfarnar tvær vikur.

Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes sagði frá því fyrr á þessu ári að móðurfélag Tiktok hafi ætlað sér að nota samfélagsmiðilinn til þess að fylgjast með staðsetningu ákveðinna bandarískra notenda án vitneskju þeirra eða samþykkis.

Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, vildi banna nýjum notendum að sækja Tiktok eftir að það byrjaði að öðlast vinsældir árið 2020. Hann var hins vegar gerður afturreka með þær aðgerðir fyrir dómstólum.


Tengdar fréttir

Ætluðu að nota Tiktok til að njósna um á­kveðna ein­stak­linga

Móðurfélag kínverska samfélagsmiðilsins Tiktok er sagt hafa ætlað sér að nota miðilinn til þess að fylgjast með staðsetningu ákveðinna bandarískra notenda án vitundar þeirra eða samþykkis. Bandaríkjastjórn hefur rannsakað hvort kínversk stjórnvöld gætu komist yfir persónuupplýsingar Bandaríkjamanna í gegnum miðilinn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×