Fleiri fréttir

Elín ráðin forstjóri Bankasýslunnar

Stjórn Bankasýslu ríkisins hefur ráðið Elínu Jónsdóttur sem forstjóra stofnunarinnar frá og með 1. janúar 2010. Elín hefur starfað fyrir rannsóknarnefnd Alþingis frá því í sumar en hún var auk þess skipaður umsjónarmaður lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar í júní.

Ár fokdýrra björgunaraðgerða

Árið 2009 einkenndist öðru fremur af erfiðri glímu við heimskreppuna miklu. Fyrstu raunverulegu batamerkin sáust kannski í ágúst þegar Frakkland, Þýskaland og Japan skriðu út úr samdráttarskeiði og gátu státað af svolitlum hagvexti.

Ætla að hafa reksturinn óbreyttan

Sala á sænska bílaframleiðandanum Volvo frá bandaríska félaginu Ford Motor Co. til kínverska bílaframleiðandans Zhejiang Geely Group gengur líkast til í gegn á fyrsta fjórðungi næsta árs.

Barbie fór í lýtaaðgerð og hefur aldrei selst jafn illa

Hin síunga Barbie á heldur betur undir högg að sækja þessa daganna en samkvæmt The Guardian þá hefur sala á goðsagnakenndu dúkkunni í Bretlandi dregist saman um 42 prósent. Þess í stað hefur Lego, Playmobil og fleiri leikföng í svipuðum dúr aukið sölu sína um 20 til 40 prósent.

West Ham: Straumi liggur ekkert á að selja

Stjórn enska úrvalsdeildarliðsins West Ham hefur sett yfirlýsingu inn á heimasíðu West Ham. Þar segir að CB Holding, eigenda liðsins sem er að mestu í eigu Straums, liggi ekkert á að selja West Ham. Í yfirlýsingunni segir að hún sé sett á heimasíðuna vegna mikilla vangaveltna í fjölmiðlum um framtíð West Ham.

Vilja rannsókn á 110 milljarða yfirfærslu til Kaupþings

Kröfuhafar í dótturfélag Kaupþings á eyjunni Mön, Kaupthing Singer & Friedlander Isle of Man (KSFIOM), vilja að rannsókn fari fram á 550 milljón punda eða rúmlega 110 milljarða kr. yfirfærslu frá KSFIOM til Singer & Friedlander banka Kaupþins í London korteri fyrir hrun bankans í fyrra.

Dómarar meta sérfróð vitni vegna Actavis Totowa

Fjórir dómarar frá þremur ríkjum Bandaríkjanna munu koma saman í Charleston í Vestur-Virgínu til þess að aðstoða við að meta sérfróð vitni máli hundruð manna gegn lyfjafyrirtækinu Actavis Totowa, sem er dótturfélag Actavis, og Mylan Pharmaceuticals, vegna hjartalyfsins Digitek, en lyfið er talið hafa valdið fjölda fólks heilsutjóni.

Vilja selja Volvo til Kína

Bandaríski bílaframleiðandinn Ford stefnir á að selja sænska bílaframleiðandann Volvo til kínversks fyrirtækis. Skrifað hefur verið undir bráðabirgðasamkomulag við Geely bílaverksmiðjurnar og er búist við að skrifað verði undir snemma á nýju ári. Verðmiðinn hefur ekki verið gerður opinber en búist er við því að Kínverjarnir þurfi að borga allt að tveimur milljörðum bandaríkjadala fyrir hið sögufræga merki.

Hagnaður Ratiopharm umfram væntingar

Hagnaður þýska samheitalyfjafyrirtækisins Ratiopharm verður töluvert umfram eigin væntingar í ár. Ratiopharm reiknaði með að brúttóhagnaðurinn, það er hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármálaliði, yrði 200 milljónir evra en hann stefni í að verða 300 milljónir evra eða um 55 milljarðar kr.

Danir óttast innbrotabylgju um jólin

Jólin eru veisla fyrir innbrotsþjófa í Danmörku þar sem um helmingur þjóðarinnar er að heiman á aðfangadag. Í ár óttast Danir innbrotabylgju um jólin að því er segir í frétt á börsen.dk.

Ræstingarfólk verðmætara en bankamenn

Ræstingarfólk á spítölum eru samfélaginu verðmætari en bankamenn. Þetta leiðir ný rannsókn frá fyrirtækinu New Econmics Foundations í ljós.

Hlutir í Alcoa hækkuðu um tæp 8% á Wall Street

Hlutir í bandaríska álrisanum Alcoa hækkuðu um 7,9% á Wall Street í gærdag eftir að greiningardeild Morgan Stanley uppfærði verðmat sitt á hlutunum. Alcoa er sem kunnugt er móðurfélag Fjarðaráls austur á fjörðum.

Danmörk siglir út úr kreppunni

Eftir nokkra ársfjórðunga í röð með neikvæðum hagvexti mældist loksins jákvæður hagvöxtur í Danmörku á þriðja ársfjórðungi ársins. Þetta eru óvæntar fréttir fyrir sérfræðinga sem töldu að hagvöxturinn myndi standa í stað á fjórðungnum.

Tony Fernandes hættur við að kaupa West Ham

Tony Fernandes er hættur við að kaupa West Ham en á tímabili leit út fyrir að hann myndi festa kaup á 51% hlut í liðinu. Voru samningaviðræður hafnar og Fernandes búinn að hitta m.a. Gianfranco Zola framkvæmdastjóra liðsins.

Dauður banki greiðir starfsmönnum stóra bónusa

Fjárfestingarbankinn Lehman Brothers er dauður fyrir löngu síðan en það kemur ekki í veg fyrir að bankinn greiði starfsmönnum sínum stóra bónusa. Lehman Brothers varð gjaldþrota með miklum hvelli í fyrrahaust og miða margir upphaf fjármálakreppunnar við hrun bankans.

Bloomberg: Lokafrestur settur á tilboð í West Ham

Eigendur West Ham hafa þrjár vikur til að svara tilboðinu frá David Gold og David Sullivan í liðið. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun um söluna á West Ham á Bloomberg fréttaveitunni.

Stjörnufjárfestir græðir 320 milljarða á bankakaupum

Bandaríski vogunarsjóðurinn Appaloosa Management mun að öllum líkindum hagnast um 7 milljarða dollara í ár. Það þýðir að forstjóri sjóðsins, David Trepper, mun persónulega græða um 2,5 milljarða dollara eða um 320 milljarða kr. á árinu.

Avatar sló aðsóknarmet á heimsvísu um helgina

Kvikmyndin Avatar halaði inn rúmar 232 milljónir dollara eða tæpa 30 milljarða kr. yfir helgina á heimsvísu. Century Fox segir að þetta sé stærsta opunarhelgi frumsamdar myndar í sögunni og þar með langbesta opnunarhelgi þrívíddarmyndar frá upphafi.

Versti áratugur fyrir hlutabréf í sögu Wall Street

Áratugurinn sem nú er að renna sitt skeið er sá versti í sögu Wall Street hvað hlutabréf varðar. Hlutabréfavísitölur á Wall Street lækkuðu um 0,5% að jafnaði á hverju ári á þessu tímabili.

SAAB úr sögunni

Bandaríski bílarisinn General Motors hefur tekið ákvörðun um að leggja niður dótturfélagið SAAB, stolt sænskrar bílaframleiðslu til 60 ára. Viðræður um að selja fyrirtækið til hollensks lúxusbílaframleiðanda fóru út um þúfur í dag og því hefur verið ákveðið að leggja SAAB niður á næstunni.

Kvennalið í fótbolta selur stefnumót með leikmönnum

Norska kvennaliðið í fótbolta, Trondheim Örn, rambar nú á barmi gjaldþrots og hefur gripið til óvenjulegrar fjáröflunnar. Hver sem er getur nú boðið í nýársstefnumót með leikmönnum liðsins sem eru flestar síðhærðar ljóskur að sögn börsen.dk.

NunaMinerals framlengir samstarfið við Rio Tinto

Grænlenska námufélagið NunaMinerals hefur framlengt samstarfssamning sín um við Rio Tinto Mining and Exploration sem er eitt af dótturfélögum Rio Tinto. Rio Tinto er eitt stærsta námufélags heimsins en það á m.a. álverið í Straumsvík.

Emma Watson er hæstlaunaða leikkona áratugarins

Ungstirnið Emma Watson er hæstlaunaða leikkona áratugarins samkvæmt Heimsmetabók Guinness. Hin 19 ára gamla Watson hefur einkum hagnast vel á myndunum um Harry Potter þar sem hún leikur Hermonie.

Bresk bæjar- og sveitarfélög saka slitastjórn Glitnis um lögbrot

Fulltrúar frá sambandi breskra bæjar- og sveitarfélaga (LGA) eru nú staddir hérlendis á fundi með slitastjórn Glitnis. Richard Kemp varaforseti LGA segir það lögbrot að slitastjórn Glitnis hafi ákveðið að kröfur félaganna á hendur Glitni voru skilgreindar sem almennar kröfur en ekki forgangskröfur.

Staðan á dönskum vinnumarkaði langtum verri en talið var

Nýjar tölur frá dönsku hagstofunni sýna að staðan á danska vinnumarkaðinum er langtum verri en áður var talið. Samkvæmt tölunum voru 124.000 færri persónur ráðnar til vinnu á þriðja ársfjórðungi ársins m.v. sama tímabil í fyrra. Þessi fækkun er sú mesta sem hagstofan hefur skráð í sögunni.

Opinber rannsókn á Kaupþingi hafin í Bretlandi

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, hefur sent frá sér tilkynningu um að opinber rannsókn sé hafin á starfsemi Kaupþings í Bretlandi. Rannsóknin muni m.a. beinast að gjörðum Kaupþings til að fá Breta til að leggja sparifé sitt inn á Edge-reikninga bankans í Bretlandi.

Moody´s: Búsáhaldabylting í Grikklandi og á Bretlandi

Lánsmatsfyrirtækið Moody´s hefur gefið út viðvörun um að samfélagslegur órói sé framundan hjá þjóðum með miklar skuldir. Allar líkur séu á búsáhaldabyltingu á næsta ári í löndum á borð við Grikkland og Bretland þar sem verulega þarf að skera niður í útgjöldum hins opinbera til að lækka skuldafjallið.

Þúsundir sitja í skuldafangelsi í Dubai

Það eru ekki bara bankar og fastiegnabraskarar sem finna fyrir niðursveiflunni í Dubai. Þúsundir sitja þar nú í skuldafangelsi og sökum þessa fjölda eru fangelsi landsins yfirfull.

Góðgerðarsjóðir á bakvið stærsta köfuhafann í Glitni

The Irish Times greinir frá því í dag að Burlington Loan Management sé meðal kröfuhafa í Glitni en Burlington er staðsett í Dublin. Blaðið átti í erfiðleikum með að finna út eignarhaldið á Burlington en komst næst því að Burlington sé í eigu þriggja góðgerðarsjóða.

Átta óskuldbindandi tilboð bárust í Skeljung

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur borist átta óskuldbindandi tilboð í 49 prósenta hlut í Skeljungi ehf. og tengdum félögum en umræddur hlutur var settur í opið söluferli í lok nóvember sl.

Obama leggur bankamönnum línurnar

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lagt að stærstu bönkum landsins að þeir auki lán sín til lítilla og meðalstórra fyrirtækja til þess að örva atvinnulífið. Obama hitti bankaforkólfana á óformlegum fundi í gær og þar benti forsetinn á að bankarnir hefðu fengið gríðarlega aðstoð frá ríkinu síðustu misserin og að nú væri komið að skuldadögum.

Grísk fjármáladrottning keypti stærstu snekkju heimsins

Frá því í ágúst í sumar hefur ýmislegt slúður komist á kreik um hver hafi keypt Maltese Falcon, stærstu snekkju heimsins. Flestir hafa veðjað á nýríka Rússa eða eigendur vogunarsjóða. Það var nokkuð til í því síðarnefnda því kaupandinn er grískættaða fjármáladrottningin Elena Ambrosiadou.

Olían lækkar í verði en ál, gull og kopar hækka

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í morgun níunda daginn í röð. Fór verðið á WTIN olíunni á markaðinum í New York undir 70 dollara og stendur í 69,65 dollurum á tunnuna. Hefur olíuverðið þar með fallið um 15% síðan í október.

Eiturlyfjafé bjargaði bönkum í kreppunni

Fjármagn sem var afrakstur eiturlyfjasölu bjargaði nokkrum bönkum frá gjaldþrotum í fjármálakreppunni. Þetta segir Antoino Maria Costa forstöðumaður eiturlyfja og glæpaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Margir vefmiðlar hafa greint frá þessu yfir helgina.

Hóta enn einu verkfalli hjá BA

Yfirvofandi verkfall 12.000 flugliða hjá British Airways gæti sett strik í reikninginn hjá þeim sem þurfa að nýta sér flugsamgöngur í Bretlandi um jólin.

Opinber lögreglurannsókn á íslensku bönkunum í Bretlandi

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar (Serious Fraud Office) mun á næstu dögum tilkynna um að opinber lögreglurannsókn sé hafin á starfsemi íslensku bankanna í Bretlandi. Mun rannsóknin m.a. beinast að lánveitingum þeirra til „þekktra einstaklinga“.

Jólaverslun Breta mun nema 4700 milljörðum króna

Breskir neytendur munu kaupa fyrir 23 milljarða punda, eða 4700 milljarða íslenskra króna, út á debetkort fyrir þessi jól. Þetta er 4% aukning frá því í fyrra samkvæmt spá Barclays bankans. Verslun í stórmörkuðum mun nema um 5 milljörðum punda, eða 1000 milljörðum króna, en um einum milljarði verður varið á bensínstöðvum.

Stærsti kröfuhafinn er skúffufyrirtæki

Írski sjóðurinn sem er stærsti erlendi kröfuhafinn í gamla Glitni er skúffufyrirtæki í eigu þriggja annarra skúffufyrirtækja. Árni Tómasson formaður skilanefndar segir að sjóðurinn tengist stórum bandarískum vogunarsjóði sem nefnist Davidson Kempner.

Hlutur Stoða í Royal Unibrew í hendur tóbakssjóðs

Hlutur Stoða í dönsku bruggverksmiðjunum Royal Unibrew hefur minnkað úr um 16% og niður í tæp 6% eftir hlutabréfaaukningu sem lauk nýlega. Það er hinn sterkefnaði tóbakssjóður Augustinus sem er nýr stórhluthafi í Royal Unibrew með 10% hlut samkvæmt frétt um málið á börsen.dk.

BayernLB vill gefa Austurríki banka í jólagjöf

Bæverski ríkisbankinn BayernLB vill gefa austurrískan dótturbanka sinn, Hypo Group, til yfirvalda í austurríska héraðinu Kärnten. Austurrík yfirvöld eru lítt hrifinn af þessari jólagjöf enda mun Hypo Group vera á hvínandi kúpunni þessa daganna.

Sjá næstu 50 fréttir