Fleiri fréttir

Sjóðir hætta við tilboð í Ratiopharm, Actavis enn með

Fjárfestingarsjóðir hafa hætt við að senda inn tilboð í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Það er því allt útlit er fyrir að Ratiopharm verði selt öðru lyfjafyrirtæki. Þar er Actacvis enn með í hópnum að því er best er vitað.

Vilja snúa kreppudraug niður

Ríkisstjórn Japans samþykkti í gær að veita 7.200 milljörðum jena inn í hagkerfið til að hvetja til neyslu og koma í veg fyrir að landið lendi aftur í krumlum kreppunnar. Þetta jafngildir tíu þúsund milljörðum króna. Hagvöxtur í Japan var neikvæður í fyrra og fram á annan ársfjórðung á þessu ári þegar hann var jákvæður um 0,9 prósent.

Rembrandt málverk slegið fyrir 4 milljarða í London

Rúmlega 4 milljarðar kr. var verðið sem óþekktur kaupandi greiddi fyrir málverk eftir Rembrandt á uppboði hjá Christie´s í London í vikunni. Þetta er hæsta verð sem borgað hefur verið fyrir Rembrandt verk í sögunni.

Verstu jólagjafir opinberra stofnanna í Svíþjóð

Sænska vefsíðan chef.se hefur birt lista yfir verstu jólagafir opinberra stofnanna og fyrirtækja í Svíþjóð til starfsmanna sinna. Meðal þess sem þar er að finna er jólagjöf sænska tollsins til starfsmanna sinna í fyrra. Það var Ipod tæki en svo óheppilega vildi til að um ólöglegar smyglaðar eftirlíkingar var að ræða. Tollyfirvöld afsökuðu sig með að önnur stofnun hefði séð um kaupin fyrir þá.

FIH bankinn orðinn einn af stærstu eigendum Sjælsö Gruppen

FIH bankinn er nú orðinn einn af stærstu eigendum Sjælsö Gruppen sem er stærsta fasteignafélag Danmerkur. Eftir nýafstaðna hlutafjáraukningu hjá Sjælsö á FIH bankinn 17% í félaginu en stærsti hluthafinn er SG Nord Holding með 25% hlut.

Kaupþing ekki á bakvið sölu í Blacks Lesure

Töluvert stór hlutur í útiveruverslunarkeðjunni Blacks Lesure, eða 9,3%, var settur í sölu á markaðinum í London í gær. Kaupþing er stærsti eigandi keðjunnar með 29% hlut en var ekki að selja af honum þar sem dómsmál er í gangi um þennan eignarhlut milli Kaupþings og íþróttakeðjunnar Sports Direct.

Danska lögreglan ræður ekki við málafjöldan frá skattinum

Danska lögreglan ræður ekki við málafjöldan frá skattinum þar í landi en það sem af er ári hefur fjármálaglæpadeild skattsins sent 102 mál til rannsóknar hjá lögreglunni. Lögreglan hefur hinsvegar ekki náð að afgreiða nema 28 þeirra.

Grikkland í hættu á að lánshæfismatið lækki

Matsfyrirtækið Standard & Poors hefur sett lánshæfiseinkunn Grikklands á neikvæðar horfur en einkunnin stendur í A-. Þar með bætist enn við mikla fjárhagserfiðleika grískra stjórnvalda.

Enron hneykslið verður söngleikur á Broadway

Næsta vor munu bandarískir leikhúsgestir geta endurupplifað Enron hneykslið, að þessu sinni með söng og dans. Ætlunin er að sýna söngleikinn Enron á Broadway í New York.

Actavis enn með í kaupum á Ratiopharm, verðið hækkar

Actavis er enn með í hópi áhugasamra kaupenda að þýska samheitalyfjafyrirtækinu Ratiopharm en um 12 lyfjafyrirtæki og fjárfestingarsjóðir lögðu fram óformleg tilboð í Ratiopharm fyrir helgina að því er segir í frétt á Reuters. Þar kemur einnig fram að verðið fyrir Ratiopharm hafi hækkað í þessum tilboðum.

Loftið farið að leka úr gullverðsbólunni

Heimsmarkaðsverð á gulli er í niðursveiflu í dag eftir samfelldar hækkanir undanfarnar vikur. Stendur verðið í 1.157 dollara á únsuna í morgun en það fór hæst í rúmlega 1.200 dollara í síðustu viku.

Yfir 1.200 limmósínur pantaðar í Kaupmannahöfn

Búið er að panta yfir 1.200 limmósínur vegna loftsslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn og hafa bílaleigur þar í borg ekki undan að anna eftirspurninni. Þá er von á 140 einkaþotum til borgarinnar vegna ráðstefnunnar. Mengunin af þessum farartækjum verður á við það sem meðalstór bresk borg lætur frá sér með á ráðstefnunni stendur.

Hlutabréfavísitölur rétta úr kútnum

Heldur hafa hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum verið að hækka undanfarið, ef frá er talinn hikstinn sem varð í kjölfar fregna frá Dúbaí í lok síðustu viku. Íslenska aðalvísitalan lækkaði eins og kunnugt er um ríflega 95% frá sínu hæsta gildi niður í sitt lægsta, en frá því að hún náði botni í vor hefur hún hækkað um ríflega fjórðung.

Lykiltölur: Atvinnuleysið minnkar í Bandaríkjunum

Einhverjar helstu lykiltölur í efnahagsmálum Bandaríkjanna voru birtar í hádeginu en þær sýna að atvinnuleysið minnkar þar í landi úr 10,2% og niður í 10%. Þetta er þvert á spár sérfræðinga sem gerðu ráð fyrir að atvinnuleysið myndi halda áfram að aukast.

Fimm tonn af fiski til ESB gætu þurft 1875 vottorð

Norskir útflytjendur standa nú frammi fyrir því að útflutningur á óverulegu magni af fiski getur kallað á gríðarlegt flóð vottorða vegna hertra reglna Evrópusambandsins til þess að stemma stigu við ólöglegum fiskveiðum. Reglugerð þar að lútandi tekur gildi þann 1. janúar næstkomandi. Eftir breytinguna eru dæmi um að framvísa gæti þurft 1875 upprunavottorðum vegna útflutnings fimm tonna af blönduðum fiski frá Noregi til kaupanda í Þýskalandi.

L´Oréal erfingi gaf ljósmyndara 183 milljarða

Margmilljarðamærin og erfingi L´Oréal veldisins, hin 87 ára gamla Liliane Bettencourt, hefur gefið uppáhalds ljósmyndara sínum einn milljarða evra eða rúmlega 183 milljarða kr. Þetta hefur leitt til mikils fjölskyldudrama í Frakklandi því dóttir Liliane telur hana ekki lengur með fullum sönsum og vill að móðir sín komist undir eftirlit dómstóla.

Álverðið á markaðinum í London hækkar áfram

Álverðið á markaðinum í London heldur áfram að hækka og er nú komið í 2.144 dollara fyrir tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Verðið stóð í 2.130 dollurum í gær og hafði þá ekki verið hærra á þessu ári.

Debenhams opnar verslun í Víetnam

Breska verslunarkeðjan Debenhams mun opna verslun í Víetnam eftir tvær vikur, nánar tiltekið í Ho-Chi Minh höfuðborg landsins. Opnunin er liður í frekari alþjóðavæðingu Debenhams.

ECB losar um beltið en heldur axlaböndunum

Evrópski seðlabankinn (ECB) hefur ákveðið að draga úr fjárstuðningi sínum við fjármálakerfi evrusvæðisins. Bankinn hefur ásamt öðrum helstu seðlabönkum heims lagt mikið undir til þess að halda fjármálakerfum gangandi undanfarin misseri en nú þykir rétt að losa um takið og sjá hvernig fjármálastofnanir munu spjara sig á eigin fótum.

ECB uppfærir tölur sínar um hagvöxt á evrusvæðinu

Evrópski seðlabankinn (ECB) með Jean-Claude Trichet seðlabankastjóra í broddi fylkinga hefur uppfært tölur sínar um hagvöxt á evrusvæðinu. Nú býst ECB við því að hagvöxturinn muni nema 0,1-1,5% á næsta ári en fyrri spá bankans gerði ráð fyrir að hagvöxturinn yrði neikvæður um 0,5-0,9%.

Magasin du Nord: Súkkulaðisalan rýkur upp

Jólin eru mætt í stórverslunina Magasin du Nord í Kaupmannahöfn og það er aðallega súkkulaðisalan sem rýkur upp. Salan á súkkulaði, einkum í lúxusklassanum, er 25% meir en á sama tíma í fyrra í versluninni.

Stjórn RBS hótar afsögn ef milljarða bónusar fást ekki greiddir

Stjórn Royal Bank of Scotland (RBS) hefur hótað að segja af sér, allir sem einn, ef breska fjármálaráðuneytið kemur í veg fyrir að bónusar upp á 1,5 milljarð punda eða rúmlega 300 milljarða kr. verði greiddir til starfsmanna fjárfestingarhluta bankans.

Saxo Bank í Danmörku eignast Etrade

Saxo Bank í Danmörku hefur tekið yfir rekstur netbankans/verðbréfamiðlunarinnar Etrade á Norðurlöndunum þar með talið á Íslandi. Í frétt á Jyllands Posten um málið segir að þar með aukist fjármagnsveltan hjá Saxo Bank um 5 milljarða danskra kr. eða tæplega 125 milljarða kr. Um 50.000 viðskiptareikningar bætast við hjá Saxo Bank.

Álverðið komið í 2.130 dollara í London, hrávörur hækka

Heimsmarkaðsverð á áli fór í 2.130 dollara tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga á markaðinum í London í morgun. Hefur verðið á áli ekki verið hærra á þessu ári og raunar ekki hærra síðan um mitt sumar í fyrra.

Gjaldþrotatölur í Danmörku versna, met slegið í nóvember

Alls urðu 599 fyrirtæki í Danmörku gjaldþrota í nóvember og hafa gjaldþrot þar í landi ekki verið fleiri í einum mánuði áður. Fjöldinn slær metið sem sett var í desember í fyrra þegar 596 fyrirtæki lýstu sig gjaldþrota.

Breskir stórmarkaðir komnir í kampavínsstríð

Breskir stórmarkaðir eru komnir í verðstríð á kampavíni nú þegar jólaösin er farin í gang af alvöru. Waitrose, Sainsbury´s og Co-op hafa allir tilkynnt um allt að 50% afslátt á því kampavíni sem þessir stórmarkaðir hafa til sölu.

ESB boðar aðgerðir gegn svindli með loftlagskvóta

Umhverfisráð Evrópubandalagsins ECOFIN mun á næstunni leggja fram tillögur um hvernig sé best að berjast gegn umfangsmiklu svindli með virðisaukaskatt í tengslum við viðskipti með loftslagskvóta einkum CO2-kvóta.

Íslenskt bankahrun sameinar breska fasteignasjóði

Samningaviðræður milli tveggja stórra fasteignasjóða (building societies) í Bretlandi um sameiningu þeirra eru nú langt á veg komnar og allar líkur á að af þessu verði samkvæmt frétt á BBC. Sjóðirnir eru Yorkshire og Chelsea building societies og eiga það sammerkt að hafa tapað miklum fjárhæðum á íslenska bankahruninu á síðasta ári.

Demantaframleiðandi í fjárhagsvanda

Stjórn De Beers, stærsta framleiðanda demanta í heiminum, hefur ákveðið að fara í hlutafjáraukningu upp á einn milljarð dollara, eða 122 milljarða íslenskra króna. Hluthafar hafa þegar samþykkt þetta.

Sjóræningjar setja upp kauphöll til að fjármagna aðgerðir

Sómalskir sjóræningjar hafa komið á fót „kauphöll" í aðalbækistöðvum sínum, bænum Haradheere, þannig að áhugasamir fjárfestar eigi þess kost að fjármagna aðgerðir þeirra. Í ítarlegri umfjöllun Reuters um málið segir að þetta sé eins og þegar kauphallarmarkaður og skipulögð glæpastarfsemi fari saman í eina sæng.

Danmörk miðstöð fyrir milljarða fjársvik með CO2-kvóta

Danmörk er orðin miðstöð fyrir hundruða milljarða kr. fjársvik með loftslagskvóta eða CO2-kvóta. Þeir sem stunda svikin nýta sér svokallað „virðisaukskatts-hringekju" í kvótasölunni en samkvæmt grein í danska blaðinu Ekstra Bladet eru lögregluyfirvöld í fleiri Evrópulöndum nú að rannsaka málin sem öll eiga sér upphaf í loftslagskvótaskráningunni í Danmörku.

Atvinnuleysi á evrusvæðinu ekki meira síðan 1998

Atvinnuleysi á evrusvæðinu mældist 9,8% í lok október og hefur ekki verið meira síðan árið 1998. Þetta er raunar svipað atvinnuleysi og var í september en þær tölur voru nýlega uppfærðar úr 9,7% og í 9,8%.

Citigroup ræður Willem Buiter sem aðalhagfræðing bankans

Citigroup bankinn í New York hefur ráðið Willem Buiter í stöðu aðalhagfræðings síns og mun Buiter hefja störf í janúar á næsta ári. Buiter er giftur Anne Sibert sem á sæti í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands og hann hefur haldið fyrirlestra hérlendis um efnahagsmál auk þekktra skýrsluskrifa.

Óttuðust annað hrunaskeið vegna Dubai

Helstu hlutabréfavísitölur í Miðausturlöndum lækkuðu í gær vegna ótta við að stoðir arabísku fyrirtækjasamsteypunnar Dubai World myndu valda nýrri fjármálakreppu.

Sjá næstu 50 fréttir