Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Arion banki varar við fölskum smáskilaboðum Smáskilaboð sem látin eru líta út eins og þau séu frá Arion banka hafa verið send á fjölmarga landsmenn upp á síðkastið. Arion banki segir þau vera fölsk og varar við því að ýta á hlekkinn sem fylgir skilaboðunum. 19.7.2022 16:09
Bjartsýnn á farsæla niðurstöðu í Mílusölunni Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu frá Símanum eru í uppnámi þar sem skilyrði Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum þykja of íþyngjandi. Forstjóri Símans segir mestu máli skipta hvaða áhrif salan á Mílu mun hafa á neytendur. Hann er bjartsýnn á að farsæl lausn finnist í málið. 19.7.2022 06:32
Laxeldið á Austfjörðum á fullu í uppbyggingu eftir sjúkdómsáfall Laxeldið á Austfjörðum er að ná vopnum sínum á ný eftir alvarlegan veirusjúkdóm sem stöðvar alla landvinnslu á Djúpavogi. Byrjað er að setja út fisk að nýju í eldiskvíar og búið að kaupa tvo öfluga fóðurpramma. 18.7.2022 22:44
Hlutabréfaverð Símans lækkað mikið eftir tíðindi gærdagsins Gengi hlutabréfa Símans lækkaði um 8,3 prósent í dag eftir að tilkynnt var um það í gær að Ardian France SA væri ekki tilbúið til að ganga frá kaupum á Mílu. 18.7.2022 20:46
Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu Vegagerðin og Ístak hafa skrifað undir 6,3 milljarða króna verksamning um gerð nýs vegar þvert yfir Hornafjörð, sem styttir hringveginn um tólf kílómetra. Samningurinn markar tímamót því hann er sá fyrsti á grundvelli laga um samvinnuverkefni, en í því felst einkafjármögnun og að vegfarendur greiði vegtoll. 18.7.2022 18:51
Telur söluna á Mílu jákvæða fyrir samkeppni á fjarskiptamarkaði Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu eru í uppnámi, en félagið er ekki reiðubúið að ljúka viðskiptum sínum við Símann, eiganda Mílu, vegna skilyrða Samkeppniseftirlitsins. Forstjóri Símans segir helstu áhyggjur eftirlitsins snúa að viðskiptasambandi Símans og Mílu eftir söluna. 18.7.2022 13:36
Fjallaböðin á lokastigi hönnunar Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum. 18.7.2022 13:22
Ardian ekki reiðubúið að ljúka við kaupin á Mílu Í tilkynningu Símans til kauphallarinnar í gær kemur fram að Ardian France SA sé ekki reiðubúið til þess að ljúka við kaupin á Mílu ehf. 18.7.2022 07:13
Hið opinbera hefði þurft að stíga inn á byggingamarkað fyrir áratug Doktor í hagfræði segir að ekki sé tilefni til að hið opinbera stígi inn á húsnæðismarkað á meðan einkaðilar byggja nóg. Hins vegar hefði það mátt stíga inn fyrir tíu árum þegar lítið var byggt. 17.7.2022 11:49
Telur að smærri útgerðir sameinist þeim stóru á næstu árum vegna íþyngjandi veiðigjalda Hagfræðingur telur að á næstu árum muni smærri útgerðir sameinast þeim stærri vegna veiðigjalda sem þær ráði ekki við. Samkvæmt nýjum tölum frá Fiskistofu á Samherji nú aðild að fjórðungi heildarveiðiheimilda landsins eftir sameiningu Vísis í Grindavík við Síldarvinnsluna 15.7.2022 19:31
Ekki skrítið að lögin séu óbreytt þegar „útgerðarmenn eru með stjórnmálamennina í vasanum“ Samkvæmt endanlegum útreikningum Fiskistofu á Samherji aðild að fjórðungi af heildarkvóta þjóðarinnar. Varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis segir Sjálfstæðisflokkinn ekki vilja breyta lögum um kvóta enda hafi útgerðarfélögin stutt við kosningabaráttur flokksins í gegn um árin. 15.7.2022 12:10
Vonast til að auglýsa stöðu forstjóra Festar innan nokkurra vikna Nýkjörin stjórn Festar ráðgerir að auglýsa stöðu forstjóra félagsins á næstu vikum. Mikil ólga hefur verið innan félagsins eftir að eftir að Eggerti Þór Kristóferssyni forstjóra var sagt upp störfum í júní. 14.7.2022 19:25
Guðjón heldur formannsstólnum og Sigurlína er varaformaður Guðjón Karl Reynisson hélt sæti sínu sem stjórnarformaður Festi og Sigurlína Ingvarsdóttir var kosin varaformaður á fyrsta fundi nýrrar stjórnar félagsins. Sigurlína kom ný inn í stjórnina að lokinni kosningu á hluthafafundi í morgun. 14.7.2022 15:32
Tveir stjórnarmenn héldu sætum sínum Aðeins Guðjón Reynisson og Margrét Guðmundsdóttir héldu sætum sínum í stjórn Festi þegar kosið var til stjórnar í morgun. Þrír nýjir stjórnarmenn koma inn. 14.7.2022 12:51
Búist við að hluthafafundur Festi dragist á langinn Búist er við því að hluthafafundir smásölurisans Festi verði langur þrátt fyrir að aðeins eitt mál sé á dagskrá, stjórnarkjör. 14.7.2022 11:03
Ósamræmi í lögum því sjávarútvegur sker sig frá öðrum greinum Fiskistofustjóri segir ósamræmi í löggjöf milli atvinnugreina um skilgreiningu á tengdum aðilum. Fyrirtæki teljast ráðandi aðilar með mun lægra eignarhlutfall í flestum öðrum greinum en í sjávarútvegi. 13.7.2022 19:08
Ná þurfi verðbólguvæntingum niður til að stuðla að lægri verðbólgu Verðbólga kemur til með að hækka um nærri hálft prósentustig milli mánaða gangi spár eftir. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir húsnæðismál vega þyngst, þó merki séu um viðsnúning á fasteignamarkaði. Háar verðbólguvæntingar heimila og fyrirtækja valdi ákveðnum áhyggjum. 13.7.2022 18:13
Nova og Sýn samnýta 5G senda Forsvarsmenn Nova hf. og Sýnar hf. skrifuðu í dag undir samning um samstarf félaganna við uppbyggingu og samnýtingu sendastaða vegna 5G uppbyggingar. Það felur í sér uppbyggingu og samnýtingu á tvö hundruð 5G sendum á samningstímanum en hann gildi til loka ársins 2028. 13.7.2022 16:18
Þýskt flugfélag hefur flug til Akureyrar og Egilsstaða 2023 Þýska flugfélagið Condor mun hefja áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða og verður flogið frá maí til loka október. Flug hefst sumarið 2023. 13.7.2022 10:48
Spá rúmlega níu prósent verðbólgu í júli Hagsjá Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um hálft prósent milli júní og júlí. Gangi sú spá eftir fari ársverðbólga upp í 9,2 prósent, en hún mældist 8,8 prósent í júní. Talið er að verðbólga fari hæst í 9,5 prósent í ágúst áður en hún lækkar aftur. 13.7.2022 09:38
Carbfix hlýtur sextán milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu Íslenska kolefnisbindingarfyrirtækið Carbfix hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu til uppbyggingar á móttöku- og förgunarmiðstöðinni Coda Terminal sem á að rísa í Straumsvík. Styrkurinn er sá stærsti sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið úr sjóðum sambandsins og nemur 16 milljörðum króna. 13.7.2022 08:56
Salmonella í karrý kryddi Matvælastofnun (MAST) hefur varað við neyslu á einni framleiðslulotu af Karríi Hot madras curry sem Lagsmaður ehf. flytur inn vegna gruns um salmonellusmit. 12.7.2022 17:27
Kormákur & Skjöldur og Epal opna í Leifsstöð Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar og hönnunarverslunin Epal opnuðu í dag nýja verslun í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli. Verslunin verður í sama rými og verslun Eymundssonar var áður. 12.7.2022 16:07
Rebekka og Karen til liðs við Hér & Nú Rebekka Líf Albertsdóttir og Karen Sigurlaugsdóttir hafa slegist í hóp starfsmanna Hér & Nú, samskiptastofu. Gengið var frá ráðningu þeirra fyrir skemmstu. Rebekka Líf bætist í teymi grafískra hönnuða fyrirtækisins og Karen mun gegna nýrri stöðu birtingaráðgjafa. 12.7.2022 13:24
Aðgerðir Seðlabankans farnar að bíta og óverðtryggð lán áfram hagstæðari Merki eru um viðsnúning á fasteignamarkaði þar sem aðgerðir Seðlabankans undanfarna tvo mánuði virðast farnar að bíta fast að sögn hagfræðings hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun. Aðgengi að lánsfé hefur verið takmarkað verulega og má áætla að óverðtryggð lán verði áfram hagstæðari. Líklegast muni þróunin enda með hóflegum verðhækkunum en ólíklegt að íbúðaverð lækki. 12.7.2022 13:01
Kortavelta erlendra ferðamanna aldrei meiri Kortavelta erlendra ferðamanna hér á landi var 28,3 milljarðar króna í júní. Það er aukning um 27,4 prósent á milli ára og hefur veltan aldrei mælst hærri í júnímánuði frá því mælingar hófust árið 2012. 12.7.2022 11:10
Fljúga hlaðmönnum til Amsterdam vegna gríðarlega tafa Icelandair tekur nú hlaðmenn með í flug til Amsterdam, til þess að halda ferðum sínum til og frá borginni á áætlun. Langar raðir og tafir eru daglegt brauð á flugvellinum í borginni. Félagið hefur fellt niður fjórum sinnum fleiri ferðir en á sama tíma fyrir faraldurinn. 11.7.2022 20:02
Ólöglegt varnarefni í vanilluís frá Häagen-Dazs Matvælastofnun varar við neyslu á þremur framleiðslulotum af Häagen-Dazs vanilluís þar sem ólöglegt varnarefni hefur greinst í ísnum. 11.7.2022 17:15
Halldór þarf ekki að leggja fram tölvupósta og greinagerð Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alvogen og Alvotech, þarf ekki að verða við dómkröfu Björgólfs Thors um að leggja fram tugi tölvupósta, greinargerð og önnur dómsskjöl í máli Alvogen gegn Halldóri. Björgólfur stendur nú í málaferlum vegna falls Landsbankans árið 2008 og gerði kröfuna í tengslum við þau skaðabótamál. 11.7.2022 15:53
Guðný Arna frá Kviku til Össurar Guðný Arna Sveinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar og mun hefja störf í september. 11.7.2022 11:29
Þorskur úr plöntum á markað á næsta ári Frumkvöðlafyrirtækið Loki foods hyggst setja fiskflök sem hæfa plöntumiðuðu fæði á markað árið 2023. Fyrirtækið hefur hlotið 85 milljóna króna fjárfestingu frá hinum ýmsu fjárfestum. 10.7.2022 22:03
„Netverslun með áfengi er smásala áfengis“ Þingmaður Flokks fólksins segir vefverslun með áfengi vera skýrt brot á áfengislögum. Hann ræddi málið við þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem segist ekki deila þeirri skoðun með honum, í Sprengisandi í morgun. 10.7.2022 15:48
Afla meiri raforku úr Svartsengi þrátt fyrir óróann undir Þorbirni Ráðamenn HS Orku stefna að því að auka raforkuframleiðslu í Svartsengi um þrjátíu til fjörutíu megavött á næstu þremur árum, aðallega með endurnýjun vélbúnaðar. Þeir óttast ekki fjárfestingar svo nálægt óróafjallinu Þorbirni. 10.7.2022 06:50
Olís selur Mjöll Frigg Olís ehf., dótturfélag Haga hf. og Takk Hreinlæti ehf. undirrituðu í dag kaupsamning um kaup Takk Hreinlætis á öllu hlutafé Mjallar Friggjar. Kaupin eru gerð með fyrirvara um afstöðu Samkeppniseftirlitsins 8.7.2022 17:00
Innnes kaupir Arka Heilsuvörur Innnes ehf. hefur keypt innflutningsfyrirtækið Arka Heilsuvörur ehf.. Arka sem stofnað var árið 2002 hefur lagt áherslu á innfutning og dreifingu á heilsu- og lífstílsvörum. 8.7.2022 16:52
Atvinnulausum fækkað um þúsund milli mánaða Skráð atvinnuleysi var 3,3 prósent í júní og minnkaði úr 0,6 prósent frá því í maí. Að meðaltali fækkaði atvinnulausum því um 1.042 frá maímánuði. 8.7.2022 15:51
Krónan styrkist en ekki á móti Bandaríkjadal Íslenska krónan hefur styrkst það sem af er ári á móti gjaldmiðlum helstu viðskiptalanda okkar, að Bandaríkjadal undanskildum. Bandaríkjadalur hefur ekki verið sterkari á móti evru í 20 ár. 8.7.2022 10:53
Tilboð hefur borist í Laugar í Sælingsdal Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur borist tilboð í ferðaþjónustuþorpið Laugar í Sælingsdal. Þorpið hefur verið til sölu frá árinu 2016 og illa hefur gengið að selja það. 8.7.2022 10:41
Strandveiðisjómenn með 300 þúsund krónur á dag fá meiri kvóta frá Svandísi Svandís Svavarsdóttir, ráðherra sjávarútvegsmála, úthlutaði strandveiðisjómönnum 430 milljóna króna verðmætum í dag með því að auka þorskkvóta sumarsins um nærri ellefu hundruð tonn. Viðbótin dugar þó vart nema til að framlengja strandveiðarnar út þennan mánuð. 7.7.2022 21:44
Ríkið hagnist helst á heimsmarkaðshækkun olíuverðs Framkvæmdastjóri hjá Orkunni segir ríkið vera eina aðilann sem grætt hafi á hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu. Ríkið innheimti nú um tuttugu krónum meira á hvern lítra af bensíni en í byrjun janúar. Olíufélögin hafi lítið svigrúm til mikilla lækkana á bensínverði. 7.7.2022 18:56
Hægt að hoppa um allt höfuðborgarsvæðið í fyrsta skipti Fyrirtækið Hopp sem leigir út rafhlaupahjól hefur nú fært út kvíar sínar og opnað fyrir leigu í Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti. Þá stækkar fyrirtækið þjónustusvæði sitt annars staðar á höfuðborgarsvæðinu og því er hægt að keyra um á rafskútu frá fyrirtækinu á öllu höfuðborgarsvæðinu í fyrsta skipti. 7.7.2022 16:44
Sigurður Jökull ráðinn markaðsstjóri Faxaflóahafna Faxaflóahafnir sf. hafa ráðið Sigurð Jökul Ólafsson í stöðu markaðsstjóra og tók hann við starfinu þann 1. júlí síðastliðinn. 7.7.2022 16:25
Samkeppniseftirlitið hnýtir í Hörpu Samkeppniseftirlitið hefur beint tilmælum til Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúss, um að jafna stöðu fyrirtækja og tónleikahaldara sem eiga viðskipti við húsið. Helstu tilmælin felast í því að Harpa ætti að leyfa tónleikahöldurum að koma með eiginn búnað, hljóðkerfi og fleira, til að nota við tónleikahald í húsinu. 7.7.2022 13:03
Múgur og margmenni við opnun Elko og Krónunnar í Skeifunni Elko og Krónan opnuðu ný útibú í Mylluhúsinu í Skeifunni klukkan 9 í morgun. Áður en verslanirnar opnuðu var mikill fjöldi fólks mættur í röð fyrir utan Elko enda hundrað eintök af Playstation 5 til sölu í versluninni auk fjölda tilboða vegna opnunarinnar. 7.7.2022 10:55
Óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs Formaður FÍB óttast að græðgi hægi á lækkun eldsneytisverðs hér á landi. Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um 9,5 prósent í gær og aftur um rúm þrjú prósent í dag. Innlendar bensínstöðvar hafa flestar lækkað lítraverð sitt um tvær og hálfa krónu í dag. 6.7.2022 20:38