Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Advania kaupir Azzure IT Advania hefur fest kaup á breska fyrirtækinu Azzure IT sem sérhæfir sig í viðskiptakerfum Microsoft í skýinu. Með kaupunum bætast sextíu nýir sérfræðingar á því sviði í hóp Advania-samstæðunnar. 19.4.2022 10:48
Vilja leggja niður Bankasýsluna og ekki ráðist í frekari sölu á Íslandsbanka að sinni Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja það til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og innleitt verði nýtt fyrirkomulag til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. 19.4.2022 10:38
Ragnar frá Póstinum til Tix Ragnar Skúlason hefur verið ráðinn til að leiða hugbúnaðarþróun hjá Tix Ticketing. Hann kemur frá Póstinum þar sem hann var teymisstjóri hugbúnaðarþróunar í upplýsingatæknideild. Ragnar er með tuttugu ára reynslu og þekkingu af hugbúnaðargerð. 19.4.2022 10:20
Leitar eftir aðilum til að reisa, fjármagna og reka Ölfusárbrú Vegagerðin hefur hafið útboðsferli nýrrar Ölfusárbrúar í einkaframkvæmd með auglýsingu eftir upplýsingum um áhugasama bjóðendur. Leitað er eftir aðilum sem hafa áhuga á að semja við Vegagerðina, í kjölfar útboðs, um hönnun, framkvæmd, fjármögnun, rekstur og viðhald mannvirkjanna til allt að þrjátíu ára. 18.4.2022 07:57
Bestu íslensku auglýsingar síðasta árs verðlaunaðar Icelandverse auglýsingin sem náði athygli Mark Zuckerberg, Atlantsolíu söngurinn sem erfitt er að fá ekki á heilann og jólaauglýsingin frá Icelandair um flugmanninn sem mokaði flugvélina út í New York eru meðal þeirra auglýsinga sem voru valdar þær bestu í sínum flokki. 15.4.2022 07:01
Húsnæðisverð haldi áfram að hækka Gert er ráð fyrir því að húsnæðisverð muni halda áfram að hækka samkvæmt nýútkominni fjárhagsáætlun fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Frá upphafi árs 2020 hefur íbúðaverð á landsvísu hækkað um 29%. 14.4.2022 22:04
34 minnkað við sig og 60 birtast ekki á hluthafalista Alls hafa 34 fjárfestar sem keyptu í nýlegu útboði ríkisins á hlutum í Íslandsbanka minnkað eignarhlut sinn að hluta og selt á hærra verði, samkvæmt upplýsingum frá Bankasýslu ríkisins sem byggja á samanburði á hluthafalista Íslandsbanka og lista yfir þá sem fengu hlut í útboðinu. 14.4.2022 18:13
Bæta upp fyrir lokaða Vínbúð með heimsendingu áfengis Þeir sem sýndu ekki nauðsynlega fyrirhyggju í aðdraganda páska og keyptu vín geta reitt sig á þjónustu danskrar vefverslunar með áfengi , sem þó er alfarið með starfsemi á Íslandi. 14.4.2022 14:20
Hluti fagfjárfesta fékk lánað fyrir kaupum á hlutum í Íslandsbanka Hluti þeirra fagfjárfesta sem keyptu hlut í Íslandsbanka í síðasta hlutafjárútboði í bankanum fékk lán fyrir kaupunum. Þetta staðfestir Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins í samtali við fréttastofu. 13.4.2022 14:53
Siggi Gunnars nýr tónlistarstjóri Rásar 2 Sigurður Þorri Gunnarsson, betur þekktur sem Siggi Gunnars, hefur verið ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2. Siggi starfaði áður sem dagskrár- og tónlistarstjóri útvarpsstöðvarinnar K100. 13.4.2022 11:38
Musk stefnt vegna tafa á tilkynningu um Twitter-kaup Nokkrir fyrrverandi hluthafar í samfélagsmiðlinum Twitter hafa stefnt auðkýfingnum Elon Musk vegna tafa hans á að tilkynna um kaup hans á stórum hlut í fyrirtækinu. 13.4.2022 07:49
Arion ræður nýjan regluvörð og nýja forstöðumenn Arion banki hefur ráðið Andrés Fjeldsted í starf regluvarðar, Elísabetu Árnadóttur í starf forstöðumanns lítilla og meðalstórra fyrirtækja á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði og Hreiðar Má Hermannsson í starf forstoðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. 12.4.2022 12:44
Lilja nýr stöðvarstjóri Póstsins á Akureyri Lilja Gísladóttir hefur verið ráðin stöðvarstjóri Póstsins á Akureyri frá og með 1. maí. Lilja hefur starfað hjá Póstinum frá árinu 2002, fyrst sem þjónustufulltrúi og síðar sem þjónustustjóri. 12.4.2022 11:19
Spá 7,7 prósenta verðbólgutoppi í sumar Íslandsbanki spáir því að verðbólga muni aukast á næstu mánuðum og ná toppi í sumar. 12.4.2022 10:56
Verklag söluráðgjafanna til skoðunar hjá fjármálaeftirliti Verklag söluráðgjafanna sem fengnir voru til að annast söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka er nú til skoðunar hjá fjármálaeftirliti Seðlabankans. 12.4.2022 07:08
Sólveig ráðin framkvæmdarstjóri Saga Natura Sólveig Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins Saga Natura og tekur hún við starfinu af Lilju Kjalarsdóttur sem tekur við nýrri stöðu hjá lyfjafyrirtækinu Alvotech. 11.4.2022 15:02
Skógarböðin opna ekki fyrr en allt er klárt Það styttist í að Skógarböðin við Akureyri verði tekin í gagnið eftir miklar framkvæmdir í vetur. Búið er að prufukeyra böðin sem verða þó ekki opnuð fyrr en allt er klárt. Eigendurnir vilja ekki gefa upp nákvæma dagsetningu á opnun. 11.4.2022 15:01
Verð hlutabréfa í Íslandsbanka lágt þegar umdeild salan fór fram Björn Leví Gunnarsson alþingismaður segir að þegar hlutur ríkisins í Íslandsbanka var seldur hafi verð á hlutabréfum verið lágt. Hann telur ekki úr vegi að um markaðsmisnotkun ofan á annað hafi verið í kortunum. 11.4.2022 13:17
Skipta ORF Líftækni upp í tvö félög ORF Líftækni hefur verið skipt upp í tvö aðskilin fyrirtæki; ORF Líftækni og svo BIOEFFECT Holding ehf. Þetta var samþykkt einróma af hluthöfum á aðalfundi félagsins sem fram fór fyrir helgi. Liv Bergþórsdóttir forstjóri mun starfa áfram sem forstjóri beggja félaga en verður síðan forstjóri BIOEFFECT. 11.4.2022 12:55
Sólrún ráðin framkvæmdastýra Veitna Stjórn Veitna hefur ráðið Sólrúnu Kristjánsdóttur í starf framkvæmdastýru Veitna og tekur hún formlega við starfinu 1. maí næstkomandi. 11.4.2022 12:34
Fimmti fjölmennasti marsmánuðurinn Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 101 þúsund í nýliðnum marsmánuði. Í sögulegu samhengi þá er um að ræða fimmta fjölmennasta marsmánuðinn frá því mælingar hófust. 11.4.2022 11:36
Jón Fannar nýr forstjóri Nanitor Jón Fannar Karlsson Taylor hefur verið ráðinn sem forstjóri íslenska netöryggisfyrirtækisins Nanitor. 11.4.2022 09:00
Fyrirspurnir hrannast inn vegna íbúða sem verða til eftir tvö ár Vonast er til að þess byggingarframkvæmdir við Austurbrú á Akureyri verði til þess að framlengja miðbæjarsvæði bæjarins í átt að Samkomuhúsinu. 10.4.2022 21:01
Kröfur upp á milljarð í þrotabú Capital Hotels Alls námu lýstar kröfur í þrotabú CapitalHotels ehf. rétt tæplega milljarði króna. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu en búið var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur þann 8. júlí árið 2020. 8.4.2022 13:21
Segir föður sinn hafa keypt í trássi við sína ósk Fjármála- og efnahagsráðherra kveðst hafa beðið sitt nánasta fólk um að taka ekki þátt í útboðinu á Íslandsbanka á síðasta ári. Það hafi ekki hvarflað að sér að faðir sinn myndi samt gera það. 8.4.2022 12:31
Matthías í Hatara til Brandenburg Matthías Tryggvi Haraldsson hefur verið ráðinn sem texta- og hugmyndasmiður á auglýsingastofunni Brandenburg. 8.4.2022 11:19
Stöðva framleiðslu á Ísey skyri í Rússlandi Ísey útflutningur ehf. hefur rift leyfissamningi sínum við rússneska félagið IcePro um framleiðslu og dreifingu á skyri undir merkjum ISEY-skyr fyrir Rússlandsmarkað. Á sama tíma hefur Kaupfélag Skagfirðinga dregið sig úr eignarhaldi á félaginu IcePro. 8.4.2022 11:06
Sexfalt fleiri gistinætur á hótelum Ætla má að gistinætur á hótelum hafi verið um 307.000 talsins í marsmánuði og þar af hafi gistinætur Íslendinga verið um 73.000. Þetta má lesa úr nýjum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands en til samanburðar voru gistinætur á hótelum um 49.700 í mars 2021. 8.4.2022 10:37
Opna Bæjarins beztu við Hlemm og hressa upp á útlit 10-11 Bæjarins bestu pylsur hafa opnað stað inni í verslun 10-11 sem stendur á Laugavegi við Hlemm. Opnun staðarins í versluninni, auk nýs staðar Sbarro á sama stað, kemur á sama tíma og Orkan, sem rekur verslanir 10-11, hefur gert breytingar á útliti verslananna. 8.4.2022 10:28
Ingvar nýr framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma Ingvar Stefánsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma (KGRP) frá og með 1. maí næstkomandi. Hann tekur við starfinu af Þórsteini Ragnarssyni sem gengt hefur starfi forstjóra síðastliðin rúm 26 ár. 8.4.2022 09:59
Benedikt ráðinn teymisstjóri hjá Póstinum Benedikt Þorgilsson hefur verið ráðinn sem teymisstjóri hugbúnaðarþróunar í upplýsingatæknideild hjá Póstinum, og hefur þegar hafið störf. Hann mun hafa yfirumsjón með hugbúnaðarteymi Póstsins og leiða verkefni sem tengjast ytri kerfum. 8.4.2022 09:46
Einn fagfjárfesta segir bréfin hafa verið undirverðlögð Einn þeirra fjárfesta sem keyptu hlut ríkisins í Íslandsbanka á dögunum segir að bréfin hafi verið undirverðlögð. 8.4.2022 07:24
„Gæti verið óheppilegt að seljendur í útboðinu hafi líka keypt“ Góðkunningjar úr bankahruninu eru aftur komnir á kreik og keyptu nokkrir þeirra fyrir hundruð milljóna í útboði Íslandsbanka á dögunum. Starfsmenn og eigendur fyrirtækja sem sáu um sölu bankans í útboðinu keyptu einnig hluti. Formaður Bankasýslunnar segir það geta verið óheppilegt. 7.4.2022 18:58
Bein útsending: Fundur um innviði á Norðurlandi Samtök iðnaðarins, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Landsnet boða til opins fundar um innviði á Norðurlandi í Hofi á Akureyri milli klukkan 16 og 18. 7.4.2022 15:31
Eigendur og starfsmenn umsjónaraðila útboðs meðal kaupenda Eigandi helmingshlutar í Íslenskum verðbréfum sem sá meðal annars um að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka keypti fyrir tugi milljóna króna í bankanum. Starfsmaður verðbréfamiðlunar Íslandsbanka sem var líka umsjónaraðili útboðsins keypti hlut en er ekki talinn innherji að mati stjórnenda bankans. 7.4.2022 12:24
Akureyrarbær skilaði óvæntum 752 milljóna afgangi Rekstur Akureyrarbæjar gekk mun betur á síðasta ári en áætlanir gerðu ráð fyrir og var samstæða bæjarins rekin með 752 milljóna króna afgangi. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 1.184 milljarða króna tapi. 7.4.2022 12:16
Fyrst sendir í leyfi og nú sagt upp störfum Jóni Ingvari Pálssyni, forstjóra Innheimtustofnunar sveitarfélaga, og Braga Axelssyni, forstöðumanni stofnunarinnar á Ísafirði, hefur verið sagt upp störfum. Uppsagnirnar koma í kjölfar þess að þeir voru sendir í leyfi en Ríkisendurskoðun hóf úttekt á verkefnum Innheimtustofnunar síðastliðið haust. 7.4.2022 12:14
Eigandi Nýju vínbúðarinnar dæmdur fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar, hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik í tengslum við rekstur þriggja einkahlutafélaga. 7.4.2022 11:41
Fá milljónir frá ríkinu vegna ofrukkunar á eftirlitsgjaldi á raftæki Landsréttur hefur dæmt íslenska ríkið til að endurgreiða ELKO tæpar nítján milljónir króna, auk vaxta og dráttarvaxta, vegna of hárrar skattainnheimtu vegna sérstaks eftirlitsgjalds á raftæki þar sem ekki hafði verið sýnt fram á eftirlitsvinna hafi verið í samræmi við gjöld. 7.4.2022 10:34
Hluthafar Íslandsbanka koma úr ólíkum áttum Björn Bragi Arnarson, sjónvarpsmaður og grínisti, er á meðal þeirra fjárfesta sem fengu boð um að kaupa í Íslandsbanka. Björn Bragi keypti fyrir sautján og hálfa milljón króna í Íslandsbanka í gegnum félag sitt Bananalýðveldið. Hann er einn af fjölmörgum sem keyptu hlut í bankanum í nýafstöðunu útboði. 7.4.2022 10:06
Ásgeir nýr forstjóri SKEL og Iða Brá tekur við sem aðstoðarbankastjóri Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason lætur af störfum sem aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs Arion banka og tekur við sem nýr forstjóri SKEL fjárfestingarfélags, sem áður hét Skeljungur. 7.4.2022 09:25
Ferðamenn byrjaðir að streyma til landsins og bílaleigur hafa vart undan Bílaleigur hafa vart undan við að bæta í bílaflotann nú þegar ferðamönnum hefur fjölgað eftir afléttingar sóttvarnaaðgerða. Þá eru hótelbókanir komnar yfir sjötíu prósent í sumar. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar spáir góði sumri og að fjöldi ferðamanna verði aftur kominn í hátt í tvær milljónir á næstu tveimur árum. 6.4.2022 21:21
Á níunda hundrað viðburða í Hörpu í fyrra Alls voru 867 viðburðir haldnir í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í fyrra þrátt fyrir heimsfaraldur kórónuveiru. Tekjutap samstæðunnar nam 162,2 milljónum króna, um 20 milljónum minna en árið á undan. 6.4.2022 20:56
Faðir fjármálaráðherra einn fjárfesta sem keypti í Íslandsbanka Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra, er einn þeirra sem keypti hlut í Íslandsbanka þann 22. mars síðastliðinn. 6.4.2022 17:55
Ólíklegt að Bjarni fái upplýsingar frá Bankasýslunni Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir ekkert því til fyrirstöðu af sinni hálfu að gefa upp hverjir keyptu hlut í Íslandsbanka á afslætti. Ef lög standi ekki í vegi fyrir birtingu. Lárus Blöndal stjórnarformaður Bankasýslunnar slær þá hugmynd hins vegar út af borðinu. 6.4.2022 15:22