Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr banki hefur störf Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur í dag störf í kjölfar þess að bankinn fékk í liðinni viku fullt fjárfestingarbankaleyfi Fjármálaeftirlitsins. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson forstjóri Saga Capital lofar gott samstarf við Fjármálaeftirlitið og segir kraftaverki líkast hversu hratt hafi gengið að ganga frá leyfinu. Í dag eru sléttir sjö mánuðir frá tilkynningu um stofnun bankans og um fimm mánuðir frá því lögð var inn umsókn um fjárfestingarbankaleyfi. 4.5.2007 06:00
Raunveruleg stórðiðja Fjárfestar tóku afkomutölum frá Landsbankanum fagnandi í gær og hækkuðu bréfin um 1,58 prósent. Hagnaður bankans fyrir skatta var um 15,5 milljarður króna fyrir fyrsta ársfjórðung. Þegar þetta er sett í samhengi við aðrar stærðir má taka eftirfarandi dæmi: Hagnaður á þremur mánuðum var sambærilegur og heildarvelta Norðuráls og Ölgerðar Egils Skallagrímssonar allt árið 2006. 4.5.2007 05:45
Innlánsvöxtur gjörbyltir fjármögnun Landsbankinn hagnaðist um 13.760 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi og dróst hagnaður bankans saman um fjögur prósent á milli ára. Samdráttur hagnaðar skýrist af lægri gengishagnaði. Arðsemi eigin fjár var 45,2 prósent á ársgrundvelli. 4.5.2007 05:30
Actavis kaupir ekki Merck Actavis hefur dregið sig út úr slagnum um samheitalyfjahluta lyfjafyrirtækisins Merck og verður því ekki í bráð þriðja stærsta fyrirtæki heims á sviði samheitalyfja. „Það var ekkert virði í þessu fyrir okkur lengur,“ segir Róbert Wessman forstjóri Actavis. 4.5.2007 05:00
Bakkavör kaupir franskan salatframleiðanda Bakkavör Group hefur keypt franska salatframleiðandann 4G sem sérhæfir sig í framleiðslu á ferskum, tilbúnum salötum fyrir franskan markað. Í fréttatilkynningu frá Bakkavör er haft eftir forstjóra félagsins, Ágústi Guðmundssyni, að félagið falli vel að fyrirtækjum sem fyrir eru í eigu samstæðunnar. 4.5.2007 05:00
Högnuðust yfir 47 milljarða Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans, og Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka nam samanlagt 47,1 milljarði króna á fyrsta ársfjórðungi. Þetta er nokkuð lægri heildartala en á sama ársfjórðungi í fyrra en þá var hagnaður bankanna fjögurra alls um 60,5 milljarðar króna. 4.5.2007 00:15
Fæðumst við með hitaeinangrun sem við missum síðan með aldrinum? Tvær gerðir fituvefs er að finna í spendýrum. Önnur er betur þekkt enda mun fyrirferðarmeiri, hún nefnist ljós fita. Ljósa fitan kemur við sögu í orkuefnaskiptum líkamans og er bæði notuð sem orkuefni og geymd sem orkuforði líkamans. Enn fremur veitir hún hitaeinangrun og er höggdeyfir. 3.5.2007 15:27
Högnuðust samanlagt um 47 milljarða Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans, og Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka nam samanlagt 47,1 milljarði króna á fyrsta ársfjórðungi. 3.5.2007 15:23
Saga Capital fær fjárfestingarbankaleyfi Saga Capital Fjárfestingarbanki hlaut í liðinni viku fullt fjárfestingarbankaleyfi Fjármálaeftirlitsins. Lokuðu hlutafjárútboði, sem félagið efndi til í ársbyrjun, er nú lokið og er eigið fé Saga Capital nú 10 milljarðar króna. Bankinn hefur formlega starfsemi á morgun. 3.5.2007 15:15
Actavis kaupir ekki samheitalyfjasvið Merck Actavis er hætt við að reyna að kaupa samheitalyfjasvið þýska lyfjarisans Merck. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Actavis kemur fram að Actavis hafi gert ítarlega áreiðanleikakönnun á Merck og skilgreint fjölmörg áhugaverð samlegðartækifæri með félögunum. 3.5.2007 10:11
Þriðja mesta verðbólgan á Íslandi Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,6 prósent á milli mánaða innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í mars. Þetta jafngildir því að verðbólga mælist 2,4 prósent á ársgrundvelli í mánuðinum sem er 0,3 prósentustiga lækkun frá sama tíma í fyrra. Verðbólga var óbreytt á evrusvæðinu á sama tíma. Ísland situr í þriðja sæti yfir þau lönd þar sem mesta verðbólgan mælist. 3.5.2007 10:00
Vísitala neysluverð hækkaði um 5,3 prósent milli ára Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3 prósent frá apríl í fyrra til síðasta mánaðar, samkvæmt Hagstofu Íslands. Dregið hefur úr verðbólgu síðustu tvo mánuði, aðallega vegna lækkunar virðisaukaskatts og afnáms vörugjalda í byrjun marsmánaðar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,2 prósent, að sögn Hagstofunnar. 3.5.2007 09:00
Hagnaður Landsbankans 13,8 milljarðar Hagnaður Landsbankans var 13,8 milljarðar króna eftir skatta á fyrsta fjórðungi ársins. Hann var 14,3 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Bankastjórar segjast í fréttatilkynningu vera ánægðir með niðurstöðuna og segja hana endurspegla sterka stöðu Landsbankans. 3.5.2007 07:57
BTC í Búlgaríu selt á 160 milljarða króna Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hagnast um 60 milljarða króna við söluna á BTC til bandarísks fjármálafyrirtækis. Hlutur annarra íslenskra fjárfesta er nálægt 6 milljörðum. Ávöxtun fjárfestanna er nálægt því fimmföld. 3.5.2007 06:45
Álag eykst á Glitnisbréf Fimm punkta hækkun á skuldatryggingarálag (CDS) á fimm ára skuldabréf Glitnis í kjölfar forstjóraskipta gekk til baka að hluta í gær. Í lok dags stóð hækkunin eftir breytingar í tveimur punktum. 3.5.2007 06:00
Gerðu með sér samstarf án heimildar frá FME Með ákvörðun FME um takmörkun atkvæðisréttar FL Group og tengdra aðila í Glitni er verið að skora á þá að sækja um heimild fyrir auknum virkum eignarhlut. Um 45% hlutafjár eru í höndum FL og tengdra aðila. 3.5.2007 05:30
VBS og FSP renna saman Hluthafar í VBS fjárfestingarbanka og FSP samþykktu samruna félaganna á hluthafafundum í byrjun vikunnar. Samruninn er háður samþykki FME. Félögin sameinast undir merkjum VBS og verður eigið fé hins nýja banka um 6,1 milljarður króna. Bankinn er metinn á tíu milljarða króna miðað við viðskipti með bréf hans. 3.5.2007 05:15
Norrænir markaðir í sögulegu hámarki Norrænar hlutabréfavísitölur eru nú um stundir í sögulegu hámarki eftir góð uppgjör fyrirtækja á Norðurlöndunum á fyrsta ársfjórðungi. Greiningardeild Landsbankans segir engin merki um að hægjast muni á heimsmarkaði og gerir ráð fyrir áframhaldandi góðum árangri. 2.5.2007 16:18
TM fær styrkleikamatið BBB hjá S&P Tryggingamiðstöðin hf. (TM) hefur fengið styrkleikamatið BBB hjá matsfyrirtækinu Standard & Poor’s (S&P). TM er fyrsta íslenska tryggingafélagið sem fær styrkleikamat hjá alþjóðlegu matsfyrirtæki. Í rökstuðningi segir að matið endurspegli fjárhagslegan styrk tryggingafélagsins og sterka samkeppnisstöðu. 2.5.2007 15:43
Metvelta í OMX-kauphöllinni Metvelta var í hlutabréfaviðskiptum hjá OMX-kauphallarsamstæðunni á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum í síðasta mánuði en meðalveltan nam 507,1 milljarði króna á dag. Veltumet var slegið 26. apríl síðastliðinn þegar viðskiptin námu 795,5 milljörðum króna og sló það fyrra metið sem var sett í lok febrúar. 2.5.2007 13:48
Samruni VBS og FSP samþykktur Samþykkt var á aðalfundum VBS fjárfestingarbanka hf. og FSP hf. (Fjárfestingafélag Sparisjóðanna) á mánudag að sameina félögin undir nafni VBS fjárfestingarbanka hf. Samruninn er með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlits. Eigið fé hins sameinaða félags nemur tæpum 6,1 milljarði króna. 2.5.2007 10:35
Bjarni fékk 6,8 milljarða fyrir Glitnis-bréfin Glitnir hefur keypt öll bréf Bjarna Ármannssonar, fráfarandi forstjóra bankans fyrir 29 krónur á hlut. Kaupvirði nemur rúmum 6,8 milljörðum króna. Á sama tíma fékk Lárus Welding, sem tekur við forstjórastólnum af Bjarna, kaupréttarsamning fyrir 150 milljón hlutum í bankanum á genginu 26,6 krónur á hlut, eða rétt tæpa 4 milljarða króna. 2.5.2007 09:29
Tap Össurar 184 milljónir króna Stoðtækjafyrirtækið Össur skilaði 2,7 milljóna dala tapi á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það jafngildir 184 milljóna króna tapi á tímabilinu samanborið við tap upp á 571 þúsund dali, 36,6 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Tekjur voru í takt við væntingar greiningardeilda viðskiptabankanna. 2.5.2007 09:06
Fjármálaþjónustan drífur efnahagslífið Seðlabanki Íslands segir viðnámsþrótt bankanna hafa aukist frá því fyrir ári síðan um leið og þeir hafi tryggt fjármögnun sína. Óli Kristján Ármannsson fjallar um nýtt rit bankans um fjármálastöðugleika og væntingar Samtaka fjármálafyrirtækja um næstu skref til að tryggja geiranum sem vænlegast starfsumhverfi hér. 2.5.2007 06:00
Spá 4,3% verðbólgu Hagstofa Íslands birtir verðbólgutölur í fyrramálið. Greiningardeildir bankanna eru nokkuð samstíga um þróun mála og gera ráð fyrir því að vísitala neysluverðs hækki allt frá 0,5 til 0,6 prósentustig á milli mánaða. Gangi það eftir lækkar tólf mánaða verðbólgan úr 5,3 prósentum nú í 4,3 til 4,4 prósent. 2.5.2007 00:01
Stærsta samfélagsverkefnið hingað til Í tilefni af sextíu ára afmæli RARIK tekur félagið nú þátt í stærsta samfélagsverkefni sínu hingað til. Stjórn þess hefur ákveðið að lagðar verði tuttugu milljónir króna í fyrirtækið Orkuvörð. Munu þær nýtast til stofnunar orkuskóla á Akureyri. 2.5.2007 00:01
Breskir millar aldrei fleiri Forsætisráðherratíð Tonys Blair í Bretlandi hefur verið sannkölluð blómatíð fyrir moldríka þar í landi. Skoska dagblaðið Scotsman greinir frá könnun sem sýnir að í Bretlandi hafi fjöldi milljarðamæringa (í pundum talið) þrefaldast á síðustu fjórum árum. 2.5.2007 00:01
Ætlum okkur góða hluti í Kanada Landsbankinn opnaði fyrir helgi viðskiptaskrifstofu í Winnipeg í Manitoba. Stefnt er að stofnun útibús í borginni innan skamms. Bergsteinn Sigurðsson hitti Björgólf Guðmundsson að máli í Winnipeg. 2.5.2007 00:01
OpenHand með herferð í Bretlandi Hugbúnaðarfyrirtækið OpenHand hyggur á mikla markaðsherferð í Bretlandi þar sem byggt verður á samstarfi og stuðningi við endursölunet fyrirtækisins þar. Fyrirtækið hefur að bjóða sérsniðnar samskiptalausnir fyrir farsíma. 2.5.2007 00:01
Hörð barátta á netinu Tæknigaukar í Bandaríkjunum eru sagðir hafa rekið upp stór augu þegar netfyrirtækið Yahoo keypti 80 prósenta hlut í litlu netfyrirtæki í New York, Right Media, sem sérhæfir sig í gerð netauglýsinga og markaðssetningu á netinu, fyrir litlar 680 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 43,8 milljarða íslenskra króna. 2.5.2007 00:01
Karatekempa í sigurliðið Eins og allir vita eru langhlaup talin til mestu dyggða hjá starfsmönnum Glitnis og bankinn verið meðal styrktaraðila Reykjavíkurmaraþons auk maraþonhlaupa í stórborgunum Osló í Noregi og Lundúnum í Bretlandi. 2.5.2007 00:01
Páll Á. Jónsson var ráðinn framkvæmdastjóri Mílu ehf. Páll Á. Jónsson var ráðinn framkvæmdastjóri Mílu ehf. Páll hefur gegnt mörgum störfum hjá Símanum. Hann var framkvæmdastjóri Fjarskiptanets Símans frá árinu 2005 til dagsins í dag. 2.5.2007 00:01
Bjarni til liðs við Kalla? Nú velta menn því fyrir sér hver næsti áningarstaður Bjarna Ármannssonar kunni að vera, enda býst enginn við því að hann setjist í helgan stein, aðeins 39 ára gamall. 2.5.2007 00:01
Brautryðjandi hverfur á braut Brotthvarf Bjarna Ármannssonar kom ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti en verður að teljast áfall fyrir Glitni. Nýir stjórnendur boða engar breytingar á starfsemi bankans þótt ætla megi að róðurinn verði hertur í Bretlandi. FME hefur takmarkað atkvæðisrétt stærstu eiganda í Glitni. 2.5.2007 00:01
Penninn í útrás í Eystrasalti Penninn hefur keypt allt hlutafé í rekstrarvörukeðjunni Daily Service sem starfar í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Penninn hefur verið að sækja inn á markaði í kringum Eystrasalt. 2.5.2007 00:01
Jarðboranir festa kaup á nýjum borum fyrir sex milljarða Jarðboranir hf. undirrituðu í dag samning við þýska fyrirtækið Herrenknecht Vertical um kaup á stórborum sem sérstaklega eru hannaðir til að afla jarðhita á miklu dýpi. Heildarvirði samningsins er um 6 milljarðar króna en kaupin eru liður í útrás fyrirtækisins á erlendan markað. 1.5.2007 16:40
Actavis sagt meðal bjóðenda Frestur til að skila inn bindandi tilboðum í samheitalyfjahluta þýska lyfjafyrirtækisins Merck rann út í gær. Erlendar fréttaveitur fullyrða að Actavis sé meðal fjögurra fyrirtækja sem skiluðu inn tilboðum. Forsvarsmenn Actavis kveðast ekki geta tjáð sig um viðræðurnar að svo stöddu. Þeir staðfesta hins vegar að enn sé áhugi fyrir hendi ef rétt verð gefst. 1.5.2007 09:26
Evra aldrei jafnhá gagnvart jeninu Gengi evru er í fyrsta sinn komið í methæðir gagnvart japanska jeninu á helstu fjármálamörkuðum. Gengi evrunnar hækkaði talsvert á markaði í síðustu í kjölfar vangavelta fjárfesta að evrópski seðlabankinn muni hækka stýrivexti á næstu mánuðum og fór hæst í 163,31 jen á móti hverri evru. 1.5.2007 09:15