Fleiri fréttir

Halldór gagnrýnir Seðlabankann

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gagnrýnir Seðlabankann harðlega fyrir að hækka stýrivexti og segist óttast að krónan styrkist enn frekar á kostnað útflutnings- og samkeppnisgreina. Halldór vill draga úr vægi húsnæðisverðs í vísitölunni en því er seðlabankastjóri ósammála.

Spron hækkar vexti um 0,25%

Í framhaldi af hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands sem tilkynnt var í dag, hefur SPRON ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra innlána og útlána um allt að 0,25%. Vaxtahækkunin tekur gildi 1. apríl næstmkomandi.

Áframhaldandi slagur í Keri

Slagur Ólafs Ólafssonar, aðaleiganda Kers, við sameigendur sína í félaginu heldur áfram. Stjórn Festingar sem á og rekur meðal annars fasteignir félaga í eigu Kers ákvað á fundi sínum að auka hlutafé og var nýja hlutaféð selt einkahlutafélagi í eigu framkvæmdastjóra félagsins.

Actavis kaupir tékkneskt fyrirtæki

Actavis hefur undirritað samning um kaup á tékkneska lyfjafyrirtækinu Pharma Avalanche, 30 manna fyrirtæki með höfuðstöðvar í Prag. Pharma Avalanche, sem var stofnað árið 2000, hefur aðallega lagt áherslu á sölu og markaðssetningu á samheitalyfjum í Tékklandi og Slóvakíu.

900 lóðir undir Úlfarsfelli

Alfreð Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir að með úthlutun um 900 lóða undir Úlfarsfelli verði vonandi slegið á hina miklu eftirspurn eftir lóðum á höfuðborgarsvæðinu.

Bann við dreifingu á Kristal Plús var óheimilt

Úrskurðarnefnd hollustuhátta- og mengunarmála hefur kveðið upp þann úrskurð að Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, UHR, hafi verið óheimilt að setja dreifingarbann á drykkinn Kristal Plús sem Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. setti á markað um áramót.Ölgerðin íhugar að krefjast skaðabóta vegna þessa.

Bensínið hækkar

Lítrinn af 95 oktana bensíni hefur hækkað um um það bil tvær krónur og 70 aura hjá stóru olíufélögunum og er ástæðan sögð þróun heimsmarkaðsverðs. Lítrinn kostar nú um 100 krónur og 30 aura í sjálfsafgreiðslutönkum en er sjö til tíu krónum dýrari með þjónustu. Lítrinn af dísilolíu hefur einnig hækkað um svipaða upphæð.

Nýtt viðskiptablað í burðarliðnum

Nýtt viðskiptablað lítur dagsins ljós á íslenska fjölmiðlamarkaðnum í næsta mánuði. Það verður gefið út undir merkjum 365 - prentmiðla, sem einnig reka DV og Fréttablaðið. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri fyrirtækisins, segir að blaðið verði gefið út vikulega undir ristjórn Hafliða Helgasonar sem verið hefur blaðamaður á Fréttablaðinu frá stofnun þess.

Áfram einungis karlar í stjórn

Fimm karlar voru endurkjörnir í stjórn Sparisjóðabankans á dögunum. Eina konan sem var í framboði komst ekki að þrátt fyrir áskoranir ráðherra um að reyna að jafna kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja.

Methagnaður hjá VÍS

Methagnaður varð af rekstri Vátryggingafélags Íslands í fyrra og fengu allir starfsmenn greiddar 175 þúsund krónur í kaupauka fyrir góðan árangur. Hagnaður eftir skatta varð tveir og hálfur milljarður króna, sem er tæplega sjötíu prósenta meiri hagnaður en árið áður. Tíu eigendur VÍS fá 650 milljónir króna í arð, en meðal eigenda eru Meiður, KB banki og bræðurnir í Bakkavör.

Sameiningartillaga samþykkt

Tillaga um sameiningu Mjólkurbús Flóamanna og Mjólkursamsölunnar í Reykjavík var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á félagsfundi í MBF í gærkvöldi, en hún hafði áður verið samþykkt í MS. Guðbrandur Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Útgerðarfélags Akureyringa, verður væntanlega forstjóri nýja fyrirtækisins, sem skipt verður í sex svið.

Ólafur og Pétur stofna Veröld

Ólafur Ragnarsson og Pétur Már Ólafsson, fyrrverandi útgefendur hjá Vöku-Helgafelli, hafa stofnað nýtt bókaforlag og ætla að setja fyrstu bækurnar á markað í haust. Forlagið heitir Veröld og segir í tilkynningu frá því að það sé þegar búið að tryggja sér útgáfurétt á ýmsum bókum sem vakið hafa athygli erlendis og einnig gengið frá samningum um íslenskar bækur.

Góð afkoma Flugstöðvarinnar

890 milljóna króna hagnaður varð á rekstri Flugstöðar Leifs Eiríkssonar eftir skatta í fyrra en árið á undan nam hagnaðurinn 547 milljónir króna. Fjölgun farþega, meiri fjármunamyndun og þróun gengis- og vaxtamála hafði mikil áhrif á rekstur félagsins á árinu. Heildartekjur félagsins fyrir árið 2004 námu um 5,8 milljörðum króna og jukust um tæp 28 prósent milli ára.

Svigrúm fyrir eitt álver í viðbót

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir svigrúm til að reisa eitt álver til viðbótar á Íslandi. Færri álfyrirtæki komist að en vilji. Hún segir að markaðssetning fyrir orkufrekan iðnað sé að skila sér. Talað sé um Ísland sem best varðveitta leyndarmál Evrópu.

Verðið lægst í Krónunni

Verð á matvörum var lægst í Krónunni í lang flestum tilvikum, samkvæmt verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ  sem gerð var á þriðjudag, en ekki var birt niðurstaða af verðkönnnun í Bónus. Að sögn ASÍ er það vegna þess að starfsmenn Bónuss hafi reynt að hafa óeðlileg áhrif á niðurstöður könnunarinnar.

Aukning um 158 þúsundir lestir

Botnfiskafli íslenskra skipa í febrúar á þessu ári var rúmlega 52 þúsund tonn miðað við tæplega 45 þúsund tonn í febrúar í fyrra. Heildaraflinn fyrstu tvo mánuði ársins er 158 þúsund lestum meiri en á sama tíma í fyrra, eða 533 þúsund tonn á móti 375 þúsund tonna heildarafla í janúar og febrúar 2004.

Gengi dollarans lækkaði um 0,5%

Gengi dollarans gagnvart krónunni lækkaði um hálft prósent á milli daga og var miðgengi Seðlabankans 58,45 krónur. Lækkun evrunnar var svipuð og var miðgengi hennar 78,19 krónur.

Laun almennra bankamanna há

Laun æðstu yfirmanna á almennum vinnumarkaði komast ekki nálægt launum almennra starfsmanna í bönkunum, samkvæmt könnunum Hagstofunnar og Morgunblaðsins.

Lyfjaverksmiðja reist á Húsavík

Norskir iðjuhöldar ætla að reisa verksmiðju á Húsavík í sumar. Hún á að framleiða hráefni til lyfjagerðar úr sjávarfangi. Sótt hefur verið um lyfjaleyfi í Svíþjóð og er ætlunin að koma lyfinu á markað víða í Evrópu.

900 milljóna hagnaður FLE

Tæplega 900 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eftir skatta í fyrra sem er u.þ.b. þrjátíu prósenta meiri hagnaður en árið þar áður. Að vísu voru tekjur af Íslenskum markaði í fyrsta sinn teknar inn í uppgjörið í fyrra en fyrir utan það var afkomubatinn samt umtalsverður.

Skuldabréf fyrir 28 milljarða

Alþjóðasvið Landsbankans hefur gengið frá útgáfu víkjandi skuldabréfa að fjárhæð 28 milljarðar króna, eða sem jafngildir 350 milljónum evra. Útgáfan skiptist í tvo flokka, 12 milljarðar króna (150 milljónir evra) undir eiginfjárþætti A, og 16 milljarða króna (200 milljónir evra) undir eiginfjárþætti B, og var beint að alþjóðlegum fagfjárfestum.

Gagnrýnir auglýsingar Olís

"Mér þykja þetta heldur einkennileg vinnubrögð hjá Olís að básúna slíkt þegar um gamla könnun er að ræða," segir Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann gagnrýnir auglýsingaherferð Olís þar sem fram kemur að mikil almenn ánægja sé hjá viðskiptavinum fyrirtækisins samkvæmt könnun Gallup.

Fiskafli eykst milli ára

Heildarafli íslenska fiskiskipaflotans í síðasta mánuði var 30 þúsund tonnum meiri en á sama tíma í fyrra. Veiddust þá tæp 270 þúsund tonn en aflinn í febrúar á þessu ári varð tæp 300 þúsund tonn. Samanlagt er aflinn fyrstu tvo mánuði þessa árs um 160 þúsund lestum meiri en í fyrra.

Ólafur nær yfirhöndinni í Keri

Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, hefur tryggt sér 56 prósenta hlut í Keri í gegnum eignarhaldsfélag sitt Kjalar. Seljandi er Vogun sem er í eigu Kristjáns Loftssonar og Árna Vilhjálmssonar. Ker er eignarhaldsfélag sem ræður för í Samskipum, olíufélaginu Essó og hefur ítök í KB banka.

Hækkun vaxta betri nú en síðar

Það kraumar í kötlum efnahagslífsins og nokkrir hitamælanna komnir á rautt. Spurningin um ofhitnun Íslandsvélarinnar var umfjöllunarefni morgunverðarfundar Verslunarráðs í gær. Vilhjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, taldi Seðlabankann hafa staðið sig vel í peningamálastjórninni, en taldi óþolinmæði hafa gætt við síðustu stýrivaxtahækkun bankans.

Kaup Íslandsbanka samþykkt

Íslandsbanka barst samþykki norska fjármálaráðuneytisins í gær fyrir kaupum á norska bankanum BNbank. Með samþykkinu hafa öll önnur skilyrði fyrir kaupum á BNbank, sem sett voru fram í tilboðinu, verið uppfyllt.

Dalurinn ekki ódýrari í 13 ár

Gengi bandaríkjadals fór undir 59 krónur í morgun og hefur hann ekki verið svo ódýr síðan árið 1992. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að helstu ástæður fyrir þessu gríðarháa gengi krónunnar séu mikill munur innlendra og erlendra vaxta og vaxandi innlend eftirspurn, m.a. vegna stóriðjuframkvæmda.

Milljarðar svart hjá veitingahúsum

Veltan í neðanjarðarhagkerfi veitingageirans nemur milljörðum króna. Formaður Matvís telur að 60-70 prósent starfsmanna á veitingastöðum við Laugaveginn vinni svart. Matvís ætlar í átak gegn svartri atvinnustarfsemi.

Bankarnir með fjórðung íbúðalána

Bankarnir hafa tekið til sín fjórðung allra íbúðalána síðan þeir hófu að bjóða upp á þau fyrir rúmu hálfu ári. Bankarnir lána nú að meðaltali 26 milljarða króna í hverjum mánuði en Íbúðalánasjóður fjóra og hálfan milljarð.

Tillögur á næstu dögum

Einkavæðingarnefnd vill ekki gefa upp hvenær endanleg tilhögun einkavæðingar Símans verður tilkynnt en Jón Sveinsson, formaður nefndarinnar, segir að það sé spurning um daga fremur en vikur hvenær endanlegar tillögur munu liggja fyrir. Jón vildi ekki staðfesta hvort að ráðgjafafyrirtækið

Útlit fyrir mjög erfitt ár

Útlit er fyrir að rekstur sjávarútvegsfyrirtækja verði mjög erfiður í ár, meðal annars sökum sterks gengis íslensku krónunnar. Gengi krónunnar hélt áfram að styrkjast í gær . Fram kom í Hálf-fimm fréttum KB banka í gær að raungengi gagnvart Bandaríkjadal hafi ekki verið lægra í þrettán ár og aðrir gjaldmiðlar hafa einnig lækkað hratt gagnvart krónunni.

Landsbankinn selur Og fjarskipti

Landsbankinn og Burðarás hafa selt hlut sinn í Og fjarskiptum, eiganda Og Vodafone og 365 fjölmiðlanna. Landsbankinn hefur átt langa samleið með fyrirtækinu frá kaupum í Íslandssíma fyrir um fimm árum síðan.

Kaupa flugfélagið Sterling

Eigendur Iceland Express hafa fest kaup á norræna lágfargjaldaflugfélaginu Sterling. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. Pálmi Haraldsson, annar aðaleigenda Iceland Express, segir í viðtali við blaðið að kaupverðið hafi verið um 5 milljarðar króna.

Óvíst með samruna félaganna

Pálmi Haraldsson, annar tveggja aðaleigenda lágfargjaldaflugfélagsins Iceland Express, segir að viðræður um kaup á norræna flugfélaginu Sterling hafi staðið yfir síðan á síðari hluta síðasta árs. Hann vill ekki tjá sig um hvort stefnt sé að samruna félaganna og segir uppsagnir ekki á döfinni til að hagræða í rekstri þeirra.

Hagvöxtur eykst milli ára

Hagvöxtur var 5,2 prósent í fyrra samkvæmt áætlun Hagstofunnar. Þetta er einu prósentustigi meiri hagvöxtur en árið 2003. Einkaneysla jókst hins vegar um 7,5 prósent og fjárfestingar um tæp 13 prósent sem leiddi til 70 milljarða króna viðskiptahalla.

Sjálfkjörið í stjórn SÍF

Sjálfkjörið er í stjórn Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda á aðalfundi félagsins á föstudag, en til stendur að fækka stjórnarmönnum úr sjö í fimm. Í tilkynningu frá SÍF kemur fram að Ólafur Ólafsson, núverandi stjórnarformaður, og stjórnarmennirnir Aðalsteinn Ingólfsson og Guðmundur Hjaltason bjóði sig áfram fram, en Hartmut M. Krämer, stjórnarmaður Kingfisher plc, Toupargel SA og Herlitz AG, og Nadine Deswasiere, framkvæmdastjóri hjá Nestlé í Frakklandi, koma væntanlega ný inn í stjórnina.

Vextir standa í stað

Vextir íbúðalánasjóðs munu að öllum líkindum ekki lækka, eins og greiningardeild Landsbankans spáði fyrir helgi. Í útboði Íbúðalánasjóðs á föstudag bárust tilboð að nafnvirði 19 milljarða króna. Ákveðið var að taka tilboðum í bréf að nafnvirði 11 milljarða, sem er einum milljarði meira en áætlað var. 

Mikill hagvöxtur

Að mati Hagstofunnar var 5,2 prósenta hagvöxtur í fyrra. Hagvöxturinn er því heldur meiri en gert hafði verið ráð fyrir en mikill vöxtur í einkaneyslu er helsti drifkraftur hagvaxtar.

Brynjólfur segir sig úr stjórnunum

Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, hefur sagt sig úr stjórnum Bakkavarar, Almenna lífeyrissjóðsins og Sindra hf. Hann segist, í tilkynningu sem hann sendi frá sér fyrir stundu, gera þetta með heildarhagsmuni Símans í huga og til þess að söluferli fyrirtækisins verði hafið yfir allan vafa.

800 milljóna hækkun hlutafjár

Bankaráð Landsbankans hefur ákveðið að hækka hlutafé bankans um 800 milljónir króna að nafnverði og selja til núverandi hluthafa bankans. Nýir hlutir verða boðnir hluthöfum bankans til kaups í samræmi við hlutafjáreign þeirra við lok viðskipta í dag.

25% íbúðalána hjá bönkunum

Fjórðungur íbúðalána er nú hjá bönkunum áætlar greiningardeild Landsbankans. Þetta er aukning frá því í janúar þegar bankarnir höfðu 19% markaðshlutdeild. Íbúðalánasjóður ætti þannig að vera með 62% lánanna og lífeyrissjóðir um 13%.

Krónan ekki sterkari í 12 ár

Íslenska krónan hefur ekki verið sterkari frá gengisfellingunni í júní árið 1993 að sögn Greiningardeildar Landsbankans. Hún styrktist um 0,7% í dag. Bandaríkjadalur kostar nú 58,6 krónur. Landsbankinn segir líklegt að styrkingu krónunnar síðustu daga megi rekja til aukins áhuga erlendra fjárfesta á íslenskum gjaldeyrismarkaði.

Sjá næstu 50 fréttir