Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Langur tími í afléttingu gjaldeyrishaftanna Langur tími mun líða þar til almenn aflétting gjaldeyrishafta verður að veruleika, og er vandséð að skriður komist á hana fyrr en talsvert er liðið á næsta ár. Ísland hefur nú í tæp 3 ár búið við strangari höft á fjármagnsflutninga en þekkist í nokkru öðru þróuðu ríki, og því miður er reynsla undanfarinna mánaða af fyrstu skrefum í afléttingu þeirra ekki til þess fallin að auka bjartsýni á að sú staða breytist umtalsvert í bráð. 24.8.2011 12:26
FME sektar MP banka um 15 milljónir Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lagt 15 milljóna kr. stjórnvaldssekt á EA fjárfestingarfélag hf., áður MP banka. Sektin er tilkomin vegna þess vegna þess að áhættuskuldbindingar fóru langt fram úr leyfilegum mörkum eða rúmlega 126% af eiginfjárgrunni. Leyfileg mörk eru 25%. 24.8.2011 12:08
Sjávarútvegsfrumvarp þýðir fjöldagjaldþrot Í umsögn sem borist hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis er bent á að verði sjávarútvegsfrumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum muni sjávarútvegsfyrirtækin gjaldfæra samstundis allar eignfærðar aflaheimildir. Þetta mun lækka eigið fé greinarinnar um 180 milljarða króna og leiða til fjöldagjaldþrota í greininni. Einnig hefur frumvarpið þau áhrif að lækka mögulegar skatttekjur ríkissjóðs um marga milljarða króna. 24.8.2011 10:15
Hættulegt efni í mörgum þekktum fatamerkjum Hættulegt efni sem veldur truflunum á hormónastarfsemi , fóstursköðum og ófrjósemi er að finna í fötum frá mörgum heimsþekktum fataframleiðendum. 24.8.2011 09:37
Eigendur danskra banka tapa 3.000 milljörðum Gengistap hluthafa í fimm stærstu bönkum Danmerkur frá áramótum nemur um 140 milljörðum danskra kr. eða ríflega 3.000 milljörðum kr. 24.8.2011 09:08
Seðlabankinn hækkar dráttarvexti Grunnur dráttarvaxta hækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans hinn 17. ágúst sl. Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,25 prósentur frá og með 1. september nk. og verða 11,50% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2011. 24.8.2011 08:29
Moody´s lækkar lánshæfismat Japans Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfiseinkunn Japans um eitt stig eða úr Aa2 og niður í Aa3. Horfur eru sagðar stöðugar. Samhliða þessu lækkaði Moody´s lánshæfiseinkunnir nokkurra stórra banka í Japan. 24.8.2011 08:12
Lánasjóður hagnast um hálfan milljarð Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga á fyrri helmingi ársins nam 519 milljónum króna miðað við 941 milljónir króna á sama tíma árið 2010 og var í samræmi við væntingar sjóðsins. Lækkun hagnaðar milli ára skýrist aðallega af gengisþróun evrunnar sem var sérstaklega hagstæð sjóðnum á árinu 2010. 24.8.2011 07:58
Lífleg viðskipti með atvinnuhúsnæði í júlí Í júlí var 107 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 25 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 2043 milljónir króna en 188 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. 24.8.2011 07:46
Er rekinn á undanþágu FME Sparisjóður Svarfdæla hefur ekki uppfyllt lögbundið lágmark um eigið fé sem Fjármálaeftirlitið hefur sett fjármálafyrirtækjum síðastliðin þrjú ár. Til stendur að selja hlut ríkisins í sparisjóðnum. Nýir eigendur þurfa að leggja honum til á bilinu 100 til 120 milljónir króna að lágmarki til að koma honum á réttan kjöl. 24.8.2011 05:00
Hörð átök innan Vinnslustöðvarinnar Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum (VSV) hefur sent fjölmiðlum tilkynningu vegna harðvítugra átaka innan félagsins en hluthafafundur fór fram í félaginu í gær. 23.8.2011 17:41
Seðlabankinn ryksugar gjaldeyri á markaðinum Seðlabankinn hefur ryksugað til sín stóran hluta þeirrar veltu sem hefur komið inn á millibankamarkað með gjaldeyri síðastliðið ár. 23.8.2011 15:10
Gengisáhrif koma hraðar fram í hækkun en lækkun vöruverðs Styrking krónunnar hefur minni áhrif til lækkunar á vöruverði heldur en veiking hennar hefur á hækkun á vöruverði. Þetta er meginniðurstaða rannsóknar sem Rannsóknasetur verslunarinnar gerði. 23.8.2011 14:20
Launahækkanir ekki í takt við aðstæður Sú hækkun sem orðið hefur á launum í kjölfar kjarasamninga er ekki í takti við þær aðstæður sem eru á vinnumarkaði hér á landi. Vinnumarkaði sem einkennist enn af töluverðu atvinnuleysi, auk þess sem fjárhagsleg staða og rekstrarumhverfi margra fyrirtækja er enn afar erfitt. 23.8.2011 12:30
Citigroup: Brent olían lækkar í 95 dollara Citigroup gaf út olíuspá í morgun þar sem Brent-olíunni var spáð verðlækkun niður í 95 dollara á tunnuna fyrir árslok og að meðalverð hennar myndi verða 86 dollarar á tunnu á næsta ári. 23.8.2011 12:16
Olíuverð hækkar að nýju Framganga stuðningsmanna Gaddafis í Líbíu síðastliðinn sólarhring olli því að olíuverð hækkaði á ný eftir að hafa hríðfallið í gær. Styrkur stuðningsmanna Gaddafis kom fjárfestum á óvart og kæfði vonir um að landið byrjaði fljótt að framleiða olíu aftur. "Það gætu verið nokkrir mánuðir í að olía flæði á ný frá Líbíu," sagði stjórnandi á fyrirtækinu Purvin og Gertz. 23.8.2011 11:08
Hagvöxtur eykst í Noregi Hagvöxtur í Noregi jókst þegar leið á sumarið, samkvæmt tölum frá Hagstofunni í Noregi sem norska blaðið e24 vísar til. Á öðrum ársfjórðungi jókst landsframleiðslan í Noregi um 1% ef tekið er tillit til árstíðarsveiflna. Hagvöxturinn á fyrsta ársfjórðungi var hins vegar 0,5%. Aukning landsframleiðslunnar er a miklu leyti skýrð með því að orkuframleiðsla hafi aukist á öðrum ársfjórðungi og skýri hún um fjórðung af hagvextinum. 23.8.2011 10:06
Svindlað á Dönum í gullkaupum Áhugi Dana á að selja gamla gullmuni sína hefur aukist gífurlega vegna mikilla hækkana á heimsmarkaðsverði á gulli. Hinsvegar er svindlað á þeim Dönum sem selja gull sitt til kaupenda. 23.8.2011 10:02
Nýr iPad á markað næsta sumar Apple verksmiðjurnar vinna nú að næstu útgáfu af iPad, sem verður bæði hraðvirkari og með langlífari rafhlöðu en fyrri kynslóðir. Þetta er vegna nýs örgjörva sem verður í nýju gerðinni. Búist er við því að nýja kynslóðin af iPad komi á markaðinn næsta sumar. 23.8.2011 09:28
Hlutir í Goldman Sachs hröpuðu á Wall Street Markaðir í Bandaríkjunum tóku því illa undir lokin í gærkvöldi þegar ljóst varð að Lloyd Blankfein forstjóri Goldman Sachs hefði ráðið sér stjörnulögfræðing. Hlutabréf í bankanum hröpuðu um 5% á síðustu mínútunum í kauphöllinni á Wall Street og síðan um 1,5% í viðbót í utanmarkaðsviðskiptum eftir lokunina. 23.8.2011 09:24
Launavísitalan hækkað um 7,8 prósent síðasta árið Launavísitala í júlí 2011 er 409,1 stig og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,8%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. 23.8.2011 09:02
Uppsveiflan á mörkuðum heldur áfram Uppsveiflan heldur áfram á mörkuðum í dag og eru flestar tölur grænar í kauphöllum Evrópu. 23.8.2011 09:02
Aukning farþega mest í Leifsstöð Á fyrri helmingi ársins fjölgaði farþegum um nærri fjórðung á Leifsstöð. Það er meiri viðbót en stóru flugvellir frændþjóðanna geta stært sig af. 23.8.2011 08:31
Forstjóri Standard & Poor´s rekinn Deven Sharma forstjóri Standard & Poor´s hefur verið rekinn úr starfi. Tískuhúsið McGraw-Hill Companies sem á matsfyrirtækið tilkynnti um þetta í gærkvöldi. 23.8.2011 08:03
Húsasmiðjan er til sölu Framtakssjóður Íslands (FSÍ), sem er eigandi alls hlutafjár í Húsasmiðjunni, hyggst selja fyrirtækið og hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast söluna. Óskað er eftir óskuldbindandi tilboðum fyrir 29. september. Auglýsing þessa efnis var birt í dagblöðum í morgun. 23.8.2011 08:02
H.F. Verðbréf ráðgjafi við sölu Sparisjóðs Svarfdæla Bankasýsla ríkisins hefur ráðið H.F. Verðbréf sem ráðgjafa við sölu á 90% eignarhlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla. Fyrr í þessum mánuði var ákveðið að selja hlut ríkisins í sparisjóðnum í opnu söluferli. 23.8.2011 07:37
HS Orka semur við Stolt Sea Farm Forsvarsmenn HS Orku og alþjóðlega fiskeldisfyrirtækisins Stolt Sea Farm gengu í gær frá samstarfssamningi. Hann felur í sér að Stolt Sea Farm fái að nýta land og heitt vatn frá HS Orku fyrir eldisstöð á Reykjanesi. Áformin miðast við að framkvæmdir við eldisstöðina hefjist í lok árs. 23.8.2011 05:00
Hugsanavilla Hagsmunasamtakanna Þórólfur Matthíasson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands, vísar athugasemdum Andreu Ólafsdóttur, formanns Hagsmunasamtaka heimilanna, á bug. Andrea gerði um helgina athugasemdir við gagnrýni Þórólfs á útreikninga samtakanna. 23.8.2011 04:15
Aðeins 23% orkugetunnar nýtt í rammaáætlun Samorka telur að aðeins 23% af orkuvinnslugetu landsins sé að finna í nýtingaflokki. Hin 77% eru annað hvort í biðstöðu- eða verndunarflokki samkvæmt drögum að þingsályktun um rammaáætlun sem kynnt voru nýlega. 22.8.2011 14:26
Ný stjórn Byggðastofnunnar Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn er í dag á Sauðárkróki tók við ný stjórn stofnunarinnar. Nýja stjórnin er skipuð af Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra. 22.8.2011 13:53
Reiknivél ÍSB virkar ekki Í augnablikinu liggur niðri reiknivél inná heimasíðu Íslandsbanka (ÍSB) sem hugsuð er til að reikna heildarkostnað og greiðslubyrði af verðtryggðum lánum. Síðan hefur legið niðri í dag. 22.8.2011 13:15
Sólin skín á mörkuðum í Evrópu Markaðir í Evrópu hafa verið að rétta verulega úr kútnum í dag. Það eru einkum námufélög, sem vinna gull, og olíufélög sem leiða hækkanir dagsins. 22.8.2011 13:08
Yfir milljarður bíla til í heiminum Fjöldi bíla í heiminum fór í fyrsta sinn yfir milljarðinn á síðasta ári. Þetta kemur fram í útreikningum sem bandaríska bílablaðið Ward´s Auto hefur tekið saman. 22.8.2011 12:47
Katrín Olga bætir við sig hlutum í Icelandair Katrín Olga Jóhannesdóttir hefur bætt við hlutafjáreign sína í Icelandair. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Katrín Olga situr í stjórn Icelandair. 22.8.2011 12:01
BankNordik hagnast um milljarð BankNordik, áður Færeyjabanki, skilaði 49 milljón danskra kr. eða rúmum milljarði kr., fyrir afskriftir og skatta á fyrri helmingi ársins. Þetta er svipað og á fyrri helming síðasta árs þegar hagnaðurinn nam 51 milljón danskra kr. 22.8.2011 11:13
Alltaf verið 20% tollur á makríl til ESB Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur LÍÚ segir að alltaf hafi verið til staðar 20% innflutningstollur á íslenskum makríl til ESB. Tollinn sé að finna í upprunalegu samkomulagi EES um fiskafurðir frá árinu 1992. 22.8.2011 10:37
Landsvaki sameinar verðbréfasjóði Stjórn Landsvaka hf., rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingasjóða Landsbankans, hefur tekið ákvörðun um sameiningu verðbréfasjóðsins Markaðsbréf Landsbankans – meðallöng við verðbréfasjóðinn Sparibréf – meðallöng. 22.8.2011 09:53
Ísland komið á dagskrá AGS í síðasta sinn Sjötta og síðasta endurskoðunin á áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Íslands er komin á dagskrá sjóðsins. Endurskoðunin er dagsett þann 26. ágúst eða næstkomandi föstudag. 22.8.2011 09:30
Gullverðið að rjúfa 1.900 dollara múrinn Ekkert lát er á verðhækkunum á gulli og lítur út fyrir að verðið fari í 1.900 dollara á únsuna í dag eða á morgun ef heldur sem horfir. 22.8.2011 09:14
Byggingakostnaður stendur nánast í stað Vísitala byggingarkostnaðar, sem reiknuð var um miðjan ágúst 2011, er 110,5 stig. Það er lækkun um 0,2% frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,4% og verð á innlendu efni lækkaði um 0,3%. Vísitalan gildir í september 2011, eftir því sem fram kemur á vef Hagstofunnar. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 7,8%. 22.8.2011 09:05
Aflaverðmætið minnkar um milljarð á milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 56,5 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2011 samanborið við 57,6 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um rúman milljarð eða 1,8% á milli ára. 22.8.2011 09:01
OR þarf að afskrifa 785 milljónir vegna Bitru Orkuveita Reykjavíkur (OR) þarf að afskrifa um 785 milljónir kr. verði ekkert af virkjunarframkvæmdum í Bitru á Hengilssvæðinu. 22.8.2011 08:56
Airbus með ráðstefnu á Íslandi Alþjóðlegi flugvélaframleiðandinn Airbus býður flugfélögum í Norður-Evrópu til ráðstefnu Á Íslandi í vikunni. Ráðstefnan er liður í áherslu Airbus á þjónustu við viðskiptavini. 22.8.2011 08:50
Evrópsk bankakreppa í uppsiglingu „Ekki er hægt að útiloka að bankakerfi Evrópu verði fyrir töluverðum skakkaföllum vegna þess óróa sem nú á sér stað á mörkuðum. Ólíkt bankakrísunni 2007-2008 er ekki um eiginlegan eiginfjárvanda að ræða, allavega ekki enn sem komið er. Jafnvel þótt það komi til umtalsverðrar skuldaniðurfærslu hjá PIIGS löndunum þar sem eign evrópska banka á þessum skuldabréfum er ekki mikil í hlutfalli við heildar eigið fé þeirra.“ 22.8.2011 08:35
Ferrari bíll seldur á 1,9 milljarða Ferrari Testa Rossa bifreið frá árinu 1957 var seld á uppboði í Kaliforníu um helgina fyrir 16,4 milljónir dollara eða tæplega 1,9 milljarða króna. Þetta er mesta verð sem borgað hefur verið fyrir bifreið í sögunni. 22.8.2011 08:25
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur