Fleiri fréttir

Hafnfirðingar: Tæp sextíu prósent vilja stærra álver

Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan eru sammála um mikilvægi þess að mikil sátt ríki um starfsemi fyrirtækisins í bæjarfélaginu. Þá sýnir skoðanakönnun að bæjarbúar telja jákvætt að hafa álver starfandi í Hafnarfirði.

Hjón tóku bankaútibú eignarnámi

Hjónin Warren og Maureen Nyerges í borginni Naples í Flórída eru orðin að þjóðhetjum í Bandaríkjunum eftir að þau tóku eitt af bankaútibúum Bank of America eignarnámi en bankinn er stærsta banki Bandaríkjanna.

Metfjöldi farþega hjá Iceland Express

Tæplega níutíu og fimm þúsund farþegar flugu með Iceland Express í júlí sem er mesti farþegafjöldi í sögu Iceland Express í einum mánuði. Það er 24 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. Sætanýting var um 85 prósent á þessum tíma, sem er töluvert betri nýting en í fyrra.

Evrópa komin í rautt, dökkt útlit vestanhafs

Helstu markaðir Evrópu eru komnir í rauðar tölur eftir nokkuð góða hækkun þegar viðskiptin hófust í morgun. Þá benda utanmarkaðsviðskipti til þess að markaðir í Bandaríkjunum muni opna í mínus eftir hádegið.

Metfjöldi farþega í einum mánuði

Aldrei hafa fleiri farþegar flogið með Iceland Express í einum mánuði en í júlí síðastliðnum, en tæplega 95 þúsund farþegar flugu með fyrirtækinu í mánuðinum. Það er 24 prósenta aukning á farþegafjölda frá sama mánuði í fyrra.

IFS greining spáir óbreyttum stýrivöxtum

Þrátt fyrir að raunstýrivextir séu neikvæðir þá telur IFS greining að Seðlabankinn haldi stýrivöxtum sínum óbreyttum og bíði eftir hagvaxtatölum fyrir annan ársfjórðung.

Toshiba-tölvur eru vinsælastar hjá ELKO

ELKO er stærsta rafvöruverslun landsins og selur margar tegundir fartölva. ELKO er með viðskiptasamning við raftækjakeðjuna Dixons sem rekur meðal annars Elkjop í Noregi. Með þátttöku í þessari raftækjakeðju er stu

Tölvudjásn HP í Evrópu

OK-búðin við Höfðabakka er gimsteinn í krúnu HP-búða Evrópu. Þar mætir fólki notalegheit og persónuleg þjónusta við val á framúrskarandi tölvum.

HP eru mest seldu tölvur í heimi

Í meira en aldarfjórðung hafa Opin kerfi séð íslenskum tölvunotendum fyrir hágæða HP-tölvum, en þær njóta einmitt mestra vinsælda heimsbúa.

Vogunarsjóðir stórgræddu á að skortselja Pandóru

Í ljós er komið að vogunarsjóðir stórgræddu á því að skortselja hluti í skartgripaframleiðandanum Pandóru í Danmörku. Sem kunnugt er af fréttum ríkir fullkomin óvissa um hverjar heimtur Seðlabankans verða af sölu FIH bankans eftir að hlutir í Pandóru hröpuðu um 65% á einum degi í síðustu viku.

76 milljarða skuldir SpKef færðar í Landsbankann

Alls voru 76 milljarða króna skuldir færðar frá SpKef yfir til Landsbankans þegar sparisjóðnum var rennt inn í bankann. Samkvæmt mati Landsbankans á virði eigna sjóðsins er eigið fé hans neikvætt um rúma 30 milljarða króna og eignir hans því metnar þar um 46 milljarða króna virði. Það er helmingi minna en þær voru metnar á í síðasta birta ársreikningi sjóðsins.

N1 tapaði tæpum 12 milljörðum í fyrra

Olíufélagið N1 tapaði 11,8 milljörðum kr. á síðasta ári. Þetta er mikill viðsnúningur frá árinu 2009 þegar félagið skilaði 277 milljónum kr. í hagnað.

Skuldatryggingaálag Íslands snarlækkar

Skuldatryggingaálag Íslands hefur snarlækkað frá því í gærdag. Álagið mælist nú 252 punktar samkvæmt CMA og Bloomberg fréttaveitunni og birt er á vefsíðunni keldan.is.

Gullverðið rauf 1.800 dollara múrinn

Heimsmarkaðsverð á gulli fór yfir 1.800 dollara á únsuna snemma í morgun. Hækkunin hefur síðan gengið aðeins til baka og stendur únsan nú í rúmum 1.780 dollurum.

Markaðir í Asíu á rólegu nótunum

Markaðir í Asíu enduðu daginn á rólegu nótunum. Nikkei vísitalan í Japan endaði í mínus 0,7% en við upphaf viðskipta í nótt féll vísitalan um rúm 2%.

Fiskvinnslan aftur til sölu á Flateyri

Byggðastofnun er þessa dagana að taka við þeim eignum sem henni eru veðsettar úr höndum skiptastjóra þrotabús Eyrarodda á Flateyri. Það er meginþorri eignanna og nægir til að hefja fiskvinnslu á Flateyri eins og hún var áður.

Stór hluti Landsbanka seldur

Ríkisstjórnin íhugar að selja um 18,7% hlut í Landsbanka Íslands. Hlutur þessi er sem stendur í vörslu skilanefndar gamla bankans og ætti að mestu leyti að renna til ríkisins, þegar væntanlegt uppgjör verður milli gömlu og nýju bankanna, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Með þeirri eignaraukningu yrði Landsbankinn nær eingöngu í ríkiseigu.

Mikil lækkun á mörkuðum

Hlutabréfamarkaðir í Frakklandi og Þýskalandi féllu um meira en fimm prósentustig í gær eftir að orðrómur um mögulega lækkun á lánshæfismati franska ríkisins komst á kreik. Verulegur ótti er enn á fjármálamörkuðum og lítið þarf til að hræða fjárfesta.

Apple framleiðir alls ekki iPhone

Það kann að koma sumum á óvart en Apple fyrirtækið framleiðir alls ekki iPhone. Hlutirnir sem síminn samanstendur af eru ekki framleiddir af Apple verksmiðjunum, né heldur er hlutunum raðað saman í heildstæðan síma í Apple verksmiðjum. Um þetta er fjallað ítarlega í tímaritinu The Economist.

Lítið þarf til að hræða fjárfesta

Hlutabréfamarkaðir í Frakklandi og Þýskalandi féllu um meira en fimm prósentustig í dag eftir að orðrómur um mögulega lækkun á lánshæfismati franska ríkisins komst á kreik. Verulegur ótti er enn á fjármálamörkuðum og lítið þarf til að hræða fjárfesta.

Fimm milljarðar til Grikklands frá EFTA ríkjum

Norðmenn tilkynntu Grikkjum á mánudag að Ísland, Noregur og Liechtenstein myndu að nýju veita Grikkjum styrki úr Þróunarsjóði EFTA, að því er kemur fram meðal annars á vef norska utanríkisráðuneytisins.

Apple sækir að Exxon

Bandaríska tæknifyrirtækið Apple varð í gær um tíma verðmætasta fyrirtæki heims þegar það fór fram úr Exxon Mobil.

Fitch Ratings staðfestir toppeinkunn Frakklands

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest AAA lánshæfiseinkunn Frakklands með stöðugum horfum. Samkvæmt greiningarfyrirtækinu 4Cast mun Moody´s einnig staðfesta toppeinkunn Frakklands.

Arctica Finance fær auknar starfsheimildir

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Arctica Finance hf. auknar starfsheimildir sem verðbréfafyrirtæki og var starfsleyfi félagsins endurútgefið með tilliti til þess.

Íslandsbanki með snjallsímaforrit fyrir Android

Íslandsbanki hefur sett í loftið, fyrstur íslenskra banka, snjallsímaforrit fyrir Android síma. Þetta er gert í framhaldi af opnun á nýjum farsímavef bankans í júní, m.isb.is, sem hefur fengið afar fínar viðtökur viðskiptavina, að því er segir í tilkynningu.

Wall Street opnar í mínus

Þrjár helstu vísitölurnar á Wall Street eru allar í rauðum tölum við opnunar markaða fyrir nokkrum mínútum. Við þessum var búist samkvæmt utanmarkaðsviðskiptum í morgun.

Greining Arion banka spáir óbreyttum stýrivöxtum

Greining Arion banka spáir óbreyttum stýrivöxtum á næsta vaxtákvörðunarfundi þann 17. ágúst n.k. Greining telur að við núverandi aðstæður í hagkerfinu myndi vaxtahækkun aðeins gera illt verra.

Ferðamenn í júlí tæplega 100 þúsund talsins

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 97.757 erlendir ferðamenn frá landinu í júlí síðastliðnum eða um 14 þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Aukningin nemur 17,1% milli ára. Ferðamenn hafa aldrei verið fleiri í júlímánuði eða frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð árið 2002.

Verulegur ótti enn til staðar á mörkuðum

Hækkanir á hlutabréfamörkuðum gefa alls ekki til kynna að allt sé fallið í ljúfa löð meðal fjárfesta að mati Jan Störup Nielsen greinenda hjá Nordea. Nielsen bendir á þróunina á gjaldeyrismörkuðum sem sýnir að óttinn sé enn til staðar meðal fjárfesta og það í verulegum mæli.

Barátta við skuldahalann er langhlaup

Mikil umræða hefur verið um skuldastöðu Bandaríkjanna upp á síðkastið og sér ekki enn fyrir endann á henni þrátt fyrir að samkomulag hafi náðst á þingi um hækkun skuldaþaksins.

Hagnaður Century Aluminium fjórfaldast milli ára

Hagnaður Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls, hefur meir en fjórfaldast milli ára. Á fyrri helmingi þessa árs nam hagnaðurinn 49 milljónum dollara eða um 5,6 milljörðum kr. Til samanburðar nam hagnaðurinn á fyrri helmingi síðasta árs tæpum 11,5 milljónum dollara.

Ákvörðun Bernanke hækkar olíuverðið

Heimsmarkaðsverð á olíu fer nú aftur hækkandi í framhaldi af því að Ben Bernanke seðlabankastjóri Bandaríkjanna lýsti því yfir í gærkvöldi að stýrivöxtum landsins yrði haldið við núllið fram til ársins 2013.

Leigusamningum fjölgar um 8,8% milli mánaða

Heildarfjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðahúsnæði á landinu var 790 í júlí síðastliðnum og fjölgaði þeim um 8,8% frá júní. Hinsvegar hefur þessum samningum fækkað um 6,1% frá júlí í fyrra.

Uppsveifla á mörkuðum

Markaðir í Asíu og Evrópu tóku við sér í morgun eftir hrun síðustu vikna. Hækkanirnar koma í kjölfar svipaðrar þróunar á Wall Street í Bandaríkjunum sem tóku stökk upp á við í gærkvöldi.

Eignir lífeyrissjóða nema 2.021 milljarði

Hrein eign lífeyrissjóða var 2.021 milljarður kr. í lok júní og hækkaði um 14,9 milljarða kr. í mánuðinum eða um 0,7%. Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.

Telja aukna skatta á stóriðju brot á samkomulagi

Forsvarsmönnum iðnaðarins, stóriðjufyrirtækja og samtaka fjármálastofnana hugnast illa hugmyndir ríkisstjórnarinnar um aukinn skatt á greinarnar. Þeir benda á að álögur hafi nýlega verið hækkaðar og telja hugmyndirnar brot á samkomulagi. „Ég bendi á að það er þegar kominn á sérstakur skattur á bankakerfið sem er orðinn töluvert hár," segir Guðjón Rúnarsson, formaður Samtaka fjármálastofnana. Hann vill þó ekki tjá sig frekar um tillögurnar fyrr en þær liggi skýrar fyrir.

Sjá næstu 50 fréttir