Viðskipti innlent

Arion banka heimilt að auka við eignarhlut sinn í Valitor

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Arion banka heimild til að auka við eignarhlut sinn í greiðslukortafyrirtækinu Valitor og fara með hlut sinn yfir 50%.

Fjallað er um málið á vefsíðu FME. Þar segir að Arion banki hf. óskaði eftir heimild til að auka virkan eignarhlut sinn í Valitor hf. óbeint í gegnum hlutdeild sína í Valitor Holding hf., samanber lög fjármálafyrirtæki.

Fjármálaeftirlitið telur Arion banka hæfan til að eiga og fara með eignarhlutinn m.a. með tilliti til heilbrigðs og trausts reksturs Valitor.

Fjármálaeftirlitið veitti þann 12. október sl. Arion banka heimild til að fara með yfir 50% eignarhlut í Valitor.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×