Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjónvarpsstöðvar sameinast gegn YouTube Bandarísku sjónvarpsstöðvarnar NBC Universal og Fox ætla að taka höndum saman og stofna netveitu sem miðlar efni þeirra. Netveitan er stofnuð til höfuðs öðrum netveitum sem miðla sjónvarpsefni, svo sem YouTube, sem er í eigu netleitarfyrirtækisins Google. 22.3.2007 17:06
Baugur opnar verslunarmiðstöð í Stokkhólmi Á morgun opnar fyrsti áfangi SOUK – nýrrar verslunarmiðstöðvar við Drottningagötu í Stokkhólmi í Svíþjóð. SOUK er í eigu Baugs Group. Haft er eftir Åke Hellqvist, forstjóra SOUK, að fyrirtækið líti á verslunarmiðstöðina sem stærstu og djörfustu tískufjárfestinguna í Stokkhólmi í langan tíma. 22.3.2007 17:13
Segir Seðlabankann ná verðbólgumarkmiði sínu á þessu ári Greiningardeild Glitnis gerir ráð fyrir 1,5 prósenta hagvexti á þessu ár og að Seðlabanki Íslands nái strax á þessu ári 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði sínu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri þjóðahagsspá frá greiningardeildinni. 22.3.2007 16:57
Vöxtur smásöluverslunar yfir spám í Bretlandi Smásöluverslun jókst um 1,4 prósent í Bretlandi í febrúar. Hækkunin nemur 4,9 prósentum á ársgrundvelli, samkvæmt upplýsingum bresku hagstofunnar. Þetta er nokkru meira en greinendur gerðu ráð fyrir. Þá er þetta talsverður viðsnúningur frá lokum síðasta árs en í nóvember og desember dróst smásöluverslun saman á milli mánaða. 22.3.2007 10:30
Fljótsdalshérað með 246 milljóna rekstrarafgang Fljótsdalshérað var rekið með 246 milljóna króna rekstrarafgangi í fyrra samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta stofnanir sveitarfélagsins, að því er fram kemur í uppgjör héraðsins. Þetta er tæplega 202 milljónum meira en áætlanir sveitarfélagsins gerðu ráð fyrir. 22.3.2007 09:44
Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 22,4% Vísitölu framleiðsluverðs mældist 22,4 prósent á ársgrundvelli í janúar. Verðvísitala afurða stóriðju hækkaði á sama tíma um 42,0 prósent, verðvísitala sjávarafurða hækkaði um 28,6 prósent og verðvísitala matvælaframleiðslu hækkaði um 7,1 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. 22.3.2007 09:36
Deila Finnair og FL Group leyst Skorið hefur verið á hnútinn í deilu stjórnar Finnair og FL Group með þeim hætti að Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri Flugleiða, tekur sæti í stjórninni. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, dregur um leið til baka framboð sitt til stjórnar. Aðalfundur Finnair er í dag. 22.3.2007 09:22
Milli Árósa og Kaupmannahafnar með háhraðalest á hálftíma Árósar gætu orðið úthverfi Kaupmannahafnar og þessar tvær stærstu borgir Danmerkur á einu og sama atvinnusvæðinu verði hugmyndir samgöngumógúls að veruleika. Þetta yrði veruleikinn ef byggð yrði brú yfir Kattegat-sundið á milli Sjálands og Jótlands og segulhraðlest mundi flytja farþega á milli borganna tveggja á minna en hálftíma. 22.3.2007 07:44
Hvítflibbarnir fara Stjórnendur Eimskipafélagsins stefna að því að selja eignir út úr kæligeymslufyrirtækinu Atlas Cold Storage sem gæti skilað þeim öllu kaupverðinu til baka. Þá er unnið að bæta rekstur Atlas með lækkun rekstrarkostnaðar og hækkun tekna. 22.3.2007 05:30
Sainsbury óskar eftir lengri tíma Stjórn bresku matvörukeðjunnar Sainsbury er sögð fylgjandi því að biðla til bresku yfirtökunefndarinnar um að framlengdur verði lokafrestur fjárfestahópsins CVC til að leggja fram yfirtökutilboð í keðjuna. 22.3.2007 05:15
Kaupa meira í Storebrand Kaupþing keypti 1,9 prósenta hlut í norska fjármálafyrirtækinu Storebrand fyrir 4,9 milljarða króna í gær. Þetta kom fram á fréttasíðunni E24. Þar sem bankinn þarf ekki að tilkynna um þessi viðskipti til Kauphallarinnar í Ósló er óvíst hvort bréfin voru keypt fyrir bankann sjálfan eða fyrir kúnna. 22.3.2007 05:00
Fengju kaupvirðið til baka Hf. Eimskipafélagið gæti fengið nær allt kaupverð Atlas Cold Storage til baka með eignasölu fyrir tæpa 35 milljarða króna. Horft er til kanadískra lífeyrissjóða sem kaupenda. Tap varð af rekstri félagsins á fyrsta ársfjórðungi. 22.3.2007 04:30
Stóðust álagsprófið Íslensku viðkiptabankarnir og fjárfestingarbankinn Straumur-Burðarás stóðust allir álagspróf Fjármálaeftirlitsins. Niðurstöður voru birtar í gær, en eftirlitið framkvæmir slík álagspróf með reglubundnum hætti. Síðast voru birtar niðurstöður fyrir hálfu ári og var eiginfjárhlutfall allra bankanna (CAD-hlutfall) hærra núna en þá. 22.3.2007 04:00
Stýrivextir óbreyttir í Bandaríkjunum Seðlabanki Bandaríkjanna lét í dag stýrivexti óbreytta en viðurkenndi þó að efnahagur landsins hefði veikst og að verðbólga hefði hækkað. Vextirnir verða því áfram 5,25 prósent. Sérfræðingar höfðu búist við því að þetta yrði niðurstaðan. 21.3.2007 19:36
Hráolíubirgðir minnkuðu sjöttu vikuna í röð Heildarolíubirgðir í Bandaríkjunum jukust á milli vikna. Hráolíubirgðir drógust hins vegar saman meira en greiniendur höfðu gert ráð fyrir, að því er fram kemur í vikulegri skýrslu bandaríska orkumálaráðuneytisins, sem kom út í dag.Samdráttur hráolíubirgðanna oll verðhækkunum á olíu á heimsmarkaði. 21.3.2007 17:25
Bankarnir stóðust álagspróf FME Íslensku viðkiptabankarnir og Straumur-Burðarás stóðust allir álagspróf Fjármálaeftirlitsins. Með prófinu er gert ráð fyrir því aðað fjármálafyrirtæki standist samtímis margvísleg áföll án þess að eiginfjárhlutfall þeirra fari niður fyrir lögboðið lágmark. 21.3.2007 15:59
Baugur kaupir í Daybreak 365 hf. hefur selt Baugi Group hf. sautján prósent af atkvæðabæru hlutafé í Daybreak Holdco Limited, móðurfélagi Wyndeham Press Group Limited. Fyrir átti 365 36 prósent af atkvæðabæru hlutafé. 21.3.2007 15:55
Landsbankinn spáir 5,1% verðbólgu Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,4 prósent í apríl. Gangi það eftir lækkar verðbólga úr 5,9 prósentum í 5,1 prósent. Til samanburðar birti greiningardeild Kaupþings verðbólguspá sína í gær en deildin gerir ráð fyrir því aðverðbólga fari niður í 5,3 prósent í mánuðinum. 21.3.2007 15:14
Minni hagnaður hjá FedEx Bandaríski póstþjónusturisinn FedEx skilaði hagnaði upp á 420 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 28,2 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Þetta er átta milljónum dala, 536,6 milljónum krónum, minna en á sama tíma í fyrra. Afkoman er engu að síður yfir væntingum greinenda. 21.3.2007 14:01
Virgin American fær að fljúga í Bandaríkjunum Flugfélagið Virgin America, sem breska samstæðan Virgin Group á hluta í, hefur fengið flugrekstrarleyfi samgönguyfirvalda í Bandaríkjunum. Félagið hefur fallist á koma til móts við yfirvöld sem meina erlendum aðilum að eiga meira en fjórðung í bandarískum flugfélögum. 21.3.2007 11:45
Líkur á óbreyttum stýrivöxtum í Bandaríkjunum Greinendur í Bandaríkjunum eru sammála um að miklar líkur séu á því að Seðlabanki Bandaríkjanna ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum. Bankastjórnin fundar um málið í dag og greinir frá ákvörðun sinni síðdegis. Gert er ráð fyrir að markaðsaðilar rýni vel í rökstuðning Ben Bernankes, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, þegar hann greinir frá vaxtaákvörðuninni. 21.3.2007 11:01
Barclays segist flytja höfuðstöðvar til Hollands Breski bankinn Barclays ætlar að flytja höfuðstöðvar frá Bretlandi til Amsterdam í Hollandi gangi yfirtaka bankans á ABN Amro eftir. Þá hefur bankinn jafnframt sagt að ekki verði gerðar breytingar á æðstu stjórnendastöðum í ABN Amro, sem er stærsti banki Hollands. 21.3.2007 10:21
Hf. Eimskipafélagið tapaði hálfum milljarði Hf. Eimskipafélag Íslands skilaði tapi upp á 5,6 milljónum evra, jafnvirði tæplega hálfs milljarðs íslenskra króna, á fyrstu rekstrarfjórðungi fyrirtækisins sem lauk í enda janúar. Til samanburðar nam tap fyrirtækisins á sama tíma í fyrra rúmum 8,3 milljónum evra, 739,8 milljónum króna. Þetta er í takt við væntingar, að sögn Magnúsar Þorsteinssonar, stjórnarformanns fyrirtækisins. 21.3.2007 09:37
Launavísitalan hækkaði um 0,3 prósent Launavísitalan hækkaði um 0,3 prósent á milli mánaða í febrúar, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,8 prósent. 21.3.2007 09:00
Sýndarheimar 70 milljarða virði Markaður fyrir hlutverkatölvuleiki sem fólk spilar yfir netið er talinn vera meira en 70 milljarða króna virði á ári. Talið er að markaðurinn muni enn vaxa og vera helmingi meira virði fyrir árið 2011. Þetta er niðurstaða sérfræðinga tæknitímaritsins Screen Digest. Milljónir manna um heim allan eyða töluverðum hluta af tíma sínum í þessum sýndarheimum, til að mynda eru um 7,6 milljónir spilara skráðir í leikinn World of Warcraft og þeim fjölgar um 1500 á dag. Með örðum orðum er þetta samfélag álíka fjölmennt og Búlgaría eða Sviss og fjölgar margfalt hraðar. 21.3.2007 07:58
Starfa reynslunni ríkari í tærum sjó Tæknifyrirtækið Industria sem vakið hefur heimsathygli fyrir hugbúnaðarlausnir sínar hefur vaxið hratt síðustu ár og hyggur á enn frekari vöxt og útrás á nýja markaði. Óli Kristján Ármannsson ræddi við Guðjón Má Guðjónsson, stofnanda og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, um stöðu þess og framtíð. 21.3.2007 06:30
Þægindi á sporgöngu Maður getur huggað sig við það að kuldinn þessa dagana teygir sig langt suður eftir Evrópu. Við erum merkileg mannskepnan og þegar kuldinn nístir þá er stutt í að hugga sig við að aðrir hafi það álíka skítt. 21.3.2007 00:01
Kosningasigur FL Goup FL Group á í mesta basli með hlutinn í Finnair, en finnska ríkið vill ekkert af þessum næststærsta hluthafa vita. Sigur hægrimanna í Finnlandi kann að opna nýja möguleika, enda einkavæðing á dagskrá hægriflokka. Það kann þó að vera að tregðulögmál lifi enn. 21.3.2007 00:01
Fallni forstjórinn dæmdur fyrir svik Takafumi Horie, stofnandi og fyrrverandi forstjóri japanska netfyrirtækisins Live-door, hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir umfangsmikil bókhaldssvik í Japan á föstudag. Réttarhöld í máli hans hafa staðið yfir í hálft ár en ríkissaksóknari fór fram á fjögurra ára dóm. 21.3.2007 00:01
Sælir eru kynbættir Kyngreint sæði hefur óveruleg áhrif á framleiðslutengda þætti á kúabúum en hinn fjárhagslegi ávinningur kemur að mestu fram í auknum erfðaframförum. Þetta er á meðal þess sem doktorsnemi sagði í erindi á ársfundi danskra kúabænda á dögunum um kyngreint sæði og efnahagslega þýðingu þess. 21.3.2007 00:01
Borið í Bakka-vararlækinn Einhverjir hafa rekið augun í það að lífeyrissjóðirnir hafa verið að auka hlut sinn í Bakkavör. Lífeyrissjóðir eru fyrir býsna áberandi í hluthafahópi fyrirtækisins og hafa fylgst vel með því um árin. 21.3.2007 00:01
Miðja viðskiptalífsins verður í Shanghai MBA-hópurinn undir forystu prófessoranna Ingjalds Hannibalssonar og Runólfs Smára Steingrímssonar heimsótti fjórar borgir í Kína, höfuðborgina Peking, iðnaðarborgina Baoding, hafnarborgina Ningbo og síðast en ekki síst skýjaklúfaborgina Shanghai. 21.3.2007 00:01
Stofnandinn var í vinnunni fram á síðasta dag Ernest Gallo, annar af tveimur stofnendum bandaríska vínfyrirtækisins Gallo, lést í bænum Modesto í Kaliforníu í byrjun mánaðarins, rétt tæplega 98 ára að aldri. Sonur hans rekur fyrirtækið í dag, en gamli maðurinn var viðloðandi reksturinn allt fram á seinasta dag. 21.3.2007 00:01
Fjölskyldufyrirtæki með starfsemi um heim allan Gallo er eitt af þekktustu og umsvifamestu vínfyrirtækjum heims. Fyrirtækið var stofnað eftir afnám vínbanns í Bandaríkjunum árið 1933 af bræðrunum Ernest og Julio Gallo. Sérstaða fyrirtækisins meðal vínframleiðenda felst ekki síst í að áherslan hefur alla tíð verið á að vöxt og viðgang með viðskiptasjónarmið að leiðarljósi. 21.3.2007 00:01
Í víngerð er engin rómantík Cal Dennison, yfirvíngerðarmaður Gallo, hélt fyrirlestur á Nordica fyrir helgi og leiddi vínsmökkun á bæði rauðum og hvítum vínum Gallo. 21.3.2007 00:01
Nýbyggingum fjölgar í Bandaríkjunum Byggingu nýrra fasteigna fjölgaði um níu prósent á milli mánaða í febrúar, samkvæmt nýlegum upplýsingum frá viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna. Þetta er langtum meira en greinendur gerðu ráð fyrir og þykir auka líkurnar á því að seðlabanki Bandaríkjanna ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum. 20.3.2007 14:49
Síminn stofnar Mílu um fjarskiptanetið Síminn hefur stofnað fyrirtæki um rekstur, uppbyggingu og viðhald fjarskiptanets síns. Nýja fyrirtækið heitir Míla. Þetta var samþykkt á aðalfundi Símans sem haldinn var í lok síðustu viku. 20.3.2007 14:32
Kaupþing flaggar í Storebrand Kaupþing jók við hlut sinn í norska trygginga- og fjármálafyrirtækinu Storebrand í morgun og er nú komið með 10,4 prósent hlutabréfa í félaginu. Bankinn fékk heimild hjá norskum yfirvöldum í morgun til að kaupa allt að 20 prósenta hlut í Storebrand. 20.3.2007 13:07
Kaupþing spáir 5,3 prósenta verðbólgu Greiningardeild Kaupþings spáir því að vísitala neysluverð hækki um 0,6 prósent í apríl. Gangi það eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 5,3 prósent í mánuðinum. Til samanburðar mældist 5,9 prósenta verðbólga í þessum mánuði. Greiningardeildin spáir því að verðbólga lækki fram á sumar en telur óvíst að 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði náð. 20.3.2007 11:01
Yahoo komið með leitarvél fyrir farsíma Bandaríska netfyrirtækið Yahoo kynnti í gær leitarvél fyrir farsíma með vafra. Með leitarvélinni, sem heitir OneSearch, þykir Yahoo hafa náð nokkru forskoti á netleitarfyrirtækið Google sem hefur í bígerð að búa til svipaðan hugbúnað fyrir farsíma. 20.3.2007 10:30
Kaupþing fær að auka hlut sinn í Storebrand Kaupþing fékk í morgun heimild norska yfirvalda til að fara með 20 prósenta hlut í norska tryggingafélaginu Storebrand. Bankinn á fyrir tæpan tíu prósenta hlut en norsk lög banna erlendum aðilum að eiga meira en það í norsku fjármála- og tryggingafélagi án sérstakrar heimildar. Gengi bréfa í Storebrand hækkaði um 7,5 prósent í kjölfar þess að Kaupþingi var veitt heimild til að auka við hlut sinn. 20.3.2007 10:11
GPS-tæki til hjálpar blindum Ítalskt tæknifyrirtæki þróar nú GPS-búnað sem á að auðvelda blindum að komast leiðar sinnar. Nú er verið að prófa búnaðinn hjá 30 notendum úr Blindrafélagi Ítalíu en áætlað er að búnaðurinn verði kominn í almenna sölu í haust. 20.3.2007 09:32
Engeyin ekki seld úr landi HB Grandi hefur fallið frá því að selja Engey RE-1, stærsta skip íslenska fiskveiðiflotans, til Atlantic Pelagic og gera það út við strendur Afríku. Í stað þess hefur verið samið við Samherja hf um sölu á skipinu. Söluverð nemur 31,4 milljónum evra, jafnvirði rúmra 2,8 milljarða króna. Bókfærður hagnaður af sölunni er í kringum 700 milljónir króna. 20.3.2007 09:20
Óbreyttir stýrivextir í Japan Japanski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentustigum. Bankinn hækkaði vextina um 25 punkta í síðasta mánuði en það var önnur stýrivaxtahækkunin í Japan í sex ár. 20.3.2007 08:55
Smáralind tapaði 654 milljónum króna Smáralind ehf tapaði 654 milljónum krónum í fyrra samanborið við 101 milljóna króna tap árið 2005. Gestum Smáralindar fjölgaði um 5,2 prósent á milli ára í fyrra og heildarvelta jókst um 11,7 prósent. Fyrirhugað er að hefja byggingu á 15 hæða skrifstofu- og verslunarhúsi á þessu ári. 19.3.2007 16:43