Fleiri fréttir FlyMe kaupir Astreus í Bretlandi Norræna lággjaldaflugfélagið FlyMe, sem Pálmi Haraldsson í Fons á stærstan hluta í, hefur keypt fimmtíu og eins prósents hlut í breska leiguflugfélaginu Astreus. 2.9.2006 00:01 Hreinn Jakobsson til Anza Hreinn Jakobsson, fyrrum forstjóri Skýrr, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Anza hf. Guðni B. Guðnason, sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækisins, lætur af störfum í dag. 1.9.2006 16:25 Góður hagvöxtur innan ESB Hagvöxtur aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) jókst um 0,9 prósent á öðrum ársfjórðungi sem er 0,1 prósentustigi meira en í fjórðungnum á undan. Hagvöxturinn, sem nemur 2,8 prósentum á ársgrundvelli, var meiri en í Bandaríkjunum og Japan. 1.9.2006 15:31 Tap á rekstri Jeratúns Jeratún ehf., einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar, sem sér um byggingu og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellings í Grundarfirði, tapaði tæpum 14 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði fyrirtæki tæplega 7,4 milljóna króna hagnaði. 1.9.2006 14:45 Hagnaður Landsafls rúm 241 milljón Landsafl hf., fasteignafélag í eigu Landsbankans og Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka, skilaði 241,4 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi ársins samanborið við tæplega 1,4 milljarða króna hagnaðs á sama tímabili í fyrra. Afkoman er viðunandi, að mati stjórnenda félagsins. 1.9.2006 14:26 Fjöltækniskólinn kaupir Flugskóla Íslands Fjöltækniskóli Íslands hefur keypt allt hlutafé í Flugskóla Íslands og verður starfsemi Flugskólans að mestu flutt frá Reykjavíkurflugvelli í húsnæði Fjöltækniskólans. Með sameiningunni er horft til þess að nám flugmanna verði viðurkennt hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, að sögn skólastjóra Flugskólans. 1.9.2006 13:40 Fasteignaverðið hæst í Lundúnum 1.9.2006 13:26
Sjá næstu 50 fréttir
FlyMe kaupir Astreus í Bretlandi Norræna lággjaldaflugfélagið FlyMe, sem Pálmi Haraldsson í Fons á stærstan hluta í, hefur keypt fimmtíu og eins prósents hlut í breska leiguflugfélaginu Astreus. 2.9.2006 00:01
Hreinn Jakobsson til Anza Hreinn Jakobsson, fyrrum forstjóri Skýrr, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Anza hf. Guðni B. Guðnason, sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækisins, lætur af störfum í dag. 1.9.2006 16:25
Góður hagvöxtur innan ESB Hagvöxtur aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) jókst um 0,9 prósent á öðrum ársfjórðungi sem er 0,1 prósentustigi meira en í fjórðungnum á undan. Hagvöxturinn, sem nemur 2,8 prósentum á ársgrundvelli, var meiri en í Bandaríkjunum og Japan. 1.9.2006 15:31
Tap á rekstri Jeratúns Jeratún ehf., einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar, sem sér um byggingu og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellings í Grundarfirði, tapaði tæpum 14 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði fyrirtæki tæplega 7,4 milljóna króna hagnaði. 1.9.2006 14:45
Hagnaður Landsafls rúm 241 milljón Landsafl hf., fasteignafélag í eigu Landsbankans og Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka, skilaði 241,4 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi ársins samanborið við tæplega 1,4 milljarða króna hagnaðs á sama tímabili í fyrra. Afkoman er viðunandi, að mati stjórnenda félagsins. 1.9.2006 14:26
Fjöltækniskólinn kaupir Flugskóla Íslands Fjöltækniskóli Íslands hefur keypt allt hlutafé í Flugskóla Íslands og verður starfsemi Flugskólans að mestu flutt frá Reykjavíkurflugvelli í húsnæði Fjöltækniskólans. Með sameiningunni er horft til þess að nám flugmanna verði viðurkennt hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, að sögn skólastjóra Flugskólans. 1.9.2006 13:40
Atvinnuleysi minnkar á evrusvæðinu Atvinnuleysi mældist 7,8 prósent í aðildarríkjum myntbandalags Evrópusambandsins (ESB) í júlí, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu ESB. Þetta er 0,8 prósentustiga samdráttur á milli mánaða. Á sama tíma mældist 8,0 prósenta atvinnuleysi innan aðildarríkja ESB og helst það óbreytt á milli mánaða. Á sama tíma fyrir ári mældist hins vegar 8,7 prósenta atvinnuleysi í aðildarríkjum ESB. 1.9.2006 12:28
Tap á rekstri Leifsstöðvar Rétt rúmlega eins milljarðs krónu tap varð á rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði rekstur flugstöðvarinnar 380 milljóna króna hagnaði. Hluti tapsins er kominn vegna gengistaps en stór hluti skulda FLE er í erlendri mynt. 1.9.2006 10:31
Ford selur Aston Martin Forsvarsmenn bandaríska bílaframleiðandans Ford opinberuðu í gær áætlanir þess efnis að selja hugsanlega hluta af framleiðslulínu og vörumerki Aston Martin sportbílsins. Aston Martin bílar eru í dýrari kantinum en 1.700 manns vinna við framleiðslu hans í Buckinhamshire í Bretlandi. 1.9.2006 10:11
TM með 90 prósent í Nemi Tryggingamiðstöðin hefur eignast rétt rúma 90 prósenta af útgefnu hlutafé í norska tryggingafélaginu NEMI Forsikring ASA. 1.9.2006 10:00
Tap FlyMe tvöfaldast milli ára Þótt velta FlyMe hafi aukist um 75 prósent á fyrri helmingi ársins, samanborið við árið 2005, jókst tap félagsins um helming á milli ára. Norræna lággjaldaflugfélagið tapaði 1,1 milljarði á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 560 milljóna króna tap í fyrra. 1.9.2006 00:01
Nýir eigendur greiddu út einn milljarð í arð. Jarðboranir, sem voru yfirteknar af Atorku Group fyrr á árinu, skiluðu 402 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við þrjú hundruð milljónir króna í fyrra. 1.9.2006 00:01
Actavis hækkar yfirtökutilboð sitt í Pliva Actavis hækkaði tilboð sitt í króatíska lyfjafyrirtækið Pliva um 10 prósent í gær og hljóðar það nú upp á 795 kúnur á hlut. Lokað var fyrir viðskipti með bréf í Pliva í Króatíu í gærmorgun skömmu áður en fréttin fór í loftið. Barr Pharmaceuticals sem líka vill kaupa Pliva ætlar sér viku til að hugleiða næstu skref. 1.9.2006 00:01
Óbreyttir stýrivextir Evrópski seðlabankinn ákvað að loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum í gær að halda stýrivöxtum á evrusvæðinu óbreyttum en þeir standa nú í þremur prósentum. Greiningaraðilar telja líkur á að bankinn hækki vextina í október. 1.9.2006 00:01
Byr með Urði rekstrarvörur Byr ehf., eignarhaldsfélag Tæknivals hf., hefur keypt fyrirtækið Urðir rekstrarvörur ehf. Gengið var frá kaupunum 18. ágúst. Urðir rekstrarvörur er sérhæft fyrirtæki í sölu á rekstrar- og fylgivöru fyrir tölvur og prentara auk þess sem fyrirtækið hefur um árabil boðið öfluga viðgerðar- og tækniþjónustu á tölvubúnaði og jaðartækjum. 1.9.2006 00:01
Vöruskiptahallinn aldrei verið meiri Vöruskiptahalli var 19,1 milljarður króna í júlí og hefur ekki verið meiri frá því mælingar hófust, samkvæmt Hagstofu Íslands. Fluttar voru inn vörur fyrir 16,2 milljarða króna í mánuðinum og inn fyrir 35,2 milljarða. Tæplega tólf milljarða halli var á vöruskiptum í júlí 2005. 1.9.2006 00:01
Samdráttur í dagvöruverslun Dagvöruverslun dróst saman um 3,9 prósent í júlí samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar (RSV). Velta í dagvöruverslun var 0,6 prósentum minni í júlí en á sama tíma í fyrra. Mestur samdráttur varð í áfengiskaupum, eða 18,2 prósent milli ára. 1.9.2006 00:01
Tap Blaðsins var í takt við áætlanir Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður Árs og dags, útgefanda Blaðsins, segir að tap félagsins á síðasta rekstrarári hafi verið í takt við þær áætlanir sem lagt var upp með. Það sé eðlilegt fyrir fjölmiðlafyrirtæki sem byrji frá grunni. Sigurður gefur ekki upp nákvæmar tölur. 1.9.2006 00:01
Síminn og OR ræðast áfram við Á næstu vikum skýrist hvort verður af samstarfi um rekstur fjarskiptaneta Símans og Orkuveitu Reykjavíkur. Viðræður fyrirtækjanna halda áfram, en Orkuveitan kaupir ekki kerfi Símans. 1.9.2006 00:01
Taprekstur hjá Nýsi Fasteignafélagið Nýsir hf. skilaði 937 milljóna króna taprekstri á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er nokkur viðsnúningur frá því í fyrra þegar félagið skilaði 394,7 milljóna króna hagnaði.Helsta ástæða tapsins er óhagstæð gengisþróun vegna erlendra lána. 31.8.2006 17:05
Minni hagnaður hjá Milestone Fjárfestingarfélagið Milestone ehf. hagnaðist um 1,9 milljarða krónur á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn hins vegar tæpum 4,1 milljarði króna. Í uppgjöri félagsins kemur fram að stór hluti af eignasafni Milestone samanstandi af félögum sem skráð eru á markað i og mótast afkoman af almennum markaðsaðstæðum. 31.8.2006 16:53
Tap hjá Flögu Flaga Group tapaði 1,2 milljónum bandaríkjadala eða tæpum 83 milljónum íslenskra króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra tapaði félagið rétt rúmri einni milljón dala eða 69 milljónum króna á núvirði. Tap félagsins á öðrum fjórðungi ársins nemur 368.000 dölum eða rúmum 25,4 milljónum íslenskra króna. 31.8.2006 16:31
Tap Tæknivals minnkar Tæknival tapaði 27 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári tapaði félagið rétt rúmri 41 milljón króna. Óhagstæð gengisþróun skýrir tapið að miklu leyti. 31.8.2006 15:16
Neysla jókst í Bandaríkjunum Neysla jókst um 0,8 prósent í júlí og hefur aukningin ekki verið jafn mikil á árinu. Greiningaraðilar segja vöxt neyslunnar bera merki um hægari lendingu á efnahagslífinu en óttast hafði verið. Verðbólga er hins vegar vandamál, að mati viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna. 31.8.2006 14:39
Nýir stjórnendur hjá Air Atlanta Iceland Tveir nýir stjórnendur hafa hafið störf hjá Air Atlanta Icelandic. Geir Valur Ágústsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Air Atlanta Icelandic og Stefán Eyjólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri starfsmannamála fyrirtækisins. 31.8.2006 14:06
Milljarður í hagnað hjá HS Hitaveita Suðurnesja (HS) skilaði tæplega 1,1 milljarðs krónu hagnaði á fyrri helmingi ársins. Þetta er 357 milljónum krónum meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra þegar hann nam 709 milljónum króna. Búist er við að brottför varnarliðsins í lok september muni hafa áhrif á starfsemi félagsins en Varnarliðið hefur verið stærsti einstaki kaupandi heits vatns og raforku af hitaveitunni. 31.8.2006 13:42
Actavis hækkar tilboð í Pliva Actavis hefur hækkað tilboð sitt í króatíska lyfjafyrirtækið Pliva og hljóðar það nú upp á 795 kúnur á hlut og fengið staðfestingu fjármálaeftirlits Króatíu á því. Tilboðið er 10 prósentum hærra en fyrra tilboð félagsins, sem var 723 kúnur á hlut og jafngildir tilboð félagsins 2,5 milljörðum bandaríkjadala eða um 175 milljörðum íslenskra króna. 31.8.2006 13:03
Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn ákvað að loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum í dag að halda stýrivöxtum á evrusvæðinu óbreyttum í þremur prósentum. Greiningaraðilar telja líkur á að bankinn hækki vextina hins vegar í október. 31.8.2006 12:31
Tap hjá Olíufélaginu Olíufélagið ehf. og dótturfélög þess, Olíudreifing og Egó, tapaði 62,4 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er viðsnúningur hjá félaginu en það hagnaðist um 223,9 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Tapið má rekja til óhagstæðrar gengisþróunar og aukins fjármagnskostnaðar. 31.8.2006 11:46
Tekjuafgangur eykst á Suðurnesjum Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum skilaði tæplega 2,4 milljóna króna tekjuafgangi á fyrri helmingi ársins sem er rúmlega hálfri milljón króna betri afkoma en á sama tíma í fyrra. 31.8.2006 11:28
Úrvalsvísitalan yfir 6.000 stig Úrvalsvísitalan rauf 6.000 stiga múrinn á ný í dag og stóð skömmu eftir klukkan 11 í 6.015 stigum. Vísitalan náði þessum hæðum til skamms tíma í gær en endaði í 5.989,11 stigum við lokun Kauphallarinnar. Hæsta gildi Úrvalsvísitölunnar var 6.925 stig um miðjan febrúar síðastliðinn en lækkaði eftir það. 31.8.2006 11:07
Minni verðbólga á evrusvæðinu Verðbólga mældist 2,3 prósent á evrusvæðinu í þessum mánuði sem er 0,1 prósenti minna en mældist í síðasta mánuði, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins (ESB). Greiningaraðilar segja þetta þrýsta á um að evrópski seðlabankinn haldi stýrivöxtum óbreyttum. 31.8.2006 10:45
Olía hækkar í verði Hráolíuverð hækkaði lítillega á helstu mörkuðum vegna ótta við hugsanlegan samdrátt í olíuframleiðslu Írana. Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) gáfu Írönum frest fram til dagsins í dag til að hætta auðgun úrans og er að margra mati útlit fyrir að SÞ grípi til refsiaðgerða gegn Írönum. 31.8.2006 10:33
Hekla skilaði 32,3 milljóna hagnaði Hekla fasteignir efh. skilaði 32,3 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári tapaði félagið 439.000 króna. 31.8.2006 10:11
Aukinn hagnaður Jarðborana Hagnaður Jarðborana hf. á fyrri helmingi ársins nam 402 milljónum króna samanborið við 299 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þá nam hagnaður félagsins á öðrum fjórðungi ársins tæpum 163 milljónum króna sem er 4 milljónum krónum minni hagnaður en á sama tíma í fyrra. 31.8.2006 09:58
Tap hjá Bolar Eignarhaldsfélagið Bolar ehf. tapaði 8,5 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er nokkur viðsnúningur á afkomu félagsins en á sama tíma í fyrra skilaði það 488,4 milljóna króna hagnaði. Í uppgjöri Bola segir að hafa beri í huga að í fyrra seldi félagið verulegan hluta af starfsemi sinni til Promens hf. og var hagnaður af rekstri félagsins í fyrra tilkominn vegna framangreindrar sölu. 31.8.2006 09:49
Samdráttur í smásölu Velta í dagvöruverslun dróst saman um 0,6 prósent í júlí miðað við sama mánuð í fyrra, miðað við fast verðlag. Telst það til verulegra tíðinda að í fyrsta skipti í langan tíma mælist samdráttur í dagvöruveltu á föstu verði. Verslunarmannahelgin á þátt í samdrættinum á milli ára og segir Rannsóknasetur verslunarinnar við Bifröst þetta þó glöggt merki þess að töluvert sé farið að draga úr þenslu í hagkerfinu. 31.8.2006 09:35
Aldrei meiri vöruskiptahalli Vöruskipti voru óhagstæð um 19,1 milljarð króna í síðasta mánuði og hefur vöruskiptahallinn aldrei verið meiri í einum mánuði frá því Hagstofan fór að birta upplýsingar um vöruskipti eftir mánuðum. Á sama tíma í fyrra var vöruskiptahallinn 11,9 milljarðar króna. 31.8.2006 09:19
Metkaup á erlendum bréfum Innlendir aðilar keyptu erlend verðbréf fyrir 54 milljarða í síðasta mánuði, samkvæmt nýjum tölum frá Seðlabanka Íslands. Greiningardeild KB banka segir um metkaup að ræða í einum mánuði síðast mælingar hófust árið 1994. 30.8.2006 17:57
Minni hagnaður hjá Landsvaka Landsvaki, dótturfélag Landsbankans sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði bankans, skilaði rúmum 3,2 milljarða króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn rúmum 42,5 milljörðum króna. 30.8.2006 17:53
Tífalt minni hagnaður hjá ÍAV Hagnaður Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) nam 30 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Þetta er tífalt verri afkoma en á sama tíma á síðasta ári þegar hagnaður félagsins nam 299 milljónum króna. Gengisfall og verðbólga setti mark sitt á rekstur ÍAV ásamt háum skammtímavöxtum. 30.8.2006 16:53
Tap hjá Smáralind Smáralind ehf., rekstraraðili verslunarmiðstöðvarinnar Smáralind í Kópavogi, tapaði 733 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma fyrir ári tapaði félagið 36 milljónum króna. Tapið skýrist fyrst og fremst af gengistapi af erlendum skuldum félagsins sem nam 652 milljónum króna. Búist er við að breytingar á gengi krónunnar hafi áfram mikil áhrif á afkomu fyrirtækisins. 30.8.2006 16:49
OR tapaði 6,2 milljörðum króna Orkuveita Reykjavíkur (OR) tapaði tæpum 6,2 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er nokkur umsnúningur á rekstri OR en hún skilaði tæplega 1,5 milljarða króna hagnaði á sama tíma í fyrra. Langtímaskuldir OR eru að stærstum hluta í erlendri mynt en gengistap af langtímaskuldum nam 10,8 milljörðum króna á fyrri hluta árs. 30.8.2006 15:17
Tap hjá Hitaveitu Rangæinga Hitaveita Rangæinga tapaði 21,4 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra tapaði hitaveitan 17 milljónum krónum. Tekjuskattur hitaveitunnar, sem greiddur verður á næsta ári, er ekki inni í árshlutareikningnum. 30.8.2006 14:52