Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Olíuverð hækkaði lítillega Olíuverð hækkaði lítillega á helstu mörkuðum í dag og fór yfir 70 bandaríkjadali á tunnu á ný eftir snarpar lækkanir síðustu tvo daga. Vikulegar upplýsingar um olíubirgðir í Bandaríkjunum verða birtar í dag og bíða fjárfestar eftir þeim. 30.8.2006 10:31
Fitch staðfestir lánshæfi Kaupþings og Glitnis Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunnir bæði Kaupþings banka og Glitnis banka. Einkunnn Kaupþings er sögð endurspegla sterka stöðu bankans og einkunn Glitnis góða hagnaðarmyndun í rekstri. 30.8.2006 09:09
Neytendur bjartsýnir í ágúst Væntingavísitala Gallup mældist 108 stig í ágúst og er það 22,6 prósenta hækkun frá síðasta mánuði. Niðurstöðurnar benda til að íslenskir neytendur séu almennt bjartsýnir á stöðu mála í hagkerfinu. 29.8.2006 16:37
Hráolíuverð undir 70 dölum Olíuverð fór niður fyrir 70 dala markið á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að ljóst þykir að hitabeltisstormurinn Ernesto fer framhjá olíuborpöllum við Mexíkóflóa. Þetta er annar dagurinn í röð sem olíuverð lækkar. 29.8.2006 15:16
Minni hagnaður hjá Sorpu Hagnaður Sorpu b.s. nam 11,3 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem er rúmlega 35 milljóna króna samdráttur á milli ára. 29.8.2006 14:09
Hagnaður KEA minnkar milli ára Kaupfélag Eyfirðinga (KEA) skilaði 133 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæplega 64,8 milljónum minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra. 29.8.2006 10:44
Verðbólgan næstmest á Íslandi Vísitala neysluverðs mældist 3,1 prósent innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar í júlí. Þetta er 0,1 prósentustigi minna en á sama tíma í fyrra. Verðbólgan er næstmest á Íslandi. 29.8.2006 09:51
Atvinnuleysi minnkar í Japan Atvinnuleysi dróst saman um 0,1 prósentustig í Japan í júlí. Það mælist nú 4,1 prósent og spá greiningaraðilar áframhaldandi efnahagsbata í landinu. Atvinnuleysi í Japan hefur minnkað jafnt og þétt 15 mánuði í röð. 29.8.2006 09:07
Kjalarvogur hagnaðist um 63 milljónir króna Kjalarvogur ehf., dótturfélag Húsasmiðjunnar hf., skilaði 63 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæp tvöföldun á milli ára en á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 35 milljónir króna. 28.8.2006 17:18
Tap hjá Landsvirkjun Landsvirkjun skilaði tæplega 6,5 milljarða króna taprekstri á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 2 milljörðum króna. Tap fyrir skatta nam tæpum 23 milljörðum króna sem er 25 milljarða króna verri afkoma en á sama tíma fyrir ári. Landsvirkjun greiddi í fyrsta skipti skatt af starfsemi sinni á árinu en tapið skýrist af veikingu krónunnar. 28.8.2006 17:03
Tap hjá Síldarvinnslunni Síldarvinnslan í Neskaupstað tapaði 204 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði fyrirtækið 728,4 milljóna króna hagnaði. Í uppgjöri Síldarvinnslunnar segir að útlit sé fyrir að rekstur félagsins verði þokkalegur á síðari hluta árs. 28.8.2006 16:36
Olíuverð lækkar frekar Heimsmarkaðsverð lækkaði um 2 bandaríkjadali og fór niður fyrir 71 dal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar fregna þess efnis að hitabeltisstormurinn Ernesto, sem nú nálgast suðurströnd Bandaríkjanna, fari framhjá olíuborpöllum við Mexíkóflóa. 28.8.2006 16:04
Kaupa mexíkóskt tekílafyrirtæki Bandaríska áfengisfyrirtækið Brown-Forman, sem meðal annars framleiðir Jack Daniel's viskíið og líkjöra á borð við Southern Comfort, greindi frá því í dag að það hefði keypt mexíkóska tekílaframleiðandann Grupo Industrial Herradura fyrir 876 milljónir dala, jafnvirði rúmra 61,3 milljarða íslenskra króna. 28.8.2006 15:46
Mæla með sölu í bréfum HB Granda Greiningardeild Landsbanks segir afskráningu HB Granda af Aðallista Kauphallarinnar og skráningu á iSEC markað koma til með að hafa mikil áhrif á hluthafa félagsins. Sé hætt við að hluthafar læsist inni og er mælt með sölu á bréfum félagsins. 28.8.2006 15:02
Amazon.com kaupir eigin bréf Stjórn bandarísku netverslunarinnar Amazon.com hefur gefið heimild fyrir því að kaupa aftur eigin bréf í félaginu fyrir hálfan milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 35 milljarða íslenskra króna, á næstu tveimur árum. 28.8.2006 13:23
Hlutabréf lækkuðu í Evrópu Gengi hlutabréfa lækkaði lítillega á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag þrátt fyrir lækkun á olíuverði en lækkunin hafði áhrif á gengi olíufélaga. Þá lækkaði gengi bandaríkjadals sömuleiðis gagnvart evru. Þá lækkaði gengi Banca Intesa og Sanpaolo IMI, sem munu renna saman í einn, um tæp 2 prósent. 28.8.2006 11:54
Hlutabréf lækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði um rúmt prósent í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag. Þetta er fjórða lækkunin á jafn mörgum dögum og hefur hlutabréfavísitalan ekki verið lægri í landinu í hálfan mánuð. 28.8.2006 10:23
Olíuverð niður um rúman dal Hráolíuverð lækkaði um rúman bandaríkjadal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar þess að fellibylurinn Ernesto, sem er yfir karabíska hafinu, var lækkaður niður í hitabeltisstorm. Olíufyrirtæki hafa engu að síður sent starfsmenn sína á brott frá olíuborpöllum við Mexíkóflóa í varúðarskyni. 28.8.2006 09:20
Dæmi eru um laun í evrum Bakkavör, Össur og Marel greiða öll fyrir stjórnarsetu í erlendum gjaldmiðli. Að auki hefur Marel samið við hluta starfsmanna hér um evrutengdar launagreiðslur. Hjá ASÍ hafa verið viðraðar hugmyndir um laun í evrum. 26.8.2006 06:00
Exista nærri yfirtöku í Bakkavör Exista keypti í gær rúmlega 6,5 prósenta hlut í Bakkavör og á nú tæplega 39 prósenta hlut í félaginu, en það er nærri yfirtökumörkum. 26.8.2006 06:00
Hagnaður hjá Byggðastofnun Byggðastofnun skilaði 194 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er viðsnúningur frá sama tíma fyrir ári en þá tapaði stofnunin 40 milljónum króna. 25.8.2006 17:37
Hagnaður Samson 12,2 milljarðar króna Eignarhaldsfélagið Samson skilaði tæplega 12,2 milljarða króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins en þetta er rúmlega 7,7 milljarða krónu aukning frá sama tíma í fyrra. 25.8.2006 17:28
Mælir með kaupum í Kaupþingi Greiningardeild Landsbanks hefur uppfært verðmat sitt á Kaupþingi og Glitni. Deildin mælir með því að fjárfestar kaupi bréf í Kaupþingi en haldi bréfum sínum í Glitni. 25.8.2006 15:56
Aukið tap hjá CVC Fjárfestingarfélagið CVC tapaði tæpum 10,4 milljónum bandaríkjadala eða tæplega 729 milljónum íslenskra króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði félagið tæplega 4,9 milljóna dala tapi eða 342,5 milljónum króna. 25.8.2006 15:49
Tap hjá Eyri Invest Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest tapaði 926 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra skilaði félagið 4,1 milljarðs króna hagnaði. Í tilkynningu frá félaginu segir að niðursveifla á hlutabréfamörkuðum á fyrri hluta ársins hafi haft áhrif á afkomu félagins. 25.8.2006 15:24
Risasamruni á Ítalíu Hluthafar ítölsku bankanna Banca Intesa og Sanpaolo hafa samþykkt samruna tveggja af stærstu bönkum landsins. Með samrunanum verður til stærsti banki Ítalíu og 10. stærsti banki í Evrópu með markaðsvirði uppá 55 milljarða evrur, jafnvirði rúmlega 4.900 milljarða íslenskra króna. 25.8.2006 15:18
Besta afkoma í sögu SPH Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH) skilaði 311 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 69,6 prósenta aukning miðað við sama tímabil í fyrra og besta rekstrarniðurstaða sparisjóðsins á fyrri hluta árs í 103 ára sögu hans.. 25.8.2006 14:03
Methagnaður hjá SPK Sparisjóður Kópavogs (SPK) skilaði 222 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 135 milljónum meira en á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn er umfram áætlanir og sá mesti í sögu SPK á einum ársfjórðungi. 25.8.2006 13:14
Olíuverð hækkaði um rúman dal Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði um rúman Bandaríkjadal á helstu mörkuðum í dag vegna hættu á að hitabeltisstormar á Karabíska hafinu geti spillt fyrir olíuframleiðslu við Mexíkóflóa og óttast fjárfesta við að Íranar muni draga úr útflutningi á olíu verði viðskiptabann sett á landið vegna kjarnorkuáætlunar stjórnvalda. 25.8.2006 13:08
Ryanair gegn breska ríkinu Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair ætlar að höfða mál gegn breska ríkinu og krefjast 3,3 milljóna punda, jafnvirði 438 milljóna íslenskra króna, í skaðabætur vegna tafa á flugleiðum og óþæginda fyrir farþega vegna hertra flugöryggisreglna sem koma á í veg fyrir hryðjuverk í flugvélum. 25.8.2006 12:45
Tap þrátt fyrir gróða Síminn tapaði rúmum 6,4 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er nokkur umsnúningur frá sama tíma fyrir ári þegar félagið skilaði 2,1 milljarðs króna hagnaði. Hluti skulda Símans er í erlendri mynt en gengistap nam tæpum 8,3 milljörðum króna á tímabilinu. 25.8.2006 12:13
Hefur aldrei tapað útláni Lánasjóður sveitarfélaga hefur ekki tapað láni frá stofnun sjóðsins árið 1967 og eru vanskil óveruleg. Hlutverk sjóðsins er að tryggja sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum þeirra fjármögnun á hagstæðum kjörum en útlán til þeirra eru tryggð með tekjum sveitarfélaga. 25.8.2006 06:45
Glitnir lýkur endurfjármögnun fyrstur Glitnir hefur lokið allri endurfjármögnun vegna ársins 2007, fyrstur íslensku bankanna. Á árinu hefur bankinn gefið út skuldabréf að jafnvirði um 270 milljarða króna á árinu. 25.8.2006 06:30
Tilboð lagt fram í HoF Fjárfestahópur, sem meðal annars er skipaður Baugi og FL Group, hefur lagt fram yfirtökutilboð í House of Fraser, eina þekktustu verslunarkeðju Bretlands fyrir 60 milljarða. Baugur og FL taka samanlagt helmingshlut. 25.8.2006 00:01
Meiri hagnaður á fyrri hluta ársins en allt síðasta ár. Frjálsi fjárfestingabankinn hagnaðist um tæpar 580 milljónir króna á fyrri hluta ársins sem er 150 prósenta meiri hagnaður en á sama tíma árið 2005. Þetta er meiri hagnaður en allt árið í fyrra sem þó var besta ár félagsins. 25.8.2006 00:01
Ný skýrsla norrænna samkeppniseftirlita Milli íslenskra banka er búin að vera grimmileg samkeppni í kjölfar þess krafts sem leystist úr læðingi við einkavæðingu ríkisbankanna, segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja (SBV). Hann vill ekki kannast við þá mynd sem dregin er upp í nýrri skýrslu norrænna samkeppniseftirlita að hér skorti á samkeppni milli banka. 25.8.2006 00:01
Úrvalsvísitalan yfir 6000 stig Úrvalsvísitalan rauf 6.000 stiga múrinn við lokun viðskipta í Kauphöll Íslands í dag og endaði í 6.004 stigum. Vísitalan hefur ekki verið hærri síðan seint í mars á þessu ári. 24.8.2006 16:01
Uppfærð hagvaxtarspá fyrir Þýskaland Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) hefur uppfært hagvaxtarspá sína fyrir Þýskaland. IMF spáði 1,3 prósenta hagvexti í landinu á þessu ári en býst nú við 2 prósenta hagvexti á árinu. 24.8.2006 15:53
Endurfjármögnunarþörfin tryggð Glitnir hefur á þessu ári gefið út skuldabréf fyrir 3 milljarða evrur, jafnvirði tæpra 272 milljarða íslenskra króna, og með því tryggt endurfjármögnun bankans fyrir næsta ár. Handbært fé Glitnis nemur 2,5 milljörðum evra, 225 milljörðum króna, sem jafngildir 111 prósentum af fjármögnunarþörf næstu sex mánaða 24.8.2006 15:02
Metafgangur hjá ríkissjóði Ríkissjóður var rekinn með tæplega 113 milljarða króna afgangi á síðasta ári. Þetta er 111 milljörðum króna meiri afgangur en árið 2004. Í Vefriti fjármálaráðuneytisins segir að skýringin felist að hálfu leyti í sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Landssíma Íslands hf. en hann nam 56 milljörðum króna. Hinn helmingurinn skýrist af góðri afkoma ríkissjóðs af þeirri uppsveiflu sem verið hefur í efnahagslífinu og aðhaldi í útgjöldum. 24.8.2006 13:02
Spá lækkun stýrivaxta næsta vor Greiningardeild Glitnis segir væntingar um að Seðlabanki Íslands lækki stýrivexti snemma á næsta ári. Á móti komi að væntingar virðist vera að lækkunin verði hófleg verði þeir enn yfir 12 prósentum um mitt næsta ár en fari undir 10 prósent fyrir lok ársins. Stýrivextir standa nú um stundir í 13,5 prósentum. 24.8.2006 12:40
Óvænt uppsögn hjá McDonald's Mike Roberts, einn af æðstu stjórnendum skyndibitakeðjunnar McDonald's, sagði upp störfum í gær. Uppsögnin kemur talsvert á óvart en gert var ráð fyrir að Roberts yrði næsti forstjóri keðjunnar. 24.8.2006 10:33
Slá stóru dönsku bönkunum við Litlir bankar í Danmörku vaxa hraðar en þeir stóru og stela frá þeim kúnnum. 24.8.2006 06:30
LÍ mælir með sölu í FL Group Greiningardeild Landsbankans verðleggur FL Group á 120 milljarða króna og mælir með sölu á hlutabréfum í félaginu. 24.8.2006 06:30
SPRON skilar 2,6 milljörðum í hús Methagnaður varð af rekstri SPRON á fyrri hluta ársins eða 2.627 milljónir króna. Til samanburðar var afkoma sparisjóðsins tæpir 1,6 milljarðar á sama tíma í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 37 prósent á ársgrundvelli. 24.8.2006 06:15