Minni hagnaður hjá Milestone 31. ágúst 2006 16:53
Fjárfestingarfélagið Milestone ehf. hagnaðist um 1,9 milljarða krónur á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn hins vegar tæpum 4,1 milljarði króna. Í uppgjöri félagsins kemur fram að stór hluti af eignasafni Milestone samanstandi af félögum sem skráð eru á markað i og mótast afkoman af almennum markaðsaðstæðum. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands segir að starfsemi Milestone á tímabilinu hafi markast af viðamiklum fjárfestingum, rekstri dótturfélaga og aðkomu að stjórnun hlutdeildarfélaga. Að sama skapi hafa breytingar á gengi íslensku krónunnar haft áhrif á rekstur og efnahag félagsins. Milestone keypti 33,4 prósenta hlut Glitnis í tryggingafélaginu Sjóvá á árinu og ræður þar með öllu hlutafé í félaginu. Þá keypti það öll hlutabréf í L&H eignarhaldsfélagi í lok júní, sem meðal annars rekur lyfjakeðjuna Lyf & heilsu. Rekstrartekjur Milestone námu rúmum 4,4 milljörðum króna á tímabilinu og voru rekstrargjöld neikvæð um rúma 5,2 milljarða krónur. Heildareignir Milestone námu tæpum 115,5 milljörðum króna við lok tímabilsins en þær námu tæpum 44,5 milljörðum króna á sama tíma fyrir ári. Eigið fé nam rúmum 24 milljörðum króna og er það talsverð aukning á milli ára en á sama tíma fyrir ári nam eigið fé rúmum 14,6 milljörðum króna. Horfur í rekstri félagsins á síðari hluta ársins eru góðar. Rekstur dótturfélaga er stöðugur og hagræðingarverkefni ganga samkvæmt áætlun, að því er fram kemur í uppgjöri Milestone. Þá segir að jákvæð þróun hafi verið á helstu mörkuðum og eignasafn Milestone hafi nú þegar skilað góðri arðsemi frá miðju ári. Þá hafi styrking íslensku krónunnar þegar haft jákvæð áhrif á rekstur og efnahag samstæðunnar.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira