Fleiri fréttir

Hagnast um 280 milljarða frá lokum einkavæðingar

Frá árinu 2003, er einkavæðingu ríkisbankanna lauk og hlutabréfaverð tók að rísa hratt hér á landi, hafa viðskiptabankarnir þrír og Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hagnast alls um 280 milljarða króna.

Rússar auka bjórdrykkju

Danska bjórrisanum Carslberg hefur vegnað vel á Rússlands- og Eystrasaltsmarkaði. Carslberg rekur brugg- verksmiðju ásamt breska framleiðandanum Scottisch & Newcastle og jókst hagnaður verksmiðjunnar um tæp þrjátíu og tvö prósent á öðrum ársfjórðungi. Neysla á bjór hefur aukist gríðarlega í Rússlandi og við Eystrasalt undanfarin misseri og er því spáð að salan aukist um fimm prósent á þessu ári.

Opnað fyrir viðskipti í Beirút

Bréf í Kauphöllinni í Beirút féllu um fjögur prósent á fyrsta degi viðskipta eftir að Ísraelar hófu árásir á Líbanon.

Fjöldi farþega FlyMe þrefaldast

FlyMe flutti þrefalt fleiri farþega í júlí en í sama mánuði í fyrra. Alls ferðuðust um 64 þúsund farþegar með félaginu í síðasta mánuði samanborið við sautján þúsund manns í júlí 2005.

OECD fjallar um horfur hér

Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, kynnir í dag nýja skýrslu um efnahagsmál á Íslandi.

BMW hagnast

Allt stefnir í besta ár í sögu BMW. Tekjur félagsins námu 1200 milljörðum á öðrum ársfjórðungi.

Nokia vill Loudeye

Nokia-samsteypan ætlar sér stóra hluti á markaðnum með stafræna tónlist fyrir GSM-síma. Fyrirhuguð kaup á bandaríska tónlistardreifingarfyrirtækinu Loudeye Corporation fyrir um 69 milljónir bandaríkjadala, um 4,25 milljarða íslenskra króna, eru liður í þessu.

Murdoch og Google saman

Google mun framvegis sjá notendum stefnumótasíðunnar MySpace fyrir leitarvél. Google greiðir MySpace 65 milljarða króna fyrir réttinn sem felur einnig í sér heimild til að ráðstafa auglýsingum á síður MySpace.

Skrefi nær yfirtöku

Tryggingamiðstöðin er skrefi nær yfirtöku á norska tryggingafélaginu NEMI forsikring ASA en Fjármálaeftirlit Noregs veitti TM fyrir helgi heimild til að eiga milli 74,5 og 100 prósent af útistandandi hlutum í félaginu. Þann 12. apríl síðastliðinn gerði Tryggingamiðstöðin öllum hluthöfum félagsins yfirtökutilboð með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda og áreiðanleikakönnunar.

Mikið af ruslpósti

Allt að 95 prósent allra tölvuskeyta er ruslpóstur, villuboð og vírusar en aðeins tæp 4 prósent allra skeyta innihalda eitthvað gagnlegt. Þetta er niðurstaða könnunar breska netfyrirtækisins Return Path.

Bankar mæla með öðrum bönkum

Greiningardeild Landsbankans mælir með kaupum og yfirvogun á hlutabréfum í Glitni eftir að Glitnir birti "sannfærandi" hálfs árs uppgjör sem var langt yfir væntingum annan ársfjórðunginn í röð.

Áfram samdráttur á fasteignamarkaði

Velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman um 45 prósent frá því þegar mest lét. Sérfræðingar segja samdrátt í veltu undanfara verðlækkana.

Segja meira aðhalds vera þörf

Þörf er á frekari hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands til að slá á þenslu og draga úr verðbólgu. Þetta kom fram í viðræðum sérfræðinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) við sérfræðinga og embættismenn hér sem fram fóru fyrir helgi í tilefni af útgáfu nýrrar skýrslu sjóðsins um íslensk efnahagsmál. Þá segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að stjórnvöld verði að breyta skipulagi íbúðalánasjóðs því öðrum kosti vinni samkeppni hans við bankanna á lánamarkaði á móti peningastefnu Seðlabankans.

37 milljarða yfirtökutilboð

Dótturfélag Avion Group hefur gert 37 milljarða króna yfirtökutilboð í kanadískt kælifyrirtæki. Gangi kaupin eftir mun velta Eimskips nánast tvöfaldast.

Auknar tekjur

Skattskyldar tekjur landsmanna námu 702 milljörðum króna árið 2005 og jukust um 16,8 prósent frá fyrra ári, segir í nýútkomnu Vefriti fjármálaráðuneytisins.

Átján milljarða vöruskiptahalli

Vöruskiptahalli nam átján milljörðum króna í júlí samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur dróst saman um nærri fjórðung og nam sautján milljörðum króna. Flutt var inn fyrir þrjátíu og fimm milljarða króna í mánuðinum. Mest aukning varð á innflutningi á fjárfestingar- og rekstrarvörum.

Bréf í Atlas hækka

Yfirtökutilboð Avion Group olli tuttugu prósenta hækkun á bréfum Atlas Cold Storage. Gengið er nú hærra en tilboð Avion hljóðaði upp á.

Egla tapar 892 milljónum

Eignarhaldsfélagið Egla tapaði 892,4 milljónum króna á fyrri helmingi árs. Egla er að langstærstum hluta í eigu félaga tengdum Ólafi Ólafssyni, stjórnarformanni Samskipa.

ICEX og OMX ræðast við um meira samstarf

Getur leitt til samruna íslensku kauphallarinnar við sameiginlegar kauphallir í sex löndum. Horft til samstarfs um skráningu íslenskra félaga á samnorrænan kauphallarlista sem hleypt verður af stokkunum í haust.

Mala gull úr laxinum

Annar stærsti laxeldis- og fóðurframleiðandi heims, norska félagið Cermaq, hagnaðist um 2,8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi sem er 150 prósenta betri afkoma en á sama tíma í fyrra.

Stórbætt afkoma Alcan

Bandaríski álframleiðandinn Alcan hagnaðist um tæpa 32 milljarða íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi og jókst hagnaðurinn um rúman helming milli ára. Tekjur félagsins námu tæpum 434 milljörðum króna á tímabilinu og jukust um sautján prósent milli ára.

BTC hagnast meira

Búlgarska símafélagið BTC skilaði 3,6 milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi, sem er 58 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Alls nam hagnaður BTC 6,8 milljörðum á fyrri árshelmingi.

EVE-spilarar CCP verði fleiri en Íslendingar

„Markmið okkar um að EVE-spilarar verði fleiri en Íslendingar er á góðri leið,“ segir Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. Áskrifendur netleiksins EVE online voru síðast orðnir 135 þúsund talsins og fjölgar þeim um fimm þúsund á mánuði. Miðað við óbreyttan vöxt verða áskrifendur að EVE online orðnir fleiri en Íslendingar eftir þrjú ár.

Heimsferðir færa út kvíarnar

Heimsferðir hafa fest kaup á finnsku ferðaskrifstofunni Matka Vekka Group. Kaupverð var ekki uppgefið. Matka Vekka Group er stærsta ferðaskrifstofa Finnlands; hjá fyrirtækinu starfa tæplega þrjú hundruð manns og er áætluð velta á þessu ári rúmir tólf milljarðar króna.

Hagnast um 31 milljarð á öðrum árshluta

Bankarnir skiluðu um 92 milljörðum í hús á fyrri hluta árs. Hreinar rekstrartekjur drógust saman milli fyrsta og annars ársfjórðungs. Eignir bankanna nema nú sjöfaldri landsframleiðslu.

Icelandair semur við SAS

Icelandair hefur samið við SGS, afgreiðslufyrirtæki í eigu SAS, og mun fyrirtækið sjá um alla farþega- og farangursþjónustu fyrir Icelandair á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn.

KB banki selur Exista

Kaupverð 6,1 prósent hlutar er á annan tug milljarða. Forstjóri KB banka telur að með þessu svari bankinn gagnrýni á krosseignarhald.

Lítill ójöfnuður í launum

Mismunur milli tekna ákveðinna launahópa hefur ekki aukist hér á landi undanfarinn áratug. Vægi fjármagnstekna hefur hins vegar margfaldast og safnast þær á fárra hendur. Þetta sýna nýir útreikningar Benedikts Jóhannessonar, framkvæmdastjóra Talnakönnunar.

Mesti hagnaður í sögu Glitnis

Eini bankinn sem jók hagnað og tekjur á milli fyrsta og annars ársfjórðungs. Tuttugu milljarða hagnaður á fyrri hluta ársins.

Sjá næstu 50 fréttir