Fleiri fréttir

Skuldir heimilanna aukist um 87%

Útlán innlánsstofnanna til heimila námu alls um 369 milljörðum í lok marsmánaðar. Frá því að bankarnir hófu að bjóða ný íbúðalán til almennings hafa heimilin alls aukið skuldbindingar sínar við innlánsstofnanir um 172 milljarða króna, eða 87%.

Hlutabréf lækka í Kauphöllinni

Hlutabréfaverð hélt áfram að lækka í Kauphöll Íslands í gær. Framan af degi lækkuðu bréf í KB banka verulega en hækkuðu á ný undir lok dags og nam lækkunin á þeim bréfum í gær tæpum tveimur prósentum.

Pólskt farsímaleyfi

Netia Mobile, sem er í meirihlutaeigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur verið úthlutað fjarskiptaleyfi fyrir þriðju kynslóð farsíma í Póllandi

Flugfloti Sterling tvöfaldaður

Flugfloti flugfélagsins Sterling, sem er í eigu Íslendinga, verður tvöfaldaður á næstunni, að sögn Almars Arnar Hilmarssonar, forstjóra félagsins. Hann segir í samtali við danska blaðið <em>Politiken</em> að gert sé ráð fyrir hagnaði af rekstrinum á þessu ár en tapið á síðasta ári var á annan milljarð króna. Hann segir ljóst að félagið hafi ekki verið keypt fyrir á fjórða milljarð króna til að láta það standa í stað.

Sterling skili hagnaði á þessu ári

Flugfloti skandinavíska lágfargjaldaflugfélagsins Sterling, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, verður tvöfaldaður á næstunni og segir forstjóri félagsins, Almar Örn Hilmarsson að áætlað sé að félagið skili hagnaði á þessu ári.

Félag Björgólfs fær farsímaleyfi

Fyrirtæki í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar hefur fengið farsímaleyfi í Póllandi. Fyrirtækinu Netia Mobile, sem Björgólfur Thor stýrir, og pólska símafyrirtækinu Netia var í gær úthlutað svokölluðu UMTS-leyfi í Póllandi, en það er fjórða leyfið sem veitt er fyrir þriðju kynslóð farsíma þar í landi. Búist er við að farsímanotkun Pólverja eigi eftir að aukast verulega.

Vilja reisa eitt álver í viðbót

Við höfum áhuga á að reisa eitt álver á Íslandi í viðbót," segir Ragnar Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Norðuráls. Hann segir þó margt óljóst ennþá. Ekki sé vitað hvar næsta álver eigi að vera, hve stórt það verði og hvaðan orkan verði fengin. Málið sé á hugmyndastigi.

Marel nálægt væntingum

Marel hagnaðist um 1,8 milljónir evra (145 milljónir króna) á fyrsta ársfjórðungi. Uppgjörið er aðeins undir væntingum greiningaraðila en félaginu hafði verið spáð að 1,89 milljónum evra (152 milljónir króna) að meðaltali í hagnað. Hagnaður fyrir sama árshluta árið 2004 var nítján prósentum minni.

Burðarás samkvæmt spám

Hagnaður Burðaráss nam ríflega 4,6 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Hagnaðurinn er nálægt spám greiningardeilda.

Tilboð SPRON í Allianz samþykkt

SPRON hefur fengið samþykki á tilboð sem sparisjóðurinn gerði nýlega í 80% hlutafjár í Hring Eignahaldsfélagi, sem er eignahaldsfélag um Allianz Ísland hf. Baugur Group er stærsti hluthafi Hrings með 65% eignarhlut. Sparisjóður Kópavogs mun áfram eiga um 20% hlut í félaginu.

459 milljóna hagnaður

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hagnaðist um 459 milljónir á fyrsta ársfjórðungi ársins og eykst hagnaður fyrirtækisins um tæp 70 prósent frá sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins námu 1,7 milljörðum króna.

Lítil ávöxtun af erlendum bréfum

Bandarísku hlutabréfavísitölurnar hafa lækkað frá áramótum. Evrópsku vísitölurnar hafa hækkað örlítið en sú íslenska er með vinninginn.

Aðhefst ekkert vegna auglýsinga

Samkeppnisstofnun telur ekki ástæðu til þess að aðhafast neitt vegna auglýsinga Og Vodafone á Og1, nýrri símaþjónustu fyrir heimili. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Og Vodafone. Landssími Íslands hafði kvartað til Samkeppnisstofnunar vegna auglýsinga fyrir Og 1 og talið þær ólögmætar.

Kári aldrei bjartsýnni

Tap Íslenskrar erfðagreiningar á fyrsta ársfjórðungi nam tæpum milljarði króna. Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins, segir fyrirtækið þó aldrei hafa gengið betur og sjálfur hafi hann aldrei verið bjartsýnni.

Mikil lækkun krónunnar í gær

Gengi krónunnar lækkaði um rúmlega hálft annað prósent í gær og er dollarinn nú kominn upp undir 64 krónur. Langt er síðan krónan hefur lækkað svo mikið á einum degi. Greiningadeild KB banka rekur þetta annars vegar til þeirrar ákvörðunar fjármálaráðherra að greiða upp erlendar skammtímaskuldir upp á hundrað milljónir dollara umfram áætlanir og hins vegar til breytinga Hagstofunnar á vaxtaþættinum í vísitölu neysluverðs.

Fagnar átaki ASÍ

Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnar átaki ASÍ, Einn réttur - ekkert svindl, sem meðal annars beinist gegn þeim atvinnurekendum sem misnota erlent verkafólk. Hann segir jafnframt að skilgreina þurfi hvaða reglur eigi að gilda á íslenskum vinnumarkaði og að tryggja þurfi aðgengi erlends starfsfólks.

Mikill bílafjöldi fluttur frá BNA

Gríðarleg ásókn er nú í að flytja inn bæði nýja og notaða bíla frá Bandaríkjunum því þeir eru tollafgreiddir inn í landið á því gengi dollara sem gildir daginn sem afgreiðslan fer fram. Í undirbúningi er að senda hingað bílaflutningaskip til að stytta biðlistann og biðlisti eftir að flytja hingað bíla í flugi er orðinn allt að sex vikur.

Vilja flytja inn bíla strax

Ótti manna við að krónan haldi áfram að lækka og dollarinn að hækka hefur skapað gríðarlega ásókn í að flytja inn bæði nýja og notaða bíla frá Bandaríkjunum - og það strax.

Stýrivextir hækkaðir í BNA

Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði stýrivexti sína í þrjú prósent í gær. Þetta er áttunda hækkunin á innan við einu ári en þeir eru nú þrefalt hærri en í júní í fyrra þegar þeir voru eitt prósent. Ástæðan er fyrst og fremst aukinn verðbólguþrýstingur.

Olís greiðir samráðssekt

Olís greiddi núna áðan sekt sína til ríkissjóðs vegna ólöglegs verðsamráðs olíufélaganna. Esso fylgdi í gær fordæmi Skeljungs og greiddi sína sekt og öll olíufélögin hafa því greitt sektir sínar nú. Sameiginlegar sektir, sem lagðar voru á félögin með ákvörðun áfrýjunarnefndar í janúar, nema um einum og hálfum milljarði króna, þar af greiddi Olís mest.

Sjóvá greiði sekt vegna samráðs

Úrskurðarnefnd samkeppnismála hefur úrskurðað að Sjóvá-Almennum beri að greiða stjórnvaldssekt að upphæð 27 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum. Upphaflega beindist rannsókn Samkeppnisstofnunar að þremur tryggingafélögum, VÍS, Tryggingamiðstöðinni og Sjóvá-Almennum. Félögin höfðu haft samráð um uppsetningu nýs tjónamatskerfis og hversu mikla verðhækkun það ætti að hafa í för með sér.

Sterling tapaði 450 milljónum

Norræna lágfargjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristvinssonar, tapaði 450 milljónum króna á fyrsta fjórðungi ársins. Í frétt frá félaginu segir að ekki komi á óvart að tap sé á rekstrinum, yfirleitt sé tap á fyrsta ársfjórðungi vegna árstíðarsveiflna.

Eldsneytisverð og tíminn skýri tap

Tap lággjaldaflugfélagsins Sterling á fyrsta ársfjórðungi nam um 460 milljónum íslenskra króna. Almar Örn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Sterling og Iceland Express, segir skýringu á taprekstri aðallega hækkun á eldsneytisverði og að hefðbundið sé í rekstri flugfélaga að skila tapi á þessu tímabili.

Norðurljós selja 10 prósent

Norðurljós seldu í gær um tíu prósenta hlut í Og fjarskiptum, síma- og fjölmiðlasamsteypunni, fyrir 1,9 milljarða króna. Viðskiptin fóru fram á genginu 4,23 og voru liður í greiðslu til hluthafa í Norðurljósum vegna lækkunar á hlutafé félagsins.

Milljarðartap hjá deCode

Tap af rekstri deCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, á fyrsta ársfjórðungi var talsvert meira en tekjur eða um einn milljarður króna. Tekjurnar námu um sex hundruð milljónum króna.

Meirihluti nýtir sér forkaupsrétt

Mikill meirihluti hluthafa í Morgunblaðinu hefur nýtt sér forkaupsrétt á hlut Haraldar Sveinssonar í blaðinu sem var til sölu.

Kauphallarflaggskipin týna tölunni

Á fimmta tug milljarða króna hefur verið varið til að yfirtaka og afskrá sjávarútvegsfélög frá ársbyrjun 2004. Skuldsetning sjávarútvegsins hefur aukist og gæti það hamlað nýsköpun og frekari tæknivæðingu greinarinnar. Eggert Þór Aðalsteinsson fjallar um vanda sjávarútvegsfélaga á hlutabréfamarkaði.

Hagnaður Íslandsbanka minnkar

Hagnaður Íslandsbanka á fyrsta ársfjórðungi ársins nam rúmlega þremur milljörðum króna eftir skatta en bankinn birti afkomutölur sínar í dag. Þetta er minni hagnaður en á sama tíma í fyrra en þá hljóðaði hann upp á 4,8 milljarða, þar af var um 3,5 milljarðar af sölu hlutabréfa í Straumi Fjárfestingarbanka.

Olíuverð ekki lægra í tvo mánuði

Verðið á olíufatinu fór í gær niður fyrir fimmtíu dollara og hefur ekki verið lægra í meira en tvo mánuði. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um heil sextán prósent síðan fjórða apríl þegar verðið á fatinu var rétt yfir fimmtíu og átta dollarar.

Tæplega 40 hafa óskað eftir gögnum

Hátt í fjörutíu aðilar hafa óskað eftir því við einkavæðingarnefnd að fá trúnaðargögn um Símann þar sem þeir séu áhugasamir um kaup á fyrirtækinu. Mjög sterkir innlendir og erlendir aðilar eru í þeim hópi. 

Tæplega 200 milljóna hagnaður

Tæplega 200 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Og fjarskipta eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samanborið við um 80 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Hagnaður félagsins, sem á og rekur Og Vodafone og 365 prent- og ljósvakamiðla, nam fyrir skatta 243 milljónum króna en í fyrra nam hann 99 milljónum.

Uppgreiðsla erlendra lána aukin

Fjármálaráðherra hefur ákveðið, í ljósi bættrar greiðslustöðu ríkissjóðs, að auka uppgreiðslu erlendra lána ríkissjóðs á árinu frá því sem áður var ákveðið. Nú í maí verða því greiddar 100 milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar rúmlega sex milljörðum íslenskra króna, af skammtímalánum, umfram það sem áður hafði verið tilkynnt um.

TM myndar hóp með Hagkaupsbræðrum

Tryggingamiðstöðin, ásamt Hagkaupsbræðrunum Jóni og Sigurði Gísla Pálmasonum, Bolla Kristinssyni, kenndum við 17, og Ingimundi Sigfússyni, fyrrverandi eiganda Heklu, hafa myndað hóp í kringum kaupin á Símanum, með fleiri aðilum.

Stór fiskur í lítilli tjörn

Breska verslanakeðjan Mosaic Fashions undirbýr nú skráningu í Kauphöll Íslands, fyrst erlendra fyrirtækja. Valið stóð á milli íslenska markaðarins og þess breska og fannst stjórnendum betra að vera stór fiskur í lítilli tjörn en lítill fiskur í stórri tjörn.

Bresk tískukeðja í Kauphöllina

Breska tískuvörurkeðjan Mosaic hyggur á hlutafjárútboð til fagfjárfesta og almennings og skráningar í Kauphöll Íslands. Mosaic yrði meðal tíu stærstu fyrirtækjanna í Kauphöll Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir