Fleiri
Visa Ísland flytur á Laugaveg 77 Visa Ísland flytur á Laugaveg 77 í lok vetrar. 7.1.2005 00:01 Stimpilgjöld jukust um 63% Innheimta stimpilgjalda jókst um tæplega 63% hér á landi á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2004 miðað við sama tímbil ársins á undan. Ástæðan er fyrst og fremst rakin til þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á lánamarkaðnum á árinu og hafa leitt til þess að margir hafa skuldbreytt lánum sínum. 6.1.2005 00:01 Actavis og HÍ undirrita samning Háskóli Íslands og lyfjafyrirtækið Actavis hafa gert með sér samstarfssamning sem veitir nemendum við HÍ tækifæri til þess að glíma við verkefni sem tengjast starfsemi Actavis. Jafnframt nýtur fyrirtækið þekkingar kennara og nemenda við skólann. 6.1.2005 00:01 Landsbankinn með mestu veltuna Landsbankinn var atkvæðamestur markaðsaðila á hlutabréfamarkaði á nýliðnu ári samkvæmt markaðsyfirliti Kauphallar Íslands. Landsbankinn var með um 34% af heildarveltu viðskipta með hlutabréf en KB banki var næstur með tæplega 33% af veltunni. 6.1.2005 00:01 Fara fram á lögbann Stjórnendur SÍF ætla að fara fram á að lögbann verði sett á starfsemi nýstofnaðs félags sem stefnir á samkeppni við SÍF í sölu á saltfiski. Að nýja félaginu stendur hópur fyrrverandi starfsmanna SÍF. 6.1.2005 00:01 Húsnæðislánavextir gætu lækkað enn Vextir á húsnæðislánum gætu farið niður fyrir fjögur prósent á næstu misserum. Miðað við ávöxtunarkröfu á markaði nú gæti Íbúðalánasjóður lækkað vexti sína úr 4,15 í 4,05 prósent. 6.1.2005 00:01 Tímaritaútgáfa Fróða gjaldþrota Félagið sem gaf út öll tímarit Fróða hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Rétt fyrir gjaldþrotið stofnuðu eigendurnir nýtt fyrirtæki utan um tímaritin og skildu skuldir upp á tæplega hálfan milljarð eftir hjá því gamla. Þetta er ekki dæmigert kennitöluflakk heldur varnaraðgerð, segir framkvæmdastjórinn. 6.1.2005 00:01 2,5 milljarða halli í nóvember Vöruskiptajöfnuður við útlönd var óhagstæður um tvo og hálfan milljarð króna í nóvember sem er stóraukinn halli frá sama mánuði árið áður þegar hann var aðeins tvö hundruð milljónir. 5.1.2005 00:01 Hlutabréfaviðskipti aldrei meiri Fjöldi viðskipta með hlutabréf í Kauphöll Íslands hefur aldrei verið meiri en á liðnu ári. Viðskiptin voru 86.151 talsins en það er um 33% aukning frá árinu 2003 þegar fjöldi viðskipta var 64.931. 5.1.2005 00:01 Keypti ráðandi hlut í 66°Norður Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og athafnamaður, hefur keypt ráðandi hlut í 66°Norður-Sjóklæðagerðinni hf. Kaupin voru gerð í samvinnu við Sjóvá-Almennar hf. og var Íslandsbanki ráðgjafi kaupenda í kaupferlinu og sá um þá fjármögunun sem til þurfti. Samningur um kaupin var undirritaður í gær og Sigurjón og samstarfsaðilar taka við rekstri fyrirtækisins í dag. 5.1.2005 00:01 Vildu 42% meira en í boði var Hluthafar í hlutafjárútboði Íslandsbanka hf. til forgangsréttarhafa óskuðu samtals eftir 42% meira en í boði var. Útboðinu lauk í gær en boðnir voru til sölu 1.500 milljón hlutir á 10,65 krónur á hlut og andvirði útboðsins því 16 milljarðar króna. 5.1.2005 00:01 Nýr forstjóri 66°Norður ráðinn Marinó Guðmundsson rekstrarhagfræðingur hefur verið ráðinn forstjóri 66°Norður-Sjóklæðagerðarinnar hf. Hann var áður framkvæmdastjóri fjármálasviðs Norðurljósa og aðstoðarútvarpsstjóri Íslenska Útvarpsfélagsins. 5.1.2005 00:01 Telur að verðbólguspá haldi Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vaxtahækkanir Seðlabanka Íslands komi til með að halda aftur af verðbólgunni og að hún verði aðeins 2,1 prósent í ár. 4.1.2005 00:01 Kvaðir settar á inneignir Margvíslegar kvaðir á inneignarnótum í verslunum geta sett neytendur í vanda, segja Neytendasamtökin. Sumir kaupmenn iðki að setja stuttan gildistíma á nóturnar og neiti jafnvel að taka þær og gjafakort gild á útsölum. </font /></b /> 3.1.2005 00:01 Velta jókst um 41 prósent Heildarupphæð veltu vegna fasteignakaupa á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2004 var 177 milljarðar króna samanborið við 125,6 milljarða króna árið 2003. Samkvæmt Fasteignamati ríkisins var meðalupphæð á hvern kaupsamning 17,6 milljónir í fyrra en árið 2003 var meðalupphæð á samning 14,8 milljónir króna. 3.1.2005 00:01 Farþegafjöldi nær tvöfaldast Farþegum Iceland Express fjölgaði um 88 prósent milli áranna 2003 og 2004. Meginskýring fjölgunarinnar er aukning sætaframboðs um helming með tilkomu nýrrar þotu til félagsins í byrjun apríl. Ferðum var síðan fækkað aftur til fyrra horfs þann 1. desember. 2.1.2005 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Staða krónunnar lykilatriði Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Íslandsbanka, segir að staða íslensku krónunnar ráði mestu um hvernig verðlagsþróun verði á næstu misserum. "Okkar spá er sú að ef gengi krónunnar helst á þeim slóðum sem það er nú á þá muni verðbólgan fara niður um mitt árið og yrði lægri en verðbólgumarkmið Seðlabankans segir til um út þetta ár." 16.1.2005 00:01
Glóð sem gæti orðið bál Verðbólgan er á þolmörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands fyrr en flestir bjuggust við. Hagfræðingar telja verulegar líkur á að hún fari upp fyrir þolmörkin á næstunni. Efri þolmörkin eru fjögur prósent verðbólga á síðustu tólf mánuðum. Flestar efnahagsspár gera síðan ráð fyrir að verðbólgan minnki í framhaldinu, en það er háð því að gengi krónunnar gefi ekki eftir of hratt og of snemma. 16.1.2005 00:01
Darraðardans dollarans Bandaríkjadalur er lítils metinn á gjaldeyrismörkuðum þessa dagana á meðan gengi krónunnar er svimandi hátt. Hvorugt er gott, að mati þriggja sérfróðra reynslubolta. 16.1.2005 00:01
Stórt útboð Íslandsbanka Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf á alþjóðamarkaði að fjárhæð 450 milljónir evra eða jafngildi rúmlega 37 milljarða króna. Þetta er stærsta skuldabréfaútgáfa Íslandsbanka til þessa. Skuldabréfin eru til fimm ára og eru gefin út undir EMTN rammasamningi bankans um alþjóðlega skuldabréfaútgáfu. 15.1.2005 00:01
Telur Símann tilbúinn til sölu Klaus Dieter Schuerle sem tók þátt í einkavæðingu þýska ríkissímafyrirtækisins Deutsche Telekom telur miklu skipta að verkferlar og markmið í aðdraganda einkavæðingar séu skýr. Hann segir að langur undirbúningstími sé hins vegar ekki endilega heppilegur. Schuerle ræddi um einkavæðingu Deutsche Telekom á fundi Þýsk-íslenska verslunarfélagsins og Verslunarráðs Íslands í gær 15.1.2005 00:01
Verðbólgan að sprengja þolmörkin Verðbólgan er hærri en búist var við og er komin í þolmörk markmiðs Seðlabankans. Miklar líkur á að forsendur kjarasamninga bresti að mati ASÍ sem gagnrýnir að opinberir aðilar hækki gjaldskrár við þessar kringumstæður. </font /></b /> 14.1.2005 00:01
400 milljóna tap á laxeldi Útvegsfyrirtækið Samherji á Akureyri tapaði u.þ.b. fjögur hundruð milljónum króna á laxeldi í fyrra að því er Intra Fish greinir frá. Fyrirtækið rekur umfangsmikið sjókvíaeldi í Mjóafirði og hefur þurft að glíma við ýmis konar óvænta byrjunarörðugleika. 14.1.2005 00:01
Hættir starfsemi í Lettlandi Undirritaður hefur verið samningur um sölu á dótturfyrirtæki Granda, SIA Baltic Seafood í Lettlandi, <span class="GramE">sem</span> rekið hefur verið með tapi. <span class="GramE">Þar með hefur félagið hætt allri starfsemi í Lettlandi.</span> Grandi gerði einnig samning við KB banka í dag um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. 14.1.2005 00:01
Minni viðskiptahalli Forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans segir viðskiptahallann fyrstu níu mánuði síðasta árs minni en búist var við. Skýringin er hugsanlega sú að fólk er ekki bara að eyða í neyslu heldur í húsnæði. 12.1.2005 00:01
Íbúðalánasjóður vill fleiri lóðir Með því að auka lóðaframboð geta sveitarfélögin, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, minnkað þrýstinginn sem verið hefur á fasteignaverð. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. 12.1.2005 00:01
Vill aukið gagnsæli Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka Íslands, segir ekki mikinn áherslumun vera á afstöðu bankastjóra stóru bankanna þriggja varðandi þörf á auknu gagnsæi í starfi Fjármálaeftirlitsins 12.1.2005 00:01
Óvæntur halli fellir dollarann Viðskiptahalli Bandaríkjanna sló met í nóvember og var 60,3 milljarðar dollara eða 3.800 milljarðar króna. Tíðindin komu á óvart, en búist var við því að hallinn myndi minnka frá fyrra mánuði og verða 54 milljarðar dollara. Fréttirnar felldu gengi dollarans, en mörgum kom á óvart að útflutningur Bandaríkjamanna minnkaði milli mánaða 12.1.2005 00:01
OR gæti hagnast um tvo milljarða Orkuveita Reykjavíkur gæti hagnast um hátt í tvo milljarða með því að selja húsnæði nýju höfuðstöðvanna við Réttarháls og taka það aftur á leigu. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, staðfestir í viðtali við fréttastofuna að stórir fjárfestar hafi sýnt húsinu áhuga. 11.1.2005 00:01
Viðskiptahallinn eykst enn Viðskiptahalli hefur farið vaxandi síðustu misserin samhliða aukinni fjárfestingu og einkaneyslu. Flest bendir til þess að hallinn muni verða enn meiri í ár samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka. 11.1.2005 00:01
Ríkharð í stað Gunnars Smára Á hluthafafundi Norðurljósa í morgun var staðfestur aðskilnaður sem hefur orðið á milli félagsins og Íslenska útvarpsfélagsins, sem rekur meðal annars Stöð 2 og Bylgjuna, og Fréttar, sem gefur út Fréttablaðið og DV, en Og Vodafone hefur keypt þessi fyrirtæki. Ríkharð Ottó Ríkharðsson var ráðinn framkvæmdastjóri Norðurljósa í stað Gunnars Smára Egilssonar. 11.1.2005 00:01
1,5 milljarða samdráttur hjá SÍ Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands nam 65,6 milljörðum króna í lok desember og dróst saman um tæplega 1,5 milljarða króna frá því í nóvember. Samkvæmt hálffimmfréttum KB banka má rekja lækkunina til 4,4% gengisstyrkingu íslensku krónunnar. 11.1.2005 00:01
Siðferðið betra en í stjórnmálum Hagsmunaárekstrar eru algengir í íslensku viðskiptalífi að mati stjórnenda íslenskra fyrirtækja. Siðferði í viðskiptum hefur þó batnað undanfarin ár og er betra en siðferðið í stjórnmálum. 11.1.2005 00:01
Meðal heimsleiðtoga Björgólfi Thor Björgólfssyni, athafnamanni og stjórnarformanni Burðaráss og Actavis, hefur verið boðið að taka þátt í verkefni á vegum World Economic Forum. Hann er einn af 237 einstaklingum sem kallaðir eru til þátttöku í verkefninu. 11.1.2005 00:01
Bretar treysta íslenskum víkingum Bretar hafa ákveðna tilhneigingu til að treysta ljóshærðum og bláeygðum eyjaskeggjum úr norðri segir Howard Davies, rektor London School of Economics, í tengslum við innrás íslenskra víkinga í breskt viðskiptalíf. 11.1.2005 00:01
Eignarhlutur M-Holding 94,4% Gengi bréfa í yfirtökutilboði M-Holding ehf., félags í eigu Baugs Group, Straums Fjárfestingarbanka og B2B Holding, í Magasin du Nord var 162,5 danskar krónur á hvern hlut, eða tæplega 1822 íslenskar krónur. M-Holding á 80,9% hlutafjár félagsins en hefur jafnframt tryggt sér kauprétt á 13,5% hlut Magasin du Nord Fond. 10.1.2005 00:01
500 milljóna tap á gjaldþrotinu Líkur eru á að kröfuhafar tapi allt að fimm hundruð milljónum króna á gjaldþroti Samvinnuferða-Landsýnar. Ákveðið hefur verið að greiða 80% af forgangskröfum. 10.1.2005 00:01
Leynd skaðleg í viðskiptum Leynd er alltaf á endanum skaðleg segir Howard Davies, fyrrverandi forstöðumaður breska fjármálaeftirlitsins, sem telur mikilvægt að gagnsæi ríki um eftirlit með fjármálafyrirtækjum. Í sama streng tekur Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka. 10.1.2005 00:01
Fjárfestar undirbúa kaup á Símanum Enda þótt enginn hafi formlega lýst yfir áhuga á að kaupa Símann, þá eru margir að skoða verkefnið af alvöru. Hugsanlegt er að danska fyrirtækið TDC sem áður var ríkisfyrirtækið Tele Danmark, muni koma að hópi sem hyggst taka þátt í einkavæðingu Símans. </font /></b /> 10.1.2005 00:01
Minni hækkun hlutabréfa í ár KB banki mun skila mestum hagnaði skráðra fyrirtækja árin 2004 og 2005 samkvæmt spá greiningardeilda Íslandsbanka og Landsbankans. Hagnaður KB banka í ár verður samkvæmt spánum á bilinu 15,2 til 18,5 milljarðar fyrir árið 2005 8.1.2005 00:01
Óvíst hvort ævintýrið haldi áfram Árið 2004 skilaði fjárfestum í hlutabréfum gríðarlegum hagnaði. Úrvalsvísitalan hækkaði um sextíu prósent. Enginn hafði spáð slíkum hækkunum og enginn spáir því að annað eins gerist nú í ár. </font /></b /> 8.1.2005 00:01
Tíu milljóna starfslokasamningur Mismunur á lífeyrisréttindum einstaklings með 250 þúsund króna mánaðarlaun hjá ríkinu og á almennum markaði má jafna við að ríkisstarfsmaðurinn fái tíu milljóna króna starfslokasamning. 7.1.2005 00:01
Stjórnarfundur ákveður um rannsókn Ákveðið verður á stjórnarfundi hjá Baugi Group á næstunni hvort óskað verður eftir opinberri rannsókn á leka um framvindu rannsóknar og endurálagningu skatta á Baug. 7.1.2005 00:01
Stimpilgjöld jukust um 63% Innheimta stimpilgjalda jókst um tæplega 63% hér á landi á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2004 miðað við sama tímbil ársins á undan. Ástæðan er fyrst og fremst rakin til þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á lánamarkaðnum á árinu og hafa leitt til þess að margir hafa skuldbreytt lánum sínum. 6.1.2005 00:01
Actavis og HÍ undirrita samning Háskóli Íslands og lyfjafyrirtækið Actavis hafa gert með sér samstarfssamning sem veitir nemendum við HÍ tækifæri til þess að glíma við verkefni sem tengjast starfsemi Actavis. Jafnframt nýtur fyrirtækið þekkingar kennara og nemenda við skólann. 6.1.2005 00:01
Landsbankinn með mestu veltuna Landsbankinn var atkvæðamestur markaðsaðila á hlutabréfamarkaði á nýliðnu ári samkvæmt markaðsyfirliti Kauphallar Íslands. Landsbankinn var með um 34% af heildarveltu viðskipta með hlutabréf en KB banki var næstur með tæplega 33% af veltunni. 6.1.2005 00:01
Fara fram á lögbann Stjórnendur SÍF ætla að fara fram á að lögbann verði sett á starfsemi nýstofnaðs félags sem stefnir á samkeppni við SÍF í sölu á saltfiski. Að nýja félaginu stendur hópur fyrrverandi starfsmanna SÍF. 6.1.2005 00:01
Húsnæðislánavextir gætu lækkað enn Vextir á húsnæðislánum gætu farið niður fyrir fjögur prósent á næstu misserum. Miðað við ávöxtunarkröfu á markaði nú gæti Íbúðalánasjóður lækkað vexti sína úr 4,15 í 4,05 prósent. 6.1.2005 00:01
Tímaritaútgáfa Fróða gjaldþrota Félagið sem gaf út öll tímarit Fróða hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Rétt fyrir gjaldþrotið stofnuðu eigendurnir nýtt fyrirtæki utan um tímaritin og skildu skuldir upp á tæplega hálfan milljarð eftir hjá því gamla. Þetta er ekki dæmigert kennitöluflakk heldur varnaraðgerð, segir framkvæmdastjórinn. 6.1.2005 00:01
2,5 milljarða halli í nóvember Vöruskiptajöfnuður við útlönd var óhagstæður um tvo og hálfan milljarð króna í nóvember sem er stóraukinn halli frá sama mánuði árið áður þegar hann var aðeins tvö hundruð milljónir. 5.1.2005 00:01
Hlutabréfaviðskipti aldrei meiri Fjöldi viðskipta með hlutabréf í Kauphöll Íslands hefur aldrei verið meiri en á liðnu ári. Viðskiptin voru 86.151 talsins en það er um 33% aukning frá árinu 2003 þegar fjöldi viðskipta var 64.931. 5.1.2005 00:01
Keypti ráðandi hlut í 66°Norður Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og athafnamaður, hefur keypt ráðandi hlut í 66°Norður-Sjóklæðagerðinni hf. Kaupin voru gerð í samvinnu við Sjóvá-Almennar hf. og var Íslandsbanki ráðgjafi kaupenda í kaupferlinu og sá um þá fjármögunun sem til þurfti. Samningur um kaupin var undirritaður í gær og Sigurjón og samstarfsaðilar taka við rekstri fyrirtækisins í dag. 5.1.2005 00:01
Vildu 42% meira en í boði var Hluthafar í hlutafjárútboði Íslandsbanka hf. til forgangsréttarhafa óskuðu samtals eftir 42% meira en í boði var. Útboðinu lauk í gær en boðnir voru til sölu 1.500 milljón hlutir á 10,65 krónur á hlut og andvirði útboðsins því 16 milljarðar króna. 5.1.2005 00:01
Nýr forstjóri 66°Norður ráðinn Marinó Guðmundsson rekstrarhagfræðingur hefur verið ráðinn forstjóri 66°Norður-Sjóklæðagerðarinnar hf. Hann var áður framkvæmdastjóri fjármálasviðs Norðurljósa og aðstoðarútvarpsstjóri Íslenska Útvarpsfélagsins. 5.1.2005 00:01
Telur að verðbólguspá haldi Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vaxtahækkanir Seðlabanka Íslands komi til með að halda aftur af verðbólgunni og að hún verði aðeins 2,1 prósent í ár. 4.1.2005 00:01
Kvaðir settar á inneignir Margvíslegar kvaðir á inneignarnótum í verslunum geta sett neytendur í vanda, segja Neytendasamtökin. Sumir kaupmenn iðki að setja stuttan gildistíma á nóturnar og neiti jafnvel að taka þær og gjafakort gild á útsölum. </font /></b /> 3.1.2005 00:01
Velta jókst um 41 prósent Heildarupphæð veltu vegna fasteignakaupa á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2004 var 177 milljarðar króna samanborið við 125,6 milljarða króna árið 2003. Samkvæmt Fasteignamati ríkisins var meðalupphæð á hvern kaupsamning 17,6 milljónir í fyrra en árið 2003 var meðalupphæð á samning 14,8 milljónir króna. 3.1.2005 00:01
Farþegafjöldi nær tvöfaldast Farþegum Iceland Express fjölgaði um 88 prósent milli áranna 2003 og 2004. Meginskýring fjölgunarinnar er aukning sætaframboðs um helming með tilkomu nýrrar þotu til félagsins í byrjun apríl. Ferðum var síðan fækkað aftur til fyrra horfs þann 1. desember. 2.1.2005 00:01