Vill aukið gagnsæli 12. janúar 2005 00:01
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka Íslands, segir ekki mikinn áherslumun vera á afstöðu bankastjóra stóru bankanna þriggja varðandi þörf á auknu gagnsæi í starfi Fjármálaeftirlitsins. Hann segir það ekki vera ósamrýmanleg sjónarmið að gagnsæi í starfi Fjármálaeftirlitsins aukist en að jafnframt geti stofnunin átt óformleg samskipti við markaðsaðila um smærri mál. Hann segir birtingu umfjöllunar um smávægileg mál ekki alltaf þjóna markmiðum skilvirks eftirlits. "Landsbankinn hefur, eins og hinir bankarnir, stutt aukið gagnsæi í störfum Fjármálaeftirlitsins," segir Halldór. Hann segir hins vegar að það sé mjög mikilvægt að trúnaður og traust ríki milli eftirlitsaðila og bankanna. Slíkt traust getur gert samskiptaleiðir greiðari. "Of formleg samskipti þar sem erfitt gæti reynst að fá leiðbeiningar frá eftirlitsaðilum um viðhorf þeirra fyrirfram getur gert túlkun reglna erfiðari og skapað vanda fyrir fyrirtækin. Í tilvikum þar sem slík óformleg samskipti eru möguleg er ekki eins mikil þörf á því að birta sérhverja niðurstöðu," segir hann. Hann segir að reynsla Landsbankans af samskiptum við fjármálaeftirlit í Bretlandi sýni að óformleg og greið tengsl milli eftirlits og banka auki líkur á því að sameiginlegur skilningur ríki um framkvæmd laga og reglna. Halldór segir öðru máli gegna um mál þar sem Fjármálaeftirlitið rannsaki brot á reglum til dæmis varðandi verðbréfaviðskipti. "Enginn deilir um að fullt gagnsæi eigi að ríkja þegar kemur að endanlegum ákvörðunum um mál sem kunna að hafa áhrif á afstöðu til félaga á markaði eða verðmyndunar," segir hann.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira