Húsnæðislánavextir gætu lækkað enn 6. janúar 2005 00:01
Vextir á húsnæðislánum gætu farið niður fyrir fjögur prósent á næstu misserum. Miðað við ávöxtunarkröfu á markaði nú gæti Íbúðalánasjóður lækkað vexti sína úr 4,15 í 4,05 prósent. Í Morgunkorni Íslandsbanka í gær kom fram að miðað við núverandi ávöxtunarkröfu á markaði megi gera ráð fyrir að vextir Íbúðalánasjóðs gætu farið í 4,05 prósent og að mati Ingólfs Bender, forstöðumanns greiningardeildar Íslandsbanka, gætu vextirnir farið niður fyrir fjögur prósent um mitt þetta ár. Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði staðfestir mat Íslandsbanka. "Miðað við ávöxtunarkröfuna í dag þá er ljóst að það myndi skila sér í lækkun vaxta ef farið væri út í skuldabréfaútboð nú," segir hann. Hallur segir ekki hafa verið ákveðið hvenær næst verði farið í útboð skuldabréfa en endurskoðun vaxta á sér stað í kjölfar slíkra útboða. "Þetta er það sem við sjáum gerast á markaðinum. Langtímavextir eru á leiðinni niður og það mun ýta sjóðnum út í að lækka vextina," segir Ingólfur Bender. Hann telur líklegt að þá muni bankarnir einnig lækka sína vexti. "Ég geri ráð fyrir að þeir verði áfram af fullum krafti í þessari samkeppni," segir hann. Að mati Ingólfs geta lækkandi vextir haldið áfram að kynda undir hækkun á fasteignaverði en aukning kaupmáttar og fleiri lánamöguleikar hafa einnig sitt að segja í þeirri þróun. Skammtímavextir, svo sem eins og á yfirdráttarlánum, fara hins vegar hækkandi á þessu ári samhliða því að Seðlabankinn hækkar stýrivexti. Ingólfur segir þróunina í langtímavöxtum ekki nauðsynlega vera þá sömu og í skammtímavöxtum. "Hækkun stýrivaxta getur vel farið saman við að langtímavextir séu að lækka. Það merkir ekki að stýrivextirnir bíti ekki heldur að þeir bíti í gegnum aðra þætti svo sem eins og gengi krónunnar," segir hann.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira