Fleiri fréttir

Álagning á flugelda misjöfn

Verð á flugeldum er mjög mismunandi eftir því í hvaða tilgangi þeir eru seldir. "Við höfum ekki verið í samkeppni um ódýra flugelda," segir Ævar Aðalsteinsson hjá Hjálparsveit Skáta í Reykjavík. Hann treystir sér ekki til að gefa upp nákvæmar álagningatölur hjá björgunarsveitunum.

Uppsögnin rýrir ekki verðgildið

Talið er að uppsögn átta lykilstarfsmanna SÍF, og að þeir ætli að stofna nýtt fyrirtæki um saltfisksútflutning, muni ekki rýra verðgildi hlutabréfa í félaginu svo nokkru nemi. Þar er nýlokið hlutafjárútboði til að standa undir kaupunum á frönsku matvælafyrirtæki og gekk það vel.

Eftirmaður Jóns ófundinn

Íslandsbanki hefur ekki enn tilkynnt hver verður eftirmaður Jóns Þórissonar sem rekinn var úr starfi aðstoðarforstjóra bankans í fyrradag. Það mál kom óvænt upp en ekki að Sólon Sigurðsson léti af störfum hjá KB banka í gær fyrir aldurs sakir.

Endurálagning skatta send Baugi

Ríkisskattstjóri sendi stjórnendum Baugs í morgun endurálagningu skatta fyrir árið 1998 en það mál hefði ella fyrnst um áramótin. Árið 1998 voru Bónus og Hagkaup sameinuð í Baugi en eins og fram hefur komið munu skattayfirvöld ekki vera sátt við mat á fyrirtækjunum við þau tímamót.

Mikil ólga innan Íslandsbanka

Ekki er útilokað að frekari breytingar verði meðal starfsmanna Íslandsbanka í kjölfar uppsagnar aðstoðarforstjóra hans. Heimildarmenn Stöðvar 2 segja mikla ólgu meðal þeirra og að deilan snúist um forstjóra bankans.

Boðar lægra vöruverð

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir íslenska neytendur munu njóta stærðar fyrirtækisins eftir kaup á Big Food Group. Hann gerir ráð fyrir að vöruverð geti lækkað hjá fyrirtækinu um eitt til þrjú prósent vegna kaupanna í Bretlandi. </font />

Fremstur í sókninni

Sigurður Einarsson er viðskiptamaður ársins 2004 að mati dómnefndar sérfræðinga Fréttablaðsins. Úrslitin ættu ekki að koma á óvart þar sem Sigurður hefur sem forstjóri Kaupþings og stjórnarformaður KB banka eftir sameiningu við Búnaðarbankann verið frumkvöðull í sókn íslenskra fyrirtækja á erlendan markað. </font /></b />

Funduðu um brottrekstur

Bankaráð Íslandsbanka fundaði í gærmorgun um ákvörðun Bjarna Ármannssonar forstjóra um að víkja Jóni Þórissyni aðstoðarforstjóra úr starfi.

Knútur hættur í Fróða

Knútur Signarsson sem tók við starfi framkvæmdastjóra Fróða í haust er hættur störfum. Hann hverfur aftur til starfa hjá Odda, sem er stærsti hluthafinn í Fróða.

Annáll viðskiptalífsins 2004

Árið 2003 var ár uppstokkunar í eignarhaldi íslensks viðskiptalífs og angar þeirra hræringa teygðu sig inn í árið 2004. Ársins 2004 verður þó fremur minnst fyrir útrás íslensks viðskiptalífs, en nokkur stór skref voru tekin í útrásinni á árinu.

Málið á forræði Bjarna

Bankaráð Íslandsbanka fundaði í gærmorgun um ákvörðun Bjarna Ármannssonar forstjóra um að víkja Jóni Þórissyni aðstoðarforstjóra úr starfi. "Bjarni gerði grein fyrir málinu og við ræddum það. Niðurstaða okkar er sú að forræði Bjarna í þessu máli er ótvírætt," segir Einar Sveinsson formaður bankaráðs Íslandsbanka.

Verðbólgan við þolmörk

Tvísýnt er hvort verðbólgan í desember, sem er mæld í byrjun janúar, fer yfir fjögur prósent eða ekki. Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, segir að verðbólgan megi ekki hækka um meira en 0,1 prósent til að fara yfir þolmörkin. Ekki er þó víst að svo fari. Landsbanki Íslands hefur t.d. spáð því að verðbólgan lækki.

Tollakvótar á vefnað felldir niður

Um áramótin féllu niður tollakvótar á vefnað sem framleiddur er í Kína og fluttur til Evrópusambandslandanna. Samtök verslunar og þjónustu telja þetta geta haft hvort tveggja góðar og slæmar afleiðingar í för með sér.

Verðfall vegna jarðskjálftans

Verðfall varð á bréfum í flugfélögum, tryggingafélögum og fyrirtækjum í ferðamannageiranum þegar evrópskir hlutabréfamarkaðir opnuðu í gær. Lækkunin er rakin beint til hamfaranna í Indlandshafi á annan dag jóla en fjölmargir ferðamannastaðir eru á þessum slóðum.

Væntingavísitalan aldrei hærri

Væntingavísitala Gallup hefur ekki áður mælst hærri í desembermánuði en í desember í ár. Hún mælist nú 111 stig og lækkaði lítillega á milli nóvember og desember, eða um 0,6 stig, að sögn Íslandsbanka. Vísitalan hefur lækkað um 18,4 stig frá því í september.

Hætta að bjóða upp á 100% íbúðalán

Landsbankinn hefur ákveðið að hætta að bjóða upp á 100% íbúðalán og verður hámarkið því 90% af markaðsverðmæti íbúða að nýju. Landsbankinn hvetur jafnframt stjórnvöld til að endurskoða sem fyrst lagalega umgjörð íbúðalána.

Einungis tvö félög hafa hækkað

Einungis tvö af fimmtán félögum í úrvalsvísitölu Kauphallarinnar hafa hækkað í verði á fjórða ársfjórðungi en þrettán hafa lækkað. Er þar miðað við lokagengi á markaði í gær. Þau félög sem hafa hækkað eru Opin kerfi Group (5,1%) og Atorka (3,9%). Félögin sem mest hafa lækkað eru hins vegar Actavis (-24,4%), Burðarás (-21,9%) og Samherji (-17,8%).

Flugeldaverð aldrei hagstæðara

Gengi Bandaríkjadals kemur flugeldaglöðum til góða því verð sprengiefnisins stendur í stað eða lækkar frá því í fyrra. Ætla má að flugeldar séu fluttir inn í 30 stórum gámum. Einhverra nýjunga mun gæta á himninum í ár.

Mikil aukning í verðbréfakaupum

Erlend verðbréfakaup námu 8,6 milljörðum króna nettó í nóvember samanborið við 6,4 milljarða í nóvember í fyrra samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Það sem af er ári (jan-nóv) nema erlend verðbréfakaup 65,4 milljörðum.króna samanborið við 54,2 milljarða allt árið í fyrra. 

Gengi dollars fallið um 6,9%

Gengi dollars hefur fallið alls um 6,9% gagnvart evru á árinu og um 3,3% gagnvart japönsku jeni. Opinberir aðilar í Bandaríkjunum hafa látið hafa eftir sér að ekki verði gripið inn í flotgengi dollarans með kaupum á gjaldeyri samkvæmt hálffimmfréttum KB banka.

Össur selur eigur dótturfélags

Össur hf. hefur gengið frá kaupsamningi við fyrirtækið DRT Mfg.Co. Corporation um yfirtöku á eignum dótturfélagsins Mauch, Inc. í Dayton, Ohio, í Bandaríkjunum. Um er að ræða framleiðslutæki og viðskiptasambönd vegna framleiðslu á íhlutum til hryggígræðslu.

Verðbólgan étur launahækkanir

Verðbólga var 3,9 prósent í desember og hækkaði um 0,5 prósent milli mánaða. Líkur eru á enn meiri verðbólgu í janúar að mati Alþýðusambands Íslands. Laun hafa hækkað að meðaltali um 5,4 prósent. Verðbólgan hefur verið 3,8 prósent og hefur étið upp stóran hluta af launahækkunum.

Morgan Stanley sér um sölu Símans

Framkvæmdanefnd um einkavæðingu og fjármálafyrirtækið Morgan Stanley rituðu í dag undir samkomulag um að fyrirtækið veiti nefndinni ráðgjöf og aðra þjónustu í tengslum við sölu ríkisins á hlutabréfum í Landssíma Íslands. Salan ætti að geta farið fram á fyrri hluta næsta árs.

Orkuveitan kaupir Austurveitu

Orkuveita Reykjavíkur hefur keypt Austurveitu í Ölfusi og tekur við rekstri hennar 1. janúar. Austurveita er svokölluð bændaveita með borholu við Gljúfurárholt og liggur að býlum undir Ingólfsfjalli, meðal annars að Efri-Saurbæ og Sogni. Veitan mun falla undir jaðarveitur Orkuveitu Reykjavíkur.

Samið um ráðgjöf

Einkavæðingarnefnd skrifaði í gær undir samkomulag við fjármálafyrirtækið Morgan Stanley um að fyrirtækið veiti nefndinni ráðgjöf og aðra þjónustu við sölu ríkisins á hlutabréfum í Símanum.

Geest samþykkir tilboð Bakkavarar

Bakkavör náði mikilvægum áfanga í yfirtöku á Geest þegar samkomulag náðist um verð fyrir það. Framundan er sex vikna vinna við að kanna rekstur Geest en fátt bendir til annars en að af kaupunum verði. </font /></b />

Yfirtaka sænska kvikmyndahúsakeðju

Árni Samúelsson, eigandi Sambíóanna, og Róbert Melax, stofnandi Lyfju og eigandi Skífunnar, Regnbogans og Smárabíós, skoða nú ásamt hópi fjárfesta að yfirtaka sænsku kvikmyndahúsakeðjuna Sandrews, sem er sú næst stærsta á Norðurlöndum. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í morgun.

Kjötmjöl ehf til sölu

Milli jóla og nýárs funda forsvarsmenn förgunarverksmiðjunnar Kjötmjöls ehf. með hugsanlegum kaupendum. Fyrirtækið, sem brennir sláturúrgang í kjötmjöl, hefur átt í rekstrarerfiðleikum og blasir að sögn Torfa Áskelssonar verksmiðjustjóra lítið annað við en að hætta rekstrinum ef ekki rætist úr.

Hæsta álverð í níu ár

Heimsmarkaðsverð á áli hefur ekki verið hærra að meðaltali frá árinu 1995. Eftirspurn áls hefur aukist hraðar á árinu en á síðustu tuttugu árum.

Bréf í deCode hækka

Verð á hlutabréfum í deCode hefur hækkað umtalsvert á bandaríska Nasdaq markaðinum að undanförnu. Fyrir opnun markaðar í gær stóðu bréfin í 7,86 dölum á hlut. Bréfin hafa hækkað um 22 prósent á einum mánuði.

Forseti og ráðherra í stjórn

KB banki hefur stofnað sjóð með dönskum lífeyrissjóði. Sjóðurinn mun sérhæfa sig í hlutabréfum óskráðra félaga. </font /></b />

VSP fær starfsleyfi

Verðbréfaþjónusta Sparisjóðsins fékk í gær starfsleyfi sem verðbréfaþjónsta. Fyrirtækið er dótturfélag Sparisjóðs Hafnarfjarðar.

Prentsmiðjan rifin

Prentsmiðja Moggans verður rifin og verslunarhúsnæði reist í staðinn. Lóðin er talin ein sú eftirsóknarverðasta á landinu og því verðið hátt. </font /></b />

Guðfinna hlýtur viðskiptaverðlaun

Guðfinnu S. Bjarnadóttur, rektor Háskólans í Reykjavík, voru í dag veitt Viðskiptaverðlaunin 2004, sem Viðskiptablaðið stendur að. Aðalheiður Héðinsdóttir stofnandi Kaffitárs hlýtur viðurkenningu sem Frumkvöðull ársins.

Meiri kortavelta

Notkun á greiðslukortum var 19,9 prósentum hærri í nóvember í ár en í fyrra. Velta kreditkorta innanlands jókst um 10,3 prósent en debetkortaveltan er 23,8 prósentum hærri.

Samkomulagt um verð fyrir Geest

Bakkavör hefur náð samkomulagi um verð í breska matvælafyrirtækinu Geest. Tilboð Bakkavarar mun hljóða upp á 655 pens á hlut, en samkvæmt því er markaðsvirði Geest um sextíu milljarðar króna. Á óvart kemur hversu hratt sú niðurstaða fæst, en það bendir til þess að góð samstaða hafi náðst milli Bakkavarar og stjórnar Geest.

Umfangsmestu viðskipti íslenskrar viðskiptasögu

Baugur hefur tryggt sér fjármögnun upp á 112 milljarða til kaupa á bresku verslunarkeðjunni Big Food Group. Bank of Scotland leggur til níu prósent hlutafjár við kaupin. Íslenskir bankar og aðilar þeim tengdir taka þátt í fjármögnun viðskiptanna.

Sama lánshæfismat og ríkið

Íbúðalánasjóður er með sama lánshæfismat og íslenska ríkið að mati Moodys sem metur lánshæfi fyrirtækja og opinberra aðila. Sérfræðingar Moodys heimsóttu landið í haust og fóru ítarlega yfir skuldabréfaskipti íbúðalánasjóðs síðastliðið sumar og afleiðingar þess fyrir áhættu og fjárstýringu sjóðsins.

Samningar um fjármögnun í höfn

Samningar náðust í gærkvöldi um fjármögnun Baugs og annarra fjárfesta á yfirtökutilboði í bresku verslanakeðjuna Big Food Group. Heildarfjármögnunin nemur hundrað og tólf milljörðum króna. Formlegt tilboð í keðjuna verður lagt fyrir hlutahafafund í næsta mánuði.

Matvöruverð lækkar við kaupin

Matvöruverð lækkar á Íslandi með kaupum Baugs og annarra fjárfesta á bresku verslanakeðjunni Big Food Group, segir forstjóri Baugs. Ef hluthafar keðjunnar samþykkja formlegt yfirtökutilboð, eignast Íslendingar eitt stærsta einkahlutafélag í Bretlandi.

Baugur kaupir Big Food Group

Baugur hefur tryggt sér fjármögnun á kaupum á Big Food Group. Eftir mikla dramatík aðfaranótt laugardags lá ljóst fyrir að búið væri að ganga frá öllum þáttum málsins og tilboð var lagt fram með samþykki stjórnar Big Food Group sem hljóðar upp á 95 pens á hlut.

Taugspenna á lokasprettinum

Með kaupunum á Big Food Group er Baugur stærsti einstaki viðskiptavinur Bank of Scotland. Síðustu metrarnir í samningaferli um fjármögnun Big Food Group voru hlaðnir spennu.

Baugur hagnast um 2 milljarða

Baugur hefur þegar hagnast um tæpa tvo milljarða á kaupunum á Magasin du Nord. Dönskum kaupsýslumönnum vex þetta í augum og ekki bætti um betur þegar forstjóri Icelandair sagðist í viðtali við Börsen í gær ekki útiloka að félagið gæti hugsað sér að kaupa dönsku flugfélögin Mærsk Air eða Sterling. 

Sjá næstu 50 fréttir