Fleiri fréttir Halldór 20.11.2012 21.11.2012 19:00 Í dag er kölski kátur Svavar Hávarðsson skrifar 21.11.2012 06:00 Tásurnar á Michelle Obama Sif Sigmarsdóttir skrifar Glaðvær jólatónlist hljómar í bakgrunninum. Um sjónvarpsskjáinn þeytist móðir í jólahreingerningum með kúst í hendi og örvæntingu í augum. Það bætist í skæran bjölluhljóminn þegar mamman brýst í gegnum hríðarbyl út í búð. Snjóbarin snýr hún heim til að pakka inn jólagjöfunum og elda jólamatinn. Þýður englakór leysir bjöllurnar af hólmi. Jólin renna upp. Til borðs situr restin af fjölskyldunni. Pabbinn hámar í sig kræsingarnar og börnin rífa upp gjafirnar. Mamman strýkur sér um ennið og lætur sig falla niður á eldhúskoll. 21.11.2012 06:00 Elst eða yngst í bekknum? Steinunn Stefánsdóttir skrifar Aldur barna í árinu hefur veruleg áhrif á gengi þeirra í skóla. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem greint var frá í frétt hér í blaðinu á mánudaginn. 21.11.2012 06:00 Færum Sjálfstæðisflokkinn aftur til fólksins í landinu Jakob F. Ásgeirsson skrifar Sjálfstæðisflokkurinn er á vegamótum. Hann hefur að ýmsu leyti fjarlægst uppruna sinn, gleymt hinum gömlu og góðu gildum sjálfstæðisstefnunnar. Í vissum skilningi má jafnvel segja að hann hafi fjarlægst fólkið í landinu, einstaklingana og lífsbaráttu þeirra, og samsamað sig um of sérfræðiálitum og öflugum hagsmunasamtökum. 21.11.2012 06:00 Skapandi til framtíðar Katrín Jakobsdóttir skrifar Fyrir tveimur árum voru kynntar niðurstöður rannsóknar á efnahagslegum áhrifum skapandi greina sem opnuðu augu margra fyrir efnahagslegu mikilvægi þeirra. Með nýlegri skýrslu um starfsumhverfi þeirra hefur aðkoma stjórnvalda að þessum fjölbreytta málaflokki verið skýrð og birt sýn til framtíðar. 21.11.2012 06:00 Opið bréf til Sóleyjar Sigrún Edda Lövdal skrifar Komdu sæl, Sóley. Okkur langar að byrja á að þakka þér fyrir skjót viðbrögð við opnu bréfi okkar og jafnframt að benda þér góðfúslega á að persónugera ekki bréfið sem kemur frá stjórn Barnsins, félags dagforeldra í Reykjavík. 21.11.2012 06:00 Rangfærslur formanns Landverndar leiðréttar Þorsteinn Víglundsson skrifar Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, dregur upp nokkuð dökka mynd af framtíðarhorfum áliðnaðar í heiminum í grein sem birtist í Fréttablaðinu hinn 16. nóvember síðastliðinn. Hann segir að í ljósi þess sé óhætt að fullyrða að hér á landi verði ekki byggð fleiri álver. Til þess séu horfur í áliðnaði of slæmar auk þess sem efnahagsleg áhrif af þeim iðnaði hér á landi hafi verið ofmetin. 21.11.2012 06:00 Mikilvægar ákvarðanir Guðjón Sigurbjartsson skrifar Fjöldi íslenskra heimila er í alvarlegum fjárhagsvanda, rúmlega 27.000 einstaklingar á vanskilaskrá og fer fjölgandi. Tugir þúsunda til viðbótar hafa glatað eigin fé í eignum sínum og sjá fram á erfiðar afborganir af verðtryggðum lánum næstu áratugi. 21.11.2012 06:00 Við megum ekki gefast upp Auður Guðjónsdóttir skrifar Eins og ýmsum er kunnugt samþykkti Norðurlandaþingið tillögu um mænuskaða á þingi sínu árið 2011. Tillagan kom upprunalega frá Íslandi og unnu þingmennirnir Siv Friðleifsdóttir, Helgi Hjörvar og Álfheiður Ingadóttir ötullega að því að koma henni í gegn. 21.11.2012 06:00 Tækifæri í Asíu Ingibjörg Gréta Gísladóttir skrifar Ég hef verið að velta fyrir mér tækifærum íslenskrar hönnunar í Asíu. Hvernig hægt sé að átta sig á bestu mögulegum leiðum inn á þann markað. Framleiðandi minn í Kína hefur fengið ófáar fyrirspurnir frá mér en aðeins hoppað hæð sína yfir einum íslenskum hönnuði á mínum vegum og viljað dreifa honum áfram. 21.11.2012 06:00 Lítil saga Auður Guðjónsdóttir skrifar Í tilefni prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík langar mig að deila eftirfarandi sögu með lesendum. 20.11.2012 16:10 Ójafn leikur Ólafur Þ. Stephensen skrifar Enn og aftur hefur Ísrael misboðið heimsbyggðinni með yfirgangi sínum gagnvart Palestínumönnum. Sú samúð sem málstaður Ísraelsríkis naut einu sinni víðast hvar á Vesturlöndum er á hröðu undanhaldi. 20.11.2012 06:00 Hver býr til jólakonfektið? Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar Yfirgnæfandi líkur eru á því að neytendur styðji með óbeinum hætti við barnaþrælkun þegar þeir kaupa íslenskt súkkulaði. Þrátt fyrir að barnaþrælkun sé bönnuð með lögum á Fílabeinsströndinni, sem er stærsti útflutningsaðili á kakói í heiminum, þá viðgengst hún þar samt sem áður hjá fjölmörgum kakóframleiðendum. 20.11.2012 06:00 Steingrími svarað Vilhjálmur Egilsson skrifar Steingrímur J. Sigfússon, fv. fjármálaráðherra, sendir Samtökum atvinnulífsins (SA) kveðju í grein í Fréttablaðinu 17. nóvember sl. Tilefnið er útgáfa rits SA um skattamál sem ber heitið „Ræktun eða rányrkja?“ og hefur vakið verðskuldaða athygli. Í greininni spyr hann hvort SA séu ekki sammála því að ná jöfnuði í ríkisfjármálum sem sé ein af forsendum afnáms gjaldeyrishafta og batnandi lánshæfismats. 20.11.2012 06:00 Hvenær á að byrja í leikskóla? Oddný Sturludóttir skrifar Ég vil þakka Sigrúnu Lövdal, dagforeldri í Reykjavík, fyrir opið bréf til okkar Sóleyjar Tómasdóttur. Nokkrum athugasemdum vil ég koma á framfæri vegna orða Sigrúnar sem er gott að fá tækifæri til að leiðrétta. Það er ekki rétt sem kemur fram hjá Sigrúnu að borgarsjóður eigi í handraðanum 1,2 milljarða króna til nýrra verkefna. 20.11.2012 06:00 Sveppasýkt húsnæði Teitur Guðmundsson skrifar Við höfum orðið vör við fréttaflutning af einstaklingum og heilu fjölskyldunum sem búa í húsum þar sem myglusveppur ræður ríkjum, veikir ónæmiskerfi þeirra og veldur hinum ýmsu einkennum, allt frá slappleika til þess að gera íbúa óstarfhæfa sökum veikinda. Nýlega var sagt frá slíku á Egilsstöðum, þar sem hefur komið í ljós að nokkur fjöldi nýlegra húsa þar og íbúar þeirra glíma við slíkt vandamál. Þá hafa komið upp dæmi víðar, jafnt í íbúðar- sem og vinnuhúsnæði. 20.11.2012 06:00 Handhafar framkvæmdarvalds Eyjólfur Ármannsson skrifar Skipan framkvæmdarvalds er eitt af grundvallaratriðum í tillögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem þjóðin samþykkti 20. október sl. Samkvæmt þeim (2. gr.) fer forseti Íslands, ráðherrar og ríkisstjórn og önnur stjórnvöld með framkvæmdarvaldið. Í 86. gr. segir að ráðherrar séu æðstu handhafar framkvæmdarvalds hver á sínu sviði. Samrýmist þessi staða ráðherra hlutverkum forseta Íslands, forsætisráðherra og ríkisstjórnar? 20.11.2012 06:00 Það er bannað að stíga á strik! Guðjón Auðunsson skrifar Ég þekki unga dömu sem heldur því fram að ef hún stígi á strik verði hún ekki prinsessa. Strikin eru mörg sem á vegi hennar verða, en með eftirtekt og gætni forðast hún strikin, og verður hún líklega prinsessa að lokum. Það væri óskandi að núverandi stjórnvöld veittu þeim hættulegu strikum sem á vegi þeirra verða sömu eftirtekt og vöruðust þau. Við hjá Reitum fasteignafélagi höfum fylgst með baráttu ferðaþjónustunnar við fyrirhugaðar skattahækkanir á gistingu, sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpi ársins 2013. Við teljum málið okkur skylt þar sem mörg af helstu hótelfyrirtækjum landsins eru í viðskiptum við félagið, og með því er vegið að rekstrargrundvelli þeirra. 20.11.2012 06:00 Gelding grísa án deyfingar loks færð í lög Guðný Nielsen skrifar Á undanförnum árum hafa íslensk svínabú legið undir ámæli fyrir það verklag að grísir eru geltir án deyfingar. Neytendur virtust áður almennt ómeðvitaðir um að þetta færi fram hérlendis, enda alla jafna talið að gætt sé að velferð dýra í íslenskum landbúnaði. 20.11.2012 06:00 Viljaskot í Palestínu Frá því að ég man eftir mér hafa fregnir af drápum Ísraelsmanna á Palestínumönnum reglulega skotið upp kollinum. Mistíðar reyndar, en alltaf aftur og aftur. Og svo allrar sanngirni sé gætt þá hafa einnig reglulega boristfregnir af drápum Palestínumanna á Ísraelsmönnum. 20.11.2012 06:00 Halldór 19.11.2012 19.11.2012 16:00 Ekki meir, Eir Ólafur Þ. Stephensen skrifar Daglega berast nýjar fréttir af vafasömum fjármálaákvörðunum hjá Hjúkrunarheimilinu Eir. Fyrir helgi komst Ríkisendurskoðun að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar, Sigurður Helgi Guðmundsson, hefði farið á svig við fjöldamörg lög og reglur þegar hann lét heimilið greiða utanlandsferð fyrir tengdason sinn og dóttur, sem endurgjald fyrir lögfræðistörf tengdasonarins. 19.11.2012 06:00 Hin óverðugu Guðmundur Andri Thorsson skrifar Sérhvert tímaskeið hefur sín sérstöku tækifæri til misskiptingar og ranglætis, sína hagsmunapotara, sitt baráttufólk fyrir réttlæti, sitt sérstaka svindilbrask og sín sérstöku úrræði til að jafna kjörin – sína sérstöku baráttu góðs og ills – en mannlegar dyggðir og mannlegir lestir hefja sig upp yfir stað og stund í mannlegu samfélagi; hófsemi-ágirnd, auðmýkt-hroki, meðlíðan-sjálfhverfa? allt fylgir þetta mönnunum alltaf. Hið fullkomna þjóðfélag er ekki til. Sól hins 19.11.2012 06:00 Meira fyrir mig! Sighvatur Björgvinsson skrifar Mér skilst, að um níu þúsund manns hafi lýst stuðningi sínum á neti Vísis við greinarnar mínar tvær í Fréttablaðinu og að slíkt hafi ekki áður sést þar á bæ. Sá mikli stuðningur kom mér satt að segja á óvart. Nokkrir úr þeim hópi hafa tjáð mér stuðning beint – í síma, með SMS og í tölvupósti. Þeir hafa margir sagt, að þeir hafi lengi verið sömu skoðunar og ég, en ekki vogað að tjá sig. Hvers vegna ekki? Gefum orðið einum þeirra, sem sendu mér tölvupóst. Sá sagði orðrétt: 19.11.2012 06:00 Svar við bréfi Jóhanns Gylfi Arnbjörnsson skrifar Jóhann Hauksson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, sendi mér opið bréf á föstudag þar sem hann spyr hverjum hann eigi að stefna fyrir að hafa tekið út séreignasparnað sinn til að takast á við kreppuna. Það er miður að Jóhann virðist ekki greina á milli samtryggingar og séreignar. 19.11.2012 06:00 Björgum mannslífum og bætum umhverfið Elí Úlfarsson skrifar Nýverið var greint frá því í fréttum að Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélög á Stór-Reykjavíkursvæðinu hefðu gert samkomulag við íslenska ríkið þess efnis að ekki yrði efnt til neinna stórframkvæmda í samgöngumálum í Reykjavík næstu tíu árin. 19.11.2012 06:00 Tímamótasamstarf Guðbjartur Hannesson skrifar Ísland er þekkt fyrir mikla atvinnuþátttöku þjóðarinnar sem er meiri en þekkist í nokkru öðru ríki innan OECD. Við viljum öll vinna sem getum og gerum það ef vinnu er að fá. Missi fólk vinnuna hefst leit að nýju starfi og á það þá rétt til atvinnuleysisbóta. Þær fela hins vegar ekki í sér neina lausn heldur eru aðeins tímabundið fjárhagslegt úrræði þar til úr rætist. 19.11.2012 06:00 Ég er eldri en Sighvatur Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar Ég hélt það væri ekkert mál að verða 40 ára en svo vaknaði ég upp við vondan draum. Mannsævin er rétt eins og árstíðirnar við Miðjarðarhafið, það er ekkert vor eða haust. Þú heldur að það sé sumar þegar þú allt í einu vaknar upp í vetrarhríð. 19.11.2012 06:00 Tækifæri og ógnanir Magnús Halldórsson skrifar Fá lönd í heiminum hafa lítið fundið fyrir efnahagsþrenginum á heimsvísu sem fóru að gera vart við sig um mitt ár 2007 og hafa aukist, ekki síst í Suður-Evrópu, síðan. Nágranni Íslands, Noregur, er nú mitt inn í mesta uppgangstímabili sem einkennt hefur stöðu efnahagsmála í Noregi nokkru sinni. Þar kemur margt til en grunnurinn að uppgangstímanum er í raunhagkerfinu. Langsamlega þyngst vegur olíuiðnaður ýmis konar, ekki aðeins framleiðsla, boranir og sala, heldur ekki síður óbein þjónustustörf í iðnaði og tæknigreinum ekki síst. 18.11.2012 13:44 Skamma stund verður hönd höggi fegin Þorsteinn Pálsson skrifar Áhugaleysi er það sem lesa má úr stöðunni eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi um síðustu helgi. Það rímar við þjóðaratkvæðagreiðsluna um stjórnarskrármálið þar sem hvorugum flokknum tókst að höfða til meirihluta kjósenda. Ríkisstjórnin hefur brugðist vonum kjósenda og stjórnarandstaðan hefur ekki náð að vekja nýjar vonir. 17.11.2012 10:20 Sér fyrir enda skattahækkana? Ólafur Þ. Stephensen skrifar Sveitarstjórnir um allt land liggja þessa dagana yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Það er klárlega ekki alltaf létt verk, enda bæði rekstrar- og skuldastaða margra sveitarfélaga erfið. Það vekur þó athygli að í það minnsta þrjú sveitarfélög, öll á suðvesturhorninu, stefna að því að lækka skatta á næsta ári. 17.11.2012 10:11 Við lesbíurnar Bergsteinn Sigurðsson skrifar Hvað er húmor? Um aldir alda hafa spakir menn spurt þessarar spurningar og sýnist sitt hverjum. Í mínum huga er húmor það sem gerir lífið þess virði að lifa, aromatið í tilverunni ef svo má að orði komast. Ég þyki gamansamur maður og hef í gegnum tíðina farið með gamanmál á mannamótum. Án þess að ég sé að hreykja mér hefur þetta mælst svo vel fyrir að ég hef smám saman verið að færa mig upp á skaftið og taka að mér stærri "gigg" eins og þeir kalla þetta í "bransanum". 17.11.2012 10:03 Sighvatur og sjálfhverfa kynslóðin Karl Sigfússon skrifar Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, hefur farið mikinn í greinaskrifum í Fréttablaðinu síðustu daga þar sem hann fullyrðir að kynslóð Íslendinga á aldrinum 30-45 ára sé sjálfhverfasta kynslóð á Íslandi. Sighvatur fullyrðir að umrædd kynslóð hugsi bara um sjálfa sig og sé algjörlega sama um allt og alla. Kvarti bara og kveini og heimti leiðréttingar á kjörum sínum á kostnað annarra á grundvelli þess að hér hafi orðið einhver ímyndaður "forsendubrestur“. Sighvatur lætur einnig í veðri vaka að þessi kynslóð hafi ein og sér valdið efnahagshruninu, kvótabraski á landsbyggðinni og eignahruni gamla fólksins. 17.11.2012 06:00 Eftir höfðinu dansa síbrotamennirnir Ragnar H. Hall skrifar Sl. fimmtudag var Svavar Halldórsson, fréttamaður á RÚV, dæmdur til að greiða Jóni Ásgeiri Jóhannessyni miskabætur fyrir ærumeiðingar. Í svokallaðri frétt hafði hann brigslað Jóni um refsiverða háttsemi sem hann gat ekki fært fram nein gögn um að hann hefði gerst sekur um. Þetta var í annað sinn á tæpu ári sem fréttamaðurinn fær sams konar dóm í Hæstarétti, þar sem jafnframt er komist að niðurstöðu um að hann hafi ekki farið eftir reglum sem útvarpsstjóri hefur sett um vinnubrögð á fréttastofu RÚV. 17.11.2012 06:00 "Sérfræðingar“ á villigötum Málflutningur ýmissa reyndra stjórnmálamanna sem hafa tjáð sig um lánamál heimilanna að undanförnu hefur oft vakið mikla undrun hjá mér þar sem mér hefur oft fundist skorta verulega á almenna skynsemi og innsæi í grundvallaratriði. Dæmi um þetta komu fram á ágætum borgarafundi í Háskólabíói á vegum Hagsmunasamtaka heimilanna sl. þriðjudag. Pétur Blöndal alþingismaður (sem margir telja talnaglöggan o 17.11.2012 06:00 Halldór 16.11.2012 16.11.2012 16:00 Geturðu talað við tölvuna þína? Ólafur Þ. Stephensen skrifar Íslenzkan er sprelllifandi og mikið notað tungumál. Það má til dæmis má sjá af þeirri staðreynd að aldrei hafa verið fleiri titlar í Bókatíðindunum en í ár. Þar ræður meðal annars sú þróun að bækur séu gefnar út á fleiri en einu formi; á pappír, sem hljóðbók og rafbók. Þannig er líklegt að næstu árin muni æ fleiri lesa jólabækurnar í spjaldtölvu eða á lesbretti fremur en á pappír. Texti á íslenzku skilar sér þá í nýjum miðlum, sem er gott. 16.11.2012 06:00 Átakalínur þjóðfélagsins Dýrin í Hálsaskógi Thorbjörns Egner eru bráðskemmtilegt barnaleikrit. Þá er boðskapur þess – öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir – sem sniðinn handa markhópnum. Öllu verri er boðskapurinn þó sem einhvers konar leiðarstef í þjóðmálaumræðu eins og sumir virðast halda hér á landi. Stundum láta álitsgjafar nefnilega eins og það séu engar átakalínur í íslensku þjóðfélagi. Það er barnaleg skoðun, öllum ætti að vera ljóst að mannlífið hér á landi er fjölbreytt og hagsmunir ólíkra hópa mismunandi. Öllum. 16.11.2012 06:00 Íslensk tungutækni Á degi íslenskrar tungu er fagnaðarefni að íslensk málnefnd hefur veitt viðurkenningar fyrir tungutækniverkefni. Þær hlutu Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins, og Jón Guðnason og Trausti Kristjánsson, kennarar og vísindamenn við Háskólann í Reykjavík. 16.11.2012 06:00 Mikilvægt að hælis- leitendum sé ekki refsað Kristján Sturluson skrifar Í umræðu undanfarið um málefni hælisleitenda og fórnarlömb mansals hafa verið dregnir fram ýmsir vankantar á þeim reglum sem nú gilda um málaflokkinn. Þeir sem til þekkja eru almennt sammála um að íslensk stjórnvöld þurfi að koma betur til móts við þá sem hingað leita hælis undan stríðsátökum og ofsóknum eða hafa jafnvel verið seldir hingað mansali. 16.11.2012 06:00 Undir merkjum Jóhönnu Mörður Árnason skrifar Jóhanna Sigurðardóttir hættir stjórnmálastörfum við lok kjörtímabilsins. Ferill hennar er merkilegur og glæsilegur. Þegar frá líður held ég að menn staldri ekki síst við endurreisnina úr hruninu. Við það erfiða forystuverk hefur Jóhanna haft skýra sýn – sýn jafnaðarstefnunnar. 16.11.2012 06:00 Skaðleg heilbrigðisþjónusta Auðbjörg Reynisdóttir skrifar Aukið öryggi sjúklinga er gjarnan notað sem rökstuðningur fyrir kröfum um aukið fjármagn í heilbrigðisþjónustuna. Vissulega er ástæða til að heiðra vísindafólk og starfsfólk sem leggur hart að sér til að gera mannverunni lífið bærilegra og skapa okkur tækifæri til að sigrast á annars óvægu hlutskipti lífsins. En öllu þessu ágæta fólki getur orðið á í starfi. Þá er mikilvægast að vera tilbúinn að læra af því, hafa hugrekki til að horfast í augu við mistökin og gera nauðsynlegar breytingar til að forðast endurtekningar. Það má ekki stinga hausnum í sandinn og halda áfram eins og ekkert sé. Það eitt veldur enn meiri þjáningu og tjóni. Mér finnst rétt að rifja upp að allar líkur eru á að rúmlega 200 einstaklingar látist árlega vegna svonefndra læknamistaka og þau munu halda áfram að gerast þótt ný tæki verði keypt og nýr spítali byggður. 16.11.2012 06:00 Launalækkun er í boði ríkisstjórnar Páll Steingrímsson skrifar Nú er það að ganga eftir sem sjómenn óttuðust í vor, þ.e. að krafa ætti eftir að koma fram um að laun þeirra yrðu lækkuð. Þetta ætti þó ekki að koma neinum á óvart. Í sérfræðiáliti, sem ríkisstjórnin kallaði sjálf eftir, sagði m.a.: "Umfangsmikil skattlagning rentu mun LÆKKA laun sjómanna.“ Svo mörg voru þau orð um áhrif frumvarps um stórhækkuð veiðigjöld á laun sjómanna. 16.11.2012 06:00 Evran eða hjólbörur (eða yuan!) Birgir Guðjónsson skrifar Meðal minninga frá barnæsku frá fimmta áratug síðustu aldar er að við bræður og 2 frændur á aldrinum 6-9 ára fundum krónupening þ.e. eina krónu á götu í Vestmannaeyjum. Skömmu síðar hittum við afa og ömmu frændanna á göngutúr og sögðum þeim diplómatískt að þegar við værum búnir að finna tíeyring í viðbót gætum við keypt okkur eina kók. Afinn fann að sjálfsögðu tíeyring í vestisvasanum. Coca Cola kostaði þá sem sagt eina krónu og tíu aura og nutum við hennar vel fjórir strákar. 16.11.2012 06:00 Sjá næstu 50 greinar
Tásurnar á Michelle Obama Sif Sigmarsdóttir skrifar Glaðvær jólatónlist hljómar í bakgrunninum. Um sjónvarpsskjáinn þeytist móðir í jólahreingerningum með kúst í hendi og örvæntingu í augum. Það bætist í skæran bjölluhljóminn þegar mamman brýst í gegnum hríðarbyl út í búð. Snjóbarin snýr hún heim til að pakka inn jólagjöfunum og elda jólamatinn. Þýður englakór leysir bjöllurnar af hólmi. Jólin renna upp. Til borðs situr restin af fjölskyldunni. Pabbinn hámar í sig kræsingarnar og börnin rífa upp gjafirnar. Mamman strýkur sér um ennið og lætur sig falla niður á eldhúskoll. 21.11.2012 06:00
Elst eða yngst í bekknum? Steinunn Stefánsdóttir skrifar Aldur barna í árinu hefur veruleg áhrif á gengi þeirra í skóla. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem greint var frá í frétt hér í blaðinu á mánudaginn. 21.11.2012 06:00
Færum Sjálfstæðisflokkinn aftur til fólksins í landinu Jakob F. Ásgeirsson skrifar Sjálfstæðisflokkurinn er á vegamótum. Hann hefur að ýmsu leyti fjarlægst uppruna sinn, gleymt hinum gömlu og góðu gildum sjálfstæðisstefnunnar. Í vissum skilningi má jafnvel segja að hann hafi fjarlægst fólkið í landinu, einstaklingana og lífsbaráttu þeirra, og samsamað sig um of sérfræðiálitum og öflugum hagsmunasamtökum. 21.11.2012 06:00
Skapandi til framtíðar Katrín Jakobsdóttir skrifar Fyrir tveimur árum voru kynntar niðurstöður rannsóknar á efnahagslegum áhrifum skapandi greina sem opnuðu augu margra fyrir efnahagslegu mikilvægi þeirra. Með nýlegri skýrslu um starfsumhverfi þeirra hefur aðkoma stjórnvalda að þessum fjölbreytta málaflokki verið skýrð og birt sýn til framtíðar. 21.11.2012 06:00
Opið bréf til Sóleyjar Sigrún Edda Lövdal skrifar Komdu sæl, Sóley. Okkur langar að byrja á að þakka þér fyrir skjót viðbrögð við opnu bréfi okkar og jafnframt að benda þér góðfúslega á að persónugera ekki bréfið sem kemur frá stjórn Barnsins, félags dagforeldra í Reykjavík. 21.11.2012 06:00
Rangfærslur formanns Landverndar leiðréttar Þorsteinn Víglundsson skrifar Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, dregur upp nokkuð dökka mynd af framtíðarhorfum áliðnaðar í heiminum í grein sem birtist í Fréttablaðinu hinn 16. nóvember síðastliðinn. Hann segir að í ljósi þess sé óhætt að fullyrða að hér á landi verði ekki byggð fleiri álver. Til þess séu horfur í áliðnaði of slæmar auk þess sem efnahagsleg áhrif af þeim iðnaði hér á landi hafi verið ofmetin. 21.11.2012 06:00
Mikilvægar ákvarðanir Guðjón Sigurbjartsson skrifar Fjöldi íslenskra heimila er í alvarlegum fjárhagsvanda, rúmlega 27.000 einstaklingar á vanskilaskrá og fer fjölgandi. Tugir þúsunda til viðbótar hafa glatað eigin fé í eignum sínum og sjá fram á erfiðar afborganir af verðtryggðum lánum næstu áratugi. 21.11.2012 06:00
Við megum ekki gefast upp Auður Guðjónsdóttir skrifar Eins og ýmsum er kunnugt samþykkti Norðurlandaþingið tillögu um mænuskaða á þingi sínu árið 2011. Tillagan kom upprunalega frá Íslandi og unnu þingmennirnir Siv Friðleifsdóttir, Helgi Hjörvar og Álfheiður Ingadóttir ötullega að því að koma henni í gegn. 21.11.2012 06:00
Tækifæri í Asíu Ingibjörg Gréta Gísladóttir skrifar Ég hef verið að velta fyrir mér tækifærum íslenskrar hönnunar í Asíu. Hvernig hægt sé að átta sig á bestu mögulegum leiðum inn á þann markað. Framleiðandi minn í Kína hefur fengið ófáar fyrirspurnir frá mér en aðeins hoppað hæð sína yfir einum íslenskum hönnuði á mínum vegum og viljað dreifa honum áfram. 21.11.2012 06:00
Lítil saga Auður Guðjónsdóttir skrifar Í tilefni prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík langar mig að deila eftirfarandi sögu með lesendum. 20.11.2012 16:10
Ójafn leikur Ólafur Þ. Stephensen skrifar Enn og aftur hefur Ísrael misboðið heimsbyggðinni með yfirgangi sínum gagnvart Palestínumönnum. Sú samúð sem málstaður Ísraelsríkis naut einu sinni víðast hvar á Vesturlöndum er á hröðu undanhaldi. 20.11.2012 06:00
Hver býr til jólakonfektið? Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar Yfirgnæfandi líkur eru á því að neytendur styðji með óbeinum hætti við barnaþrælkun þegar þeir kaupa íslenskt súkkulaði. Þrátt fyrir að barnaþrælkun sé bönnuð með lögum á Fílabeinsströndinni, sem er stærsti útflutningsaðili á kakói í heiminum, þá viðgengst hún þar samt sem áður hjá fjölmörgum kakóframleiðendum. 20.11.2012 06:00
Steingrími svarað Vilhjálmur Egilsson skrifar Steingrímur J. Sigfússon, fv. fjármálaráðherra, sendir Samtökum atvinnulífsins (SA) kveðju í grein í Fréttablaðinu 17. nóvember sl. Tilefnið er útgáfa rits SA um skattamál sem ber heitið „Ræktun eða rányrkja?“ og hefur vakið verðskuldaða athygli. Í greininni spyr hann hvort SA séu ekki sammála því að ná jöfnuði í ríkisfjármálum sem sé ein af forsendum afnáms gjaldeyrishafta og batnandi lánshæfismats. 20.11.2012 06:00
Hvenær á að byrja í leikskóla? Oddný Sturludóttir skrifar Ég vil þakka Sigrúnu Lövdal, dagforeldri í Reykjavík, fyrir opið bréf til okkar Sóleyjar Tómasdóttur. Nokkrum athugasemdum vil ég koma á framfæri vegna orða Sigrúnar sem er gott að fá tækifæri til að leiðrétta. Það er ekki rétt sem kemur fram hjá Sigrúnu að borgarsjóður eigi í handraðanum 1,2 milljarða króna til nýrra verkefna. 20.11.2012 06:00
Sveppasýkt húsnæði Teitur Guðmundsson skrifar Við höfum orðið vör við fréttaflutning af einstaklingum og heilu fjölskyldunum sem búa í húsum þar sem myglusveppur ræður ríkjum, veikir ónæmiskerfi þeirra og veldur hinum ýmsu einkennum, allt frá slappleika til þess að gera íbúa óstarfhæfa sökum veikinda. Nýlega var sagt frá slíku á Egilsstöðum, þar sem hefur komið í ljós að nokkur fjöldi nýlegra húsa þar og íbúar þeirra glíma við slíkt vandamál. Þá hafa komið upp dæmi víðar, jafnt í íbúðar- sem og vinnuhúsnæði. 20.11.2012 06:00
Handhafar framkvæmdarvalds Eyjólfur Ármannsson skrifar Skipan framkvæmdarvalds er eitt af grundvallaratriðum í tillögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem þjóðin samþykkti 20. október sl. Samkvæmt þeim (2. gr.) fer forseti Íslands, ráðherrar og ríkisstjórn og önnur stjórnvöld með framkvæmdarvaldið. Í 86. gr. segir að ráðherrar séu æðstu handhafar framkvæmdarvalds hver á sínu sviði. Samrýmist þessi staða ráðherra hlutverkum forseta Íslands, forsætisráðherra og ríkisstjórnar? 20.11.2012 06:00
Það er bannað að stíga á strik! Guðjón Auðunsson skrifar Ég þekki unga dömu sem heldur því fram að ef hún stígi á strik verði hún ekki prinsessa. Strikin eru mörg sem á vegi hennar verða, en með eftirtekt og gætni forðast hún strikin, og verður hún líklega prinsessa að lokum. Það væri óskandi að núverandi stjórnvöld veittu þeim hættulegu strikum sem á vegi þeirra verða sömu eftirtekt og vöruðust þau. Við hjá Reitum fasteignafélagi höfum fylgst með baráttu ferðaþjónustunnar við fyrirhugaðar skattahækkanir á gistingu, sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpi ársins 2013. Við teljum málið okkur skylt þar sem mörg af helstu hótelfyrirtækjum landsins eru í viðskiptum við félagið, og með því er vegið að rekstrargrundvelli þeirra. 20.11.2012 06:00
Gelding grísa án deyfingar loks færð í lög Guðný Nielsen skrifar Á undanförnum árum hafa íslensk svínabú legið undir ámæli fyrir það verklag að grísir eru geltir án deyfingar. Neytendur virtust áður almennt ómeðvitaðir um að þetta færi fram hérlendis, enda alla jafna talið að gætt sé að velferð dýra í íslenskum landbúnaði. 20.11.2012 06:00
Viljaskot í Palestínu Frá því að ég man eftir mér hafa fregnir af drápum Ísraelsmanna á Palestínumönnum reglulega skotið upp kollinum. Mistíðar reyndar, en alltaf aftur og aftur. Og svo allrar sanngirni sé gætt þá hafa einnig reglulega boristfregnir af drápum Palestínumanna á Ísraelsmönnum. 20.11.2012 06:00
Ekki meir, Eir Ólafur Þ. Stephensen skrifar Daglega berast nýjar fréttir af vafasömum fjármálaákvörðunum hjá Hjúkrunarheimilinu Eir. Fyrir helgi komst Ríkisendurskoðun að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi framkvæmdastjóri Eirar, Sigurður Helgi Guðmundsson, hefði farið á svig við fjöldamörg lög og reglur þegar hann lét heimilið greiða utanlandsferð fyrir tengdason sinn og dóttur, sem endurgjald fyrir lögfræðistörf tengdasonarins. 19.11.2012 06:00
Hin óverðugu Guðmundur Andri Thorsson skrifar Sérhvert tímaskeið hefur sín sérstöku tækifæri til misskiptingar og ranglætis, sína hagsmunapotara, sitt baráttufólk fyrir réttlæti, sitt sérstaka svindilbrask og sín sérstöku úrræði til að jafna kjörin – sína sérstöku baráttu góðs og ills – en mannlegar dyggðir og mannlegir lestir hefja sig upp yfir stað og stund í mannlegu samfélagi; hófsemi-ágirnd, auðmýkt-hroki, meðlíðan-sjálfhverfa? allt fylgir þetta mönnunum alltaf. Hið fullkomna þjóðfélag er ekki til. Sól hins 19.11.2012 06:00
Meira fyrir mig! Sighvatur Björgvinsson skrifar Mér skilst, að um níu þúsund manns hafi lýst stuðningi sínum á neti Vísis við greinarnar mínar tvær í Fréttablaðinu og að slíkt hafi ekki áður sést þar á bæ. Sá mikli stuðningur kom mér satt að segja á óvart. Nokkrir úr þeim hópi hafa tjáð mér stuðning beint – í síma, með SMS og í tölvupósti. Þeir hafa margir sagt, að þeir hafi lengi verið sömu skoðunar og ég, en ekki vogað að tjá sig. Hvers vegna ekki? Gefum orðið einum þeirra, sem sendu mér tölvupóst. Sá sagði orðrétt: 19.11.2012 06:00
Svar við bréfi Jóhanns Gylfi Arnbjörnsson skrifar Jóhann Hauksson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, sendi mér opið bréf á föstudag þar sem hann spyr hverjum hann eigi að stefna fyrir að hafa tekið út séreignasparnað sinn til að takast á við kreppuna. Það er miður að Jóhann virðist ekki greina á milli samtryggingar og séreignar. 19.11.2012 06:00
Björgum mannslífum og bætum umhverfið Elí Úlfarsson skrifar Nýverið var greint frá því í fréttum að Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélög á Stór-Reykjavíkursvæðinu hefðu gert samkomulag við íslenska ríkið þess efnis að ekki yrði efnt til neinna stórframkvæmda í samgöngumálum í Reykjavík næstu tíu árin. 19.11.2012 06:00
Tímamótasamstarf Guðbjartur Hannesson skrifar Ísland er þekkt fyrir mikla atvinnuþátttöku þjóðarinnar sem er meiri en þekkist í nokkru öðru ríki innan OECD. Við viljum öll vinna sem getum og gerum það ef vinnu er að fá. Missi fólk vinnuna hefst leit að nýju starfi og á það þá rétt til atvinnuleysisbóta. Þær fela hins vegar ekki í sér neina lausn heldur eru aðeins tímabundið fjárhagslegt úrræði þar til úr rætist. 19.11.2012 06:00
Ég er eldri en Sighvatur Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar Ég hélt það væri ekkert mál að verða 40 ára en svo vaknaði ég upp við vondan draum. Mannsævin er rétt eins og árstíðirnar við Miðjarðarhafið, það er ekkert vor eða haust. Þú heldur að það sé sumar þegar þú allt í einu vaknar upp í vetrarhríð. 19.11.2012 06:00
Tækifæri og ógnanir Magnús Halldórsson skrifar Fá lönd í heiminum hafa lítið fundið fyrir efnahagsþrenginum á heimsvísu sem fóru að gera vart við sig um mitt ár 2007 og hafa aukist, ekki síst í Suður-Evrópu, síðan. Nágranni Íslands, Noregur, er nú mitt inn í mesta uppgangstímabili sem einkennt hefur stöðu efnahagsmála í Noregi nokkru sinni. Þar kemur margt til en grunnurinn að uppgangstímanum er í raunhagkerfinu. Langsamlega þyngst vegur olíuiðnaður ýmis konar, ekki aðeins framleiðsla, boranir og sala, heldur ekki síður óbein þjónustustörf í iðnaði og tæknigreinum ekki síst. 18.11.2012 13:44
Skamma stund verður hönd höggi fegin Þorsteinn Pálsson skrifar Áhugaleysi er það sem lesa má úr stöðunni eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi um síðustu helgi. Það rímar við þjóðaratkvæðagreiðsluna um stjórnarskrármálið þar sem hvorugum flokknum tókst að höfða til meirihluta kjósenda. Ríkisstjórnin hefur brugðist vonum kjósenda og stjórnarandstaðan hefur ekki náð að vekja nýjar vonir. 17.11.2012 10:20
Sér fyrir enda skattahækkana? Ólafur Þ. Stephensen skrifar Sveitarstjórnir um allt land liggja þessa dagana yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Það er klárlega ekki alltaf létt verk, enda bæði rekstrar- og skuldastaða margra sveitarfélaga erfið. Það vekur þó athygli að í það minnsta þrjú sveitarfélög, öll á suðvesturhorninu, stefna að því að lækka skatta á næsta ári. 17.11.2012 10:11
Við lesbíurnar Bergsteinn Sigurðsson skrifar Hvað er húmor? Um aldir alda hafa spakir menn spurt þessarar spurningar og sýnist sitt hverjum. Í mínum huga er húmor það sem gerir lífið þess virði að lifa, aromatið í tilverunni ef svo má að orði komast. Ég þyki gamansamur maður og hef í gegnum tíðina farið með gamanmál á mannamótum. Án þess að ég sé að hreykja mér hefur þetta mælst svo vel fyrir að ég hef smám saman verið að færa mig upp á skaftið og taka að mér stærri "gigg" eins og þeir kalla þetta í "bransanum". 17.11.2012 10:03
Sighvatur og sjálfhverfa kynslóðin Karl Sigfússon skrifar Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, hefur farið mikinn í greinaskrifum í Fréttablaðinu síðustu daga þar sem hann fullyrðir að kynslóð Íslendinga á aldrinum 30-45 ára sé sjálfhverfasta kynslóð á Íslandi. Sighvatur fullyrðir að umrædd kynslóð hugsi bara um sjálfa sig og sé algjörlega sama um allt og alla. Kvarti bara og kveini og heimti leiðréttingar á kjörum sínum á kostnað annarra á grundvelli þess að hér hafi orðið einhver ímyndaður "forsendubrestur“. Sighvatur lætur einnig í veðri vaka að þessi kynslóð hafi ein og sér valdið efnahagshruninu, kvótabraski á landsbyggðinni og eignahruni gamla fólksins. 17.11.2012 06:00
Eftir höfðinu dansa síbrotamennirnir Ragnar H. Hall skrifar Sl. fimmtudag var Svavar Halldórsson, fréttamaður á RÚV, dæmdur til að greiða Jóni Ásgeiri Jóhannessyni miskabætur fyrir ærumeiðingar. Í svokallaðri frétt hafði hann brigslað Jóni um refsiverða háttsemi sem hann gat ekki fært fram nein gögn um að hann hefði gerst sekur um. Þetta var í annað sinn á tæpu ári sem fréttamaðurinn fær sams konar dóm í Hæstarétti, þar sem jafnframt er komist að niðurstöðu um að hann hafi ekki farið eftir reglum sem útvarpsstjóri hefur sett um vinnubrögð á fréttastofu RÚV. 17.11.2012 06:00
"Sérfræðingar“ á villigötum Málflutningur ýmissa reyndra stjórnmálamanna sem hafa tjáð sig um lánamál heimilanna að undanförnu hefur oft vakið mikla undrun hjá mér þar sem mér hefur oft fundist skorta verulega á almenna skynsemi og innsæi í grundvallaratriði. Dæmi um þetta komu fram á ágætum borgarafundi í Háskólabíói á vegum Hagsmunasamtaka heimilanna sl. þriðjudag. Pétur Blöndal alþingismaður (sem margir telja talnaglöggan o 17.11.2012 06:00
Geturðu talað við tölvuna þína? Ólafur Þ. Stephensen skrifar Íslenzkan er sprelllifandi og mikið notað tungumál. Það má til dæmis má sjá af þeirri staðreynd að aldrei hafa verið fleiri titlar í Bókatíðindunum en í ár. Þar ræður meðal annars sú þróun að bækur séu gefnar út á fleiri en einu formi; á pappír, sem hljóðbók og rafbók. Þannig er líklegt að næstu árin muni æ fleiri lesa jólabækurnar í spjaldtölvu eða á lesbretti fremur en á pappír. Texti á íslenzku skilar sér þá í nýjum miðlum, sem er gott. 16.11.2012 06:00
Átakalínur þjóðfélagsins Dýrin í Hálsaskógi Thorbjörns Egner eru bráðskemmtilegt barnaleikrit. Þá er boðskapur þess – öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir – sem sniðinn handa markhópnum. Öllu verri er boðskapurinn þó sem einhvers konar leiðarstef í þjóðmálaumræðu eins og sumir virðast halda hér á landi. Stundum láta álitsgjafar nefnilega eins og það séu engar átakalínur í íslensku þjóðfélagi. Það er barnaleg skoðun, öllum ætti að vera ljóst að mannlífið hér á landi er fjölbreytt og hagsmunir ólíkra hópa mismunandi. Öllum. 16.11.2012 06:00
Íslensk tungutækni Á degi íslenskrar tungu er fagnaðarefni að íslensk málnefnd hefur veitt viðurkenningar fyrir tungutækniverkefni. Þær hlutu Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins, og Jón Guðnason og Trausti Kristjánsson, kennarar og vísindamenn við Háskólann í Reykjavík. 16.11.2012 06:00
Mikilvægt að hælis- leitendum sé ekki refsað Kristján Sturluson skrifar Í umræðu undanfarið um málefni hælisleitenda og fórnarlömb mansals hafa verið dregnir fram ýmsir vankantar á þeim reglum sem nú gilda um málaflokkinn. Þeir sem til þekkja eru almennt sammála um að íslensk stjórnvöld þurfi að koma betur til móts við þá sem hingað leita hælis undan stríðsátökum og ofsóknum eða hafa jafnvel verið seldir hingað mansali. 16.11.2012 06:00
Undir merkjum Jóhönnu Mörður Árnason skrifar Jóhanna Sigurðardóttir hættir stjórnmálastörfum við lok kjörtímabilsins. Ferill hennar er merkilegur og glæsilegur. Þegar frá líður held ég að menn staldri ekki síst við endurreisnina úr hruninu. Við það erfiða forystuverk hefur Jóhanna haft skýra sýn – sýn jafnaðarstefnunnar. 16.11.2012 06:00
Skaðleg heilbrigðisþjónusta Auðbjörg Reynisdóttir skrifar Aukið öryggi sjúklinga er gjarnan notað sem rökstuðningur fyrir kröfum um aukið fjármagn í heilbrigðisþjónustuna. Vissulega er ástæða til að heiðra vísindafólk og starfsfólk sem leggur hart að sér til að gera mannverunni lífið bærilegra og skapa okkur tækifæri til að sigrast á annars óvægu hlutskipti lífsins. En öllu þessu ágæta fólki getur orðið á í starfi. Þá er mikilvægast að vera tilbúinn að læra af því, hafa hugrekki til að horfast í augu við mistökin og gera nauðsynlegar breytingar til að forðast endurtekningar. Það má ekki stinga hausnum í sandinn og halda áfram eins og ekkert sé. Það eitt veldur enn meiri þjáningu og tjóni. Mér finnst rétt að rifja upp að allar líkur eru á að rúmlega 200 einstaklingar látist árlega vegna svonefndra læknamistaka og þau munu halda áfram að gerast þótt ný tæki verði keypt og nýr spítali byggður. 16.11.2012 06:00
Launalækkun er í boði ríkisstjórnar Páll Steingrímsson skrifar Nú er það að ganga eftir sem sjómenn óttuðust í vor, þ.e. að krafa ætti eftir að koma fram um að laun þeirra yrðu lækkuð. Þetta ætti þó ekki að koma neinum á óvart. Í sérfræðiáliti, sem ríkisstjórnin kallaði sjálf eftir, sagði m.a.: "Umfangsmikil skattlagning rentu mun LÆKKA laun sjómanna.“ Svo mörg voru þau orð um áhrif frumvarps um stórhækkuð veiðigjöld á laun sjómanna. 16.11.2012 06:00
Evran eða hjólbörur (eða yuan!) Birgir Guðjónsson skrifar Meðal minninga frá barnæsku frá fimmta áratug síðustu aldar er að við bræður og 2 frændur á aldrinum 6-9 ára fundum krónupening þ.e. eina krónu á götu í Vestmannaeyjum. Skömmu síðar hittum við afa og ömmu frændanna á göngutúr og sögðum þeim diplómatískt að þegar við værum búnir að finna tíeyring í viðbót gætum við keypt okkur eina kók. Afinn fann að sjálfsögðu tíeyring í vestisvasanum. Coca Cola kostaði þá sem sagt eina krónu og tíu aura og nutum við hennar vel fjórir strákar. 16.11.2012 06:00
Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun