Fleiri fréttir

Konur til áhrifa

Konur, völd og áhrif - Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður Konur eiga að sækjast eftir áhrifum og tími til kominn að konur fái völd til jafns við karla og sömu laun og þeir

Meiri kristni

Hér er fjallað um gagnrýni á kristnifræðikennslu í skólum, fátið sem hefur gripið framsóknarmenn vegna þenslunnar á húsnæðismarkaði, hryðjuverkamennina sem stóðu fyrir árásunum 11/9 og menntaskólahúmor Vef-Þjóðviljans...

Til varnar einkaskólum

"Við sem eigum börn í Landakotsskóla borgum ekki lægri gjöld til Reykjavíkur og þeir peningar sem við greiðum aukreitis fyrir að vera með barnið í einkaskóla hefðum við getað notað í annað, en við kusum að nota þá til að tryggja velferð barnanna okkar," skrifar Teitur Gylfason...

Hnúturinn í Fischersmálinu

"Í allsherjarnefnd eru einungis valdir þægustu þingmennirnir eins og sást t.d. í fjölmiðlamálinu. Mér er kunnugt um að meirihlutinn beið alltaf eftir línunni og jafnvel frestaði fundum meðan beðið var og skipti viðstöðulaust um skoðun um leið og foringjarnir," skrifar Sigurður Þórðarson...

Fínir menn

Forráðamenn Eimskipafélagsins voru góðu mennirnir sem aumkuðu sig yfir þetta vesalings fólk sem hvergi gat losnað við eign sína. Það sem fólkið fékk fyrir hlutabréfin var smánarupphæð miðað við raunverulegt verðmæti...

Vandi foreldra langveikra barna

Foreldrar langveikra og fatlaðra barna hafa fagnað þessu framtaki, þótt enn sé töluvert í að það verði að veruleika. Fyrstu skrefin verða stigin í janúar á næsta ári, og tíu árum eftir að Alþingi ályktaði um það er ráðgert að lögin verði að fullu komin til framkvæmda.

Flugvöllur fyrir fáa

Steinunn Jóhannesdóttir skrifar

Reykjavíkurflugvöllur - Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur Með því að byggja þétta og menningarlega miðborg milli stranda í gömlu Reykjavík mun borgarstjórn stuðla að hollari lífsháttum borgaranna.

Þorvaldur, Jónas og Pétur

Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verða Þorvaldur Gylfason, Jónas Sen, Pétur H. Ármannsson, Hjálmar Árnason, Stefán Jón Hafstein, Páll Baldvin Baldvinsson, Eggert Skúlason, Heimir Már Pétursson og Friðbjörn Orri Ketilsson...

Framsókn tekur Kristni

Sættir hafa tekist milli Kristins H. Gunnarssonar og forystu Framsóknarflokksins og mun Kristinn nú á ný fá fulla aðild að þingflokknum. Þetta eru athyglisverð tíðindi, þar sem Kristinn hefur ekki bundið bagga sína sömu hnútum og afgangur þingflokksins; í það minnsta opinberlega.

Sögumaður deyr

Arthur Miller varð frægur fyrir tvennt: beztu leikritin sín og lakasta hjónabandið. Hann afréð ungur að verða rithöfundur, helzt leikskáld, og framfleytti sér í háskóla með því að vinna í þrígang til verðlauna fyrir leikritun

Konur auka hagnað fyrirtækja

Konur og rekstur  - Ásta Möller  Ýmsar rannsóknir benda til þess að fjölbreytni í samsetningu æðstu stjórnenda fyrirtækja, þar á meðal aukið hlutfall kvenna, bæti stjórnunarhætti og árangur þeirra.

Úr bókahillunni II: Eyðilandið

Í þessum pistli er fjallað um aðalbók unglingsára minna, málfund í Menntaskólanum í Hamrahlíð, viðvörunarorð um ungliðahreyfingar, vísi að Megasarsafni og nýja forstjóra hjá Flugleiðum...

Til varnar Laugaveginum

Vonandi sér borgarstjórn að sér og endurskoðar áform sín um Laugaveginn í ljósi þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið. Niðurrif húsanna tuttugu og fimm væri menningarsögulegt slys.

Gjaldfrjálsir leikskólar

Leikskólar - Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri Að búa vel að börnum og barnafólki er höfuðatriði í stefnu borgarinnar og hefur talsvert fé verið lagt í að mæta þörfum barnafjölskyldna. Ekki er það eingöngu í rekstri leikskóla heldur ekki síður í grunnskólunum, frístundaheimilum og með stuðningi við öflugt íþrótta- og tómstundastarf frjálsra félagasamtaka.

Laugavegur 11 og fleiri hús

Hér er rætt um liðið sem hékk á Laugavegi 11, í þeim hópi var ekki Halldór Laxness, fjallað um samgöngumiðstöðina sem á að rísa í Vatnsmýrinni, úrslit kosninganna í Írak og ósannsögli útgerðarmanna þegar kvóti er annars vegar...

Er Al kaída tilbúningur?

Heimildamyndahátíð - Jón Karl Stefánsson, nemi Hinn 19. febrúar hefst heimildamyndahátíð gagnauga.is.

Ríkisútvarpið og afnotagjöldin

Afnotagjöld tíðkast í nær öllum löndum Vestur-Evrópu og þar virðist ekki vera jafn mikil umræða og hér um að leggja þau af.

Amstur við flutninga

Hafa menn ekki velt því fyrir sér að kannski skiptir verðið ekki mestu máli, heldur hvaða umhverfi fjarskiptafyrirtækjum og viðskiptavinum þeirra er búið í framtíðinni

Hvað er leiðsögumaður ferðafólks?

Starf leiðsögumanna - Birna G. Bjarnleifsdóttir Núna er vitað að margir einstaklingar kalla sig leiðsögumenn og selja leiðsöguþjónustu án þess að hafa leiðsögupróf. Vonandi smitast þeir af hugsjón stofnenda FL og fara í gæðapróf áður en verksala fer fram

Sjálfvirk varðstaða um gömul hús

Hér er fjallað um umdeilt niðurrif húsa á Laugaveginum, ömurlega húskofa við Hverfisgötuna, skipulag í Þingholtunum, grunnskóla í kreppu, afturhald í skólamálum, einkaskóla og ávísanakerfi

Nútíma þrælahald

"Það er ólíðandi fyrir verkafólk hér á landi að horfa upp á það að fengnir séu starfskraftar á launum sem eru skammarlega lág og myndu ekki duga okkur íslendingum til að framfleyta fjölskyldu," skrifar Guðmundur E. Jóelsson...

Að verðlauna fjölmiðlafólk

Það er því full ástæða til að staldra við á morgun og veita verðlaunum blaðamannastéttarinnar athygli. Þetta er ekki sérmál blaðamanna, þetta varðar allt samfélagið.

Útlagi úr alþjóðasamfélaginu

Bandaríkin hafa reynt að einangra og inniloka N-Kóreu um áratugi og margir álíta að einmitt það hafi haldið Kimunum við völd svo lengi.

Viðskiptahindranir til sölu!

Landssíminn - Eggert Skúlason Verði grunnnetið selt með Símanum er verið að selja hindranir, viðskiptahindranir. Það mun ekki verða friður á fjarskiptamarkaði verði grunnnetið selt með þessum hætti.

Verðlaun og mannréttindi

Undantekningar frá mannréttindum eiga því ekkert skjól í hagsmunum eða siðvenjum samfélaga og brot á þeim hafa verið notuð sem réttlæting afskipta og hernaðaríhlutunar í ríki sem ekki virða slík réttindi.

Lopapeysur á þing!

Á alþingi á að spranga um innan um jakkalakkana og dragtadömurnar, fólk á gallabuxum, í flíspeysum og lopapeysum, fólk af holdi og blóði, ólitgreint fólk.

Björgólfur ekki með VÍS

Hér er fjallað um bisnessmenn sem gera sig líklega til að kaupa Símann, Valdísi Óskarsdóttur sem er að meika það í útlöndum, fróðlega bók um Alþýðubandalagið sem kom út 1987, Valentínusardaginn og verðlaun Blaðamannafélags Íslands...

Amnesian mikla

"Smám saman rifjast 18.mars 2003 upp fyrir Halldóri Ásgrímssyni. Svartur dagur. Þá urðu smásamtöl milli skrifstofumanna og ráðherra að smásímtali til Bandaríkjanna.   Í önn Halldórs þennan dag og lasleika Davíðs  fæddist ný utanríkisstefna á Íslandi," skrifar Baldur Andrésson...

Bara fyrir hreinar meyjar?

Hér er fjallað um væntanlegt brúðkaup Karls Bretaprins og Camillu Parker Bowles, páfann sem er farinn að minna á kvikmynd eftir Fellini og pressuböllin eins og þau voru þegar fólkið úr dönsku blöðunum kom hingað...

Virðing í viðskiptum

Flugsamgöngur Íslendinga hafa aldrei verið fjölbreyttari og betri en nú. Sigurður Helgason á vafalítið mikinn þátt í því.

Viðskiptatækifæri almennings

Flókið regluverk mótað af tortryggni má ekki verða til þess að menn missi sjónar á tækifærinu sem liggur í þátttöku almennings í atvinnulífinu gegnum hlutafjáreign.

Kvenréttindi eða jafnrétti?

Jafnréttislögin - Eva Ólafsdóttir Ég trúi því að engir tveir einstaklingar geti verið nákvæmlega jafn hæfir til eins eða neins. Það hlýtur alltaf að vera hægt að finna eitthvað öðrum til framdráttar, nú eða foráttu

Halldór, Hannes og Steingrímur J

Halldór Guðmundsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Steingrímur J. Sigfússon og Pétur H. Blöndal verða meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn, þátturinn er í opinni dagskrá...

Röskva mun sameina námsmenn

Stúdentaráðskosningar - Anna Pála Sverrisdóttir og Ásgeir Runólfsson Hvers konar samstarf er það þar sem einn eða fleiri aðilar lýsa því yfir að þeir muni aldrei hvika?

Uppsprettur nýrra hugmynda

Á meðan hið pólitíska kerfi í landinu byggir á flokkunum verður að minnsta kosti að gera þá kröfu til stjórnmálamanna að þeir fylgist vel með þjóðfélagsumræðunni og bregðist við vel rökstuddum tillögum og öðrum hugmyndum sem eru í brennidepli hverju sinni.

Sjá næstu 50 greinar