Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvenær drepur maður sjónvarp? Niðurstaða: Brokkgeng saga með kunnuglegum persónum, en prýðilega stíluð og bráðskemmtileg. 29.10.2011 16:00
Þungbær örlög og veik von um betri heim Niðurstaða: Áhugaverð sýning um brennandi málefni. 29.10.2011 06:00
Tinni og Kolbeinn í Tölvulandi Niðurstaða: Ágætis fjölskyldufjör en Spielberg þarf að ydda blýantinn betur næst. 28.10.2011 06:00
Ríghaldið í pilsfaldinn Niðurstaða: Enn ein tilgangslausa endurgerðin. Leigið frekar myndirnar frá 1951 og 1982. 27.10.2011 07:00
Sálarlaus gereyðing Niðurstaða: Fínn leikur en samanborið við fyrri leiki seríunnar er hann afskaplega takmarkaður. 27.10.2011 06:00
Flott framhald Balkansveitin Orphic Oxtra rúllar plötu númer tvö upp með stæl. Kebab diskó er fín plata sem sýnir að það er mikill hugur í meðlimum Orphic Oxtra og þeir eru opnir fyrir því að taka nýja strauma inn í tónlistina. Það verður spennandi að fylgjast með því hvernig tónlist sveitarinnar þróast á næstu plötum. 26.10.2011 19:00
Kambur í hrauni, kryppan á Heklu Meistaraverkið og fleiri sögur er ekki gallalaus bók en ber þegar best lætur öll bestu höfundareinkenni Ólafs Gunnarssonar, skemmtir, vekur umhugsun og skilur eftir örlítinn hroll í sálinni. Fjórtán ólíkar smásögur frá sagnamanni af guðs náð. Grimmd, húmor og fullkomið vald á forminu. 26.10.2011 13:00
Fótboltaaðdáendur samvaxnir við sófann Já, FIFA 12 er frábær leikur. Og já, það er orðið rosalega þreytt að finnast sem maður sé alltaf að hjakka í sama farinu. Kannski koma róttækar breytingar á næsta ári. 20.10.2011 20:00
Tíminn er núna Einmitt núna er ný mynd eftir Woody Allen í bíó. Drífðu þig! Midnight in Paris er besta mynd Allen í nokkur ár, síðan Match Point kom út. 19.10.2011 21:00
Nóttin á bak við lífið Glæsilegt lokabindi þríleiksins um Strákinn og Plássið. Meistaralega stíluð, sár og hrífandi saga. Þessi þríleikur Jóns Kalmans er eitt mesta stórvirki í íslenskum bókmenntum síðari ára. Þessi saga forfeðranna, sagan af lífskjörum þeirra, þrautseigju og baráttu við hafið og önnur náttúruöfl hefur sjaldan verið betur sögð. 19.10.2011 14:00
Ghostigital á Iceland Airwaves: Harðasta bandið Tónleikar Ghostigital hafa verið einn af hápunktum Airwaves undanfarin ár og það varð engin breytng á því á árinu 2011. Þeir Einar Örn og Curver spiluðu klukkan níu á laugardagskvöldið á aðalsviðinu á Faktorý og staðurinn troðfylltist á meðan þeir voru að spila. 17.10.2011 14:30
Tonik á Iceland Airwaves: Tónar og litir Anton Kaldal Ágústsson er búinn að búa til raftónlist undir nafninu Tonik í nokkur ár. Hann var fyrsta atriðið á dagskránni á Faktorý á laugardagskvöldið. Þegar ég mætti á staðinn var hann í góðum fíling á sviðinu ásamt bassaleikara. Tónlist Toniks hljómaði mjög vel í þessu frábæra hljóðkerfi sem var á staðnum og henni fylgdi einföld, en vel útfærð ljósasýning, en eitt af því sem Tonik segist vera að vinna með er samband lita og tóna. 17.10.2011 13:30
Samaris á Iceland Airwaves: Öruggari og þéttari Það var ágæt mæting þegar tríóið Samaris spilaði á neðri hæðinni á Faktorý á laugardagskvöldið. Hljómsveitin er orðin mun þéttari og öruggari heldur en hún var þegar ég sá þau spila síðasta vor. Tónlistin þeirra er afbrigði af trip-hoppi tíunda áratugarins með áhrifum frá nýrri stefnum eins og dub step og svo einhverju sem kemur frá þeim sjálfum. 17.10.2011 13:00
tUnE-yArDs á Iceland Airwaves: Brjáluð stemning tUnE-yArDs er mjög skemmtileg á tónleikum. Hún leikur sjálf á trommur og syngur og hljóðritar bæði söng og takta og spilar þá jafnóðum (notar fótpedala til að stjórna aðgerðum !) og svo spilar hún á úkúleleið sitt. Með henni á Nasa var bassaleikari og tveir saxófónleikarar. Áhorfendur sungu með hástöfum í lögum eins og Gangsta og You Yes You en hápunkturinn var lagið Bizness. 17.10.2011 11:45
Sinead O'Connor á Iceland Airwaves: Spilað á allan tilfinningaskalann Það var mikil stemning í Fríkirkjunni þegar írska stjarnan Sinéad O'Connor spilaði þar á föstudagskvöldið með tveimur aðstoðarmönnum, gítarleikara og hljómborðsleikara. Sinéad var í fínu formi og náði mjög sterkum tengslum við tónleikagesti, sérstaklega þegar leið á tónleikana. Hún er frábær söngkona og textahöfundur og flutti lögin sín af mikilli tilfinningu sem kallaði marg oft fram gæsahúð hjá áhorfendum sem fylltu kirkjuna. 17.10.2011 11:30
Dungen á Iceland Airwaves: Vonbrigði Lélegur hljómur Hafnarhússins eyðilagði lítið fyrir HAM, en fór illa með sænsku hipparokkarana í Dungen. Tónleikar hljómsveitarinnar byggðust mikið upp á spunakenndum hljóðfæraleik, en erfitt reyndist að greina tónlistina þar sem bassinn virtist hafa skitið yfir tónleikana. Svo lélegur var hljómurinn. 17.10.2011 11:00
Esmerine á Iceland Airwaves: Hörpufjör í Hörpu Montreal-bandið Esmerine hreif áhorfendur með sér um leið og sveitin hóf leik. Tónlist sveitarinnar er að mestu leikin á selló, hörpu og ýmis ásláttarhljóðfæri, til að mynda sílafón, og sver sig í ætt við ýmsar síðrokksveitir og indíbönd frá Kanada. 17.10.2011 11:00
John Grant á Iceland Airwaves: Stórkostlegur sögumaður John Grant var ekkert að klæða sig upp fyrir tónleika sína í Hörpu. Hann settist fyrir framan flygilinn með lopahúfu á hausnum og hamraði inn æðislegar melódíur í tæpan klukkutíma. Grant er frábær sögumaður og sýndi fimi sína milli laga. Sagði frá erfiðum uppvaxtarárum, en hann uppgvötaði mjög snemma að hann er hommi og taldi lengi að það væri synd. 17.10.2011 10:52
HAM á Iceland Airwaves: Díselvélin Hljómurinn í Hafnarhúsinu á föstudagskvöld var lélegur. Það kom lítið niður á tónleikum HAM sem er einhvers konar þungarokkvél. Vélin hökktir lítið og keyrir áfram á díselolíu með tilheyrandi hávaða og látum. Lögin Dauð hóra, Mitt líf og Ingimar eru orðin klassík, þrátt fyrir að stutt sé síðan þau komu út á plötu og áhorfendur sungu með af lífsins sálar kröftum. Haldið til haga: Í gagnrýni Fréttablaðsins um tónleika HAM í Hafnarhúsinu á föstudaginn kom fram að hljómurinn hafi verið lélegur. Þetta er klaufalega orðað þar sem gagnrýnandi var ekki á svæðinu fyrri hluta kvölds og var því ekki dómbær á það sem fór þá fram. 17.10.2011 10:30
Of Monsters and Men á Iceland Airwaves: Varla feilnóta Of Monsters and Men sýndi í Norðurljósasalnum af hverju hún er vinsælasta hljómsveit landsins um þessar mundir. Fullt var út úr dyrum eins og búast mátti við og stemningin var eftir því. Tíu manns voru á sviðinu og spilamennskan var þétt og hljómurinn einkar góður. Hið gríðarvinsæla Little Talks fékk bestu viðtökurnar en önnur lög voru ekki síðri. 17.10.2011 10:15
Dad Rocks á Iceland Airwaves: Huggulegt Snævar Njáll Albertsson býr í Danmörku og kallar sig Dad Rocks! Með honum á sviðinu í Kaldalónssalnum voru tveir fiðluleikarar, tveir trompetleikarar og einn sellóleikari en trommuleikarinn átti ekki heimagengt frá Danmörku 17.10.2011 09:45
Puzzle Muteson á Iceland Airwaves: Lágstemmt Salurinn í Iðnó var troðfullur og með Puzzle á sviðinu voru sjö manns, þar á meðal píanóleikarinn Daníel Bjarnason. Sjálfur sat forsprakkinn fremst með kassagítarinn í hendi og söng með fallegri rödd sinni lágstemmd lögin. 17.10.2011 09:30
Ólafur Arnalds á Iceland Airwaves: Upplifun Flutningur Ólafs og hljómsveitar hans var frábær. Tónlistin er huljúf klassk en hann kryddar hana með smáum skömmtum af popp og raftónlist og það er sannarlega upplifun að sjá hann á tónleikum. 17.10.2011 09:00
Þjónn, það er fluga í stríðinu mínu Fallegur boðskapur og ágæt tilraun til að varpa nýju ljósi á tilgangsleysi stríðs, þótt aðeins vanti upp á slagkraftinn. 16.10.2011 10:00
Púður óskast Góður mannskapur nær ekki að bjarga losaralegu handritinu. Borgríki er því töluverð vonbrigði. Myndin er þó laus við töffarastælana og rembinginn sem einkenndi íslenskar spennumyndir allt of lengi, og því ber að hrósa. 15.10.2011 00:01
Kænn kappi í Landnámssetrinu Niðurstaða: Þór nýtur sín í þessu hlutverki og er alveg óhætt að mæla með enn einu fræðandi og skemmtilegu stefnumóti við forna kappa uppi í Borgarnesi. 15.10.2011 06:00
Retro Stefson á Iceland Airwaves: Meiriháttar Krakkarnir í Retro Stefson hafa greinilega unnið heimavinnuna sína og stóðu fyrir meiriháttar skemmtilegu stuði. 15.10.2011 00:01
Beach House á Iceland Airwaves: Dáleiðandi flutningur Dúettinn Beach House var tríó á sviði Hafnarhússins á fimmtudagskvöld. Hljómsveitin byrjaði á lögum af einni af plötum ársins 2008, hinni stórkostlegu Devotion, og dáleiddi áhorfendur, sem voru ennþá sveittir eftir stórkostlega tónleika Retro Stefson. Beach House flutti eldra efni í bland við nýtt og gerði það nánast óaðfinnanlega. 15.10.2011 00:01
Hjaltalín á Iceland Airwaves: Lágt flug Hljómsveitin Hjaltalín sló í gegn með fyrstu breiðskífu sinni, Sleepdrunk Seasons, sem kom út árið 2007 og þótti þá á meðal efnilegustu sveita landsins. Sveitin steig á svið í Hafnarhúsinu í gær og lék þá eitthvað af nýju efni í bland við nokkur gömul og góð. 15.10.2011 00:01
Gísli Pálmi á Iceland Airwaves: Sjóðheitt og snaggaralegt Rapparinn Gísli Pálmi hefur vakið nokkra athygli fyrir myndbönd sín á Youtube og því var nokkur eftirvænting eftir þessum fyrstu tónleikum hans á Airwaves. Slatti af ungu fólki var samankominn á Gauknum og varð það ekki fyrir vonbrigðum með sinn mann. 15.10.2011 00:01
MI-GU á Iceland Airwaves: Einfalt en áhrifaríkt Trommuleikarinn og söngkonan Yuko Araki og gítarleikarinn Hirotaka Shimmy Shimizu skipa MI-GU, en þau eru bæði meðlimir í japönsku sveitinni Cornelius. Yuko er frábær trommari og einkar sjarmerandi söngkona. Þó að tónlist MI-GU sé einföld virkaði hún mjög vel. Gítarriff Shimmys voru flott og trommuleikur Yukoar fyllti vel út í.- tj 15.10.2011 00:01
Plastic Ono Band á Iceland Airwaves: Salurinn tæmdist Salurinn var kjaftfullur áður en tónleikar The Plastic Ono Band hófust. Til að hita upp fyrir tónleikana var sýnd heimildarmynd um Yoko Ono og John Lennon og allir virtust spenntir að sjá þessa frægu hljómsveit stíga á svið. Fljótlega eftir að Yoko hóf upp raustina byrjaði fólk þó að tínast úr salnum, enda er söngur hennar langt í frá allra. 15.10.2011 00:01
Karkwa á Iceland Airwaves: Kraftmikið og þétt Indírokksveitin Karkwa var stofnuð í Montreal í Kanada fyrir þrettán árum og syngur öll sín lög á frönsku. Hún hlaut hin virtu kanadísku Polaris-tónlistarverðlaun í fyrra fyrir sína síðustu plötu. 15.10.2011 00:01
Sóley á Iceland Airwaves: Krúttlegt og kósí Sóley steig á svið ásamt trommuleikara sínum og saman slógu þau tvö vart feilnótu. Tónlistin var hugljúf og krúttleg, líkt og Sóley sjálf sem heillaði tónleikagesti með skemmtilegu spjalli milli laga. 14.10.2011 15:00
Dikta á Iceland Airwaves: Stemningsleysi Þrátt fyrir að Dikta sé þekkt sem ein besta tónleikasveit landsins átti hún í mestu vandræðum með að ná upp stemningu í Norðurljósasalnum. Kannski var sveitin þreytt eftir tónleikaferð sína um Þýskaland. Ekki hjálpaði samt til að helmingur tónleikagestanna sat á miðju gólfinu nánast allan tímann á meðan hinn helmingurinn stóð allt í kring. Aðeins nokkrar hræður stóðu uppi við sviðið og langmesta lífið var í þeim. 14.10.2011 15:00
Blaz Roca á Iceland Airwaves: Blaz í góðu formi Blaz Roca mætti upp á svið grimmur á svip, til í slaginn, og byrjaði á Gaslaginu ásamt Bent og Lúlla úr XXX Rottweiler. Sviðið á Gauknum minnti á köflum á fjölfarna ferðamannamistöð þegar hver rapparinn á fætur öðrum hoppaði upp á svið og niður aftur, eða Friðrik Dór, Henrik Biering, Dabbi T og Sesar A, auk Rottweiler-tvíeykisins. Blaz Roca var vitaskuld miðpunkturinn og reyndi ítrekað að fá salinn með sér, með því að spyrja hvort þessi eða hinn væri í húsinu. 14.10.2011 14:00
Amaba Dama á Iceland Airwaves: Gleðin skein úr hverju andliti Amaba Dama er reggísveit sem rapparinn Gnúsi Yones leiðir, en hún hefur vakið athygli undanfarið fyrir reggíútgáfu af Bjartmars-smellinum Týnda kynslóðin. Þetta er fjölmenn sveit sem er að hluta til skipuð sömu meðlimum og Ojba Rasta, a.m.k. á þessum tónleikum á Airwaves. 14.10.2011 14:00
Náttfari á Iceland Airwaves: Spikfeitt síðrokk Síðrokksveitin Náttfari lét nokkuð til sín taka fyrir um áratug en lagðist svo í dvala. Sveitin var endurvakin fyrir nokkrum misserum og hefur nú lokið við gerð fyrstu breiðskífu sinnar sem fáanleg er á Bandcamp og kemur á geisladiski á næstu dögum. 14.10.2011 14:00
Ourlives á Iceland Airwaves: Flottur söngvari Það verður seint sagt að Ourlives hafi náð upp brjálaðri stemningu í Silfurbergssalnum. Maður ímyndar sér einhvern veginn að bæði hljómsveitin og aðdáendur hennar sé vanari sveittari stemningu á öldurhúsum bæjarins. 14.10.2011 13:00
Markús and the Diverse Sessions á Iceland Airwaves: Hreinræktað popp Markús and the Diversion Sessions spila það það sem tónsmiðurinn og söngvarinn sjálfur kallaði „pjúra popp“. Tónlistin er svolítið í anda Pavement, grípandi og skemmtileg. 14.10.2011 11:00
Ojba Rasta á Iceland Airwaves: Sveit sem er að springa út Velgengni Hjálma virðast hafa hrundið af stað íslenskri reggíbylgju. Á miðvikudagskvöldið sveif reggíandinn yfir vötnum á aðalsviði Faktorý. Ojba Rasta er búin að vera starfandi í tvö ár og er núna orðin mjög þétt og flott. Sveitin spilar reggí með áhrifum frá evrópskri þjóðlagatónlist. 14.10.2011 11:00
Lifandi vísindi Bjarkar Niðurstaða: Tónleika-, margmiðlunar- og vísindasýning Bjarkar í Hörpu á miðvikudagskvöldið var einstök upplifun. 14.10.2011 06:00
Allt gengur upp hjá Lay Low Lay Low toppar sig á frábærri plötu. Lögin eru góð, útsetningarnar ferskar og hugmyndaríkar og hljómurinn er hlýr og gamaldags, en platan er tekin upp á segulband. 13.10.2011 13:00
Framvarðasveitin Snillingarnir í ADHD leika lausum hala á landamærum rokks og djass. Á heildina litið er þetta fyrirtaks plata sem ætti að höfða jafnt til djass- og rokkáhugafólks. 13.10.2011 10:00
Hell-víti öflugt Fínt rokk með elektróník í bland sem ætti að njóta sín til fullnustu á tónleikum. Hellvar er orðið fimm manna band og fyrir vikið hafa áherslunar breyst og rokkið orðið meira áberandi þó svo að rafpælingarnar séu aldrei langt undan. 12.10.2011 14:00