Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Glasgow og Liverpool keppast um að halda Eurovision Borgirnar Glasgow og Liverpool í Bretlandi standa nú tvær eftir í keppninni um að halda Eurovision. Samkvæmt The BBC voru þær borgir með bestu tilboðin fyrir viðburðarhaldið. Bretland var valið til þess að halda keppnina í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu, sem sigraði Eurovision. 27.9.2022 16:01
Svarar fyrir sögusagnir um nýtt samband Ljósmynd af leikaranum Michele Morrone og raunveruleikastjörnunni Khloé Kardashian hefur skapað mikið umtal síðustu daga. Stjörnurnar voru myndaðar saman eftir tískusýningu Dolce and Gabbana í Mílanó. 27.9.2022 13:31
Brad Pitt og Emily Ratajkowski eyða tíma saman Leikarinn Brad Pitt og fyrirsætan Emily Ratajkowski hafa verið að eyða tíma saman samkvæmt heimildum People. Heimildirnar segja þau þó ekki vera í sambandi og að óljóst sé hversu mikil alvara sé í samskiptunum. 27.9.2022 12:31
Tveir kettir, kannski einn, á fyndnustu gæludýramynd ársins Sigurvegarar hinnar árlegu gæludýraljósmyndakeppni Comedy Pet Photo Awards voru opinberaðir í síðustu viku. Rúmlega tvö þúsund myndir bárust í keppnina þetta árið en sigurvegarinn er Kenichi Morinaga sem tók kostulega mynd ef tveimur köttum, eða jafnvel bara einum. 27.9.2022 12:30
Þekking eldri borgara á kynlífstækjum Ný þáttaröð af Allskonar kynlíf er kominn í loftið á Stöð 2. Í fjórða þættinum var fjallað um kynlíf hjá eldri borgurum og könnuðu Ahd Tamimi og Sigga Dögg kynfræðingur það með skemmtilegum leiðum. 27.9.2022 10:30
Frönsk stemning á frumsýningu Bara smástund Sýningin Bara smástund var frumsýnd í Borgarleikhúsinu á föstudag. Frönsk stemning beið gestanna í leikhúsinu og hljómaði harmonikkuleikur um forsalinn. 26.9.2022 16:00
Sigurjón Kjartansson og Halldóra Guðbjörg létu pússa sig saman á Selfossi Sigurjón Kjartansson og Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir giftu sig á heimili sínu á Selfossi. Parið byrjaði saman snemma á síðasta ári. Sigurjón hefur slegið eftirminnilega í gegn í Fóstbræðrum, Tvíhöfða og hljómsveitinni HAM og Halldóra er nuddari og snyrtifræðingur. 26.9.2022 15:17
„Finn að við erum að fara verða leiðinlegir núna“ Á laugardaginn fór fram viðureign í 16-liða úrslitum í spurningaþættinum Kviss. 26.9.2022 14:30
Stjörnulífið: Hollywood, húðflúr og glimmerskreyttir golfbílar Íslenskir listamenn komu fram í Hollywood, Mexíkó, Fífunni í Kópavogi og víðar um Ísland í vikunni sem leið. Óveður helgarinnar hvatti suma í kósí gírinn og aðra til þess að flýja eyjuna. 26.9.2022 12:30
Leita að keppendum fyrir sjónvarpsþáttinn Krakkakviss Langar þig að keppa í sjónvarpsþættinum Krakkakviss? Stöð 2 leitar að þátttakendum á aldrinum 11–12 ára (í 6.–7. bekk) fyrir nýja þáttaröð af spurningaþættinum Krakkakviss. 26.9.2022 12:01
„Það er smá búið að ljúga að okkur sem er reyndar ekki í fyrsta skipti“ Andrea Eyland og Þorleifur Kamban hafa átt þann draum í mörg ár að byggja sér hús í sveit og nú með því að kaupa lóð í Ölfusi rétt hjá Hveragerði ætla þau að láta drauminn rætast. 26.9.2022 10:31
Love Island par fjölgar sér Love Island parið Molly Mae Hague og Tommy Fury eiga von á barni saman. Þau tilkynntu komu barnsins í færslu á Instagram miðlum sínum í gær. Parið kynntist í fimmtu seríu af raunveruleikaþáttunum árið 2019. 26.9.2022 10:01
Íslenski hesturinn á forsíðu New York Times Hesturinn Stormur, sem er blesóttur, níu vetra verður heimsfrægur á morgun, því hann prýðir forsíðu New York Times Magazine blaðsins, sem kemur þá út. 150 milljónir manna eru áskrifendur af blaðinu á netinu, og blaðið verður líka gefið út í milljónum prentaðra eintaka. 25.9.2022 20:35
„Gera þetta alveg jafn vel og karlarnir, kannski betur“ Ung kona í málaraiðnnámi segist finna fyrir fordómum þegar hún fer að kaupa málningu. Þrátt fyrir töluverða fjölgun kvenna í iðngreinum telur hún aðeins hægt að uppræta fordóma með enn frekari fjölgun. 25.9.2022 07:00
Fyrsta barn Gretu Salóme á leiðinni Tónlistarmaðurinn Greta Salóme Stefánsdóttir á von á sínu fyrsta barni með Elvari Þór Karlssyni, unnusta sínum. Hún er nú komin um 30 vikur á leið. 24.9.2022 09:45
Heba Þórisdóttir farðar stjörnurnar í Hollywood Heba Þórisdóttir er einn fremsti förðunarfræðingur Íslands og Hollywood. Blaðamaður náði tali af Hebu þar sem hún var stödd á tökustað þáttanna Lady in The Lake þar sem hún sér um förðun Natalie Portman. Það var þó kvikmyndin Don’t Worry Darling sem átti sviðsljósið í viðtalinu en Heba hannaði förðun myndarinnar. 24.9.2022 09:21
Fréttakviss vikunnar #74: Kynlífstæki, persónuvernd og Eddan Hefur þú fylgst með fréttunum síðustu vikuna? Vísir býður upp á Fréttakviss á laugardögum til þess að rifja upp allt það helsta. 24.9.2022 08:01
Brad Pitt stígur inn í húðvörubransann Brad Pitt hefur nú sett á flug sína eigin húðvörulínu en vörurnar segir hann henta öllum kynjum. 23.9.2022 23:25
„Ég hef sært fólk“ Leikkonan Gwyneth Paltrow er að undirbúa sig fyrir fimmtugsafmælið sitt og fer yfir mistök fortíðarinnar í nýjum pistli sem hún birti á heimasíðu sinni Goop. Hún segir andann sinn ekki bera ummerki tímans sem hefur liðið en aftur á móti segir hún líkamann gera það. 23.9.2022 16:40
Khloé Kardashian sýndi frá fæðingu sonarins Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian deildi fæðingu sonar síns með áhorfendum þáttanna The Kardashians. Soninn eignaðist hún með aðstoð staðgöngumóður. Barnsfaðir hennar Tristan Thompson fékk að koma og hitta nýfædda soninn þrátt fyrir allt sem gengið hefur á þeirra á milli. 23.9.2022 12:30
Níræð og býr í fallegri þakíbúð í Vesturbænum Margrét Erla Guðmundsdóttir, móðir listamannanna Egils Ólafssonar, Hinriks og Ragnheiðar er orðin 90 ára. Hún er eldhress og býr í flottri þakíbúð með útsýni út á sjóinn í Vesturbænum. 23.9.2022 10:29
Kanye biður Kim afsökunar Kanye West hefur beðið fyrrverandi eiginkonu sína, Kim Kardashian, afsökunar á öllu því stressi sem hann hefur valdið henni. Hann segist geta borið erfiðleika sína með Kim saman við erfiðleika sína með Adidas. 23.9.2022 07:31
Voru flutt inn saman eftir mánuð Hlaupagarpurinn og þjálfarinn Sigurjón Ernir Sturluson og Simona Vareikaité kynntust í ræktinni. Þau náðu þó ekki saman fyrr en eitt örlagaríkt kvöld þegar þau fundu hvort annað fyrir utan skemmtistaðinn Austur. Í dag reka þau líkamsræktarstöðina Ultraform, hugmynd sem byrjaði í bílskúrnum árið 2017. 22.9.2022 22:12
„Mér finnst vanta svona alvöru dívu borgara“ Útvarpsmaðurinn Gústi B plataði söngvarann Eyþór Inga til þess að taka símahrekk sem tónlistarmaðurinn Páll Óskar. Líkt og þekkt er hefur Eyþór einstakt lag á eftirhermum og nýtti hæfileikann í símtalinu. 22.9.2022 18:30
Johnny Depp slær sér upp með lögfræðingnum sínum Leikarinn Johnny Depp er byrjaður að hitta fyrrum lögfræðing sinn, Joelle Rich, samkvæmt heimildum People. Rich starfaði með honum í máli sem hann höfðaði gegn The Sun árið 2020. 22.9.2022 17:30
Fyrsta sýnishornið úr sjónvarpsþáttunum Húgó Sjónvarpsþættirnir Húgó fara í loftið á Stöð 2 í næstu viku en í þeim verður farið yfir sögu tónlistarmannsins. Mikil leynd hefur ríkt fyrir því hver sé á bak við grímuna. 22.9.2022 15:11
„Bane“ vann brasilískt jiu-jitsu mót Leikarinn Tom Hardy gerði sér lítið fyrir og tók heim gullverðlaun á brasilísku jiu-jitsu móti á Englandi um helgina. Samkvæmt the Guardian vann hann alla bardagana sína á mótinu. Netverjar hafa grínast með hvernig það sé fyrir aðra keppendur í íþróttinni að þurfa að mæta „Bane“. 22.9.2022 13:30
Upp úr sauð þegar ein vildi fara á kjúklingastað Í raunveruleikaþættinum LXS á Stöð 2 í gær fóru stelpurnar í hópferð til New York. 22.9.2022 10:30
Laug því að stóri bróðir væri faðir sinn Kópavogsbúi á áttræðisaldri með einstakan persónuleika er aðalpersónan í nýrri heimildarmynd þar sem fjallað er um leit hans að uppruna sínum í Bandaríkjunum. Rætt var við Árna Jón Árnason í Íslandi í dag, sem lýsir því hvernig líf hans hefur tekið stakkaskiptum að undanförnu. Viðtalið hefst á tólftu mínútu. 22.9.2022 08:52
Mark Zuckerberg og Priscilla Chan fjölga mannkyninu Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, og eiginkona hans Priscilla Chan eiga von á sínu þriðja barni saman. Hjónin fögnuðu tíu ára brúðkaupsafmælinu sínu hér á Íslandi í maí þessa árs. 21.9.2022 15:33
Myndaveisla frá eftirpartýi fjárfestadagsins í Grósku Frambærilegustu og efnilegustu sprotafyrirtæki landsins kynntu viðskiptahugmyndir sínar fyrir fullum hátíðarsal í Grósku á aðaldegi Startup SuperNova. 21.9.2022 13:44
Adam Levine segist hafa farið yfir línuna en neitar framhjáhaldi Söngvarinn Adam Levine hefur svarað þeim ásökunum að hafa átt í framhjáhaldi með áhrifavaldinum Sumner Stroh. Hann segist hafa farið yfir línuna en þó ekki hafa staðið í framhjáhaldi. Stroh bjó til TikTok myndband þar sem hún sagði frá sambandinu. 21.9.2022 12:30
Nýjasta stórstjarna Hollywood fer sínar eigin leiðir Leikkonan Florence Pugh fer með aðalhlutverk í umtöluðu kvikmyndinni Don't Worry Darling sem frumsýnd verður á föstudaginn næsta í kvikmyndahúsum um allan heim. Florence, sem er 26 ára gömul, hefur vakið mikla athygli að undanförnu fyrir glæsilegan stíl sinn, yfirvegað viðhorf og einlæga, sjarmerandi nærveru. Blaðamaður ákvað að fara yfir feril Florence og fá nánari innsýn í líf þessarar rísandi stórstjörnu. 21.9.2022 11:30
„Það er svo gaman að lifa“ Þúsundir magaerma-og hjáveituaðgerða hafa verið gerðar hér á landi síðustu ár og greinilegt að þörfin er mikil. Ein þeirra sem hefur farið í slíka aðgerð síðustu ár segist hafa verið búin að prófa alla mögulega kúra áður. Hún hugsaði sig lengi um en fékk nóg af aukaþyngdinni þegar hún gat ekki lengur fylgt eiginmanni sínum eftir. 21.9.2022 07:00
Bachelor keppandi sakaður um að brjóta gegn tveimur konum DeMario Jackson, sem gerði garðinn frægan í raunveruleikaþáttunum Bachelorette og Bachelor in Paradise, hefur verið sakaður um að brjóta á tveimur konum. Báðar segja hann hafa haft mök við sig án samþykkis þeirra. 20.9.2022 23:56
Vinir Cöru Delevingne hafa miklar áhyggjur af heilsu hennar Heilsa fyrirsætunnar Cöru Delevingne hefur verið mikið í umræðunni vestanhafs og virðast vinir hennar hafa miklar áhyggjur. Leikkonan Margot Robbie sást meðal annars koma grátandi út af heimili Cöru sama dag og fyrirsætan átti að vera á viðburði sem hún mætti ekki á. 20.9.2022 17:32
Kokkurinn úr Matador látinn Danska leikkonan Elin Reimer er látin 94 ára að aldri. Hún var þekktust fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttaröðinni Matador sem naut mikilla vinsælda á Íslandi. 20.9.2022 16:19
Segist hafa verið viðhald Adam Levine Áhrifavaldurinn Sumner Stroh segist hafa verið viðhald Maroon 5 söngvarans Adam Levine. Hún segir sambandið hafa staðið yfir í ár. Óljóst er hvenær meintu sambandi lauk en hún segir þau ekki hafa átt í samskiptum í nokkra mánuði. Nýlega tilkynnti Adam að von sé á þriðja barni hans og eiginkonu sinnar Behati Prinsloo. 20.9.2022 14:33
Þetta telur Gummi Emil mikilvægast að hafa á hreinu fyrir ræktina Einkaþjálfarinn Gummi Emil mætti í Brennslunna í dag og fór þar yfir fimm mikilvægt atriði sem hann telur nauðsynlegt að hafa í huga þegar farið er af stað í ræktinni. 20.9.2022 13:31
Prestar meira kinkí en trúboðar Ný þáttaröð af Allskonar kynlíf er kominn í loftið á Stöð 2. Í þriðja þætti var fjallað um það að vera kinkí eða almennt um hugtakið kink og könnuðu Ahd og Sigga Dögg kynfræðingur það með skemmtilegum leiðum. 20.9.2022 10:30
Breska ríkisútvarpið þekkti ekki Margréti Þórhildi Fréttakonu breska ríkisútvarpsins varð á í messunni í gær þegar hún lýsti útsendingu frá móttöku Karls Bretakonungs í tilefni útfarar Elísabetar II Bretadrottningu. Hún þekkti ekki Margréti Þórhildi Danadrottningu í sjón. 19.9.2022 23:38
Týnd í fjögur ár en heldur nú til fjölskyldunnar í Svíþjóð Saga kattarins Dimmu er lyginni líkust. Hún týndist í pössun árið 2018 og hefur verið á vergangi síðan. Nú, fjórum árum síðar, heldur læðan til fjölskyldu sinnar sem er flutt til Svíþjóðar. Fjölskyldan var ansi hissa er þau fengu símtal frá Dýraverndarfélaginu Villikettir sem hafði fundið hana í holu undir bílskúr í Hlíðunum. 19.9.2022 17:38
Börnin í sýningunni fóru saman í dansbúðir í Bretlandi „Nú þegar haustið er mætt með tilheyrandi rigningu og roki er tilvalið fyrir fjölskyldur landsins að skella sér í leikhús,“ segir Bergrún Íris Sævarsdóttir barnabókahöfundur og teiknari. 19.9.2022 17:30
Með nælu og hatt til heiðurs langömmu Mæðgurnar Katrín prinsessa af Wales og Karlotta heiðruðu minningu Elísabetar II Bretadrottningar við útför hennar í dag með skartgripavali sínu. Útförin fór fram í Westminster Abbey í Lundúnum og var henni streymt hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. 19.9.2022 16:40
Mættu í sínu fínasta pússi á Edduna Edduverðlaunin voru afhent við hátíðlega viðhöfn í Háskólabíói í gær. Það besta í innlenndri þátta- og kvikmyndagerð var þar verðlaunað. 19.9.2022 15:01