Fleiri fréttir

Kófsveittur á djamminu

Knattspyrnumaðurinn Ashley Cole skemmti sér fyrir allan peninginn á barnum Vignette í Hollywood á miðvikudagskvöldið.

Kim ætlar að borða fylgjuna

Nú styttist óðum í að raunveruleikastjarnan Kim Kardashian eignist sitt fyrsta barn með kærasta sínum, tónlistarmanninum Kanye West.

Fanta gaman á Borginni

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Borginni á dögunum á finnsku kokkteilakvöldi. Eins og sjá má á myndunum var margt um manninn og mikið fjör.

Mikka maraþon haldið í annað sinn

"Við ákváðum að setja af stað Mikka Maraþon af fyrirmynd frá Disneylandi þar sem sambærilegt maraþon er haldið á hverju ári. Í því maraþoni keppir fólk á öllum aldri og frægir blanda sér jafnan í hópinn. Við völdum 17. júní - og ekki síst morguninn, þar sem venjulega er lítið sem ekkert að gerast fyrir fjölskyldur og hvað er betra en að eiga skemmtilega stund saman; hlaupa, skemmta sér, fara í sund og svo í bæinn á eftir?" segir Jón Axel.

Svona býr kynþokkafyllsti maður heims

Leikaraparið Channing Tatum og Jenna Dewan-Tatum eignuðust sitt fyrsta barn fyrir stuttu, dótturina Everly. Sem betur fer er nóg pláss í húsi þeirra í Hollywood-hæðum.

Bieber fer út í geim

Poppprinsinn Justin Bieber og umboðsmaður hans, Scooter Braun, ætla að skella sér út í geim með Virgin Galactic að sögn stofnanda Virgin, Richard Branson.

Akademía fyrir framúrskarandi nemendur

Alþjóðlega tónlistarakademían eða Harpa International Music Academy verður haldin í fyrsta sinn dagana 9. til 17. júní og hefst með opnunartónleikum í Hörpu á morgun.

Outlandish hæstánægðir með KMF

Danska hiphop hljómsveitin Outlandish steig á stokk í Reykjaneshöllinni á Keflavík Music Festival í gærkvöldi og virtust ánægðir með tónleikana.

Linda súpermódel er á lausu

Hin kanadíska Linda Evangelista og stofnandi Hard Rock Cafe, Peter Morton, hafa slitið samvistum eftir sjö ára samband.

41 hljómsveit mætir á Eistnaflug

„Þessi hátíð verður rosalega falleg,“ segir Stefán Magnússon, skipuleggjandi þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs.

Mikið fjör á Flateyri

"Við ætlum að enda vinnuvikuna okkar á því að slá upp tónleikum og dansleik."

Hélt aldrei fram hjá

Russell Brand segist aldrei hafa verið Katy Perry ótrúr. Brand og Perry skildu árið 2012 en höfðu þá verið gift í 14 mánuði.

Fyrrverandi ráðherrafrú selur föt

"Mér datt í hug að halda fatamarkað þegar ég var að taka til í skápunum mínum. Ég þurfti einnig að taka almennilega til í kjallaranum í vetur og þá ákvað ég að gera eitthvað í þessu,“ segir Rut Ingólfsdóttir.

Tónleikum Deep Purple aflýst

Búið er að aflýsa fyrirhuguðum tónleikum rokksveitarinnar Deep Purple sem átti að vera í Laugardalshöll 12. júlí.

Tónleikum Dionne Warwick frestað

Af óviðráðanlegum orsökum verða tónleikar bandarísku söngkonunnar Dionne Warwick, sem fyrirhugaðir voru í Hörpu 19. júní, færðir til 10. júlí.

Dansveisla á Volta

Sannkölluð dansveisla verður á boðstólunum á skemmtistaðnum Volta um helgina.

Víking Heiðar vantar hundrað taktmæla

Tónlistarhátíðin Reykjavík Midsummer Music verður haldin í annað sinn. Listrænn stjórnandi er Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari, sem leitar nú logandi ljósi að hundrað gamaldags taktmælum fyrir opnunaratriði hátíðarinnar.

Tíminn í landslaginu

Sýningin Tíminn í landslaginu verður opnuð í Listasafni Árnesinga á morgun.

Fiskaheilsulind opnar á Hverfisgötu

"Fiskarnir hafa engar tennur og bíta ekki en þeir sleikja eða sjúga dauða húð,“ segir Hallgrímur Andri Ingvarsson, framkvæmdastjóri hjá Fish Spa Iceland.

Berglind Icey í Lífinu á morgun

Berglind Ólafsdóttir, fyrirsæta, eða Icey eins og hún kallar sig er flutt til Íslands en hún hefur verið búsett erlendis frà sautjàn àra aldri...

Hemmi gerði heiminn svo miklu betri

"Maður getur ekki annað en fyllst hlýju þegar maður hugsar um Hemma. Hann var bara alvöru," segir Sigga Lund fyrrum útvarpskona...

Nuddið í Bláa Lóninu í heimsklassa

Vefsíðan MSN.com var að birta lista yfir einstökustu spa meðferðir heims "World's most unique spa treatments." Blue Lagoon nuddið sem fram fer í Lóninu sjálfu er á meðal þessara meðferða. Blaðamaðurinn lýsir meðferðinni sem einstakri þar sem viðkomandi flýtur um í Lóninu. Spa-meðferðin ásamt steinefnum Bláa Lónsins hafi endurnærandi áhrif. Hér má sjá listann yfir bestu spameðferðir í heiminum að mati MSN.com.

Ástfanginn upp fyrir haus

Vísir frumsýnir hér nýtt myndband með Herberti Guðmundssyni við lagið My Love. Lagið er af plötunni Tree of Life. Þetta er rómantískt lag enda er kappinn ástfanginn upp fyrir haus þessa dagana. Í myndbandinu fékk Herbert aðstoð frá Hilmari Erni Agnarssyni, fyrrum organista og kórstjóra Skálholtskirkju. Í því kemur kórinn Vox Populi fram undir stjórn Hilmars. Myndbandið vann kvikmyndagerðarmaðurinn Friðrik Grétarsson sem einnig vinnur að heimildarmynd um Herbert.

Mætti með syninum á rauða dregilinn

Athafnakonan Victoria Beckham bauð syni sínum, Brooklyn Beckham, fjórtán ára, með á verðlaunahátíðina Glamour Women of the Year sem var haldin í London í vikunni.

Glæsilegt hótel opnar á Suðurlandsbraut

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar glæsilegt hótel sem ber heitið Reykjavík Lights Hotel opnaði formlega á Suðurlandsbraut 12 í Reykjavík í gær.

Ungstirni hjólar í ofurfyrirsætu

Það er frekar ólíklegt að ungstirnið Selena Gomez og ofurfyrirsætan Heidi Klum eigi mikið sameiginlegt nema þá staðreynd að þær hafa klæðst eins kjólum á rauða dreglinum.

Kolla kveður Bylgjuna

"Mjög blendnar ég var einn tilfinningaköggull. Ég á eftir að sakna ykkar alveg ofsalega." sagði Kolla meðal annars en á kveðjuna má hlusta á meðfylgjandi link.

Endurnýtti blómakjólinn í brúðkaupi

Leikkonan Jennifer Aniston mætti í blómakjól frá Prada í brúðkaup stjörnuparsins Lake Bell og Scott Campbell um helgina en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún klæðist kjólnum.

Meistarinn selur Beverly Hills-húsið

Stórstjarnan Bruce Willis er búin að setja húsið sitt í Beverly Hills á sölu fyrir svalar 22 milljónir dollara, tæpa 2,7 milljarða króna.

Bjó til brynju úr fimm þúsund dósaflipum

"Þessi hugmynd kviknaði í einhverri vísindaferð þegar ég var í tölvunarfræðinni,“ segir Björn Elíeser Jónsson, tölvunarfræðingur hjá leikjaframleiðandanum Plain Vanilla Games.

Stephen Fry reyndi sjálfsvíg

Stephen Fry gerði tilraun til sjálfsvígs í fyrra, en hinn 55 ára gamli leikari þjáist af geðhvarfasýki.

Sjá næstu 50 fréttir