Fleiri fréttir

Hvað ætla þær að gera á gamlárskvöld?

Lífið fór á stúfana og spurði fjórar flottar konur hvað þær ætla að gera á gamlárskvöld. Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir matarbloggari "Ég ætla að borða heima hjá foreldrum mínum á áramótunum, en þar verður stórfjölskyldan samankomin. Við mamma ætlum að hafa humar á þrjá vegu í forrétt og nautalund í aðalrétt og svo var ég búin að lofa litlu frændum mínum að gera súkkulaðikúlur og fylla þær með súkkulaðimús í eftirrétt. Ég fer svo til tengdaforeldra minna að horfa á Skaupið. Eftir miðnætti ætla ég í gamlársteiti með vinum mínum, þar er alltaf mikið fjör." Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikkona "Við kærastinn eldum yfirleitt sjálf mat á gamlársdag og bjóðum þeim sem vilja koma að vera með okkur. Þetta er oft þannig á gamlárs að við höldum að við verðum bara tvö en svo endar þetta í tíu manns. Við borðum yfirleitt kalkún en það ­verður eitthvað nýtt á borðum í ár. Svo horfum við á flugeldasýninguna frá Landakotstúninu og styrkjum yfirleitt björgunarsveitina ríflega þó svo að ég komi ekki nálægt því að skjóta upp." Annie Mist Þórisdóttir íþróttakona "Áramótunum ver ég yfirleitt með fjölskyldu minni, systkinum mömmu, fjölskyldum þeirra og ömmu og afa. Þá er mikið sprengt, sungið og oft spilað fram eftir nóttu. Í ár verð ég í fyrsta skipti fjarri fjölskyldunni, en ég mun verja ára­mótunum í Danmörku með ­kærastanum mínum. Það verður þó erfitt að toppa íslensk áramót." Védís Hervör Árnadóttir söngkona "Áramótin mín hafa verið voðalega róleg svona í seinni tíð, enda ég komin með tvo litla stráka. Í ár ­verðum við hjá tengdaforeldrum mínum í veisluhöldum og þar ­verður litið yfir árið og farið yfir markmið nýja ársins. Mín markmið eru meðal annars að gefa út nýja plötu og vera strákunum mínum, manni og fjölskyldu sem best. Það hefur verið venjan hjá minni fjölskyldu að borða kalkún á gamlárskvöld með öllu tilheyrandi og svo höfum við frómas í eftirrétt. Svo er að sjálfsögðu ­fastur liður að kveikja á Skaupinu og svo tökum við hjónaleysin eflaust lagið saman. Ég er ekki mikið fyrir það að fara í bæinn. Mér finnst gott að vakna fersk og frísk á nýársdegi. Það setur tóninn fyrir nýja árið."

Dívan með ýkt töff gleraugu

Jennifer Lopez, unnusti hennar Casper Smart og börnin hennar voru mynduð í Beverly Hills í verslunarleiðangri í gær, 27. desember. Eins og sjá má var leik- og söngkonan með smart gleraugu enda orðin 43 ára gömul.

Húðflúraður unnusti Aniston

Leikkonan Jennifer Aniston, 43 ára, er stödd í Los Cabos í Mexíkó ásamt unnusta sínum, leikaranum Justin Theroux. Eins og sjá má er parið, sem var afslappað í sólinni, í góðu líkamlegu formi og að ekki sé minnst á húðflúrað bakið á Justin.

Shakira orðin mamma

Söngkonan Shakira og fótboltahetjan Gerard Pique hafa eignast dreng. Gerard skrifaði eftirfarandi skilaboð á Twitter síðuna sína: "Sonur okkar er kominn í heiminn. Við erum í skýjunum. Takk fyrir allar kveðjurnar."

Annasamt ár 2012 hjá Bieber

Poppstjarnan fékk sér nýtt húðflúr á árinu og var sektaður fyrir of hraðan akstur. Drengurinn átti góðar stundir með Selenu Gomez unnustu sinni og var síðari hluta ársins áberandi baksviðs á árlegri undirfatasýningu Victoria´s Secret.

Tileinkaðu þér bættari siði á árinu

Það eru eflaust margir sem ætla að tileinka sér betri og bættari siði á nýja árinu þegar kemur að matarræði og hreyfingu. Þess ber þó að gæta að setja hæfileg markmið og fara ekki of geyst af stað. Hér má sjá nokkur einföld en góð ráð.

Leikhúsárið 2012: Íslenskur veruleiki á upp á pallborðið

Ýmissa grasa kenndi á leikhúsárinu sem er að líða. Meðal þess sem upp úr stendur að mati Elísabetar Brekkan er leikur Unnar Aspar Stefánsdóttur í Eldhafi og velgengni íslenskra verka, svo sem Tengdó, Gullregns og Jónsmessunætur.

Elektró-indí frá Árborg

Retrobot er selfysskur kvartett ungra pilta sem vöktu talsverða athygli á árinu þegar þeir sigruðu Músíktilraunir. Þrátt fyrir að rekja uppruna sinn til Selfoss spilar Retrobot ekki sveitaballatónlist í neinum hefðbundnum skilningi – þótt sveitin hafi reyndar spilað á 800 Bar. Skömmu síðar brann 800 Bar.

Hátíðleg jólafrumsýning Macbeth

Mikið var um dýrðir í Þjóðleikhúsinu á annan í jólum er Macbeth eftir William Shakespeare var frumsýnt. Leikritið lagðist vel í áhorfendur sem enduðu jólahaldið með dramatík og blóðsúthellingum í leikhúsinu. Leikstjóri verksins er hinn ástralski Benedict

Þetta kallar maður djarft jóladress

Skrautlega stjarnan Nicki Minaj var gestgjafi í árlegu jólaboði í New York á jóladag. Klæðnaður Nicki var langt frá því að vera hefðbundinn.

Trúlofuð milljarðamæringi

Poppstjarnan Janet Jackson er búin að trúlofa sig milljarðamæringnum Wissam Al Mana en þau hafa verið saman síðan árið 2010. Janet er 46 ára en Wissam 37 ára.

Bílstjóraþjónustan sló í gegn

Þegar líður að árslokum er gaman að líta yfir farinn veg og rýna í árið sem brátt er að baki. Fréttablaðið tók saman vinsælustu dægurmálafréttir sínar árið 2012, en frétt um bílstjóraþjónustu fyrir ölvaða var vinsælasta dægurfrétt ársins.

Þotuferð á jólunum

Harrison Ford og fjölskylda ferðuðust með stæl á jólunum en þau flugu frá Los Angeles á annan í jólum í vígalegri þotu. Það var að sjálfsögðu Harrison sjálfur sem sá um að stýra vélinni.

Lífið lítur um öxl

Í Lífinu á morgun lítum við um öxl á árinu sem er að líða undir lok og rifjum upp nokkrar af þeim glæsilegu konum sem Lífið spjallaði við. Allar deildu þær meðal annars reynslu úr lífi sínu, lífsviðhorfum sínum, gleði og sorg.

Ennþá sami ofurkroppurinn

Fyrirsætan Stephanie Seymour var eitt sinn eitt vinsælasta ofurmódelið í bransanum. Nú er hún orðin 44ra ára og hefur lítið látið á sjá.

Pósta myndum af sér í gríð og erg

Stjörnurnar í Hollywood halda aðdáendum sínum við efnið á Twitter síðunum sínum með myndbirtingum. Eins og sjá má á myndunum voru Rihanna, Miley Cyrus, Bar Refaeli, Jennifer Lopez, Katy Perry og Kim Kardashian duglegar að pósta myndum sem þær tóku yfir jólin.

Allt virðist vera í himnalagi

Háværar raddir í slúðurheiminum halda því fram að ofurfyrirsætan Miranda Kerr og leikarinn Orlando Bloom séu nánast skilin en meðfylgjandi myndir sýna eitthvað allt annað en leiðindi. Eins og sjá má er fjölskyldan hamingjusöm. Hjónin voru mynduð með son sinn, Flynn, á leiðinni í vinaheimsókn á annan í jólum.

Sjáðu hvað árið 2013 færir þér

Á síðu Lífsins er tarotbunki sem er kjörinn til að kanna hvað gerist árið 2013 þegar kemur að aðstæðum, ástinni, viðskiptum eða því sem tengist notandanum persónulega. Spádómsspilin eru byggð á ævafornri speki til að kanna hvað framtíðin ber í skauti sér.

Á leið til Hollywood

Leikaranum Ólafi Darra Ólafssyni hafa nú verið boðin hlutverk í tveimur stórum Hollywoodverkefnum.

Kate Winslet gifti sig um jólin

Leikkonan Kate Winslet giftist unnusta sínum Ned Rocknroll í leynilegri athöfn í New York nú um jólin. Þetta er í þriðja skiptið sem leikkonan giftir sig en að sögn talsmanns hennar voru einungis nokkrir vinir og tvö börn hennar viðstödd athöfnina.

Slær öll kynþokkamet

Þúsundþjalasmiðurinn Kelly Brook felur lítið í nýja dagatalinu sínu fyrir árið 2013. Á myndunum situr hún fyrir í hinum ýmsu dressum og stellingum og gerir hvern einasta mánuð á næsta ári sjóðandi heitan.

Fáránlega fitt á sjötugsaldri

Rokkarinn Rod Stewart eyddi jólunum í Suður-Frakklandi og sýndi og sannaði að hann er ansi sprækur þó hann sé ekkert unglamb lengur. Hann lék sér í fótbolta með sjö ára syni sínum Alastair og sýndi meistaratakta.

Hún er með bestu brjóst sem ég hef séð

Leikkonan Leslie Mann fær að káfa á barmi leikkonunnar Megan Fox í nýjustu mynd Judd Apatow, This is 40. Leslie segir það hafa verið ákaflega ánægjulega reynslu.

Hannaði heila skólínu

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar skólína Sigrúnar Lilju Guðjónsdóttur var kynnt í Hagkaup Smáralind á dögunum...

Bætir enn einni íbúð í safnið

Poppstjarnan Ricky Martin er mikill fasteignamógúll og er búinn að festa kaup á íbúð í New York. Íbúðin sú er búin fjórum svefnherbergjum og fjórum baðherbergjum og kostaði 5,9 milljónir dollara, tæplega 750 milljónir króna.

Þetta hlýtur að vera sönn ást

Rihanna og Chris Brown hafa gengið í gegnum súrt og sætt síðustu ár en eitthvað virðist halda þeim saman. Rihanna nefnilega flaug frá Barbados til að eyða jóladegi með Chris í Los Angeles.

31 kílói léttari – komin í bikiní

Kelly Osbourne fækkar fötum á forsíðu tímaritsins Cosmopolitan Body. Á forsíðunni er hún aðeins í bikiníi og talar um baráttu sína við aukakílóin.

Vá! Þetta er erfitt val

Stjörnubarnið Rumer Willis og Disney-stjarnan Zendaya Coleman eru báðar fáránlega flottar í þessum yndislega kjól frá Alice + Olivia.

Þú ert alltof feitur!

Harðskeytti kokkurinn Gordon Ramsay sparaði ekki stóru orðin í viðtalsþætti Alan Carr á dögunum. Þar fór hann ófögrum orðum um sjónvarpskokkinn Jamie Oliver og landvinninga hans í Bandaríkjunum þar sem hann hefur reynt að kenna Ameríkönum að borða hollari mat.

Ástin entist ekki

Mörg ofurpör í Hollywood skildu á árinu – pör sem sumir héldu að myndu aldrei skilja. Sem betur fer voru skilnaðirnir ekki mjög margir.

Opnar jólamyndaalbúmið

Raunveruleikastjarnan Kendall Jenner, systir Kardashian-systranna, hefur opnað jólamyndaalbúmið sitt upp á gátt. Á myndunum sést líka systir hennar Kylie og þær eru algjörar krúttmonsur.

Hey! Þetta er ekki hallærislegt

Það hefur oft verið talið að jólapeysur séu hallærislegar en stjörnur í meðfylgjandi myndasafni afsanna það svo sannarlega.

Baksviðs í Höllinni

Meðfylgjandi myndir voru teknar baksviðs 19. desember síðastliðinn þegar Hjálmar, Ásgeir Trausti, Valdimar, Moses Hightower og Kiriyama Family komu saman í Laugardalshöllinni og héldu sannkallaða tónlistarveislu undir yfirskriftinni "Hátt í Höllinni". Fjölmenni mætti á viðburðinn sem var undir stjórn Einars Bárðarsonar.

Leigir hús í hjarta Beverly Hills

Sjónvarpsstjarnan Kelsey Grammer er búinn að finna nýtt heimili til að leigja fyrir sig, eiginkonu sína Kayte Walsh og nýfædda dóttur þeirra, Faith. Fyrir það borgar hann þrjátíu þúsund dollara á mánuði, tæpar fjórar milljónir króna.

Victoria fær náttföt í jólagjöf

Knattspyrnugoðið David Beckham velur aðeins það besta fyrir Victoriu sína. Í jólapakkanum hennar þetta árið verða náttföt – en ekki bara hvaða náttföt sem er.

Brúðkaup ársins

Árið 2012 var svo sannarlega ár ástarinnar. Mörg brúðkaup voru haldin í stjörnuheiminum og voru þau hvert öðru glæsilegra.

Bókaárið 2012: Ár Gyrðis, Gísla og grárra skugga

Bókaárið 2012 var gjöfult, þótt ekki drægi til neinna stórtíðinda. Maður ársins í bókmenntaheiminum var tvímælalaust Gyrðir Elíasson sem sendi frá sér hvert meistaraverkið af öðru. Friðrika Benónýsdóttir stiklar á stóru yfir útgáfufljótið sem bar með sér

Sjá næstu 50 fréttir