Fleiri fréttir

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Gamlar væringar gætu skotið upp kollinum ef farið er að ræða viðkvæm mál. Það væri skynsamlegra að vera ekkert að því.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þínir nánustu eru uppteknir af einhverju öðru en þér í dag og það gæti angrað þig að fá ekki næga athygli.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Vinir og ættingjar koma við sögu í dag og það verður mikið um að vera einhvers staðar í fjölskyldunni.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Morgunninn hefst á einhverju skemmtilegu og það gerir daginn léttari en ella. Þú mætir ef til vill leiðinlegu viðmóti í vinnunni.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Hafðu hægt um þig og hvíldu þig fyrri hluta dags. Þú ert orkumeiri í kvöld og ættir að hitta vin sem þú hefur ekki hitt lengi.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Fjármálin standa vel og það er góður tími núna til að gera kaup sem staðið hafa til lengi. Vertu þó skynsamur í sambandi við samninga.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Vertu þolinmóður þó einhver virðist tillitslaus og ætlist til mikils af þér. Skilningur þinn á líðan vina þinna mætti vera meiri í dag.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Hugsaðu þig vel um áður en þú tekur ákvörðun í máli sem varðar fjölskylduna. Heimilislífið á hug þinn allan um þessar mundir.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Eitthvað verður til að gleðja þig sérstaklega. Að öllum líkindum er það velgengni einhvers þér nákomins.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú gerir þér miklar vonir í ákveðnu máli og þú gætir þurft að fórna einhverju til að ná settu marki. Vertu varkár ef þú skipuleggur eitthvað með öðrum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þetta verður einstakur dagur á margan hátt. Þú hittir fleiri en einn gamlan kunningja á förnum vegi og þið hafið um heilmikið að spjalla.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Tilhneiging þín til að hlusta á aðra kemur þér að góðum notum í dag. Kvöldið færir þér tækifæri í persónulegum málum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú þarft að sýna lipurð í samskiptum við félaga þinn, annars er hætt við að upp úr sjóði. Eitthvað óvænt gerist seinni hluta dagsins.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú lætur gamlan draum rætast og sérð ekki eftir því. Í félagslífinu verður mikið um að vera á næstunni.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú þarft að taka sjálfum þér tak varðandi tiltekt á heimilinu. Þar hefur ýmislegt drabbast niður undanfarið. Það er þó ekki eins mikið mál og þú heldur.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Það verður mikið að gera hjá þér í vinnunni næstu daga en ef þú leggur þig allan fram mun allt ganga vel. Þú ættir að taka það rólega í kvöld.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú þarft að vera snöggur í dag, sérstaklega í viðskiptum og í sambandi við fjármál. Fjölskyldan nær vel saman í kvöld.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þér verður vel tekið af fólki sem þér er ókunnugt og þú færð óvænt hrós. Áhyggjur sem þú hefur eru ástæðulausar.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Það er óróleiki í kringum þig sem stafar af óleystu deilumáli. Reyndu að komast að niðurstöðu um breytingar sem fyrst.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú ættir að hafa vakandi auga fyrir smáatriðum í dag. Taktu vel eftir fyrrimælum sem þú færð.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Tilfinningamál verða í brennidepli. Þú skalt halda þig utan við þau ef þau snúa ekki að þér beint. Kvöldið verður ánægjulegt.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Farðu varlega í viðskiptum í dag. Einhver gæti reynt að snuða þig um þinn hlut. Vertu sérstaklega á varðbergi fyrri hluta dagsins.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Tilfinningamál verða í brennidepli og ef til vill gamlar deilur tengdar þeim. Fjölskyldan þarf að standa saman.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þótt þú heyrir eitthvað slúðrað um persónu sem þú þekkir er ekki þar með sagt að þú eigir að taka mark á því.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Dagurinn verður rólegur og þú færð næði til að hugsa um framtíðina. Hugaðu að peningamálunum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Misskilningur kemur upp varðandi vináttu þína við einhvern. Þú verður að leiðrétta hann áður en hann snýst upp í deilur.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Ekki einbeita þér of mikið að smáatriðum, þú gætir misst sjónar á aðalatriðunum. Vinir þínir þurfa meiri athygli.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú átt í erfiðleikum með að vera nægilega sjálfstæður. Þér finnst ekki tími núna til að taka ákvarðanir.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Eitthvað óvænt gerist fyrri hluta dagsins og þú færð um nóg að hugsa. Fjölskyldumálin eru í sérlega góðum farvegi.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þér mun ganga greiðlega að leysa úr ágreiningi sem kemur upp í vinnunni og varðar þig að nokkru leyti. Niðurstaðan verður þér í hag.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú ert fullur sjálfstrausts um þessar mundir og ekki minnkar það við viðurkenningu sem þú færð á opinberum vettvangi.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú verður mikið á ferðinni í dag og gætir þurft að fara langa leið í einhverjum tilgangi. Þú þarft að skyggnast undir yfirborð hlutanna.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Rómantíkin blómstrar hjá þeim ástföngnu og ef þú heldur rétt á spöðunum gæti lífið leikið við þig.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú hefur ástæðu til að vera nokkuð bjartsýnn í fjármálum, þó ættirðu að hafa vaðið fyrir neðan þig og íhuga öll kaup vel.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Ekki taka það nærri þér þó að einhver sé með leiðindi við þig. Framkoma hans ætti ekki að skipa þig neinu máli. Þú ættir að heimsækja góða vini þína.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Vertu jákvæður og bjartsýnn á framtíðina. Ferðalag gæti verið á dagskrá og gættu þess að skipuleggja það vel.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar hjá þér á næstunni. Einhver er að reyna að telja þér hughvarf í máli sem þú hefur þegar tekið ákvörðun í.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Hvernig sem þú reynir virðist ákveðið mál ekki ætla að ganga upp. Þú ættir að líta í kringum þig og vita hvort þú ert á réttri leið.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Ástvinur þinn þarfnast meiri athygli. Þú færð hrós í vinnunni fyrir vel unnið starf og verður við það afar kátur.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Einhver hjálpsamur maður bjargar þér úr minni háttar vanda. Þú færð góðar fréttir af ættingjum þínum.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú ættir að huga að persónulegum málum þínum í dag og lofa öðrum að bjarga sér á eigin spýtur.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Vinur þinn þarfnast athygli þinnar og þú ættir að verja meiri tíma með honum. Ástvinir eiga saman góðan dag.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Taktu það rólega í dag en eyddu kvöldinu með góðum vinum. Þú ert ánægður með gang mála þessa dagana.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þú gerir einhverjum greiða og uppskerð þakklæti fyrir. Í heild er þetta góður dagur og kvöldið verður sérstaklega eftirminnilegt.

Sjá næstu 50 fréttir