Fleiri fréttir

Þórir fékk brons í Kína

Noregur vann í dag Spán, 31-26, í leik um þrijða sætið á heimsmeistaramótinu í handbolta kvenna sem haldið er í Kína. Þórir Hergeirsson er þjálfari norska landsliðsins.

Óvænt tap Lemgo

Lemgo tapaði óvænt fyrir Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær, 26-25, á útivelli.

Góður útisigur hjá GOG

GOG vann í dag góðan útisigur á Nordsjælland, 31-28, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Noregur tapaði í undanúrslitum

Rússar unnu Noreg í síðari undanúrslitaviðureigninni á heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Kína, 28-20.

Haukar spila báða Evrópuleikina á Spáni

Haukar hafa komist að samkomulagi við spænska úrvalsdeildarfélagið Naturhouse Ciudad La Rioja um að báðir leikir liðanna í fjórða umferð EHF-bikarkeppninnar fari fram ytra.

Vítaverð framkoma hjá formanninum

Handknattleiksdeild Víkings var í dag sektuð um 50 þúsund krónur vegna hegðunar formanns handknattleiksdeildarinnar, Trausta Leifssonar.

Kiel lagði Flensburg í bikarnum

Meistaravörn Kiel í þýsku bikarkeppninni í handknattleik gengur vel því liðið sló út nágranna sína í Flensburg í kvöld og komst um leið í átta liða úrslit bikarkeppninnar.

RN Löwen og Gummersbach áfram í bikarnum

Þrjú Íslendingalið tryggðu sig inn í átta liða úrslitin í þýsku bikarkeppninni í handknattleik í kvöld. Það fjórða bætist við síðar í kvöld.

Guðmundur hefur valið 28 manna hópinn á EM

Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur skilað inn lista yfir þá 28 leikmenn sem koma til greina hjá íslenska landsliðinu fyrir EM í Austurríki í janúar næstkomandi.

Berglind og Ólafur best

Úrvalslið fyrstu níu umferðanna í N1-deildum karla og kvenna var tilkynnt í dag.

Hálfleiksræða Þóris kveikti í norsku stelpunum

Norska kvennalandsliðið tryggði sér sæti í undanúrslitum á HM í Kína í handbolta með því að vinna 27-24 sigur á Spáni í lokaleik milliriðilsins í dag. Norska liðið var sex mörkum undir í hálfleik en hálfleiksræða Þóris Hergeirssonar, íslenska þjálfara liðsins, kveikti heldur betur í liðinu. Noregur mætir Rússlandi í undanúrslitum en í hinum leiknum spila Frakkar og Spánverjar.

Umfjöllun: HK fór létt með meistarana

Í kvöld tók HK á móti taplausum Haukum í Digranesi í N1-deild karla í handknattleik. Þetta var síðasti leikurinn í deildinni fyrir jól en hún fer aftur af stað þann 4.febrúar á nýju ári.

Gunnar Magnússon: Handbolti er einföld íþrótt

„Ég er í skyjunum og virkilega stoltur af strákunum. Liðsheildin og samheldnin var ótrúleg hér í kvöld og að taka íslandsmeistaran hér á heimavelli svona létt er erfitt að lýsa," sagði Gunnar Magnússon, þjálfari HK, eftir frábæran, 26-19, sigur á íslandsmeisturum Hauka í kvöld.

Aron: Menn mættu ekki undirbúnir til leiks

„Við erum búnir að spila frábærlega í vetur, bæði í deildinni, bikar og evrópukeppni. Liðið búið að sýna mikinn stöðuleika og einbeitingu en það var ekki til staðar í dag," sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka eftir tap gegn HK í kvöld og fyrsta tap liðsins í vetur staðreynd.

HK-menn fyrstir til að vinna Hauka í vetur - rassskelltu meistarana

HK vann glæsilegan sjö marka sigur á Íslandsmeisturum Hauka, 26-19, í N1-deild karla í handbolta í kvöld en þetta var fyrsta tap Haukanna á þessu tímabili. HK sá til þess að Haukar eru bara með þriggja marka forskot þegar deildin fer í jóla- og EM-frí en næstu leikir eru ekki fyrr en í febrúar.

Verða fjögur lið jöfn í öðru til fimmta sæti?

Sú skemmtilega staða gæti komið upp eftir leik HK og Hauka í N1-deild karla í kvöld að fjögur lið verði jöfn með ellefu stig í 2. til 5. sæti deildarinnar þegar deildin fer í jóla- og EM-frí. Til að svo verði þurfa HK-ingar þó að vinna topplið Hauka á heimavelli sínum í Digranesi.

Svört jól í Safamýri

Framarar fara í jólaköttinn þetta árið en liðið mun sitja í botnsæti N1-deildar karla fram í febrúar. Þetta var ljóst þegar Fram tapaði stórt fyrir Stjörnunni, 26-34, í uppgjöri botnliða deildarinnar.

Góður sigur hjá Sverre og félögum

Sverre Andreas Jakobsson og félagar í Grosswallstadt unnu góðan sigur á Dusseldorf, 33-21, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Löwen valtaði yfir Magdeburg

Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen skaust upp í þriðja sætið í þýsku bundesligunni í kvöld með því að slátra Magdeburg, 40-21.

Öruggt hjá Kiel gegn Hannover

Þýskalandsmeistarar Kiel unnu stórsigur á Hannover Burgdorf í dag, 41-22. Á sama tíma marði aðalkeppinautur Kiel, HSV, sigur á TuS N Lubbecke, 25-24.

Ólafur: Eigum heima í toppsætunum

„Ég er mjög sáttur því þetta var leikur um annað sætið, gríðarlega mikilvægt. Við erum búnir að vera spila upp og niður en við þurftum bara að koma hingað í dag og sanna fyrir okkar fólki að við eigum heima í toppsætunum," sagði FH-ingurinn Ólafur Guðmundsson eftir sigur gegn Val í N1-deild karla í dag.

Hlynur Morthens: Grátlegt að tapa þessu

Afmælisbarnið, Hlynur Morthens, markvörður Vals, var ekki sáttur eftir tap gegn FH, 20-23 sem fram fór í Vodafonehöllinni í dag. Þetta var fyrsti tapleikur þeirra á heimavelli í vetur.

Umfjöllun: Baráttusigur FH gegn Val

Í dag mættust að Hlíðarenda Valur og FH í N1-deild karla í handknattleik. Fyrir leikinn sátu Valsmenn í öðru sæti deildarinnar en FH-ingar í því fjórða.

Logi með þrjú í sigurleik

Logi Geirsson skoraði þrjú mörk er Lemgo bar sigurorð af Minden, 30-21, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Gunnar: Það var sama hvaða varnir þeir reyndu í dag

Gunnar Magnússon, þjálfari HK, var mjög ánægður með tíu marka sigur á Gróttu í Digranesi í kvöld. HK gerði út um leikinn í kringum hálfleikinn þegar þeir unnu fimmtán mínútna kafla 9-2 og komust 19-12 yfir.

Elías Már: Auðveldara en ég átti von á

Elías Már Halldórsson átti fínan leik fyrir Hauka sem vann öruggan sigur á Akureyri í N-1 deild karla í handbolta í kvöld. Elías skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins og sex í fyrri hálfleik úr sex skotum.

Þriðji sigur HK í röð

HK-menn hækkuðu sig um tvö sæti og komust upp í 4. sætið með öruggum heimasigri á Gróttu, 32-22, í Digranesi í kvöld. Þetta var þriðji sigur HK í röð í deild og bikar en eins annar sigur liðsins á Gróttu í vetur.

Umfjöllun: Akureyri afgreitt í fyrri hálfleik

Haukar eru á toppnum í N-1 deild karla og verða það fram yfir bæði jól og EM í janúar. Liðið kjöldró Akureyri fyrir norðan í kvöld, 20-24. Tölurnar gefa ekki alveg rétta mynd af leiknum.

Stelpurnar hans Þóris: Fimmti sigurinn í röð á HM í Kína

Norska kvennahandboltalandsliðið tryggði sér sigur í C-riðli á HM í handbolta Kína nú áðan með eins marks sigri á Rúmeníu, 25-24, í úrslitaleik tveggja ósigraða liða. Norska liðið missti niður þriggja marka forustu á síðustu fimm mínútunum áður en Tonje Nosvold tryggði liðinu sigurinn í lokin.

Sjá næstu 50 fréttir