Fleiri fréttir

Íslendingaliðin stóðu sig vel um helgina á æfingamóti

Leikið var í Hummel Charity Cup um helgina í Þýskalandi, en mótið er sex liða æfingamót. Þrjú úrvalsdeildarlið frá Þýskalandi, eitt frá Danmörku og tvö þýsk neðrideildarlið tóku þátt. Flensborg-Handewitt, lið Alexander Petterson og Einars Hólmgeirssonar, vann mótið eftir að hafa sigrað Lemgo, lið Loga Geirssonar, í úrslitaleiknum, 21-15.

Íslenska liðið tapaði fyrir Tékkum í leik um 7. sætið

Íslenska U17 ára landslið kvenna í handknattleik endaði í 8. sæti á Ólympíuhátíð æskunnar í Belgrad eftir naumt tap gegn Tékkum í leik um 7. sætið. Leikurinn endaði 32-30 fyrir Tékkum en íslenska liðið hafði yfirhöndina þegar skammt var eftir af leiknum.

Stjarnan mætir Tenax Dobele frá Lettlandi

Handknattleikslið Stjörnurnar í karlaflokki mætir Tenax Dobele frá Lettlandi í fyrstu umferð Evrópukeppni bikarhafa. Dregið var fyrir leikina í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu í morgun. Fyrri leikurinn fer fram á Íslandi þann 1. eða 2. september og seinni leikurinn fer fram 8. eða 9. september.

Fékk 34,8 prósent atkvæða

Ólafur Stefánsson var valinn í lið ársins í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta og er einn af fjórum leikmönnum meistaraliðs Ciudad Real sem eru í sjö manna liðinu. Kosningin fór fram á heimasíðu deildarinnar, www.asobal.es.

Viljum alls ekki missa Valdimar

Handknattleiksmaðurinn Valdimar Þórsson, sem gekk í raðir Fram í lok síðasta mánaðar, gæti verið á förum til sænska úrvalsdeildarliðsins HK Malmö. Sænskir fjölmiðlar sögðu frá því í gær að samningur við leikmanninn væru nánast frágenginn og að aðeins formsatriði yrði að fá undirskrift.

Ólafur í liði ársins á Spáni

Ólafur Stefánsson, leikmaður Ciudad Real og fyrirliði íslenska landsliðsins, er í stöðu vinstrihandar skyttu í liði ársins á Spáni. Þrír liðsfélagar Ólafs eru einnig í liði ársins en Ciudad Real vann deildina á síðasta tímabili.

EM: Svíar í fyrsta leik

Búið er að raða niður leikdögum fyrir EM í handknattleik sem fer fram í Noregi í janúar og febrúar á næsta ári. Ísland hefur leik þann 17. janúar gegn Svíþjóð. Ísland er í D-riðli ásamt Svíum, Slóvökum og Frökkum.

Boesen til Lemgo

Danski landsliðsmaðurinn Lasse Boesen hefur gert þriggja ára samning við þýska úrvalsdeildarliðið Lemgo eftir eitt ár með Kolding í heimalandi sínu. Boesen var áður hjá spænska stórliðinu Portland San Antonio þar sem hann varð meistari árið 2005. Hann á að baki 83 landsleiki með Dönum og gengur nú til liðs við Loga Geirsson og félaga í Lemgo.

Piltalandsliðið endaði í sjötta sæti

Íslenska piltalandsliðið í handbolta hefur lokið keppni á opna Evrópumótinu sem fram fer í Gautaborg í Svíþjóð. Liðið tapaði í dag 24-23 fyrir Rússum í leiknum um fimmta sætið á mótinu eftir að hafa verið undir í hálfleik 13-9. Anton Rúnarsson skoraði 6 mörk fyrir Ísland í dag og Orri Freyr Gíslason 5.

Stórleikur í fyrstu umferð

Í gær var dregið í töfluröð fyrir Íslandsmótið í handknattleik sem hefst um miðjan september. Íslandsmeistarar Vals í karlaflokki taka á móti Haukum í stórleik fyrstu umferðar í nýju og glæsilegu íþróttahúsi sínu að Hlíðarenda. Þá mætast HK og Stjarnan, Fram fer til Vestmannaeyja og Afturelding tekur á móti Akureyri. Átta lið eru í deildinni og verður leikin fjórföld umferð.

Annað jafntefli hjá piltalandsliðinu

Íslenska piltalandsliðið í handbolta gerði sitt annað jafntefli á opna Evrópumótinu í dag þegar það gerði 26-26 jafntefli við Slóvena í öðrum leik sínum í milliriðli. Íslenska liðið var fjórum mörkum yfir í hálfleik en náði svo að jafna leikinn á síðustu sekúndu leiksins. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 10 mörk fyrir íslenska liðið sem mætir Norðmönnum og Eistum á morgun.

Jafnt gegn Tékkum

Íslenska piltalandsliðið í handbolta gerði jafntefli við Tékka 20-20 í fyrsta leik sínum í milliriðli opna Evrópumótsins í morgun. Íslenska liðið var yfir í hálfleik 12-10. Ólafru Bjarki Ragnarsson skoraði 6 mörk fyrir íslenska liðið og Aron Pálmason 5. Þá varði Ingvar Guðmundsson 20 skot í markinu. Liðið mætir Slóvenum síðar í dag.

Milliriðillinn klár hjá U-19 liði Íslands

Í kvöld komst á hreint hvaða lið leika í milliriðli með íslenska U-19 ára landsliðinu í handbolta á opna Evrópumótinu sem fram fer í Gautaborg í Svíþjóð. Íslenska liðið mætir Tékkum, Slóvenum, Norðmönnum og Eistlandi í riðlinum og leiktímana má sjá hér fyrir neðan.

Piltalandsliðið sigraði í riðlinum

Íslenska piltalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri lagði Moldavíu 19-15 í lokaleik sínum í E-riðli opna Evrópumótsins í morgun og tryggði sér þar með sigur í riðlinum. Næstu tvo daga leikur liðið í milliriðli á mótinu en ekki skýrist hverjir mótherjarnir verða fyrr en síðar í dag.

Íslenska liðið í efsta sæti

Íslenska U-19 ára piltalandsliðið í handbolta vann í dag 23-16 sigur á Austurríkismönnum í öðrum leik sínum á opna Evrópumótinu í Gautaborg. Ísland hafði yfir 11-10 í hálfleik en átti góðan endasprett líkt og í leiknum við Ungverja í morgun. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 6 mörk fyrir íslenska liðið og Orri Freyr Gíslason 5. Íslenska liðið er efst í E-riðli eftir fyrsta keppnisdaginn.

Ísland burstaði Ungverja

Íslenska handboltalandsliðið skipað piltum yngri en 19 ára vann í morgun sinn fyrsta leik á opna Evrópumótinu í Gautaborg í Svíþjóð þegar það burstaði Ungverja 23-14. Íslenska liðið hafði yfir 11-9 í hálfleik en tók öll völd á vellinum í þeim síðari. Anton Rúnarsson var markahæstur í íslenska liðinu með 8 mörk. Liðið mætir Austurríkismönnum síðar í dag.

Sjá næstu 50 fréttir