Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Wenger biður fólk að standa með Adebayor Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur biðlað til stuðningsmanna félagsins að standa með sóknarmanninum Emmanuel Adebayor. 19.8.2008 11:57
Adebayor skrifar undir nýjan samning Emmanuel Adebayor hefur skrifað undir nýjan samning við Arsenal. Þessi 24 ára sóknarmaður var orðaður við Barcelona og AC Milan í sumar en tilkynnti síðan að hann yrði áfram hjá Arsenal. 18.8.2008 16:27
Stoke að fá varnarmann Southampton hefur samþykkt tilboð upp á 1,3 milljónir punda frá Stoke City í varnarmanninn Andrew Davies. Þessi 23 ára leikmaður hóf feril sinn hjá Middlesbrough en hann getur spilað sem hægri bakvörður eða miðvörður. 18.8.2008 13:50
Carrick frá í þrjár vikur Michael Carrick, miðjumaður Manchester United, verður frá í um þrjár vikur vegna ökklameiðsla. Hann fór meiddur af velli þegar United gerði 1-1 jafntefli gegn Newcastle í gær. 18.8.2008 13:28
Öll mörkin úr enska boltanum komin á Vísi Fyrstu umferð ensku úrvalsdeilarinnar lauk í gær. 32 mörk voru skoruð í leikjum fyrstu umferðinnar en sigur vannst í þeim öllum að leik Manchester United og Newcastle undanskildum, sem lauk mað jafntefli. Hægt er að sjá öll mörkin hér á Vísi. 18.8.2008 11:01
Berbatov klár en Ferguson segir framlínuna í lagi Sir Alex Ferguson hefur lýst því yfir að hann sé tilbúinn til þess að fara í gegnum þetta tímabil með núverandi leikmannahóp sinn. Ensku meistararnir í Manchester United byrjuðu leiktíðina með vonbrigðum á heimavelli sínum, Old Trafford, og gerðu 1:1 jafntefli við Newcastle. 18.8.2008 09:48
Meistararnir byrja á jafntefli Englandsmeistarar Manchester United gerðu 1-1 jafntefli gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag. Obafemi Martins kom Newcastle yfir í fyrri hálfleik með skallamarki en Darren Fletcher jafnaði skömmu síðar. 17.8.2008 17:23
Chelsea kláraði Portsmouth í fyrri hálfleik Chelsea vann sannfærandi sigur á Portsmouth 4-0 í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liðið kláraði leikinn í fyrri hálfleik með því að skora þrívegis. 17.8.2008 14:19
Heskey í landsliðshópnum Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, hefur tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleik gegn Tékklandi á miðvikudag. Emile Heskey, sóknarmaður Wigan, er í hópnum en hinsvegar er ekkert pláss fyrir Peter Crouch leikmann Portsmouth. 17.8.2008 13:39
Torres hetja Liverpool Liverpool vann Sunderland 1-0 í síðasta leik dagsins í enska boltanum. Fernando Torres var hetja Liverpool en hann skoraði sigurmarkið á 83. mínútu leiksins. 16.8.2008 19:45
Grétar skoraði í sigri Bolton Grétar Rafn Steinsson kom Bolton á bragðið gegn Stoke í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann ætlaði að senda fyrir markið en boltinn söng í netinu. Bolton vann leikinn 3-1. 16.8.2008 16:20
Mark Nasri dugði til sigurs Fyrsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni er lokið. Arsenal vann 1-0 sigur á West Bromwich Albion á heimavelli sínum. Eina mark leiksins skoraði Samir Nasri á fjórðu mínútu. 16.8.2008 13:43
Nasri opnaði markareikninginn eftir þrjár mínútur Flautað var til leiks í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu en þá hófst leikur Arsenal og West Bromwich. Það tók Arsenal aðeins rúmar þrjár mínútur að komast yfir í leiknum. 16.8.2008 12:01
Abdoulaye Faye til Stoke Stoke City hefur keypt senegalska landsliðsmanninn Abdoulaye Faye frá Newcastle á 2,25 milljónir punda. Þessi 30 ára varnarmaður hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stoke. 15.8.2008 21:00
Búið að lækka verðið á Arshavin Andrei Arshavin gæti farið til Tottenham eftir allt en Zenit frá Pétursborg hefur lækkað verðmiðann á leikmanninum. Tottenham hætti viðræðum við Zenit í síðasta mánuði eftir að ekki tókst að semja um kaupverðið á Arshavin. 15.8.2008 20:00
Pizarro til Bremen Framherjinn Claudio Pizarro hjá Chelsea hefur samþykkt að ganga í raðir Werder Bremen í Þýskalandi á eins árs lánssamning. Þessi 29 ára Perúmaður hefur ekki átt fast sæti í liði Chelsea eftir ágæt ár með liði Bayern í Þýskalandi á árum áður. 15.8.2008 15:55
Enski hefst á morgun - Upphitun fyrir leiki helgarinnar Tæplega 100 daga bið aðdáenda enska boltans lýkur klukkan 11:30 í fyrramálið þegar Arsenal og WBA spila opnunarleikinn í ensku úrvalsdeildinni þetta árið. 15.8.2008 14:10
Owen missir líklega af leiknum við United Kevin Keegan, stjóri Newcastle, segir mjög ólíklegt að framherjinn Michael Owen geti tekið þátt í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni. Owen er ekki orðinn leikfær eftir meiðsli og verður því tæplega með gegn Manchester United á sunnudag. 15.8.2008 12:30
Roy Keane tippar á Chelsea Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United og núverandi knattspyrnustjóri Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, telur að Chelsea muni hampa Englandsmeistaratitlinum næsta sumar. 15.8.2008 11:03
Mendes í viðræðum við Rangers Portúgalski miðjumaðurinn Pedro Mendes hjá Portsmouth er nú í viðræðum við skoska félagið Glasgow Rangers eftir að Portsmouth samþykkti um 3 milljón punda kauptilboð í hann. 15.8.2008 10:59
Agbonlahor framlengir við Aston Villa Gabriel Agbonlahor, leikmaður Aston Villa, hefur framlengt samning sinn við félagið um fjögur ár. Þessi 21 árs gamli framherji er að nálgast 100 leikja markið hjá Villa eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik með félaginu árið 2006. Hann skoraði eitt marka Villa í 4-1 sigrinum á FH í gærkvöld. 15.8.2008 10:17
Newcastle semur við Coloccini Argentínski landsliðsmaðurinn Fabricio Coloccini hefur gert fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle. Coloccini var áður hjá Deportivo hjá Spáni, en kaupverðið á þessum 26 ára gamla varnarmanni hefur ekki verið gefið upp. 15.8.2008 10:15
Hull keypti Gardner Hull hefur staðfest að félagið sé búið að kaupa varnarmanninn Anthony Gardner frá Tottenham á 2,5 milljónir punda. Þessi 27 ára miðvörður kom upphaflega til Hull á lánssamningi. 14.8.2008 23:00
Man City tapaði heima fyrir Midtjylland Óvæntustu úrslit kvöldsins í UEFA bikarnum voru án vafa tap Manchester City á heimavelli gegn danska liðinu Midtjylland 0-1. Danska liðið tók forystuna eftir fimmtán mínútna leik eftir mistök Richard Dunne. 14.8.2008 21:19
Ramos vill enn halda Berbatov Enn er ekki orðið ljóst hvort búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov muni spila með liði Tottenham þegar enska úrvalsdeildin hefst um helgina. 14.8.2008 17:01
Mutu þarf að greiða Chelsea tvo milljarða Alþjóða Knattspyrnusambandið hefur skipað rúmenska framherjanum Adrian Mutu að greiða Chelsea á Englandi um tvo milljarða í miskabætur. Mutu var látinn fara frá félaginu árið 2004 eftir að hafa orðið uppvís af kókaínneyslu. 14.8.2008 16:52
Carew framlengir við Villa Norski framherjinn John Carew hjá Aston Villa hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár og er nú samningsbundinn til ársins 2011. Carew var markahæsti leikmaður Villa á síðustu leiktíð með 13 mörk. 14.8.2008 16:05
Hoyte í viðræðum við Boro Arsenal hefur samþykkt kauptilboð Middlesbrough í bakvörðinn Justin Hoyte og er hann nú á leið í viðræður við félagið um samning. Hoyte er 23 ára gamall og hefur ekki átt fast sæti í liði Arsenal. 14.8.2008 13:47
Blackburn neitaði tilboði City í Santa Cruz Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn hefur neitað kauptilboði Manchester City í framherjann Roque Santa Cruz, en Paragvæmaðurinn lék með Blackburn undir stjórn Mark Hughes sem nú stýrir City. 14.8.2008 13:45
Chelsea gefst ekki upp á Robinho Peter Kenyon telur að Chelsea eigi enn möguleika á því að landa brasilíska sóknarmanninum Robinho frá Real Madrid. Chelsea bauð 19,7 milljónir punda í leikmanninn í síðustu viku en því var hafnað. 13.8.2008 23:45
Vassell úr leik hjá City Framherjinn Darius Vassell hjá Manchester City verður frá keppni næstu tíu vikurnar eða svo eftir að hafa meiðst á hné í æfingaleik um helgina. 13.8.2008 18:15
Lampard framlengir við Chelsea Enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Lampard var m.a. orðaður við Inter Milan í sumar, en hefur nú ákveðið að leika áfram með Lundúnaliðinu. 13.8.2008 16:10
Adebayor gaf 15 milljónir í hjálparstarf Framherjinn Emmanuel Adebayor hjá Arsenal hefur gefið rúmar 15 milljónir króna til hjálparstarfsins í heimalandi sínu Tógó í Afríku eftir að mikil flóð gengu yfir landið í síðustu viku. 13.8.2008 15:53
Barton gengst við ákæru knattspyrnusambandsins Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Newcastle hefur gengist við ákæru enska knattspyrnusambandsins vegna árásar á fyrrum liðsfélaga sinn hjá Manchester City á sínum tíma. 13.8.2008 15:42
Bale framlengir við Tottenham Walesverjinn ungi Gareth Bale hjá Tottenham hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem bindur hann til ársins 2012. Samningurinn er eins árs framlenging á fyrri samningi. 13.8.2008 13:24
Arsenal í vanda fyrir Evrópuleik Arsene Wenger er strax farinn að sjá eftir því að hafa ekki styrkt lið sitt meira í sumar. Hann stendur nú frammi fyrir því að vera án níu leikmanna fyrir evrópuleikinn gegn FC Twente í kvöld. 13.8.2008 10:37
Man Utd og Tottenham sættast á 25 milljónir fyrir Berbatov Manchester United og Tottenham eru við það að ná samkomulagi um kaupverð á sóknarmanninum búlgarska Dimitar Berbatov. 13.8.2008 09:31
Berbatov að færast nær United? Fréttasíður á Englandi eru uppfullar af fréttum af búlgarska sóknarmanninum Dimitar Berbatov. Talað er um að Manchester United sé að færast nær því að klófesta leikmanninn. 12.8.2008 23:45
Anthony Annan eftirsóttur Arsenal og Manchester United hafa áhuga á miðjumanninum Anthony Annan samkvæmt heimildum íþróttadeildar Sky. Þessi 22 ára landsliðsmaður frá Gana hefur æft með Blackburn undanfarna viku. 12.8.2008 23:40
Reading komst áfram Í kvöld hófst keppni í ensku deildabikarkeppninni en fjöldi leikja í 1. umferð voru á dagskrá. Íslendingaliðið Reading komst í aðra umferð með 2-1 sigur á Dagenham & Redbridge 2-1. 12.8.2008 23:22
Man Utd bauð í David Silva Spænska félagið Valencia hafnaði í dag tilboði frá Manchester United í sóknarmanninn David Silva. Félagaskiptaglugganum verður lokað um næstu mánaðamót en Sir Alex Ferguson vill bæta sóknarmanni við hóp sinn. 12.8.2008 21:05
Ivan Campo til Ipswich Ipswich hefur fengið Ivan Campo, fyrrum leikmann Bolton. Campo hefur skrifað undir tveggja ára samning við Ipswich sem leikur í ensku 1. deildinni. Hann kemur á frjálsri sölu. 11.8.2008 23:45
Carlos Cuellar til Aston Villa Aston Villa hefur komist að samkomulagi við Glasgow Rangers um kaupverðið á spænska varnarmanninum Carlos Cuellar. Þessi 26 ára leikmaður kostar Villa 7,8 milljónir punda. 11.8.2008 23:25
Möguleiki að Barry komi með til Íslands Martin O'Neill, knattspyrnustjóri Aston Villa, segir að komi vel til greina að Gareth Barry, leikmaður félagsins, komi með til Íslands þar sem liðið mætir FH í forkeppni UEFA-bikarkeppninnar á fimmtudaginn. 11.8.2008 19:00
Portsmouth fær Kaboul frá Tottenham Portsmouth hefur fest kaup á varnarmanninum Younes Kaboul frá Tottenham fyrir óuppgefna upphæð. 11.8.2008 14:48