Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
United að krækja í tvo Serba Manchester United er að klófesta serbneska leikmanninn Adem Ljajic en hann ferðaðist til Englands ásamt Zoran Tosic sem er að fara að gangast undir læknisskoðun á Old Trafford. 11.12.2008 11:00
Danirnir kvarta yfir Rooney Kasper Risgard, leikmaður Álaborgar, ásakar Wayne Rooney hjá Manchester United um að hafa traðkað á sér í 2-2 jafnteflisleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í gær. 11.12.2008 10:45
Alex vill yfirgefa Chelsea Brasilíski varnarmaðurinn Alex hefur farið fram á sölu frá Chelsea. Hann hefur ekki náð að vinna sér inn fast sæti í liðinu og vill komast burt frá Stamford Bridge í janúar. 11.12.2008 10:15
Wenger stendur við sitt val Arsene Wenger segist ekki sjá eftir neinu þó svo að Arsenal hafi í kvöld tapaði fyrir Porto í Meistaradeild Evrópu og þar með misst toppsæti sitt í riðlinum. 10.12.2008 23:18
United náði efsta sætinu þrátt fyrir jafntefli Danska liðið Álaborg gerði sér lítið fyrir og nældi sér í stig í á Old Trafford í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Þrátt fyrir það varð Manchester United í efsta sæti riðilsins. 10.12.2008 21:38
Viktor að semja við Val Viktor Unnar Illugason mun semja við Val til næstu tveggja ára en hann er nú samningsbundinn enska B-deildarliðinu Reading. 10.12.2008 19:30
Meistaradeildin: Baráttan um toppsætið Í kvöld ræðst það hvaða átta lið það verða sem tryggja sér efsta sæti síns riðils og forðast með því aðra sigurvegara riðlakeppninnar í 16-liða úrslitunum. 10.12.2008 19:00
Meistaradeildin: Baráttan um þriðja sætið Nú þegar er ljóst hvaða sextán lið komast áfram í næstu umferð Meistaradeildar Evrópu en enn á eftir að útkljá hvaða átta lið það verða sem vinna sér þátttökurétt í 32-liða úrslitum UEFA-bikarkeppninnar. 10.12.2008 18:45
Poyet ánægður á Englandi Gus Poyet hefur gefið í skyn að hann myndi ekki fylgja Juande Ramos til Real Madrid þó svo að það stæði til boða. Hann sé ánægður á Englandi. 10.12.2008 18:30
Ferdinand segir framtíð allra hjá Sunderland í hættu Anton Ferdinand, leikmaður Sunderland, segir að framtíð allra leikmanna hjá félaginu sé í hættu og að þeir þurfi nú að sanna sig upp á nýtt fyrir nýjum þjálfara. 10.12.2008 18:00
Adriaanse orðaður við Sunderland Hinn gamalreyndi hollenski þjálfari Co Adriaanse hefur undanfarna daga verið sterklega orðaður við stöðu knattspyrnustjóra hjá Sunderland. Sjálfur útilokar hann þó að taka við starfinu. 10.12.2008 17:24
Delap á í vandræðum með öxlina Rory Delap, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Stoke, segist eiga í vandræðum vegna axlarmeiðsla en hann er þekktur fyrir löng innköst sín. 10.12.2008 17:16
Foster stefnir á að feta í fótspor Rafael Markvörðurinn Ben Foster stefnir á að vinna sér inn fast sæti í liði Manchester United. Hann horfir á brasilíska hægri bakvörðinn Rafael sem hvatningu í þeim efnum. 10.12.2008 16:00
Maldini sá tryggasti Ítalskt dagblað hefur tekið saman lista yfir tíu tryggustu leikmenn ítalska fótboltans. Það kemur ekki á óvart að hinn fertugi varnarmaður, Paolo Maldini, trjóni á toppi listans. 10.12.2008 15:30
Öll ensku og spænsku liðin áfram Öll átta liðin frá Englandi og Spáni sem tóku þátt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu komust áfram í sextán liða úrslit keppninnar. Er þetta í fyrsta skipti sem það gerist. 10.12.2008 15:00
AC Milan staðfestir áhuga á Agger Adriano Galliani hefur staðfest að AC Milan hafi áhuga á Daniel Agger, varnarmanni Liverpool. Þessi 23 ára danski miðvörður kom á Anfield árið 2006. 10.12.2008 14:04
Ramos hyggst krækja í Arshavin Juande Ramos, nýráðinn þjálfari Real Madrid, gæti gert sínu gamla félagi Tottenham grikk í janúarglugganum. Spænskir fjölmiðlar telja að Ramos ætli sér að kaupa Andrei Arshavin sem hefur verið á óskalista Tottenham um nokkurt skeið. 10.12.2008 13:49
Babel fékk engin loforð Ryan Babel hefur viðurkennt að hafa rætt við Rafa Benítez um þann möguleika að vera lánaður til Ajax í Hollandi. Umboðsmaður leikmannsins sagði í vikunni að hann væri orðinn þreyttur á hve fá tækifæri hann væri að fá. 10.12.2008 13:15
Hildebrand í mark Hoffenheim Spútniklið þýsku úrvalsdeildarinnar, Hoffenheim, hefur tryggt sér þjónustu markvarðarins Timo Hildebrand. Hann mun ganga til liðs við félagið í janúar. 10.12.2008 12:11
David Suazo til Englands? Newcastle United, Aston Villa og Everton hafa öll áhuga á sóknarmanninum David Suazo hjá Inter. Þessi 29 ára landsliðsmaður Hondúras er ekki í myndinni hjá Jose Mourinho. 10.12.2008 11:19
Edda og Ólína til Örebro Íslenskir leikmenn halda áfram að hrannast í sænsku kvennadeildina. Landsliðskonurnar Edda Garðarsdóttir og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir eru á leið í Örebro frá KR. 10.12.2008 11:07
Keane: Mörkin munu koma Robbie Keane segir að umræðan um framtíð sína hjá Liverpool hafi ekki áhrif á sig og er viss um að hann fari bráðum að skora mörk. 10.12.2008 10:45
Ekkert sæti laust í kvöld Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu lýkur í kvöld. Spennan er þó í lágmarki þar sem þegar er ljóst hvaða lið eru komin áfram í sextán liða úrslitin. Aðeins er óljóst um sigurvegara í einhverjum riðlum. 10.12.2008 09:45
Mourinho: Eigum skilið það versta Jose Mourinho, þjálfari Inter, segir að hans menn eigi ekkert betra skilið en að mæta Barcelona eða Manchester United í næstu umferð Meistaradeildarinnar. 9.12.2008 22:45
Carragher: Gott kvöld fyrir Liverpool Liverpool tryggði sér toppsæti D-riðils með sigri á PSV Eindhoven í kvöld. Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, segir að kvöldið hafi verið frábært fyrir félagið. 9.12.2008 22:15
Ívar með sigurmark Reading Íslendingarnir í Reading halda áfram að skora sigurmörk fyrir félagið. Brynjar Björn Gunnarsson skoraði sigurmark liðsins um síðustu helgi en í kvöld skoraði Ívar Ingimarsson sigurmarkið gegn Blackpool. 9.12.2008 21:46
Chelsea áfram - Liverpool tók efsta sætið Í kvöld lauk keppni í fjórum riðlum í Meistaradeild Evrópu. Didier Drogba kom inn sem varamaður og tryggði Chelsea 2-1 sigur á rúmenska liðinu Cluj í A-riðli. Enska liðið var þó ekki sannfærandi í leiknum. 9.12.2008 21:29
Pogrebnyak til Everton? Everton hefur gert tilboð í sóknarmanninn Pavel Pogrebnyak hjá Zenit í Pétursborg. Þetta lét umboðsmaður leikmannsins hafa eftir sér. 9.12.2008 20:30
Di Canio dreymir um England Paolo Di Canio segist eiga sér þann draum að verða knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni. Hans æðsta ósk er að taka við West Ham en sem leikmaður gerði hann garðinn frægan hjá liðinu. 9.12.2008 19:45
Eiður á bekknum í kvöld - Byrjar gegn Real Madrid? Barcelona hvílir marga lykilmenn sína í leiknum gegn Shaktar Donetsk í Meistaradeildinni í kvöld. Börsungar hafa þegar tryggt sér sigur í riðlinum. 9.12.2008 19:09
Ferguson furðar sig á leikbanni Evra Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, er allt annað en sáttur við leikbannið sem enska knattspyrnusambandið dæmdi franska bakvörðinn Patrice Evra í. 9.12.2008 18:30
Hægt að gera athugasemdir við brottvísanir Á fundi stjórnar KSÍ á dögunum voru gerðar nokkrar breytingar á reglugerðum sambandsins. Þar á meðal verður hægt að gera athugasemdir við rauð spjöld á Íslandsmótinu næsta sumar. 9.12.2008 18:00
Tímabilinu lokið hjá Gattuso Allt bendir til þess að tímabilinu sé lokið hjá Gennaro Gattuso, miðjumanni AC Milan. Hann meiddist illa á hné í leik gegn Catania og talið er að hann verði frá keppni í sex mánuði. 9.12.2008 17:38
Ishmael Miller frá út tímabilið Botnlið ensku úrvalsdeildarinnar, West Bromwich Albion, varð fyrir miklu áfalli í dag þegar í ljós kom að sóknarmaðurinn Ismael Miller spilar ekki meira á tímabilinu. 9.12.2008 17:32
Ronaldo í Corinthians Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo hefur komist að samkomulagi við lið Corinthians í heimalandi sínu. Corinthians er í Sao Paulo og er eitt af stærstu félögum Brasilíu en liðið vann sér inn sæti í efstu deild á dögunum eftir eins árs fjarveru. 9.12.2008 17:09
Íslendingur ráðinn til Ljungskile Sænska knattspyrnufélagið Ljungskile tilkynnti í dag um ráðningu á nýjum þjálfara. Guðmundur Ingi Magnússon var ráðinn í starfið en Ljungskile féll úr sænsku úrvalsdeildinni fyrir skömmu. 9.12.2008 16:59
Sautján mánaða bölvun Bale Velski landsliðsmaðurinn Gareth Bale hefur gert það nokkuð gott hjá Tottenham síðan hann var keyptur frá Southampton á sínum tíma. 9.12.2008 16:00
Nancy bauð aftur í Veigar Pál Enn er ekki loku fyrir það skotið að knattspyrnumaðurinn Veigar Páll Gunnarsson gangi í raðir Nancy í Frakklandi frá norska liðinu Stabæk. 9.12.2008 15:30
Van Persie treystir súkkulaðifætinum Hollenski framherjinn Robin Van Persie hjá Arsenal segist handviss um að aukin áhersla hans á skotæfingar með súkkulaðifætinum séu farnar að skila tilætluðum árangri. 9.12.2008 15:00
Ferguson fer með sitt sterkasta lið til Japan Sir Alex Ferguson mun ekki skilja neinar af stórstjörnum sínum eftir heima á Englandi þegar Manchester United fer til Japan í næstu viku til að taka þátt í HM félagsliða. 9.12.2008 14:00
Mijatovic staðfestir ráðningu Ramos Predrag Mijatovic framkvæmdastjóri Real Madrid hefur staðfest fréttir spænskra miðla eftir hádegið þar sem fram kom að Juande Ramos hefði verið fenginn til að taka við starfi Bernd Schuster þjálfara liðsins sem var rekinn í dag. 9.12.2008 13:59
Schuster rekinn frá Real - Ramos tekur við Spænskir fjölmiðlar fullyrða að stjórn Real Madrid hafi ákveðið að reka Bernd Schuster þjálfara liðsins og ætli sér að ráða Juande Ramos fyrrum stjóra Tottenham og Sevilla í hans stað. 9.12.2008 13:08
Eiður og Margrét Lára knattspyrnumenn ársins Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir hafa verið útnefnd knattspyrnumenn ársins í karla- og kvennalfokki af Knattspyrnusambandi Íslands. 9.12.2008 12:48
Carroll í tveggja vikna bann Markvörðurinn Roy Carroll hjá Derby County hefur verið dæmdur í tveggja vikna bann hjá félaginu í kjölfar atviks sem átti sér stað í búningsklefa liðsins eftir tap þess gegn Crystal Palace um helgina. 9.12.2008 11:19
Launin lækka hjá Íslendingunum í Brann Roald Bruun-Hanssen, íþróttastjóri hjá Brann í Noregi, segir að launaveislunni sem staðið hefur yfir hjá liðinu undanfarin ár sé lokið. 9.12.2008 11:05