Enski boltinn

Pogrebnyak til Everton?

Elvar Geir Magnússon skrifar
Pavel Pogrebnyak.
Pavel Pogrebnyak.

Everton hefur gert tilboð í sóknarmanninn Pavel Pogrebnyak hjá Zenit í Pétursborg. Þetta lét umboðsmaður leikmannsins hafa eftir sér.

David Moyes, stjóri Everton, hyggst styrkja sóknarlínuna hjá sér vegna langtíma meiðsla Aiyegbeni Yakubu og James Vaughan.

Pogrebnyak er rússneskur landsliðsmaður og munu menn frá Everton fylgjast með honum nánar í leik gegn Real Madrid í Meistaradeildinni á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×