Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Wigan og Aston Villa skildu jöfn Einum leik er lokið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Wigan og Aston Villa gerðu markalaust jafntefli í leik sem reyndist ekki mikið fyrir augað. Kl. 16 hefst leikur Blackburn og Tottenham. 19.11.2006 15:45
Við getum unnið allt Cristiano Ronaldo segir að Man. Utd. hafi burði til að standa uppi sem sigurvegarar ensku úrvalsdeildarinnar og Meistaradeildar Evrópu þegar núverandi tímabili lýkur um mitt næsta ári. 19.11.2006 15:15
Robben varar Mourinho við að kaupa Malouda Arjen Robben, hollenski sóknarmaðurinn hjá Chelsea, hefur varað forráðamenn Chelsea við því að kaupa Florent Malouda frá Lyon. Robben nánast hótar því að fara frá félaginu ef franski landsliðsmaðurinn verður keyptur í janúar. 19.11.2006 14:45
Barcelona þarf ekki nýjan sóknarmann – þeir eiga annan Messi Mikið hefur rætt og skrifað um nauðsyn þess að Barcelona fái til sín nýjan sóknarmann í fjarveru Samuel Eto´o og Lio Messi. En færri vita að með spænskum ríkisborgararétt Rafel Marques hafa opnast dyr fyrir 17 ára undrabarn í herbúðum liðsins – hinn 17 ára gamla Giovani. 19.11.2006 00:01
Gengið frá kaupunum á mánudag Fjárfestingarhópur Eggerts Magnússonar mun ganga formlega frá kaupum á West á mánudag, að því er breska blaðið Independent heldur fram í morgun. Eggert verður stjórnarformaður, Björgólfur Guðmundsson verður ekki í stjórn og Argentínumennirnir Javier Mascherano og Carlos Tevez fara frá félaginu. 18.11.2006 20:00
Wenger óánægður með varnarleikinn Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, kennir slökum varnarleik sinna manna um jafnteflið gegn Newcastle í dag. Enn einu sinni voru leikmenn Arsenal með skelfilega nýtingu í sókninni. 18.11.2006 20:00
Ferguson hrósar sínum mönnum Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd. hrósaði leikmönnum sínum í hástert eftir leikinn gegn Sheffield United í dag og sagði þá hafa sýnt mikinn karakter með því að tryggja sér sigur eftir að hafa lent undir. 18.11.2006 19:30
Markalaust hjá Middlesbrough og Liverpool Útivallagrýla Liverpool hélt áfram í dag þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Middlesbrough á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur nú hlotið tvö stig í sjö útileikjum tímabilsins og skorað í þeim eitt mark. 18.11.2006 19:08
Bayern lagði Stuttgart í toppslagnum Bayern Munchen unnu góðan sigur á Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, 2-1, eftir að hafa lent undir strax á 8. mínútu leiksins. Við tapið féll Stuttgart af toppi deildarinnar en þar situr nú Schalke eftir 4-2 sigur á Engergie Cuttbus. 18.11.2006 18:30
Einvígi Man. Utd. og Chelsea heldur áfram Manchester United heldur toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á nýliðum Sheffield United í dag þar sem Wayne Rooney skoraði bæði mörk Rauðu djöflanna. Meistarar Chelsea fylgja þeim rauðklæddu eins og skugginn en liðið lagði West Ham á Stamford Bridge, 1-0. 18.11.2006 17:10
Sama gamla sagan hjá Arsenal Ófarir Arsenal á hinum nýja heimavelli sínum, Emirates, halda áfram og í dag náði liðið aðeins jafntefli gegn Newcastle. Arsenal sótti án afláts í leiknum og hefði með réttu átt að skora nokkur mörk en eins og í síðustu leikjum gengur liðið herfilega að nýta marktækifærin. 18.11.2006 17:06
Getum vel unnið án Messi og Eto´o Ludovic Giuly, franski sóknarmaðurinn hjá Barcelona, segir að liðið þurfi ekki á auknum liðsstyrk að halda þótt að Lionel Messi og Samuel Eto´o séu frá næstu vikur vegna meiðsla. 18.11.2006 16:30
Messi hefði átt að fara í aðgerð í sumar Læknir argentínska landsliðsins í fótbolta segir nýlegt ristarbrot Lionel Messi ekki hafa komið sér á óvart þar sem hann hefði verið mjög tæpur í fætinum síðustu mánuði. Læknirinn segir Barcelona hafa hunsað ráð sín. 18.11.2006 16:30
Helgi mætir gömlu félögunum í fyrsta leik Örlögin létu til sín taka þegar dregið var í töfluröð fyrir næsta keppnistímabil í fótboltanum hér heima. Í Landsbankadeild karla mun Fram taka á móti Val í fyrsta leik, en sem kunnugt er fór Helgi Sigurðsson í fússi frá Fram til Vals í síðustu viku. Íslandsmeistarar FH mæta ÍA í fyrsta leik á Akranesi. 18.11.2006 16:15
Hermann og Ívar byrja - Brynjar á bekknum Þrír Íslendingar eru í eldlínunni í leik Reading og Charlton í ensku úrvalsdeildinni sem er nýhafinn. Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson er á bekknum. Hjá Charlton er Hermann Hreiðarsson í byrjunarliðinu. 18.11.2006 15:14
Fulham steinlá gegn Manchester City Heiðar Helguson og félagar hans í Fulham réðu ekki feitum hesti frá heimsókn sinni til Manchester í dag og töpuðu 3-1 fyrir heimamönnum í City. Heiðar kom inn á í hálfleik og lagði upp mark Fulham. 18.11.2006 15:06
Gallas nýtur hverrar mínútu Franski varnarmaðurinn William Gallas er hæsta ánægður í herbúðum Arsenal og segist alls ekki sjá eftir því að hafa yfirgefið herbúðir Chelsea í sumar. 18.11.2006 14:30
Wenger leggur áherslu á stöðugleika Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að lið sitt verði að fá stöðugleika í leik sinn ætli sér það að berjast um meistaratitilinn í vetur. Arsenal mætir Newcastle í dag. 18.11.2006 14:15
Wenger og Ferguson minnast Puskas Margir aðilar innan knattspyrnuheimsins hafa vottað Ferenc Puskas virðingu sína í dag, en þessi fyrrum ungverski landsliðsmaður, oft talinn einn besti leikmaður sögunnar, lést sem kunnugt er á föstudag. Alex Ferguson og Arsene Wenger hafa nú tjáð sig um Puskas. 18.11.2006 14:15
Cannavaro verður valinn bestur Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro verður valinn leikmaður ársins af franska fótboltatímaritinu France Football, að því er Ramon Calderon, forseti Real Madrid, heldur fram. 18.11.2006 14:00
Becks stakk af í brúðkaup Cruise David Beckham er sagður vera kominn í ónáð hjá þjálfara sínum hjá Real Madrid, Fabio Capello, fyrir að mæta í brúðkaup kvikmyndaleikarans Tom Cruise. 18.11.2006 12:42
Ferguson skammar enska fjölmiðla Alex Ferguson hefur komið fyrrum aðstoðarmanni sínum hjá Man. Utd. Og núverandi landsliðsþjálfara Englendinga, Steve McLaren, til varnar. Hann segir McLaren fá ósanngjarna meðferð hjá fjölmiðlum. 18.11.2006 12:37
Henry á að fá Gullknöttinn Arsene Wenger segir að Thierry Henry sé að sínu mati verðugasti leikmaðurinn til að verða sæmdur Gullknettinum sem besti knattspyrnumaður Evrópu, en Henry hefur ekki hlotið náð fyrir augum dómnefndar undanfarin ár þrátt fyrir frábær tilþrif. 17.11.2006 22:15
Rustu frá keppni í sex mánuði Rustu Recber, markvörður Fenerbahce og landsliðsmarkvörður Tyrkja, verður frá keppni í um hálft ár eftir að hafa meiðst illa á hné í landsleiknum við Ítali í vikunni. Rustu er 33 ára gamall og það kemur væntanlega í hlut lærisveins hans hjá Fenerbahce - Volkan Demirel - að taka stöðu hans á báðum vígstöðvum. 17.11.2006 20:30
Giggs verður klókari með árunum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir Ryan Giggs hafa breytt leik sínum nokkuð með árunum og nýti sér í síauknum mæli klókindi sín á knattspyrnuvellinum. Giggs er að verða 33 ára gamall, en hefur verið í fantaformi með liðinu í vetur. 17.11.2006 19:15
Niðurstöðu að vænta á miðvikudag Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough fær að vita það á mánudaginn hvort knattspyrnustjóranum Gareth Southgate verði veitt undanþága til að stýra liðinu út leiktíðina án þess að hafa til þess full réttindi. Southgate tók við liðinu í kjölfar þess að Steve McClaren var fenginn til að taka við enska landsliðinu. 17.11.2006 18:12
Andy Johnson á ekki að spila á kantinum David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, sagðist hissa á þeirri ákvörðun Steve McClaren að láta framherjan Andy Johnson spila á kantinum með landsliðinu gegn Hollendingum í vikunni. 17.11.2006 16:24
Hugo Sanchez tekinn við landsliði Mexíkó Mexíkóska knattspyrnugoðsögnin Hugo Sanchez hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Mexíkóa eftir að Ricardo La Volpe sagði af sér eftir HM í sumar. Sanchez er almennt álitinn besti knattspyrnumaður í sögu Mexíkó og skoraði 164 mörk í 240 leikjum fyrir Real Madrid á níunda áratugnum - þegar liðið vann m.a. fimm meistaratitla í röð. 17.11.2006 16:15
Gilberto farinn til Brasilíu Arsenal verður án þeirra Gilberto og Freddie Ljungberg í leiknum gegn Newcastle um helgina. Gilberto er farinn til heimalands síns Brasilíu vegna veikinda í fjölskyldunni, en Ljungberg er enn meiddur á kálfa. Julio Baptista og Jens Lehmann verða þó klárir í slaginn, en Tomas Rosicky verður ekki klár fyrr en eftir um viku og Abou Diaby og Lauren eiga enn langt í land með að ná sér af sínum meiðslum. 17.11.2006 15:59
Wenger íhugar að hvíla Henry Arsene Wenger segir að til greina komi að framherjinn Thierry Henry verði hvíldur um helgina þegar Arsenal tekur á móti Newcastle. Wenger var ekki sáttur við að Raymond Domenech skildi ákveða að láta þá Henry og William Gallas spila allar 90 mínúturnar með franska landsliðinu í vináttuleik við Grikki í vikunni. 17.11.2006 15:45
Ferguson vill hjálpa McClaren Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur ekki verið þekktur fyrir að rétta landsliðsþjálfurum Englands hjálparhönd í gegn um tíðina. Öðru máli virðist gegna um fyrrum aðstoðarmann hans og núverandi landsliðsþjálfara, Steve McClaren. 17.11.2006 15:38
Ronaldinho vill fá Lampard til Barcelona Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona segist ólmur vilja fá enska landsliðsmanninn Frank Lampard til Katalóníu. Lampard skoraði frábært mark í viðureign Chelsea og Barcelona á Nou Camp fyrir skömmu. 17.11.2006 15:29
Kiraly til West Ham Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur fengið markvörðinn Gabor Kiraly til sína að láni í tvær vikur, en þetta kemur nokkuð á óvart þar sem West Ham þótti nokkuð vel sett með þá markverði sem fyrir eru hjá félaginu. Kiraly er þrítugur landsliðsmarkvörður Ungverja og gekk í raðir Crystal Palace árið 2004. 17.11.2006 14:24
Eiður kippir sér ekki upp við ummæli Mourinho Eiður Smári Guðjohnsen lét sér fátt um finnast í dag þegar hann var spurður út í ummæli fyrrum stjóra síns í sinn garð, en Jose Mourinho kallaði hann leikara fyrir leik Barcelona og Chelsea í síðasta mánuði. 17.11.2006 14:16
Puskas látinn Ungverska knattspyrnugoðsögnin Ferenc Puskas er látinn, 79 ára að aldri. Puskas fór fyrir gullaldarliði Ungverja um miðja síðustu öld og vann m.a. þrjá Evrópumeistaratitla með Real Madrid. Puskas hafði dvalið á sjúkrahúsi síðustu 6 ár og var með Alzheimers sjúkdóminn. 17.11.2006 14:07
Vill helst spila í sókninni Hermann Hreiðarsson segir að það sé engin ástæða til að ætla annað en að Charlton komi sér aftur á beinu brautina en liðið situr sem stendur í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. 17.11.2006 12:45
Mikel að eyðileggja feril sinn hjá Chelsea? John Obi Mikel, miðjumaður Chelsea, á það á hættu að eyðileggja feril sinn hjá Chelsea, ef marka má föður leikmannsins, Michael Obi. John Obi Mikel hefur farið illa af stað með Chelsea en hann var rekinn af velli gegn Reading á dögunum og hefur einnig fengið sekt frá félaginu fyrir að mæta of seint á æfingu. 17.11.2006 11:45
Styrkja starfsemi KSÍ í heild sinni Samstarfsaðilar Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, eru sjö talsins. KSÍ hefur tengt slagorðið „Alltaf í boltanum“ við samstarfsaðilana og takmarkið er samkvæmt heimasíðu sambandsins að fyrirtækin sjö verði sýnileg í allri starfsemi KSÍ. 17.11.2006 11:45
Luis Aragones argur eftir tapið gegn Rúmeníu Luis Aragones, landsliðsþjálfari Spánverja, lét hafa eftir sér að hann væri pirraður yfir tapi spænska liðsins gegn Rúmenum í æfingaleik þjóðanna á miðvikudaginn. Leikurinn var á heimavelli Spánverja og endaði með 1-0 sigri Rúmena. 17.11.2006 10:30
Leikur Ameobi á laugardag verður sá síðasti á tímabilinu Á sunnudagsmorgun mun Shola Ameobi fara um borð í flugvél sem flytur hann til Colorado-fylkis í Bandaríkjunum þar sem hann mun gangast undir afar mikilvæga aðgerð. Hann gæti þurft að pína sig áfram upp tröppurnar og móðir hans, sem kemur með honum í ferðina, gæti þurft að hjálpa honum til sætis. 17.11.2006 09:30
Erum ánægðir með hópinn Brasilíski varnarmaðurinn Silvinho hjá Barcelona að leikmenn séu ánægðir með þann hóp leikmanna sem er leikfær í liðinu. Aðeins fjórir sóknarmenn eru í þeim hópi og einn þeirra Eiður Smári Guðjohnsen. 17.11.2006 07:45
Enn með 1,7 milljónir á dag Þó svo að Sven-Göran Eriksson hafi ekki stýrt einum leik síðan að England datt úr leik á HM í Þýskalandi er hann enn með 1,7 milljónir í tekjur á dag frá enska knattspyrnusambandinu. Eru það bætur fyrir það að hann hætti tveimur árum en samningur hans rann út. 17.11.2006 06:45
Arnar Þór framlengir Varnarmaðurinn Arnar Þór Úlfarsson hefur framlengt samning sinn við Fylki til næstu tveggja ára en gamli samningurinn átti að renna út um áramótin. Arnar hefur spilað 39 leiki fyrir Fylki á þremur tímabilum og skorað í þeim tvö mörk. Hann er 26 ára gamall. 17.11.2006 06:30
Eggert leggur inn tilboð í West Ham Búist er við því að Eggert Magnússon og viðskiptafélagar hans muni leggja inn formlegt tilboð í enska knattspyrnuliðið West Ham í dag eða á allra næstu dögum. Talið er að tilboðið hljóði upp á um tíu milljarða íslenskra króna, eða 75 milljónir punda. 17.11.2006 06:15
Valur búinn að kaupa Helga Sigurðsson Lausn fékkst í deilu Helga Sigurðssonar og Fram í gær þegar Valur keypti Helga af Safamýrarliðinu. Kaupverðið er talið vera á milli 4-5 milljónir króna. Samkvæmt heimasíðu Fram tókst samkomulag á milli liðanna í vikunni og Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri rekstrarfélags meistaraflokks Fram, virðist því hafa verið að segja ósatt í samtali við Fréttablaðið á miðvikudagskvöld þegar hann sagði ekkert tilboð vera komið frá Val. 17.11.2006 06:00