Fleiri fréttir

Eiður sagður fara til Mónakó í dag

Eiður Smári Guðjohnsen mun í dag ganga til liðs við franska úrvalsdeildarfélagið AS Monaco, eftir því sem fram kemur í spænska dagblaðinu Marca.

Sigur Ferrari afmælisgjöf til forsetans

Stefano Domenicali, framkvæmdarstjóri Ferrari var að vonum ánægður með fyrsta sigur Ferrari á árinu og hann segir ekkert ákveðið með framtíð Kimi Raikkönen eða Fernando Alonso hjá liðinu.

Hughes: Adebayor er hamingjusamur hjá okkur

Mark Hughes, stjóri Man.City, segir að Emmanuel Adebayor sé farinn að njóta þess að spila fótbolta á ný þar sem hann sé í liði sem hafi möguleika á að gera frábæra hluti. Einnig af því að hann sé að spila fyrir stuðningsmenn sem kunni að meta hann.

Crouch og Brown aftur í landsliðið

Peter Crouch og Wes Brown voru kallaðir á ný í enska landsliðið í kvöld. Þá tilkynnti Fabio Capello landsliðsþjálfari hópinn fyrir vináttuleik gegn Slóvenum og leikinn gegn Króötum í undankeppni HM.

Logi Ólafsson: Þróttur verður auðveld bráð fyrir FH

KR heldur enn í smá von um að stela Íslandsmeistaratitlinum af FH eftir góðan 3-1 sigur á Fram í Vesturbænum í kvöld. Logi Ólafsson, þjálfari KR, gerir þó ekki ráð fyrir því að FH muni misstíga sig gegn Þrótti á morgun.

Eiður ekki í leikmannahópi Barcelona

Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Barcelona sem mætir Sporting Gijon í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar annað kvöld.

F1: Milljarðamæringurinn ánægður með silfrið

Vijay Mallay, eigandi Force India liðsins sem náði öðru sæti í belgíska kappakstrinum í dag er hæstánægður með árangur liðsins. Giancarlo Fisichella frá Ítalíu ók bíl liðsins af kappi en varð að lúta í lægra haldi fyrir Kimi Raikkönen frá Ferrari. Fisichella hafði náð besta tíma í tímatökum, en missti Raikkönen framúr sér.

Umfjöllun: Frábær varnarleikur og naumt tap á móti heimsmeisturunum

Íslenska kvennalandsliðið tapaði 0-1 fyrir Heims- og Evrópumeisturum Þjóðverja í lokaleik leik sínum á Evrópumótinu í Finnlandi í dag. Íslensku stelpurnar spiluðu frábæran varnarleik á móti hinu ósigrandi stórveldi kvennaboltans. Þýska liðið uppskar að lokum aðeins eitt heppnismark á móti baráttuglöðu og einbeittu liði stelpnanna okkar sem voru hvattar áfram af frábærum stuðningsmönnum og fengu tvö flott tækifæri til að jafna leikinn á lokakaflanum.

Sigurður Ragnar: Frammistaða liðsins var mjög góð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, kvennalandsliðsþjálfari, var ánægður með sínar stelpur þrátt fyrir að liðið þyrfti að sætta sig við þriðja tapið í jafnmörgum leikjum í lokaleiknum sínum á EM á móti Þýskalandi í dag.

Villa skellti Fulham

Lokaleikur dagsins í enska boltanum var viðureign Aston Villa og Fulham en leikið var á Villa Park í Birmingham.

Dramatískur sigur hjá Everton

Everton fékk sín fyrstu stig á þessari leiktíð þegar Wigan kom í heimsókn á Goodison Park. Everton vann leikinn, 2-1, með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Framtíð Eiðs Smára skýrist á morgun

Það mun ekki skýrast fyrr en á morgun hver framtíð Eiðs Smára Guðjohnsen verður. Lokadagur félagaskiptagluggans er á morgun og þá kemur í ljós hvort Eiður fari frá Barcelona eða verði áfram í herbúðum félagsins.

Wenger mun fá afsökunarbeiðni

Keith Hackett, yfirmaður dómaramála í Englandi, mun biðja Arsene Wenger, stjóra Arsenal, afsökunar vegna brottvísunarinnar sem hann fékk á Old Trafford í gær.

Raikkönen vann eftir baráttu við Fisichella

Finninn Kimi Raikkönen fagnaði sigri í belgíska kappakstrinium á Spa brautinni í dag eftir harða baráttu við Giancarlo Fisichella, en ekki munaði nema sekúndu á þeim köppum frá upphafi til enda mótsins.

Pesic farinn af Skaganum

Miðjumaðurinn Igor Pesic mun væntanlega ekki leika meira með Skagamönnum í sumar en hann fékk ekki leyfi frá útlendingastofu til að dvelja lengur á landinu.

Aðeins fimm af ellefu fastamönnum í byrjunarliði Þýskalands

Silvia Neid, þjálfari Þýskalands, hefur ákveðið að hvíla sex byrjunarliðsmenn í leiknum á móti Íslandi í dag en þýska liðið hefur þegar tryggt sér sigurinn í riðlinum. Fyrirliðinn Birgit Prinz er þó samt á sínum stað í byrjunarliðinu.

Öll félagaskiptin í þýska handboltanum

Það styttist í að tímabilið í þýska handboltanum hefjist. Meisturum Kiel er spáð sigri eins og oft áður en margir bíða spenntir eftir að sjá lið Rhein-Neckar Löwen sem hefur styrkt sig og meðal annars fengið Ólaf Stefánsson í sínar raðir.

Sigurður Ragnar: Það vilja allir leikmennirnir sanna sig

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, segir að það verði lítið mál að gera íslenska liðið tilbúið í að mæta Heims- og Evrópumeisturum Þýskalands í Tampere í dag þrátt fyrir að möguleikar íslensku stelpnanna að komast í átta liða úrslitin séu úr sögunni.

Haukur Páll lánaður til Noregs

Einn sterkasti leikmaður Þróttar, Haukur Páll Sigurðsson, leikur ekki meira með liðinu í sumar því hann er á leiðinni til Noregs.

Luka Modric fótbrotnaði

Tottenham varð fyrir miklu áfalli í leiknum gegn Birmingham í gær. Króatinn Luka Modric meiddist illa, fótbrotnaði, og verður lengi frá vegna meiðslanna.

Hafnaði Eiður tilboði frá Man. City?

Breska slúðurblaðið The Mirror hélt því fram í gærkvöldi að Eiður Smári Guðjohnsen hefði hafnað tilboði frá Man. City og þremur öðrum enskum félögum.

Katrín: Við vitum að allar þurfa að eiga toppleik

Katrín Jónsdóttir fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins er ein af fáum í íslenska liðinu sem hefur mætt áður Heims- og Evrópumeisturum Þjóðverja. Ísland og Þýskaland mætast í dag í lokaleik stelpnanna okkar á EM í Finnlandi. Leikurinn hefst klukkan 13.00 að íslenskum tíma.

Meistarar og meistaraefnið í vanda á Spa

Formúlu 1 kappaksturinn á Spa brautinni í dag er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11:30 og fremstur á ráslínu er Ítalinn Giancarlo Fisichella og við hlið hans Jarno Trulli frá sama landi.

Umfjöllun: KR neitar að gefast upp

KR ætlar að láta FH hafa fyrir því að verða Íslandsmeistari. KR hélt smá lífi í titilvonum sínum í kvöld með því að leggja Fram í Vesturbænum, 3-1.

Eins marks tap gegn Þjóðverjum

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur lokið keppni á EM í Finnlandi. Lokaleikur liðsins fór fram gegn Þjóðverjum í dag og tapaðist, 1-0.

Sjáið mörkin og tilþrifin á Vísi

Líkt og síðasta vetur mun Vísir bjóða upp á þá frábæru þjónustu að hægt er að sjá mörkin og helstu tilþrifin í leikjum ensku úrvalsdeildarinnar hér á vefnum.

Erlendu blaðamennirnir aðgangsharðir við Margréti Láru

Erlendu blaðamennirnir sem voru mættir á blaðamannafund fyrir leik Íslands og Þýskalands í gær höfðu mun meiri áhuga á að tala við Margréti Láru Viðarsdóttur en landsliðsþjálfarann og Eddu Garðarsdóttur sem voru einnig á fundinum.

Inter kjöldró AC Milan

Það var sannkallaður stórleikur í ítalska boltanum í kvöld þegar Mílanóliðin, Inter og AC Milan, mættust á San Siro.

Rooney: Fletcher var yfirburðamaður á vellinum

Wayne Rooney er ný vítaskytta hjá Man. Utd þar sem Ronaldo er farinn og Carrick klikkaði gegn Burnley. Rooney skoraði úr víti gegn Arsenal í dag og er sáttur við að vera orðin ný vítaskytta liðsins.

Sjá næstu 50 fréttir