Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
LA Clippers - Utah í beinni í nótt Þrettán leikir eru á dagskrá í NBA deildinni í kvöld og verður leikur LA Clippers og Utah Jazz sýndur beint á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 3:30 í nótt. Þá bíður meistara Miami það verðuga verkefni að stöðva 11 leikja sigurgöngu Phoenix Suns og verða meistararnir án Dwyane Wade sem missir af leiknum eftir harkalega heimsókn til tannlæknis. 13.12.2006 22:37
Paul Arizin látinn Bandaríska körfuboltagoðsögnin Paul Arizin sem fyrir nokkrum árum var útnefndur einn af 50 bestu leikmönnum í sögu NBA deildarinnar, lést á heimili sínu í Philadelphia gærkvöldi, 78 ára að aldri. Arizin var kosinn besti leikmaður deildarinnar árið 1952 og var einn fyrsti maðurinn til að notast við stökkskotið á sínum tíma, en það er nú undirstöðuatriði allra körfuboltaiðkenda. 13.12.2006 22:17
Barthez tekur fram hanskana á ný Franski markvörðurinn Fabien Barthez hafði hanska sína ekki lengi á hillunni ef marka má yfirlýsingu frá lögfræðingi markvarðarins í kvöld, en hann greindi frá því að Barthez væri nú við það að undirrita 6 mánaða samning við 1. deildarlið Nantes í heimalandi sínu. Nantes er í miklum vandræðum þessa dagana og er liðið í næst neðsta sæti deildarinnar. 13.12.2006 22:09
Naumur sigur Chelsea á Newcastle Chelsea minnkaði forskot Manchester United niður í fimm stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið vann nauman 1-0 sigur á Newcastle á heimavelli sínum. Arsenal vann sömuleiðis 1-0 útisigur í Wigan í baráttuleik. 13.12.2006 21:56
Stórt tap hjá Haukum Kvennalið Hauka hefur lokið þátttöku sinni í Evrópukeppninni í körfubolta þennan veturinn en í kvöld steinlá liðið á heimavelli fyrir ítalska liðinu Parma 117-58 eftir að hafa verið undir 69-18 í hálfleik. Ifeoma Okonkwo skoraði 19 stig fyrir Hauka og Helena Sverrisdóttir 15 stig. Haukar töpuðu öllum leikjum sínum í riðlinum og eru úr leik, en þetta unga lið hefur sannarlega fengið dýrmæta reynslu úr þessum erfiðu leikjum. 13.12.2006 21:03
Haukar lögðu granna sína í bikarnum 8-liða úrslitum SS bikars karla í handbolta lauk í kvöld með leik FH og Hauka í Hafnarfirði. Það voru Haukarnir sem höfðu betur 38-33 eftir að leiða með 5 mörkum í hálfleik. Haukar eru því komnir í undanúrslit keppninnar ásamt Fram, ÍR og Stjörnunni. 13.12.2006 20:46
Markalaust í hálfleik á Englandi Ekkert mark er enn komið í leikjunum tveimur sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Chelsea tekur á móti Newcastle, þar sem bæði Didier Drogba og Andriy Shevchenko sitja á varamannabekknum og þá tekur Wigan á móti Arsenal. Þá fara fram átta leikir í UEFA keppninni og þar er markalaust í hálfleik hjá Blackburn og franska liðinu Nancy. 13.12.2006 20:41
Ole Gunnar ekki á leið til Sunderland Roy Keane, knattspyrnustjóri Sunderland og fyrrum samherji framherjans Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United, segist ekki vera á höttunum eftir norska framherjanum í janúar eins og breskir fjölmiðlar hafa ritað í dag og í gær. 13.12.2006 18:37
Deisler meiddur enn og aftur Miðjumaðurinn Sebastian Deisler hjá Bayern Munchen spilar ekki meira með liðinu fyrr en eftir vetrarhlé í deildinni eftir að hann reif vöðva í læri á æfingu í dag. Landsliðsmaðurinn hefur aldrei náð sér almennilega á strik með liðinu og hefur þurft í fimm uppskurði á hné vegna þrálátra meiðsla. 13.12.2006 18:32
Sýn hefur beinar útsendingar frá þýska handboltanum Sjónvarpsstöðin Sýn hefur tryggt sér sýningarréttinn frá leikjum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Sýnt verður beint frá öllum helstu leikjunum í þessari sterkustu deildarkeppni í heimi og verður þar kastljósinu beint sérstaklega að Íslendingaliðunum, sem orðin eru ófá. 13.12.2006 17:38
Brassar sækja formlega um HM 2014 Brasilíska knattspyrnusambandið sótti formlega um að halda HM í knattspyrnu þar í landi árið 2014, en það yrði í fyrsta sinn síðan árið 1950 sem keppnin yrði haldin í Brasilíu. Næsta keppni verður haldin í Suður-Afríku árið 2010, en Brassar þykja líklegir til að halda mótið þar á eftir því tilboð granna þeirra í Suður-Ameríku þóttu ekki standast kröfur FIFA. Það kemur svo í ljós í nóvember á næsta ári hver hreppir hnossið. 13.12.2006 17:28
Reo-Coker hefur áhyggjur af framtíðinni Nigel Reo-Coker, fyrirliði West Ham, sagðist í morgun óttast mjög að verða látinn fara frá félaginu í janúar í kjölfar mikillar gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir í vetur. Coker sló í gegn á síðustu leiktíð en hefur ekki náð sér á strik nú og hann óttast að brotthvarf Alan Pardew gæti orðið síðasti naglinn í kistu sína. 13.12.2006 16:52
Titus Bramble laus af sjúkrahúsi Varnarmaðurinn Titus Bramble er nú laus af sjúkrahúsi eftir að hafa legið rúmfastur í sjö daga vegna mikillar bólgu í öðrum fætinum. Bramble meiddist í Evrópuleik Newcastle og Frankfurt á dögunum og í kjölfarið stækkaði kálfi hans tvöfalt vegna dullarfullrar bólgu. Óvíst er talið að Bramble geti spilað á ný fyrr en í janúar vegna þessa. 13.12.2006 16:45
Curbishley tekinn við West Ham Alan Curbishley var í dag ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins West Ham og tekur við starfi Alan Pardew sem rekinn var á dögunum. "Það er frábært að fá mann eins og Alan til starfa hjá félaginu, en hann er maður sem hefur sannað sig sem stjóri og elskar það síðan hann lék með því á árum áður," sagði Eggert Magnússon stjórnarformaður í samtali við breska sjónvarpið. 13.12.2006 15:51
Lakers lagði Houston LA Lakers vann góðan útisigur á Houston Rockets í NBA deildinni í nótt 102-94, en bæði lið voru án lykilmanna. Houston var án Tracy McGrady sem verður frá um óákveðinn tíma vegna bakmeiðsla, en Lamar Odom meiddist á hné hjá Lakers og verður líklega frá í um mánuð. Kobe Bryant skoraði 23 stig fyrir Lakers en Yao Ming var með 26 fyrir Houston. 13.12.2006 13:57
Dregið í riðla í undankeppni EM Íslenska kvennalandsliðið leikur í riðli með Frökkum, Serbum, Grikkjum og Slóvenum í undankeppni EM sem fram fer í Finnlandi árið 2009, en í dag var dregið í undanriðla keppninnar. Undankeppnin hefst í vor og lýkur haustið 2008, en aðeins efsta liðið í hverjum riðli kemst beint áfram í úrslit EM og liðin í 2.-3. sæti komast í umspil. 13.12.2006 13:47
Iverson sagði nei við Charlotte Kapphlaupið um Allen Iverson er nú komið á fullt í NBA deildinni og heimildir frá Bandaríkjunum herma að nú sé eitt félag formlega út úr myndinni í þeim efnum. Philadelphia er sagt hafa samþykkt tilboð frá Charlotte Bobcats í leikmanninn, en þangað vildi hann ekki fara og því varð ekkert af þeim viðskiptum. 12.12.2006 23:30
Paul Pierce brotlenti á fæti Wayne Rooney Framherjinn Paul Pierce hjá Boston Celtics var nálægt því að komast í heimsfréttirnar í gær þegar hann kastaði sér á eftir bolta inn í áhorfendastæðin á leik New York og Boston í NBA deildinni, en þá lenti hann á ristinni á knattspyrnumanninum Wayne Rooney sem sat ásamt unnustu sinni og horfði á leikinn. 12.12.2006 21:58
Vilja að Raikkönen skáli fyrir luktum dyrum Jean Todt, yfirmaður Ferrari liðsins í Formúlu 1, segist ekki hafa neinar áhyggjur af drykkjuvenjum finnska ökuþórsins Kimi Raikkönen sem gengur í raðir liðsins - svo fremi sem hann skáli fyrir luktum dyrum. 12.12.2006 21:40
Renault ætlar ekki að sleppa Alonso Flavio Briatore, liðsstjóri Renault í Formúlu 1, segir ekki koma til greina að liðið leyfi heimsmeistaranum Fernando Alonso að losna undan samningi sínum við liðið fyrr en um leið og hann rennur út um áramótin. Litlir kærleikar eru milli forráðamanna Renault og McLaren, en Alonso gengur til liðs við McLaren um áramót. 12.12.2006 21:30
Sloan kominn í úrvalshóp þjálfara Jerry Sloan, þjálfari Utah Jazz í NBA deildinni, komst í gær í sannkallaðan úrvalshóp þjálfara þegar lið hans burstaði Dallas á heimavelli sínum í Salt Lake City. Þetta var þúsundasti sigurleikur Sloan á ferlinum en aðeins fjórir aðrir þjálfarar hafa náð þeim áfanga. 12.12.2006 21:00
Kóreumenn æfir yfir dómgæslu Fimmfaldir Asíumeistarar í handbolta, Suður-Kóreumenn, eru æfir yfir dómgæslunni í handboltakeppninni á leikunum að þessu sinni og náði gremja þeirra hámarki þegar liðið tapaði 40-28 fyrir Katar í undanúrslitum mótsins. Kóreumenn vilja meina að brögð séu í tafli. 12.12.2006 20:45
Magdeburg skuldar Arnóri rúmar þrjár milljónir Landsliðsmaðurinn í handbolta, Arnór Atlason, markahæsti leikmaðurinn í dönsku úrvalsdeildinni, segir að fyrrverandi félag hans, Magdeburg í Þýskalandi, skuldi honum þrjár og hálfa milljón króna samkvæmt starfslokasamningi en þýska félagið neitar að borga. 12.12.2006 19:46
Þórólfur orðaður við KSÍ Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi framkvæmdastjóri Skýrr, er nefndur til sögunnar sem næsti formaður KSÍ. Þórólfur neitar því hvorki né játar að hann sé á leið í framboð. Þorsteinn Gunnarsson greindi frá þessu í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. 12.12.2006 19:43
Curbishley sagður taka við West Ham Heimildarmenn breska sjónvarpssins fullyrða að forráðamenn West Ham muni ganga frá ráðningu Alan Curbishley í starf knattspyrnustjóra á morgun eða fimmtudag. Curbishley hefur þegar lýst yfir áhuga sínum á að taka við starfinu og staðfest hefur verið að hann hafi fundað með Eggerti Magnússyni stjórnarformanni, þar sem sagt er að viðræður hafi gengið vel. 12.12.2006 19:31
Leikmenn eru enn að jafna sig eftir HM Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segir að það taki menn sex mánuði að jafna sig eftir vonbrigðin á HM í sumar. Hann á von á því að sjá lykilmenn enska landsliðsins, sem og annara þjóða, slá í gegn eftir áramót. 12.12.2006 17:45
Shevchenko mun aldrei leika vel á Englandi Tony Cascarino, fyrrum leikmaður Chelsea, segir að Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko muni aldrei ná sér á strik með Chelsea og segir að ferill hans verði rjúkandi rúst ef hann komi sér ekki frá Englandi. 12.12.2006 17:30
Reyes vill mæta Arsenal í Meistaradeildinni Spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes hjá Arsenal, sem nú leikur sem lánsmaður hjá Real Madrid, segist óska þess að liðin lendi saman í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 12.12.2006 16:45
Börsungar með flugþreytu Spænski landsliðsmaðurinn Xavi segir að leikmenn Barcelona eigi erfitt með að jafna sig af flugþreytu eftir erfiðan leik í spænsku deildinni um helgina og langt og strangt flug til Japan þar sem liðið spilar á HM félagsliða. Liðið mætir America í undanúrslitum mótsins á fimmtudagsmorguninn og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. 12.12.2006 15:55
Stóð aldrei til að fara til Barcelona Sænski framherjinn Henrik Larsson byrjar að æfa með Manchester United á sunnudaginn en félagið gekk á dögunum frá lánssamningi við hann frá sænska liðinu Helsingborg. Larsson neitar því að til hafi staðið að fara til Barcelona eins og spænskir fjölmiðlar höfðu haldið fram í haust. 12.12.2006 15:50
Henry líklega frá keppni út árið Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist óttast að framherjinn Thierry Henry verði frá keppni alla jólavertíðina vegna meiðsla. Sögusagnir hafa verið á kreiki um að Henry sé ekki meiddur heldur eigi hann í deilum við stjóra sinn og stjórn félagsins, en Wenger segir að hann sé bæði meiddur á hálsi og á læri. 12.12.2006 15:44
Gamli boltinn notaður á ný í janúar David Stern, yfirmaður NBA deildarinnar í körfubolta, hefur nú viðurkennt ósigur sinn og staðfesti í gær að gamli leðurboltinn verði tekinn fram að ný þann 1. janúar næstkomandi eftir að allar helstu stjörnur deildarinnar lýstu yfir óánægju sinni með nýja gerviefnaboltann. 12.12.2006 15:38
Cech vonast til að hefja æfingar í janúar Tékkneski landsliðsmarkvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea segist vonast til að geta hafið æfingar á fullu á ný í janúar eftir að hafa höfuðkúpubrotnað í leik gegn Reading um miðjan október. Sár hans eru enn ekki gróin að fullu, en hann segir líðan sína betri með hverjum deginum. 12.12.2006 15:34
Dowie í viðræðum við Hull City Ian Dowie þykir nú líklegastur til að taka við 1. deildarliðinu Hull af Phil Parkinson eftir að hann átti viðræður við félagið í dag. Dowie hefur verið atvinnulaus síðan hann varð fyrsti stjórinn sem látinn var taka pokann sinn í ensku úrvalsdeildinni í haust. 12.12.2006 15:27
Bann Henchoz stendur Aganefnd enska knattspyrnusambandsins vísaði í dag frá áfrýjun Blackburn á rauða spjaldið sem varnarmaðurinn Stephane Henchoz fékk að líta í leik gegn Newcastle á laugardaginn. Henchoz fer því í eins leiks bann og missir af leik gegn Reading umnæstu helgi. 12.12.2006 15:24
Spánarslagur í 8-liða úrslitunum Í morgun var dregið í 8-liða úrslit í Evrópukeppnunum í handbolta, en þar eru nokkrir íslenskir leikmenn í eldlínunni. Núverandi Evrópumeistararnir í Ciudad Real, liði Ólafs Stefánssonar, mæta löndum sínum í Portland San Antonio í þessari umferð. 12.12.2006 14:43
Curbishley sterklega orðaður við West Ham Knattspyrnustjórinn Alan Curbishley hefur viðurkennt að hann hafi mikinn áhuga á að taka við liði West Ham, en hann staðfesti í dag að forráðamenn félagsins hefðu verið í sambandi við sig. Curbishley spilaði með West Ham sem leikmaður á áttunda áratugnum og segir að það yrði "mikill heiður" fyrir sig ef honum yrði boðið starfið. 12.12.2006 14:40
Ellefu sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix vann í nótt ellefta leik sinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Orlando á útivelli 103-89. Amare Stoudemire skoraði 30 stig fyrir Phoenix í leiknum. Þá vann Utah auðveldan sigur á Dallas 101-79 og færði Jerry Sloan þjálfara þúsundasta sigurleikinn á ferlinum. Carlos Boozer skoraði 31 stig og hirti 11 fráköst fyrir Utah, en Dirk Nowitzki skoraði 26 stig og hirti 10 fráköst fyrir Dallas. 12.12.2006 14:32
Orlando - Phoenix í beinni á miðnætti Það má reikna með fyrsta flokks skemmtun á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld þar sem leikur kvöldsins verður viðureign Orlando Magic og Phoenix Suns. Leikurinn hefst á miðnætti og fróðlegt verður að sjá hvernig heitasta liðinu í NBA í dag, Phoenix, vegnar gegn ungu og skemmtilegu liði Orlando. 11.12.2006 22:20
ÍS lagði Breiðablik Einn leik fór fram í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. Stúdínur unnu sigur á botnliði Breiðabliks 74-62 í Kennaraháskólanum. Þórunn Bjarnadóttir skoraði 16 stig fyrir ÍS, Hafdís Helgadóttir 15 stig og hirti 10 fráköst og Anabel Perdomo skoraði 13 stig og gaf 14 stoðsendingar. Tiara Harris skoraði 23 stig fyrir Blika, sem eru á botni deildarinnar án stiga en Stúdínur eru í 4. sæti með 8 stig. 11.12.2006 22:10
Jafnt hjá Sheffield United og Aston Villa Nýliðar Sheffield United og Aston Villa gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik á Bramall Lane í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn var mjög kaflaskiptur þar sem fyrri hálfleikurinn var eign gestanna en heimamenn í United voru sterkari aðilinn í þeim síðari. 11.12.2006 22:02
Marwijk hættir hjá Dortmund Þýska knattspyrnufélagið Dortmund hefur tilkynnt að þjálfari liðsins Bert van Marwijk muni láta af störfum í lok leiktíðar í vor en þetta er aðeins eitt atvik í röð furðufrétta frá Dortmund á undanförnum mánuðum. Þetta stóra félag berst nú í bökkum fjárhagslega og er í alla staði skugginn af sjálfu sér. 11.12.2006 20:30
Þjóðverjar sigruðu á heimsmótinu Þjóðverjar fögnuðu sigri á heimsmótinu í golfi sem lauk á Barbados eyjum í gærkvöldi eftir spennandi lokasprett gegn Skotum en bráðabana þurfti til að skera úr um úrslit. 11.12.2006 19:51
America áfram í HM félagsliða America frá Mexíkó tryggði sér í dag ferseðilinn í undanúrslit á heimsmeistaramóti félagsliða í knattspyrnu þar sem liðið mætir Evrópumeisturum Barcelona. 11.12.2006 19:47
Joe Cole úr leik út árið Enski landsliðsmaðurinn Joe Cole verður ekki með Chelsea í jólatörninni í ensku úrvalsdeildinni eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í öðrum fætinum. Cole hefur aðeins verið þrisvar í byrjunarliði Chelsea í vetur vegna meiðsla og búist er við að hann verði frá æfingum í að minnsta kosti þrjár vikur vegna þessa. 11.12.2006 18:29
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn