Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vekur reiði samkynhneigðra Fyrrum landsliðsmaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United hefur vakið upp nokkra gremju meðal baráttumanna fyrir jafnrétti samkynhneigðra eftir að hann var sakaður um að hafa látið niðrandi orð um samkynhneigða falla í kjölfar þess að hann var spjaldaður í leiknum gegn Benfica í meistaradeildinni í gær. 27.9.2006 16:34
Ætlar að skála í kvöld Ítalski landsliðsmaðurinn Francesco Totti hjá Roma vill ólmur næla í þrjú stig með liði sínu þegar það sækir Valencia heim í D-riðli meistaradeildarinnar í kvöld, því hann segist vilja skála við félaga sína í fluginu heim til Ítalíu og halda þannig upp á þrítugsafmæli sitt sem er í dag. 27.9.2006 16:28
Vill afnema vítakeppnir á HM Sepp Blatter segir að vítaspyrnukeppnir ættu ekki að ráða úrslitum á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu og vill afleggja þennan sið. Hann virðukennir að það kunni að taka langan tíma, en vill umfram allt finna aðra leið til að skera úr um úrslit leikja. 27.9.2006 16:16
Schumacher er fjórum sinnum vinsælli en Alonso Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er fjórum sinnum vinsælli meðal áhugamanna í greininni en heimsmeistarinn Fernando Alonso. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Alþjóða Akstursíþróttasambandið lét gera á dögunum. 27.9.2006 15:32
Deildin byrjar á stórleik DHL-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Fyrsti leikur tímabilsins er stórleikur í Ásgarði þar sem bikarmeistarar Stjörnnunar mæta Íslandsmeisturum Fram og hefst leikurinn kl. 19:00. Í Austurbergi mætast ÍR og Haukar og hefst sá leikur kl. 20:00. 27.9.2006 15:30
Titus Bramble heldur sæti sínu Hinn seinheppni varnarmaður Newcastle, Titus Bramble, heldur sæti sínu í liðinu fyrir Evrópuleikinn gegn Levadia Tallinn. Bramble varð þess vafasama heiðurs aðnjótandi að hafa verið valinn í lið vikunnar, hjá ESPN, eftir síðasta leik gegn Everton. Hið vafasama er hann var valinn í liðið fyrir hönd andstæðinga sinna í leiknum, en hann þótti hafa verið besti leikmaður Everton í leiknum. 27.9.2006 14:45
Yfirtökutal hefur truflandi áhrif á liðið Alan Pardew segir að endalausar vangaveltur um að gert verði yfirtökutilboð í knattspyrnufélagið West Ham séu farnar að hafa truflandi áhrif á liðið. West Ham hefur gengið afleitlega síðan Argentínumennirnir Javier Mascherano og Carlos Tevez gengu í raðir félagsins á sínum tíma, en síðan hefur aðeins einn sigur unnist. 27.9.2006 14:43
Barclays framlengir styrktarsamning Barclays bankinn hefur framlengt styrktarsamning sinn við ensku úrvalsdeildina til ársins 2010, en þetta er tveggja ára framlenging á gildandi samningi. Þetta mun færa deildinni tæpar 66 milljónir punda í tekjur. 27.9.2006 14:38
Lætur ummæli þjálfara Levski Sofia ekki á sig fá Stanimir Stoilov, knattspyrnustjóri Levski Sofia, lét hafa eftir sér að Chelsea spilaði ekki nálægt því eins fallega knattspyrnu og Evrópumeistarara Barcelona, en Jose Mourinho segist ekki taka þetta nærri sér. 27.9.2006 14:30
KFÍ fær atvinnuleyfi fyrir 2 leikmenn og þjálfara Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar hefur fengið atvinnuleyfi fyrir tvo leikmenn og þjálfara frá fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu. Mennirnir koma frá Serbíu og Makedóníu en Vinnumálastofnun hafði áður synjað umsókn félagsins um atvinnuleyfi fyrir þá. 27.9.2006 14:00
HK lagði ÍBV Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð DHL deildar kvenna í handknattleik í kvöld. HK lagði ÍBV nokkuð óvænt í Digranesi 27-24, Grótta lagði FH 26-20 og þá gerðu Reykjavíkurliðin Valur og fram jafntefli 25-25. 26.9.2006 22:24
Sjálfstraust leikmanna vex stöðugt Arsene Wenger segir að 2-0 sigur Arsenal á Porto í kvöld beri þess merki að sjálfstraust leikmanna sé að vaxa til muna og að liðið sé nú að finna taktinn eftir fremur dapra byrjun á leiktíðinni. 26.9.2006 21:57
Mark Saha var frábært Sir Alex Ferguson sá aðeins það jákvæða við leik sinna manna í sigrinum á Benfica í meistaradeildinni í kvöld og hrósaði frábæru einstaklingsframtaki Louis Saha sem á endanum réði úrslitum í leiknum. 26.9.2006 21:38
Einstaklingsframtak Saha tryggði United sigur Franski framherjinn Louis Saha skoraði eina mark leiksins þegar Manchester United náði fram hefndum á Benfica og kom sér í góð mál í riðli sínum með 1-0 sigri. Enska liðið var fjarri sínu besta í leiknum, en Cristiano Ronaldo var maður vallarins og í raun eini maðurinn sem spilaði vel í kvöld. 26.9.2006 20:52
Hættið að reyna að vera Roy Keane Framherjinn Dwight Yorke hefur skorað á félaga sína í liði Sunderland að hætta að reyna að vera Roy Keane á knattspyrnuvellinum með því að tækla í allar áttir eins og óðir menn. Sunderland tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Keane um helgina og þótti Yorke félagar sínir taka full harkalega á andstæðingunum. 26.9.2006 20:00
Real í góðum málum Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í meistaradeildinni. Ekkert mark hefur verið skorað í leik Benfica og Manchester United, þar sem gestirnir frá Englandi hafa verið hreint út sagt lélegir. Betur gengur hjá Arsenal, þar sem fyrirliðinn Thierry Henry hefur komið liðinu yfir gegn Porto á Emirates vellinum. Þá hafa þeir Ruud van Nistelrooy, Jose Antonio Reyes og Raul komið Real Madrid í 3-0 gegn Dynamo frá Kænugarði. 26.9.2006 19:24
CSKA lagði Hamburg Rússneska liðið CSKA frá Moskvu lagði þýska liðið Hamburg 1-0 í kvöld í fyrsta leiknum sem fram fór í meistaradeildinni. Það var Brasilíumaðurinn Dudu sem skoraði sigurmark CSKA á 59. mínútu og varamaðurinn Benjamin Lauth fékk að líta rauða spjaldið í liði Hamburg aðeins 6 mínútum eftir að honum var skipt inn á. Hamburg hefur því tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í G-riðlinum, þar sem liðið leikur ásamt CSKA, Arsenal og Porto. 26.9.2006 18:37
Tvær breytingar hjá United Sir Alex Ferguson hefur gert tvær breytingar á liði sínu frá leiknum gegn Reading fyrir einvígið gegn Benfica í Portúgal sem er að hefjast í beinni á Sýn nú klukkan 18:45. John O´Shea og Louis Saha koma inn í liðið á ný og þá er Alan Smith á varamannabekknum og gæti spilað sinn fyrsta leik síðan hann fótbrotnaði illa á síðustu leiktíð. 26.9.2006 18:24
Martröðin heldur áfram hjá Delaney Meiðslakálfurinn Mark Delaney hjá Aston Villa þarf enn að bíða eftir því að geta unnið sér sæti í liðinu eftir að í ljós kom að hann þarf að fara í annan hnéuppskurðinn á skömmum tíma. Delaney gat lítið sem ekkert spilað með Villa á síðustu leiktíð, en spilaði landsleik fyrir Wales í síðasta mánuði. Það vildi ekki betur til en að nú þarf kappinn í uppskurð á ný. 26.9.2006 18:15
Á von á stórleik frá Rooney og Ronaldo Alex Ferguson á von á stórleik frá þeim Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney í meistaradeildinni í kvöld þegar Manchester United sækir Benfica heim, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst útsending klukkan 18:30. 26.9.2006 17:45
Ég verð að dreifa álaginu Rafa Benitez hefur nú enn á ný þurft að bera hendur fyrir höfuð sér vegna sífelldra breytinga sem hann gerir á byrjunarliði Liverpool, en ljóst þykir að hann muni stokka upp í hópnum fyrir leikinn gegn Galatasaray annað kvöld og verður það 93. leikurinn í röð þar sem Liverpool teflir fram breyttu byrjunarliði. 26.9.2006 17:15
Landsliðsferlillinn virðist vera búinn Ruud Van Nistelrooy segir það skrítna tilfinningu að tala um feril sinn sem landsliðsmaður í þátíð, en hann á alls ekki von á því að fá að spila annan landsleik undir stjórn núverandi landsliðsþjálfara, Marco Van Basten. 26.9.2006 16:45
Benfica - Man Utd í beinni á Sýn í kvöld Það verður mikið um dýrðir á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld eins og venjulega þegar spilað er í meistaradeild Evrópu. Aðalleikur kvöldsins verður viðureign Benfica og Manchester United sem sýndur er á Sýn, en auk þess verða leikir Arsenal - Porto og Real Madrid og Dynamo Kiev sýndir beint á aukarásum Sýnar klukkan 18:30. 26.9.2006 16:19
Spike Lee leikstýrir auglýsingu fyrir Dwyane Wade Kvikmyndaleikstjórinn og körfuboltaáhugamaðurinn Spike Lee hefur nú lokið tökum á nýjustu auglýsingaherferð fyrir nýja Converse-skó sem Dwyane Wade hjá Miami Heat mun nota á næsta tímabili. Wade var kjörinn verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna í NBA í sumar þegar lið Miami vann meistaratitilinn. 26.9.2006 16:08
Björgólfur bestur í síðustu umferðunum Framherjinn Björgólfur Takefusa hjá KR var í dag útnefndur besti leikmaður 13.-18 umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Teitur Þórðarson hjá KR var kjörinn besti þjálfarinn og Garðar Örn Hinriksson var kjörinn besti dómarinn. Þá þóttu stuðningsmenn Víkings þeir bestu í síðustu umferðunum og Skagamenn áttu flesta leikmenn í úrvali umferðanna. 26.9.2006 15:52
Ætlar að berjast fyrir ferlinum Kevin Bond, fyrrverandi aðstoðamaður Glen Roeder, sem var rekin í dag af Newcastle, segir félagið ekki hafa farið nógu vel yfir málið áður en ákveðið var að láta hann fara. 26.9.2006 15:45
Renault segir pressuna mikla á Schumacher Pat Symonds, yfirmaður tæknimála hjá Renault, segir að Fernando Alonso standist pressu betur en Michael Schumacher og telur meistaralið Renault eiga betri möguleika til að ná góðum árangir um næstu helgi þegar keppt verður í Kína. 26.9.2006 15:29
Umboðsmaður Cole settur í bann og sektaður Jonathan Barnett, umboðsmaður Ashley Cole hjá Chelsea, hefur verið settur í 18 mánaða bann, þar af 9 skilorðsbundna, fyrir þátt sinn í því þegar Chelsea ræddi ólöglega við leikmanninn þegar hann var samningsbundinn Arsenal á sínum tíma. Cole og Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hafa þegar tekið út refsingu sína vegna þessa. Barnett var auk þessa gert að greiða 100 þúsund punda sekt. 26.9.2006 15:24
Newcastle að landa Waterreus Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle er nú við það að landa til sín fyrrum landsliðsmarkverði Hollendinga, Ronald Waterreus, sem áður lék m.a. með Celtic og Manchester City. Waterreus er 36 ára gamall og verður ætlað að vera varamarkvörður Steve Harper sem fyllir skarð Shay Given eftir að sá þurfti í uppskurð á dögunum. 26.9.2006 14:50
Meistaradeildin er óklárað verkefni Arsene Wenger segir hungur í velgengni í meistaradeildinni svo mikið að það yrði ekki nóg fyrir sig að vinna keppnina þrjú ár í röð. Arsenal krækti í silfurverðlaun á síðustu leiktíð, en það er fjarri því að nægja Wenger. Arsenal mætir Porto í keppninni í kvöld og verður leikurinn í beinni á Sýn Extra klukkan 18:30. 26.9.2006 14:40
Ólafur Jóhannesson er besti þjálfarinn Ólafur Jóhannesson er besti þjálfarinn í Landsbankadeild karla að mati íþróttafréttamanna Sýnar og Fréttablaðsins , en Ólafur skrifaði undir nýjan eins árs samning við FH - inga í gær. Næstir í kjörinu voru Teitur Þórðarson þjálfari KR - inga og bræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir. 26.9.2006 14:11
Handboltinn byrjar í kvöld Íslandsmótið í handbolta DHL - deild kvenna hefst í kvöld með þremur leikjum. Stjarnan verður Íslandsmeistari samkvæmt spá forráðamanna liðanna sem birt var í gær og Haukar verða í öðru sæti. Valur, sem spáð er þriðja sæti, tekur á móti Fram klukkan átta í Laugardalshöll. ÍBV, sem lendir í fjórða sæti samkvæmt spánni, mætir HK á útivelli og þá mætast Grótta og FH , en þessir leikir hefjast klukkan sjö. Keppni í karlaflokki hefst annað kvöld , en þar er Valsmönnum spáð titlinum. 26.9.2006 13:54
Mannabreytingar hjá ÍA Ný rekstrarstjórn hefur tekið við ÍA en fráfarandi stjórn hefur óskað eftir því að vera leyst undan störfum. Félagið sendi frá sér fréttatilkynningu þessa efnis nú fyrir skömmu. 26.9.2006 13:15
Liverpool býr sig undir átökin Það var létt yfir leikmönnum Liverpool á æfingu í morgun. Þeir eru að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Galatasaray í C-riðli Meistaradeildar Evrópu sem fram fer á Anfield á morgun. Þessar myndir voru teknar af ljósmyndurum AP fréttastofunnar í morgun. 26.9.2006 12:15
Newcastle rekur Kevin Bond Kevin Bond, aðstoðarmaður Glen Roeder knattspyrnustjóra Newcastle, hefur verið leystur frá störfum. Brottreksturinn kemur í kjölfar ásakana sem fram komu í heimildaþættinum Panorama á BBC í síðustu viku. Bond var ráðinn til starfa í júlí mánuði síðastliðnum. 26.9.2006 11:13
Newcastle vill fá Hedman Aftonbladet greindi frá því í gær að Newcastle hefði sett sig í samband við fyrrum sænska landsliðsmarkvörðinn Magnus Hedman sem lagði skóna á hilluna fyrir fimmtán mánuðum. Hedman er 33 ára gamall og fyrirspurnin kom honum algerlega í opna skjöldu. ¿Ég átti ekki von á því að fólk myndi eftir mér þar sem ég hef ekki spilað lengi,¿ sagði Hedman. Shay Given lagðist nýverið undir hnífinn og verður frá í sex vikur. 26.9.2006 06:00
Dani genginn í raðir félagsins Valsmenn eru ekkert að bíða með að bæta við sig mannskap fyrir næsta sumar í Landsbankadeild karla því að í gær gekk félagið frá tveggja ára samningi við danska leikmanninn Rene Carlsen. 26.9.2006 06:00
Vill til Noregs eða Danmerkur Dusan Djuric, leikmaður Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni, telur ferli sínum best borgið ef hann fer til félags utan eigin heimalands. Hann hefur verið orðaður við AIK, efsta félagið í deildinni, en þangað vill hann ekki fara. "Ég vil frekar fara til eitt af betri félögunum í Noregi eða Danmörku. Til dæmis FC Kaupmannahöfn, það væri gott skref fyrir mig," sagði Djuric sem er 22 ára gamall og hefur leikið einn leik með sænska A-landsliðinu. 26.9.2006 06:00
Manchester United vill hefna ófara síðasta árs Árið 1966 skoraði átján ára unglingur að nafni George Best þrennu fyrir Manchester United gegn portúgalska liðinu Benfica í Evrópukeppni meistaraliða. Þá þaggaði hann í áhorfendum á leikvangi ljóssins í Portúgal sem fyrir rest stóðu upp og hylltu afrek hans. Tveimur árum síðar skoraði hann aftur gegn liðinu, þá í úrslitaleik keppninnar og tryggði ensku liði í fyrsta sinn Evrópumeistaratitil. 26.9.2006 06:00
Gladbach og Aachen sektuð Þýsku úrvalsdeildarfélögin Aachen og Borussia Mönchengladbach hafa verið sektuð af þýska knattspyrnusambandinu eftir að stuðningsmenn liðanna viðhöfðu niðrandi ummæli sem fólu í sér kynþáttafordóma um leikmennina í leik liðanna. Aachen var sektað um 6,75 milljónir króna og Gladbach um 2,25 milljónir. FH var í sumar sektað um 30 þúsund krónur fyrir samskonar atvik í leik liðsins gegn ÍBV. 26.9.2006 06:00
Í dái og berst fyrir lífi sínu Dario Silva, fyrrum leikmaður Portsmouth og úrúgvæska landsliðsins, lenti nýverið í bílslysi í heimalandi sínu og er illa haldinn. Hann hefur þegar gengist undir aðgerð og er haldið sofandi en læknir á spítalanum þar sem Silva dvelst sagði hann berjast fyrir lífi sínu þessa stundina. Fyrrverandi landsliðsfélagar Silva, Elbio Pappa og Dardo Pereira, voru einnig í bílnum en sluppu með minni háttar meiðsli. Silva keppti á HM 2002 með landsliði sínu en yfirgaf Portsmouth í febrúar síðastliðnum og er ekki bundinn neinu félagi eins og er. 26.9.2006 06:00
50 grunsamleg félagaskipti Fyrr á árinu réð enska knattspyrnusambandið fyrrum yfirmann Lundúnalögreglunnar, Stevens lávarð, til að rannsaka ásakanir um mútugreiðslur í tengslum við félagaskipti leikmanna. Greint var frá því um helgina að rannsókn Stevens hefði leitt í ljós 50 grunsamleg félagaskipti sem skoða þyrfti nánar. Alls voru 362 félagaskipti skoðuð. Niðurstöðu rannsóknarinnar er að vænta á mánudag. 26.9.2006 06:00
Pabbinn nýbakaði var hvíldur Svíinn Zlatan Ibrahimovic var hvíldur um helgina er Inter vann Chievo, 4-3, í ítölsku úrvalsdeildinni í fyrradag. Á föstudag fæddist honum sonur sem var nefndur Maximilian og ákvað Roberto Mancini, þjálfari Inter, að hvíla hann í leiknum. Mino Raiola, umboðsmaður Zlatan, sagði að það hefði engum tilgangi þjónað. "Hann er ekki þreyttur enda var það ekki hann sem fæddi barnið," sagði Raiola. 26.9.2006 06:00
Valsmönnum spáð sigri Valur og Stjarnan munu standa uppi sem sigurvegarar í DHL-deild karla og kvenna ef spár forráðamanna og fyrirliða liða í deildunum rætast. Átta lið mæta til leiks í 1. deild karla og þar er Aftureldingu og FH spáð í 1. og 2. sætið. 26.9.2006 06:00
Björgólfur og Ólafur bestir Íþróttafréttamenn Fréttablaðsins og Sýnar völdu í gærkvöld í sérstökum Landsbankadeildarþætti á Sýn bestu einstaklingana í síðari hluta Íslandsmótsins. 26.9.2006 06:00