Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framlengir samning sinn við Atletico Madrid Framherjinn skæði Fernando Torres hefur samþykkt að framlengja samning sinn við Atletico Madrid um eitt ár, eða til ársins 2009. Torres er 22 ára gamall og hefur um árabil verið einn eftirsóttasti framherji Evrópu, en hann er staðráðinn í að vera áfram í herbúðum Madrídarliðsins. Torres mun undirrita nýja samninginn þegar hann snýr aftur frá Norður-Írlandi með spænska landsliðinu í vikunni. 4.9.2006 17:30
Vetrarhlé yrði ensku deildinni til framdráttar Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur nú enn á ný látið þá skoðun sína í ljós að vetrarhlé myndi gera ensku knattspyrnunni gott, en slíkt hlé tíðkast víða á meginlandi Evrópu. Ferguson segir upplagt að hafa þriggja vikna frí í upphafi janúar og spila frekar út maí í staðinn. 4.9.2006 16:39
Rio Ferdinand er klár í slaginn Steve McClaren hefur staðfest að varnarmaðurinn Rio Ferdinand sé orðinn góður af meiðslum sínum og geti því leikið gegn Makedónum í undankeppni EM á miðvikudaginn. Þær fréttir voru þó að berast úr enska hópnum að þeir Luke Young og Chris Kirkland muni ekki fara með liðinu til Makedóníu vegna meiðsla. 4.9.2006 16:27
Finnarnir að lenda Finnska landsliðið í körfuknattleik kemur hingað til lands í dag og hefur undirbúning sinn fyrir leikinn við Ísland í B-deild Evrópumótsins á miðvikudagskvöld. Finnar ætla sér góðan tíma í undirbúninginn og ætla sér sigur, en lögðu íslenska liðið á Norðurlandamótinu í haust. Þar var íslenska liðið ekki með nokkra af sínum bestu leikmönnum, en annað verður uppi á teningnum á miðvikudagskvöldið. 4.9.2006 16:17
Ronaldinho byrjar gegn Wales Snillingurinn Ronaldinho verður í byrjunarliði Brasilíumanna annað kvöld þegar liðið tekur á móti Wales í æfingaleik á White Hart Lane í Lundúnum og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:20. Brasilíumenn eru í miklu stuði þessa dagana og unnu granna sína frá Argentínu 3-0 í æfingaleik í London um helgina, en sá leikur var einstaklega skemmtilegur og var einnig sýndur beint á Sýn. 4.9.2006 15:44
Owen undir hnífinn Enski landsliðsmaðurinn Michael Owen er nú á leið til Bandaríkjanna þar sem hann mun gangast undir aðgerð á hné. Owen hefur lítið getað spilað síðasta ár vegna meiðsla og fastlega er reiknað með því að hann verði frá keppni lengst af þessari leiktíð. 4.9.2006 15:38
Undankeppni EM er gölluð Chris Waddle, fyrrum leikmaður enska landsliðsins í knattspyrnu, segir að riðlakeppnin í forkeppni EM sé gölluð, því lélegar smáþjóðir eins og Andorra séu að eyða tíma sterkari liðanna. Enska landsliðið lagði Andorra 5-0 um helgina og á tíðum var leikurinn hreint út sagt hallærislegur á að horfa. 4.9.2006 15:17
Fjölmiðlar blésu upp of miklar væntingar Lawrie Sanchez segir að fjölmiðlar á Norður-Írlandi hafi gengið of langt í að byggja upp falsvonir hjá stuðningsmönnum landsliðsins fyrir leikinn gegn Íslendingum um helgina og segist sjálfur ekki hafa verið með neinar falsvonir því liðin tvö séu áþekk að styrkleika. 4.9.2006 14:15
Vilja fá Larsson til baka Forráðamenn Barcelona vilja ólmir fá hinn sænska Henrik Larsson til baka til félagsins, þó ekki til að spila með liðinu heldur til að að gefa honum og stuðningsmönnum félagsins tækifæri til að kveðjast formlega. Larsson komst í sögubækur félagsins með innkomu sinni í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð þar sem hann lagði upp bæði mörk Barca gegn Arsenal en sneri til Helsingborgar í heimalandi sínu í sumar. 4.9.2006 00:00
Þiggur ekki laun frá Real Madrid Zinedine Zidane, fyrrum fyrirliði franska landsliðsins og leikmaður Real Madrid, neitar að taka við launagreiðslum frá Real Madrid þótt hann eigi fullan rétt á þeim. Zidane ákvað sem kunnugt er að leggja skóna á hilluna í sumar þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningi sínum við Real og ákvað spænska félagið að verða við þeirri ósk snillingsins gegn því að hann ynni sem útsendari og sendiherra fyrir félagið á þessu keppnistímabili. 4.9.2006 00:00
Ben Thatcher slapp vel Pedro Mendes segist vera búinn að fyrirgefa Ben Thatcher hjá Manchester City fyrir líkamsárásina á dögunum, en segir að leikmaðurinn hafi sloppið ansi vel með það sex leikja bann sem hann fékk frá félaginu í kjölfarið. 3.9.2006 21:00
Engin vandræði í okkar herbúðum Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids hjá Tottenham hefur vísað fregnum um slagsmál í búningsherbergjum liðsins á bug, en talað var um að hann og Didier Zokora hefðu flogist á eftir hörmulega frammistöðu liðsins í tapleik gegn Everton um síðustu helgi. 3.9.2006 20:15
Agassi lýkur keppni Bandaríski tennisleikarinn Andre Agassi datt úr leik í þriðju umferð opna bandaríska meistaramótsins í tennis í dag þegar hann tapaði fyrir Þjóðverjanum Benjamin Becker 5-7, 7-6 (7-4), 4-6 og 5-7. Þetta varð fyrir vikið síðasti leikur Agassi á tennisvellinum, því hann hafði áður lýst því yfir að hann ætlaði að leggja spaðann á hilluna að mótinu loknu eftir 21 ár í baráttunni. 3.9.2006 19:17
Beckham hefur ekki sagt sitt síðasta Jonathan Woodgate, félagi David Beckham hjá Real Madrid, segir að dagar félaga síns hjá landsliðinu séu hvergi nærri taldir. Beckham hefur ekki verið í landsliðinu síðan hann afsalaði sér fyrirliðabandinu eftir HM og Steve McClaren tók við stjórnartaumunum. 3.9.2006 18:44
Sebastien Loeb í metabækurnar Franski ökuþórinn Sebastien Loeb komst í metabækurnar í dag þegar hann vann nauman sigur í Japanskappakstrinum. Þetta var í 27. sinn sem hann sigrar í keppni á heimsmeistaramótinu og skaust hann þar með upp fyrir spænska ökuþórinn Carlos Sainz sem vann 26 keppnir á ferlinum. Loeb ekur á Citroen, en Finninn Marcus Grönholm á Ford varð annar og landi hans Mirkko Hirvonen á Ford varð þriðji. 3.9.2006 18:30
Yfirlýsing frá kvennaráði FH Kvennaráð FH hefur gefið út yfirlýsingu vegna leiðinlegrar uppákomu sem átti sér stað á Valbjarnarvelli í dag þegar ljóst varð að FH gat ekki teflt fram liði í lokaleik sínum gegn Íslandsmeisturum Vals í Landsbankadeildinni. 3.9.2006 17:56
Fjölnir í Landsbankadeildina Kvennalið Fjölnis vann sér í dag sæti í efstu deild á næstu leiktíð þegar liðið lagði ÍR 1-0 í úrslitaleik um sæti í Landsbankadeildinni. ÍR á þó enn möguleika á að vinna sér sæti í deildinni þegar það mætir næstneðsta liði Landsbankadeildarinnar, Þór/KA, í leik um sæti í deildinni á næstu leiktíð. 3.9.2006 17:52
Gangi þér vel með Mourinho Franski varnarmaðurinn William Gallas segist í samtali við The People vera mjög ánægður með að vera genginn í raðir Arsenal og óskar enska landsliðsmanninum Ashley Cole um leið góðs gengis í að eiga við fyrrum knattspyrnustjóra sinn Jose Mourinho. 3.9.2006 17:45
KR valtaði yfir Fylki Keppni í Landsbankadeild kvenna lauk í dag, en fyrr í dag varð ljóst að Valur landaði titlinum og FH féll á óeftirminnilegan hátt. KR-stúlkur völtuðu yfir Fylki 11-1 á útivelli í dag þar sem Fjóla Dröfn Friðriksdóttir skoraði fimm mörk, Breiðablik lagði Stjörnuna 2-0 á útivelli og Keflavík sigraði Þór/KA 3-1. 3.9.2006 17:38
Varð að svara kallinu Framherjinn Jermaine Defoe hjá Tottenham segir að mörkin sín tvö í landsleiknum gegn Andorra í gær hafi verið mjög kærkomin, enda hafi hann verið staðráðinn í að svara kalli Steve McClaren eftir að hafa horft á HM í sjónvarpinu í sumar. 3.9.2006 17:25
Crouch getur slegið markametið Steven Gerrard, leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, hefur mikla trú á hinum leggjalanga félaga sínum Peter Crouch og segir hann hafa alla burði til að slá markametið með enska landsliðinu. 3.9.2006 17:15
Snilldartaktar Kaka tryggðu Brössum sigur Snillingurinn Kaka var ekki lengi að setja mark sitt á vináttuleik Brasilíumanna og Argentínumanna í London í dag, en þessi magnaði miðjumaður AC Milan kom til leiks sem varamaður í seinni hálfleik, lagði upp eitt mark og skoraði það þriðja í 3-0 sigri þeirra gulklæddu. 3.9.2006 16:48
West Ham getur orðið risafélag Kia Joorabchian, eigandi Media Sports Investment sem seldi Argentínumennina tvo til West Ham á dögunum, segir að ekkert sé því til fyrirstöðu að félagið geti orðið stærra en Chelsea á heimsvísu. Joorabchian hefur verið orðaður við yfirtöku í West Ham. 3.9.2006 16:30
United hafnaði Mascherano Stjórnarformaður Manchester United segir að félagið hafi í tvígang hafnað tilboði um að kaupa leikmanninn Javier Mascherano frá Corinthians í Brasilíu. Mascherano gekk í raðir West Ham ásamt félaga sínum Carlos Tevez í vikunni. 3.9.2006 15:23
Brasilíumenn komnir yfir Vináttuleikur Brasilíumanna og Argentínumanna á Emirates Stadium í London er nú hafinn og er hann sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Það var hinn snaggaralegi Elano sem skoraði mark þeirra gulklæddu strax á þriðju mínútu og hefur leikurinn farið einstaklega fjörlega af stað fyrir framan fullt hús áhorfenda. 3.9.2006 15:14
Hneyksli fyrir kvennaknattspyrnuna Kvennalið Vals er nú formlega orðið Íslandsmeistari í kvennaknattspyrnu, en ekki er hægt að segja að liðið hafi fengið tækifæri til að ljúka keppni með tilþrifum því lið FH mætti aðeins með 6 leikmenn til leiks á Valbjarnarvöll og því var Valsliðinu dæmdur sigur án þess að flautað væri til leiks. Þjálfari Vals kallar atvikið hneyksli fyrir kvennaknattspyrnuna. 3.9.2006 14:59
Spánverjar heimsmeistarar Spánverjar tryggðu sér í dag heimsmeistarartitilinn í körfubolta með í fyrsta sinn með óvæntum stórsigri á Grikkjum í úrslitaleik 70-49. Spánverjar léku án síns besta manns, Pau Gasol, en það kom ekki að sök. Gasol meiddist í undanúrslitaleiknum gegn Argentínu, en hann var kosinn maður mótsins eftir leikinn. 3.9.2006 14:39
Amir Khan í eldlínunni Nú er hafin bein útsending á Sýn frá hnefaleikakeppni í Bolton í Bretlandi, þar sem hinn 19 ára gamli Amir Khan verður á meðal keppenda. Khan er mesta efni Breta í hnefaleikum síðan sjálfur Prinsinn var og hét og mætir Ryan Barrett í kvöld. Veislan er komin á fullt á Sýn og þeir Ómar og Bubbi strax byrjaðir að fara á límingunum í fjörugri lýsingu sinni. 2.9.2006 22:10
Spánverjar burstuðu Liechtenstein Leikjum dagsins í F-riðli okkar Íslendinga í undankeppni EM er nú lokið og sitja Spánverjar í toppsætinu þegar þremur leikjum er lokið. Íslendingar unnu Norður-Íra 3-0 í Belfast í dag, Svíar lögðu Letta 1-0 á útivelli og nú í kvöld burstuðu Spánverjar Liechtenstein 4-0 með tveimur mörkum frá David Villa, einu frá Fernando Torres og einu frá Luis Garcia. 2.9.2006 22:06
Alfreð hafði sigur gegn sínum gömlu félögum Fjögur lið eru enn taplaus í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik þegar aðeins einum leik er ólokið í þriðju umferðinni. Átta leikir voru á dagskrá deildarkeppninnar í dag og þar voru Íslendingarnir áberandi eins og venjulega. 2.9.2006 21:03
Þjóðverjar lögðu Íra Þjóðverjar lögðu Íra 1-0 í kvöld í D-riðli undankeppni EM. Það var Lukas Podolski sem skoraði sigurmark Þjóðverja á 57. mínútu, en leikurinn var sýndur beint á Sýn. Steve Staunton, þjálfari Íra, var rekinn af leikvelli þegar skammt var eftir af leiknum eftir að hafa látið skapið hlaupa með sig í gönur. 2.9.2006 20:46
Jafnt í hálfleik hjá Þjóðverjum og Írum Staðan í leik Þjóðverja og Íra í D-riðli undankeppni EM er jöfn 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés, en viðureign þessi er sýnd í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Þjóðverjar hafa verið öllu sterkari það sem af er og hafa þeir Lukas Podolski og Miroslav Klose báðir fengið upplögð marktækifæri sem þeir náðu ekki að nýta. 2.9.2006 19:32
Englendingar völtuðu yfir Andorra Englendingar voru ekki í teljandi vandræðum með arfaslakt lið Andorra í leik liðanna á Old Trafford í undankeppni EM í dag. Enska liðið vann 5-0 og var sigur liðsins síst of stór. Jermain Defoe og Peter Crouch skoruðu tvívegis fyrir enska liðið og Steven Gerrard einu sinni. Lið Andorra var í alla staði hörmulegt í leiknum og átti ekki eina einustu sókn svo talist gæti. 2.9.2006 18:19
Algjört lykilatriði að fá góðan stuðning áhorfenda gegn Dönum Grétar Rafn Steinsson var ánægður með leik íslenska liðsins í dag líkt og aðrir. Grétar segir liðið hafa gefið allt í leikinn í dag eins og á móti Spánverjum um daginn. Hann segir að næsta skref sé að fá dýrvitlausa áhorfendur á band liðsins hér heima gegn Dönum í næstu viku. 2.9.2006 18:03
Held að engan hafi órað fyrir þessu Árni Gautur Arason, markvörður íslenska landsliðsins, var skiljanlega ánægður með sigurinn á Norður-Írum í dag. Árni sagðist hafa verið ánægður með að halda hreinu í leiknum og sagðist í samtali við Eirík Stefán Ásgeirsson, blaðamann á Fréttablaðinu, efast um að nokkur hafi þorað að vona að liðið næði þessum úrslitum. 2.9.2006 17:54
Gott að fara heim með þrjú stig Hjálmar Jónsson, leikmaður íslenska landsliðsins, var mjög ánægður með sigurinn á Norður-Írum í dag. Hjálmar kom inná sem varamaður í leiknum í dag og stóð sig ágætlega. 2.9.2006 17:43
Eiður Smári maður leiksins að mati Sky Eiður Smári Guðjohnsen var maður leiksins að mati Sky sjónvarpsstöðvarinnar í dag þegar Íslendingar lögðu Norður-Íra 3-0 í Belfast í undankeppni EM. Eiður fékk 9 fyrir frammistöðu sína í dag og miðverðirnir Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingimarsson fengu 8. Keith Gillespie fékk hæstu einkunn Norður-Íra eða 7, en aðrir fengu flestir 5-6 fyrir frammistöðu sína. 2.9.2006 17:31
Aldrei heyrt áhorfendur baula á okkur á heimavelli Lawrie Sanchez var afar óhress með varnarleik norður-írska liðsins gegn Íslendingum í undankeppni EM í dag þegar heimamenn lágu 3-0. Áhorfendur bauluðu á norður-írska liðið þegar það gekk af velli á Windsor Park og sagði Sanchez þá hafa haft fullan rétt á því. 2.9.2006 17:11
Englendingar yfir í hálfleik Englendingar hafa ekki mætt mikilli mótstöðu í fyrri hálfleik gegn Andorra í viðureign þjóðanna í undankeppni EM. England leiðir 3-0 í hálfleik á Old Trafford og það voru þeir Peter Crouch (5), Steven Gerrard (13) og Jermain Defoe (38) sem skoruðu mörk liðsins. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 2.9.2006 16:57
Skotar burstuðu Færeyinga Skotar voru ekki í vandræðum með Færeyinga í B-riðli undankeppni EM í dag og unnu auðveldan 6-0 sigur á heimavelli sínum. Kris Boyd skoraði tvö mörk og þeir Darren Fletcher, James McFadden, Kenny Miller og Garry O´Connor eitt hver. 2.9.2006 16:11
Phil Neville í byrjunarliði Englendinga Leikur Englendinga og Andorra í undankeppni EM er nú hafinn á Old Trafford, en þar vekur athygli að gamla brýnið Phil Neville leikur í stöðu hægri bakvarðar hjá enska liðinu. Þá hefur Steve McClaren ákveðið að gefa Jermain Defoe tækifæri við hlið Peter Crouch í framlínunni, þrátt fyrir að hann fái lítið að spila með liði Tottenham. Wes Brown tekur stöðu Rio Ferdinand í miðri vörninni. 2.9.2006 16:02
Frábær sigur á Norður-Írum Íslenska landsliðið í knattspyrnu vann í dag frábæran 3-0 sigur á Norður-Írum í fyrsta leik sínum í undankeppni EM á Windsor Park í Belfast. Íslenska liðið gerði nánast út um leikinn með mörkum Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, Hermanns Hreiðarssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen í fyrri hálfleik. Þetta er sannarlega frábær byrjun hjá íslenska liðinu sem tekur næst á móti dönum á Laugardalsvelli í næstu viku. 2.9.2006 15:50
Mark dæmt af Norður-Írum Norður-Írar hafa tekið öll völd á Windsor Park í síðari hálfleiknum gegn íslenska liðinu, en liðið hefur ekki haft heppnina með sér. Markahrókurinn David Healy skoraði raunar mark á 61. mínútu, en það var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 2.9.2006 15:25
Kári Árnason fékk astmakast Læknir íslenska landsliðsins í knattspyrnu hefur staðfest við blaðamann Fréttablaðsins sem staddur er á Windsor Park í Belfast, að Kári Árnason hafi verið tekinn af leikvelli í fyrri hálfleik því hann hafi fengið astmakast. Kári á að hafa verið tæpur í gær vegna þessa, en Eyjólfur Sverrisson ákvað að láta slag standa og láta hann spila í dag. 2.9.2006 15:04
Ísland yfir 3-0 í hálfleik Íslenska landsliðið hefur yfir 3-0 gegn Norður-Írum á Windsor Park í Belfast þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Hermann Hreiðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk íslenska liðsins, sem er sannarlega í vænlegri stöðu. Það eina sem skyggir á frábæran árangur liðsins er að Kári Árnason þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleiknum en í hans stað er Helgi Valur Daníelsson kominn inn í íslenska liðið. 2.9.2006 14:53