Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Repúblikanarnir eru að eyðileggja landið Fyrrum körfuboltamaðurinn Charles Barkley íhugar nú að fara í framboð til fylkisstjóra í Alabama og í viðtali við Fox sjónvarpsstöðina sem fer í loftið á sunnudag, segir Barkley að Repúblikanar séu að fara eyðileggja Bandaríkin. Hann sagðist ennfremur ekkert hafa á móti því að samkynhneigðir fengju að ganga í hjónaband. 31.8.2006 22:15
Pascal Cygan farinn til Spánar Varnarmaðurinn Pascal Cygan hefur verið seldur frá enska úrvalsdeildarfélaginu Arsenal til spænska félagsins Villarreal fyrir tvær milljónir punda. Cygan hefur skrifað undir tveggja ára samning við spænska liðið. Enn er ekkert að frétta af málum Ashley Cole, en óstaðfestar fregnir herma að hann sé á leið til Chelsea í skiptum fyrir William Gallas og að Englandsmeistararnir muni borga fimm milljónir punda á milli. 31.8.2006 21:40
Við getum staðið í hvaða liði sem er Alan Pardew var skiljanlega í skýjunum í dag eftir að West Ham landaði óvænt tveimur ungum stórlöxum úr argentínska landsliðinu fyrir lokun félagaskiptagluggans. Pardew telur að með tilkomu þeirra Carlos Tevez og Javier Mascherano geti West Ham velgt hvaða liði sem er á Englandi eða Evrópu undir uggum. 31.8.2006 20:35
Lamaðist tímabundið eftir skurðaðgerð Gamla brýnið Bobby Robson, sem gekkst undir skurðaðgerð vegna heilaæxlis á dögunum, lamaðist tímabundið á vinstri helmingi líkama síns í dag eftir að bólgur mynduðust í heila hans. Læknar segja þetta eðlileg eftirköst skurðaðgerðarinnar og segja Robson hinn hressasta en sá gamli er nú á sjúkrahúsi þar sem hann fylgist náið með gangi mála á lokasprettinum áður en félagaskiptaglugganum lokar í Evrópuboltanum. 31.8.2006 20:02
Lúðarnir hefja leik í kvöld Fyrsti sjónvarpsþátturinn um Knattspyrnufélagið Nörd verður á dagskrá Sýnar í kvöld klukkan 21, en þar hefur fyrrum landsliðsþjálfaranum Loga Ólafssyni verið fengið það erfiða verkefni að búa til brúklegt knattspyrnulið úr hópi hæfileikalausra lúða sem aldrei hafa komið nálægt íþróttinni. 31.8.2006 19:24
Jan Kromkamp farinn frá Liverpool Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool seldi í dag hollenska varnarmanninn Jan Kromkamp til PSV Eindhoven í heimalandi hans. Kromkamp gekk í raðir Liverpool frá Villarreal í janúar í fyrra en fékk fá tækifæri með aðalliði þeirra rauðu. 31.8.2006 19:15
Baptista til Arsenal - Reyes til Madrid Arsenal og Real Madrid gengu nú rétt í þessu frá leikmannaskiptum sín á milli þar sem spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes fer til Real Madrid og Arsenal fær í staðinn brasilíska miðjumanninn Julio Baptista. Hér er um að ræða lánssamning í fyrstu, en til greina kemur að skiptin verði gerð að fullu 31.8.2006 19:08
Kilbane til Wigan Enska úrvalsdeildarfélagið Wigan hefur fest kaup á írska landsliðsmanninum Kevin Kilbane frá Everton fyrir um 2 milljónir punda. Kilbane er 29 ára gamall og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Wigan með möguleika á eins árs framlengingu. 31.8.2006 18:54
Arsenal í viðræðum við Real Madrid og Chelsea Ensku stórliðin Arsenal og Chelsea hafa ekki látið mikið í sér heyra á leikmannamarkaðnum á Englandi í dag, en þó er Arsenal sagt vera í viðræðum við Chelsea og Real Madrid vegna þeirra Jose Antonio Reyes og Ashley Cole. Breska sjónvarpið telur sig hafa heimildir fyrir því að Arsenal og Real muni skipta á þeim Reyes og Julio Baptista á lánssamningum og að enn sé ekki loku fyrir það skotið að Chelsea kaupi Ashley Cole. Frekari frétta er að vænta af þessu máli í kvöld. 31.8.2006 18:29
Við verðum að stöðva Eið Smára David Healy, leikmaður Leeds og norður-írska landsliðsins, segir það algjört lykilatriði fyrir sína menn að halda aftur af Eiði Smára Guðjohnsen á laugardaginn þegar Íslendingar sækja Norður-Íra heim í fyrsta leik sínum í undankeppni EM. 31.8.2006 17:44
Hólmar Örn farinn til Silkeborg Keflvíkingurinn Hólmar Örn Rúnarsson gekk í dag í raðir danska knattspyrnuliðsins Silkeborg. Hólmar skrifaði undir samning við félagið á dögunum og upphaflega var reiknað með að hann gengi í raðir liðsins þann 1. janúar, en í dag var gengið frá því að hann héldi strax til Danmerkur og verða Keflvíkingar því án þessa sterka leikmanns í bikarúrslitaleiknum gegn KR í næsta mánuði. 31.8.2006 17:15
Tevez og Mascherano í liði Argentínu West Ham leikmennirnir Carlos Teves og Javier Mascherano eru í landsliðshópi Argentínumanna sem mæta Brasilíumönnum í æfingaleik á Emirates Stadium í London á sunnudag. Brassar mæta einnig með sterkt lið til leiks um helgina og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 15:00. 31.8.2006 17:08
Landslið Wales þurfti að nauðlenda Nokkur óróleiki greip um sig í dag þegar Boeing 737 flugvél sem hafði landslið Wales í knattspyrnu innanborðs þurfti að nauðlenda í Bornemouth á leið sinni frá Cardiff eftir að framrúða í vélinni brotnaði. Engan sakaði í óhappinu og sagði John Toshack landsliðsþjálfari að í raun hefði hann aldrei vitað hvað var í gangi þegar vélinni var snúið og lent. 31.8.2006 17:00
Portsmouth kaupir Kranjcar Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur fest kaup á króatíska miðjumanninum Niko Kranjcar frá Hadjuk Split. Kranjcar er 22 ára gamall og stóð sig vel undir stjórn föður síns með króatíska landsliðinu á HM í sumar. Harry Redknapp og félagar ákváðu að snúa sér til króatíska leikmannsins í kjölfar þess að félagið missti af Búlgaranum Stilian Petrov sem ákvað að ganga í raðir Aston Villa. Kranjcar hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Portsmouth. 31.8.2006 16:52
West Ham kaupir tvo Argentínumenn West Ham hefur svo sannarlega stolið sviðsljósinu á síðasta deginum til félagaskipta í Evrópuboltanum, en félagið hefur gengið frá kaupum á tveimur af efnilegustu leikmönnum argentínska landsliðsins, þeim Carloz Tevez og Javier Mascherano frá brasilíska liðinu Corinthians. 31.8.2006 16:35
Middlesbrough kaupir Euell Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough hefur fest kaup á sóknarmanninum Jason Euell frá Charlton. Euell er 29 ára gamall og í stað hans hefur Charlton fengið að láni landsliðsmanninn Omar Pouso frá Úrúgvæ, en hann er líklega þekktastur fyrir markið glæsilega sem hann skoraði í æfingaleiknum gegn Englendingum í sumar. 31.8.2006 16:25
Sorin til Hamburger Argentínski landsliðsfyrirliðinn Juan Pablo Sorin gekk í dag í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Hamburger frá spænska liðinu Villarreal og er kaupverðið sagt vera um 2,5 milljónir evra. Sorin er þrítugur varnarmaður og hefur hann undirritað þriggja ára samning við þýska félagið. 31.8.2006 16:10
Reyes liggur á bæn Spánverjinn Jose Antonio Reyes segist enn ekki vera búinn að gefa upp alla von um að losna frá Arsenal og aftur til heimalands síns, þar sem hann segir draum sinn að vera genginn í raðir Real Madrid fyrir 23. afmælisdag sinn á föstudaginn. 31.8.2006 15:02
Wigan samþykkir tilboð Tottenham í Chimbonda Nú er útlit fyrir að sápuóperan í kring um bakvörðinn Pascal Chimbonda hjá Wigan sé loks á enda, en félagið hefur nú samþykkt kauptilboð Tottenham í leikmanninn. Chimbonda fór fram á sölu í vor og hefur Tottenham verið að þrátta við Wigan um kaupverðið í nokkra mánuði. Talsmenn Wigan segja að hér sé um að ræða hæstu fjárhæð sem greidd hefur verið fyrir leikmann í sögu félagsins. 31.8.2006 14:51
Tyrkir létu jarðskjálfta ekki hafa áhrif á sig Það verða Tyrkir og Frakkar sem keppa um fimmta sætið á HM í körfubolta eftir leiki dagsins á mótinu í Japan. Tyrkir lögðu Litháa 95-84 í framlengdum leik, þar sem jarðskjálfti upp á 4,8 á Richter skók höllina í hálfleik og Frakkar lögðu Þjóðverja síðar í dag 75-73 þar sem Mickael Gelabale skoraði sigurkörfuna í lokin. Joseph Gomis skoraði 22 stig fyrir Frakka en Dirk Nowitzki skoraði 29 stig fyrir Þjóðverja, þar af 21 í síðari hálfleik. 31.8.2006 14:36
Keane fær kunnuglegt andlit til Sunderland Roy Keane, nýráðinn knattspyrnustjóri 1. deildarliðs Sunderland, er nú við það að ganga frá kaupum á sínum fyrsta leikmanni síðan hann tók við liðinu á dögunum. Hér er um að ræða framherjann Dwight Yorke sem spilaði með Keane hjá Manchester United um árabil. Yorke fór á kostum með landsliði Trinidad á HM í sumar og hefur verið á mála hjá liði Sydney FC í Ástralíu. 31.8.2006 14:25
Malbranque til Tottenham Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque gekk í dag í raðir Tottenham Hotspur frá Fulham, en í skiptum hefur Fulham fengið miðjumanninn Wayne Routledge að láni í eitt ár. Malbranque kom sér út í kuldann hjá Fulham með því að neita að skrifa undir nýjan samning og hafði Chris Coleman stjóri Fulham lýst því yfir að Frakkinn ætti aldrei aftur eftir að spila fyrir liðið. 31.8.2006 14:15
Cole til Portsmouth Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth gekk í morgun frá kaupum á fyrrum landsliðsframherjanum Andy Cole frá Manchester City. Cole er 34 ára gamall og kaupverðið er sagt um hálf- til ein milljón punda, háð því hve mikið hann fær að spila. Cole hefur skrifað undir tveggja ára samning við Portsmouth og sagt er að hann fái 40 þúsund pund í vikulaun. 31.8.2006 14:08
Tevez og Mascherano til West Ham Í kvöld rennur út frestur liða í Evrópu til að ganga frá félagaskiptum og segja má að Lundúnalið West Ham hafi stolið fyrirsögnunum í dag, en fullyrt er að argentínsku leikmennirnir Carlos Teves og Javier Mascherano hjá Corinthians séu við það að ganga í raðir félagsins. 31.8.2006 14:01
Fær nýjan þjálfara Peter Neururer, þjálfara Hannover í þýsku úrvalsdeildinni, hefur verið sagt upp störfum. Einungis eru búnir þrír leikir af leiktíðinni en Hannover hefur tapað þeim öllum. Íslenski sóknarmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikur með Hannover en hefur ekkert fengið að spreyta sig það sem af er tímabilinu. 31.8.2006 00:01
Saviola hafði ekki áhuga á að fara til Aston Villa Umboðsmaður argentínska framherjans Javier Saviola hjá Barcelona hefur gefið það upp að leikmaðurinn hafi hafnað tilboði um að ganga í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa. Saviola hefur ekki spilað af neinu viti fyrir spænska liðið í tvö ár og útlit fyrir að hann verði annað hvort seldur eða lánaður frá félaginu enn eina ferðina. 30.8.2006 23:00
Federer valtaði yfir Wang Stigahæsti tennisleikar heims, Roger Federer, var ekki í vandræðum með kínverska spilarann Yeu-Tzuoo Wang í fyrstu umferð opna bandaríska meistaramótsins í kvöld og vann auðveldan sigur 6-4, 6-1 og 6-0. "Ég reyndi bara að setja pressu á hann strax og spila minn leik og það tókst fullkomlega," sagði Federer og var ánægður með byrjun sína á mótinu. 30.8.2006 22:45
Rossi lánaður til Newcastle Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle gekk í dag frá lánssamningi við ítalska framherjann Giuseppe Rossi hjá Manchester United og mun njóta krafta hans fram í janúar. Rossi hefur verið iðinn við kolann í markaskorun með varaliði United, en hefur ekki fengið mörg tækifæri með aðalliðinu. Hann er 19 ára gamall og er nýbúinn að framlengja samning sinn við United til ársins 2010. 30.8.2006 22:30
Andy Cole á leið til Portsmouth? Breska sjónvarpsstöðin Sky fullyrðir á vefsíðu sinni í kvöld að framherjinn Andy Cole hafi verið í læknisskoðun hjá Portsmouth í kvöld og eigi aðeins eftir að ganga frá formsatriðum í samningi við félagið. Cole hefur sjálfur sagt að hann hafi áhuga á að fara frá Manchester City til Portsmouth, en það kemur væntanlega í ljós á morgun hvort af félagaskiptunum verður. 30.8.2006 22:30
Pongolle til Spánar Franski framherjinn Florent Sinama-Pongolle hjá Liverpool er genginn í raðir spænska liðsins Recreativo sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni í vor. Pongolle hefur skrifað undir eins árs samning við ítalska liðið, en hann náði ekki að festa sig í sessi hjá Liverpool og var hjá Blackburn sem lánsmaður á síðustu leiktíð. 30.8.2006 22:15
Juventus mætir Rimini í fyrsta leik Í dag var loksins gefin út leikjaniðurröðun í ítalska boltanum, en miklar tafir hafa orðið á því í kjölfar knattspyrnuskandalsins sem tröllriðið hefur Ítalíu í sumar. Stórlið Juventus spilar sinn fyrsta leik í B-deildinni á útivelli 9 september gegn smáliði Rimini sem var í fallbaráttu í deildinni á síðustu leiktíð. 30.8.2006 22:00
Titillinn er formsatriði hjá Valsstúlkum Þrettánda og næst síðasta umferðin í Landsbankadeild kvenna fór fram í kvöld. Valsstúlkur tryggðu sér nánast Íslandsmeistaratitilinn með því að leggja Keflavík 4-0 á útivelli og það þýðir að Breiðablik, sem vann Fylki 6-2 í kvöld, þarf að vinna lokaleik sinn með yfir 30 marka mun og treysta á að Valur tapi í lokaumferðinni til að eiga möguleika á að verja titil sinn frá því í fyrra. 30.8.2006 21:04
Sex leikir fóru fram í kvöld Sex leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld og þar voru Íslendingar í eldlínunni á nær öllum vígstöðvum eins og venjulega. 30.8.2006 20:28
Ullrich og T-Mobile komast að samkomulagi Forráðamenn hjólreiðaliðsins T-Mobile hafa komist að samkomulagi við hjólreiðamanninn Jan Ullrich um að rifta samningi hans í kjölfar þess að hann var sakaður um að hafa misnotað lyf fyrr í sumar. Ullrich var í fyrstu rekinn umsvifalaust frá liðinu, en Ullrich var mjög ósáttur við þá niðurstöðu og eftir stíf fundarhöld hefur nú náðst samkomulag milli hans og liðsins. 30.8.2006 20:00
Nadal í aðra umferð Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal komst í dag í aðra umferð opna bandaríska meistaramótsins í tennis þegar hann lagði Mark Philippoussis 6-4, 6-4 og 6-4. Þá eru fyrrum sigurvegarar á mótinu Lleyton Hewitt og Marat Safin einnig komnir áfram eftir góða sigra. 30.8.2006 19:51
Thatcher fær sekt og bann hjá City Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City hafa tilkynnt að varnarmaðurinn Ben Thatcher hafi verið settur í sex leikja bann og verið gert að greiða sem nemur sex vikna launum hjá félaginu fyrir líkamsárás hans á Pedro Mendes, leikmann Portsmouth í leik liðanna á dögunum. 30.8.2006 19:08
Charlton kaupir Diawara Enska úrvalsdeildarfélagið Charlton hefur fest kaup á senegalska landsliðsmanninum Souleymane Diawara frá franska félaginu Sochaux fyrir 3,7 milljónir punda og hefur hann skrifað undir fjögurra ára samning við félagið. Hann er áttundi leikmaðurinn sem gengur í raðir Charlton í sumar. 30.8.2006 19:03
Landsliðið leikur sjö æfingaleiki fyrir HM Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur væntanlega sjö landsleiki í undirbúningi sínum fyrir lokakeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári, en mikil eftirvænting ríkir nú þar í landi fyrir mótinu og aðgöngumiðar renna út eins og heitar lummur. 30.8.2006 18:16
Huth og Woodgate komnir til Boro Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough fékk góðan liðsstyrk í dag þegar það gekk frá kaupum á þýska landsliðsmanninum Robert Huth frá Chelsea og fékk auk þess til liðs við sig varnarmanninn Jonathan Woodgate á lánssamningi frá Real Madrid. 30.8.2006 17:14
Framtíð Carlos Tevez enn óljós Bresku slúðurblöðin hafa mikinn áhuga á máli argentínska framherjans Carlos Tevez hjá Corinthians í Brasilíu, en framherjinn ungi og öflugi hefur verið orðaður við Manchester United og Arsenal á síðustu dögum. Blöðunum ber ekki saman um hvar hann kemur til með að enda, en nú styttist óðum í að félagaskiptaglugginn lokist í Evrópu. 30.8.2006 16:00
Ferdinand æfði einn í dag Miðvörðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United æfði ekki með félögum sínum í enska landsliðinu á fyrstu æfingu liðsins fyrir leikina gegn Andorra og Makedóníu í undankeppni EM, heldur æfði hann einn síns liðs. Ferdinand er enn ekki orðinn góður af támeiðslunum sem hann varð fyrir í leik Manchester United og Watford á dögunum. 30.8.2006 15:30
Andi Zidane svífur enn yfir okkur Franska landsliðið er nú að leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir fyrstu tvo leiki sína í undankeppni EM 2008, en eins og allir vita verður liðið án aðalstjörnu sinnar Zinedine Zidane sem lagði skóna á hilluna eftir skrautlegt heimsmeistaramót í sumar. 30.8.2006 15:15
Stutt gaman hjá Boskamp í Belgíu Ferill hollenska knattspyrnuþjálfarans Johan Boskamp hjá liði Standard Liege í Belgíu varð ekki sérlega langur eða glæsilegur, því á blaðamannafundi í dag verður tilkynnt að honum hafi verið sagt upp störfum. Liðið hafnaði í öðru sæti í deildinni á síðustu leiktíð en undir stjórn Boskamp hefur það aðeins fengið tvö stig úr fyrstu fjórum leikjunum í sumar. Boskamp var áður stjóri Stoke City á Englandi. 30.8.2006 14:52
Neil Mellor farinn til Preston Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool seldi í dag sóknarmanninn Neil Mellor til 1. deildarliðs Preston en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. Mellor er 23 ára gamall og hefur átt við mikil og erfið meiðsli að stríða undanfarið. Hann gerði garðinn frægan með varaliði Liverpool þar sem hann skoraði grimmt, en náði aldrei að festa sig í sessi með aðalliðinu þrátt fyrir lipra spretti. 30.8.2006 14:30
Portsmouth gerir tilboð í Andy Cole Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur nokkuð óvænt gert Manchester City kauptilboð í fyrrum landsliðsframherjann Andy Cole hjá Manchester City. Cole er 34 ára gamall og er nýstiginn upp úr erfiðum hnémeiðslum sem hann hlaut undir lok tímabilsins í vor. 30.8.2006 14:15