Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Chelsea spilar leiðinlegan bolta Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hjá Arsenal segir að þó hann beri virðingu fyrir sterku liði Englandsmeistara Chelsea, spili það leiðinlega knattspyrnu. Hann segir Arsenal, Barcelona og AC Milan spila skemmtilegustu knattspyrnu allra Evrópuliðanna. 19.8.2006 20:00
Vissi að við ættum möguleika Steve Coppell var að vonum ánægður með sína menn í Reading í dag þegar lið hans innbyrti sigur í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni gegn Middlesbrough með ótrúlegum hætti. Hann sagði úrslitin mjög mikilvæg fyrir sig og leikmenn sína. 19.8.2006 19:56
Piltalandsliðið fallið í B-deild Íslenska piltalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri tapaði sjöunda leik sínum í röð í A-deildinni á Evrópumótinu í dag þegar það lá fyrir Portúgölum 84-70. Þetta var sjöundi tapleikur liðsins í sjö leikjum á mótinu og endaði það í neðsta sæti og er fallið í B-deild. Örn Sigurðarson skoraði 20 stig fyrir íslenska liðið. 19.8.2006 18:48
Auðvelt hjá Bolton Lærisveinar Sam Allardyce í Bolton byrja leiktíðina í ensku úrvalsdeildinni með tilþrifum, en liðið vann auðveldan sigur á Tottenham 2-0 í lokaleiknum í dag. Kevin Davies og Ivan Campo skoruðu mörk heimamanna gegn lélegum gestunum frá Lundúnum, sem náðu aldrei að ógna þeirri tveggja marka forystu sem Bolton náði á fyrstu 14 mínútum leiksins. 19.8.2006 18:14
Tap fyrir Tékkum og HM-draumurinn úti Íslenska kvennalandsliðið tapaði 4-2 fyrir Tékkum á Laugardalsvelli í dag í undankeppni HM í knattspyrnu og því ljóst að liðið kemst ekki á HM. Tékkar komust yfir strax í upphafi leiks, en eftir að íslenska liðið náði að komast yfir 2-1, hrundi leikur þess í síðari hálfleik. 19.8.2006 17:59
Grönholm leiðir enn Heimamaðurinn Marcus Grönholm hefur góða forystu þegar öðrum keppnisdeginum í Finnlandsrallinu er lokið. Grönholm, sem ekur á Ford, hefur rúma mínútu í forskot á heimsmeistarann Sebastien Loeb sem ekur á Citroen, en landi Grönholm Mikko Hirvonen á Ford er enn í þriðja sætinu. 19.8.2006 17:07
Heiðar náði sér ekki á strik á lokahringnum Heiðar Davíð Bragason náði sér ekki á strik á lokadeginum á sænsku mótaröðinni í dag þegar hann lék á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari. Hann lauk því keppni á fimm höggum yfir pari og hafnaði í 53. sæti á mótinu. 19.8.2006 17:04
Jafnt í hálfleik á Laugardalsvelli Nú er kominn hálfleikur í leik Íslendinga og Tékka í undankeppni HM í knattspyrnu og er staðan jöfn 2-2. Ásthildur Helgadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu mörk íslenska liðsins. 19.8.2006 16:59
Bolton í góðum málum Nú er kominn hálfleikur í lokaviðureign dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Bolton hefur yfir 2-0 gegn Tottenham á heimavelli sínum. Kevin Davies skoraði fyrra mark Bolton með skalla eftir hornspyrnu eftir auman varnarleik gestanna og síðara markið var þrumufleygur Ivan Campo af meira en 30 metra færi. 19.8.2006 16:47
Hannover steinlá Hannover 96 tapaði í dag 4-0 fyrir Hertha Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er liðið því neðst í deildinni án stiga eftir tvær umferðir. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahópi Hannover í dag, frekar en í fyrsta leik liðsins á dögunum. 19.8.2006 16:41
Frábær byrjun hjá Reading Nýliðar Reading byrjuðu vel í opnunarleik sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag, þegar liðið vann frábæran 3-2 sigur á Middlesbrough á heimavelli sínum eftir að hafa lent undir 2-0. Ívar Ingimarsson var í byrjunarliði Reading og lagði upp jöfnunarmark liðsins, en það var Leroy Lita sem skoraði sigurmark nýliðanna í upphafi síðari hálfleiks. 19.8.2006 15:55
Enska úrvalsdeildin er maraþonhlaup Rafa Benitez hafði ekki miklar áhyggjur af því að hafa tapað tveimur stigum í fyrsta leik sínum með Liverpool á leiktíðinni í dag og líkti keppni í ensku úrvalsdeildinni við maraþonhlaup, aðeins væri búinn kílómeter af hlaupinu og því engin ástæða til að örvænta. Hann hefur þó meiri áhyggjur af þeim leikmönnum sem hann missti í meiðsli í leiknum gegn Sheffield United í dag. 19.8.2006 15:33
Liverpool átti aldrei að fá víti Neil Warnock var afar ósáttur við ákvörðun Rob Styles dómara í dag þegar hann dæmdi Liverpool vítaspyrnu sem Robbie Fowler skoraði úr og tryggði Liverpool stig gegn nýliðum Sheffield United. Warnock sagði dómarann hafa átt ágætan leik fyrir utan þessi afdrifaríku mistök, en var að öðru leiti sáttur við stigið. Styles dómari ver ákvörðun sína og segist viss um að Steven Gerrard hafi verið brugðið innan teigs. 19.8.2006 15:20
Frábær endurkoma hjá Reading Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Mesta fjörið er án efa á leik Reading og Middlesbrough á Majeski vellinum í Reading, þar sem heimamenn skoruðu tvö mörk undir lok hálfleiksins og jöfnuðu eftir að hafa lent undir 2-0. 19.8.2006 14:51
Tefli Malbranque ekki fram þó það kosti mig starfið Chris Coleman segir það ekki koma til greina að tefla franska miðjumanninum Steed Malbranque fram með liði Fulham í vetur, jafnvel þó það kosti sig starfið. Malbranque hefur verið til sífelldra vandræða hjá félaginu í sumar og er Coleman algjörlega búinn að missa alla þolinmæði gagnvart honum. 19.8.2006 14:18
Ívar í byrjunarliði Reading Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading í dag þegar liðið tekur á móti Middlesbrough í sínum fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í sögu félagsins. Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekk liðsins. Leikurinn hefst nú klukkan 14 eins og fimm aðrir leikir, en síðasti leikur dagsins er svo viðureign Bolton og Tottenham klukkan 16:15. 19.8.2006 14:01
Liverpool náði aðeins jafntefli við nýliðana Leikmenn Liverpool naga sig eflaust í handabökin í dag eftir að hafa aðeins náð jafntefli við nýliða Sheffield United í fyrsta leiknum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. United komst yfir eftir 52 sekúndur í síðari hálfleik með marki frá Rob Hulse, en Robbie Fowler jafnaði úr víti fyrir Liverpool eftir að Steven Gerrard var brugðið innan teigs. 19.8.2006 13:43
Jones sögð hafa fallið á lyfjaprófi Bandaríska hlaupadrottningin Marion Jones hefur enn á ný verið borin þungum sökum um lyfjamisnotkun, nú síðast eftir að hún dró sig úr keppni á Gullmótinu í Zurich sem stendur nú yfir í Sviss. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum tala nú um að komið sé í ljós að hún hafi fallið á lyfjaprófi á móti í heimalandi sínu í sumar. 19.8.2006 13:31
Lyon samþykkir að selja Diarra Frönsku meistararnir í Lyon hafa loks gefið eftir og hafa samþykkt að selja Malímanninn Mahamadou Diarra til Real Madrid. Talið er að kaupverðið sé um 17 milljónir punda, en Diarra hafði krafist þess að fá að fara til Spánar og hótaði að fara í verkfall ef forráðamenn franska félagsins yrðu ekki að kröfum hans. 19.8.2006 13:27
Vel heppnuð endurkoma hjá Holyfield Gamla brýnið Evander Holyfield átti vel heppnaða endurkomu í hnefaleikahringinn í Dallas í nótt þegar hann sigraði Jeremy Bates á tæknilegu rothöggi í annari lotu. Holyfield hafði ekki riðið feitum hesti fyrir bardagann og var sigur hans sá fyrsti síðan árið 2002. Hann stefnir á að koma sér aftur á toppinn á næsta ári og verða heimsmeistri í þungavigt í fimmta sinn á ferlinum. 19.8.2006 13:09
Sigur í fyrsta leik hjá Bandaríkjamönnum Lið Bandaríkjanna vann sinn fyrsta leik á HM í körfubolta þegar það lagði lið Portó Ríkó 111-100. Bandaríkjamennirnir voru í bullandi vandræðum í fyrri hálfleik og lentu þá undir í leiknum, en sigur þeirra var nokkuð öruggur þegar upp var staðið. Carmelo Anthony var stigahæstur í liði BNA með 21 stig og þeir LeBron James og Kirk Hinrich skoruðu 15 stig hvor. Chris Paul skoraði 11 stig, gaf 9 stoðsendingar og stal 5 boltum. 19.8.2006 12:56
Jafnt í hálfleik á Bramall Lane Keppni í ensku úrvalsdeildinni er nú formlega hafin og flautað hefur verið til hálfleiks í fyrsta leik dagsins sem er viðureign nýliða Sheffield United og Liverpool á Bramall Lane. Staðan er enn 0-0, en þar ber hæst að norski landsliðsmaðurinn John Arne Riise var borinn meiddur af velli um miðbik hálfleiksins og félagi hans Jamie Carragher er sömuleiðis farinn meiddur af velli. 19.8.2006 12:48
Óvíst hvað tekur við í haust Hafnfirðingurinn Emil Hallfreðsson hefur staðið sig vel hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Malmö í ár en hann kom til liðsins um áramótin. Þangað var hann lánaður frá enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham sem hann er samningsbundinn. Hvað tekur við í haust er enn í lausu lofti en að öllu óbreyttu heldur hann aftur til Tottenham þegar tímabilið í Svíþjóð er búið. 19.8.2006 00:01
Fram í Landsbankadeild Fram tryggði sér í kvöld sæti í efstu deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð þegar liðið lagði Þrótt að velli 1-0 á Valbjarnarvelli. Það var Chris Vorenkamp sem skoraði sigurmark Fram um miðbik síðari hálfleiksins. Tap Þróttar gæti átt eftir að reynast liðinu afar dýrt, því liðið er nú fimm stigum á eftir HK sem er í öðru sæti deildarinnar. 18.8.2006 21:02
FIFA rannsakar nasistakveðjur Króata Króatíska knattspyrnusambandið hefur þurft að svara til saka fyrir hönd stuðningsmanna landsliðsins sem voru með nasistaáróður á vináttuleik Króata og Ítala á dögunum. Hegðun stuðningsmannanna er litin mjög alvarlegum augum hjá FIFA og gætu króatar átt yfir höfði sér harðar refsingar vegna þessa. 18.8.2006 20:30
Grönholm með forystu Heimamaðurinn Marcus Grönholm á Ford hefur 12 sekúndna forystu á Sebastien Loeb á Citroen eftir fyrsta keppnisdaginn í Finnlandsrallinu. Grönholm byrjaði vel í dag og vann þrjár af fyrstu fjórum sérleiðunum við erfiðar aðstæður. Finninn hefur unnið keppni þessa fimm sinnum á síðustu sex árum, en heimsmeistarinn Loeb hefur enn ekki náð að sigra í þessari keppni. Hann hefur þó enn þægilegt 33 stiga forskot í stigakeppninni til heimsmeistara. 18.8.2006 20:06
Powell jafnar heimsmetið aftur Spretthlauparinn Asafa Powell jafnaði heimsmet sitt og Justin Gatlin í 100 metra hlaupi karla í kvöld þegar hann kom fyrstur í mark á tímanum 9,77 sekúndum á Gullmótinu í Zurich. Þetta er í þriðja sinn sem Powell hleypur á heimsmetstímanum, en Bandaríkjamaðurinn Tyson Gay varð annar í kvöld á persónulegu meti, 9,84 sekúndum. 18.8.2006 19:44
Mannætan á leið til Chelsea Englandsmeistarar Chelsea hafa fengið tilboð sitt í hollenska landsliðsvarnarmanninn Khalid Boulahrouz hjá HSV í Þýskalandi samþykkt og því á leikmaðurinn aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun hjá enska félaginu. Boulahrouz var áberandi með hollenska landsliðinu á HM og er sagður geta spilað allar fjórar varnarstöðurnar. 18.8.2006 18:35
Stenson tekur forystu Sænski kylfingurinn Henrik Stenson hefur eins höggs forystu eftir tvær umferðir á USPGA mótinu sem nú stendur yfir á Medinah vellinum í Chicago. Stenson lék annan hringinn á 68 höggum eða 4 höggum undir pari og er því einu höggi á undan Davis Lowe III sem vann sigur á mótinu árið 1997. Bein útsending verður frá mótinu á Sýn í kvöld. 18.8.2006 18:27
Forráðamenn Espanyol kæra Barcelona Forráðamenn spænska knattspyrnufélagsins Espanyol sendu spænska knattspyrnusambandinu kærubréf skömmu fyrir fyrri leik liðsins gegn Barcelona í meistarakeppninni í gær, því þeir segja granna sína hafa brotið reglur FIFA þegar þeir tefldu þeim Xavi og Carles Puyol fram í leiknum. 18.8.2006 17:30
Ósáttur við vinnubrögð Real Madrid Arsene Wenger er lítt hrifinn af vinnubrögðum stjórnar spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid og segir endalausar yfirlýsingar félagsins um leikmannakaup koma sér afar illa fyrir leikmenn annara liða. 18.8.2006 17:15
Tony Parker fingurbrotinn og missir af HM Leikstjórnandinn Tony Parker getur ekki leikið með Frökkum á HM í körfubolta sem hefst í Japan á morgun eftir að í ljós kom að hann er fingurbrotinn. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir franska landsliðið sem mætir gríðarlega sterku liði Argentínu strax í fyrsta leik sínum á morgun. Parker hefur þegar verið beðinn um að snúa aftur í herbúðir San Antonio Spurs í Bandaríkjunum, þar sem hann mun fá læknismeðferð. 18.8.2006 16:45
Beiðni Juventus vísað frá Ítalska knattspyrnufélagið Juventus hafði ekki erindi sem erfiði í dag þegar forráðamenn þess áttu lokafund með ítalska knattspyrnusambandinu þar sem þeir reyndu að fá dóm félagsins mildaðan. Juventus þarf því að hefja leik í B-deildinni þar í landi með 17 sig í mínus eins og staðfest var fyrir dómi á dögunum. 18.8.2006 16:37
James, Wade og Anthony fyrirliðar Mike Krzyzewski, þjálfari körfuboltalandsliðs Bandaríkjanna, hefur útnefnt þá LeBron James, Dwyane Wade og Carmelo Anthony sem fyrirliða liðsins á HM sem hefst í Japan á morgun. Þremenningarnir komu allir inn í NBA deildina árið 2003 og eru stigahæstu leikmenn bandaríska liðsins í þeim fimm undirbúningsleikjum sem það hefur spilað að undanförnu. 18.8.2006 16:18
Holyfield ætlar að keppa aftur Fyrrum heimsmeistarinn í þungavigt, Evander Holyfield, hefur enn ekki sagt sitt síðasta í hringnum og ætlar að bjóða upp á eina endurkomuna enn. Holyfield hefur ekki barist síðan árið 2004, en þá tapaði hann svo illa að hnefaleikaleyfið var tekið af honum í New York. 18.8.2006 15:59
Villenueve ræðst hart að Schumacher Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Kanadamaðurinn Jacques Villenueve, er harðorður í garð Michael Schumacher hjá Ferrari og kallar hann lygara og bragðaref sem aldrei muni ná að festa sig í sessi sem goðsögn í íþróttinni vegna þessa. 18.8.2006 15:45
Spilum aldrei aftur á Amsterdam mótinu Sir Alex Ferguson segir að það komi ekki til greina að lið Manchester United spili aftur á árlegu æfingamóti í Amsterdam eftir að þeir Paul Scholes og Wayne Rooney uppskáru þriggja leikja bann í ensku úrvalsdeildinni fyrir að láta reka sig af velli í leik gegn Porto á mótinu á dögunum. 18.8.2006 15:15
Emerton framlengir við Blackburn Ástralski landsliðsmaðurinn Brett Emerton hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn. Emerton gekk í raðir Blackburn frá hollenska liðinu Feyenoord árið 2003 fyrir 2,2 milljónir punda og er sjötti leikmaðurinn á skömmum tíma sem framlengir samning sinn við félagið, sem náði frábærum árangri í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. 18.8.2006 14:58
Grönholm í forystu Heimamaðurinn Marcus Grönholm hefur nauma forystu á heimsmeistarann Sebastien Loeb þegar eknar hafa verið 6 fyrstu leiðirnar í Finnlandsrallinu. Loeb hefur verið gjörsamlega óstöðvandi það sem af er tímabili rétt eins og undanfarin ár, en Grönholm er til alls líklegur á heimavelli sínum. 18.8.2006 14:34
Við viljum fá Hargreaves Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur staðfest að félagið hafi mikinn hug á að fá enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves í sínar raðir frá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen. 18.8.2006 14:26
Heiðar á pari í Svíþjóð Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason er á pari eftir tvo fyrstu hringina á sænsku mótaröðinni í golfi sem fram fer á Haverdal vellinum. Heiðar lék á 71 höggi í dag eða einu höggi undir pari, en hann var á höggi yfir pari í gær. Heiðar er þó nokkuð langt frá efstu mönnum á mótinu. 18.8.2006 14:20
Dirk Kuyt stóðst læknisskoðun Hollenski landsliðsframherjinn Dirk Kuyt hefur staðist læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool og er því formlega genginn í raðir félagsins frá Feyenoord. Kaupverðið er talið vera um 10 milljónir punda. 18.8.2006 14:15
Verður ekki með um helgina Varnarmaðurinn Ashley Cole hjá Arsenal verður ekki í leikmannahópi liðsins um helgina þegar það mætir Aston Villa í opnunarleik sínum í úrvalsdeildinni, þó hann sé heill heilsu og vilji spila. Þetta er vegna þeirrar miklu óvissu sem ríkir um framtíð hans hjá félaginu, en Cole hefur lengi verið orðaður við Englandsmeistara Chelsea. 18.8.2006 13:33
Ég smellpassa inn í Norrköping Sóknarmaðurinn Garðar Gunnlaugsson gekk í raðir sænska liðsins Norrköping fyrir skömmu og er að koma sér fyrir þar ytra. Hann hefur farið vel af stað í sænska boltanum og skorað tvö mörk í þeim þremur leikjum sem hann hefur leikið til þessa. Hann var ekki lengi að finna fjölina og segist smellpassa inn í liðið. 18.8.2006 00:01
Barcelona lagði Espanyol Barcelona er í ágætum málum í meistarakeppninni á Spáni eftir 1-0 sigur á grönnum sínum í Espanyol í fyrri viðureign liðanna í kvöld, en leikurinn fór fram á heimavelli Espanyol. Ludovic Giuly skoraði sigurmark Barca rétt áður en flautað var til leikhlés eftir frábæran undirbúning Ronaldinho, en Eiður Smári Guðjohnsen fékk ekki tækifæri með liðinu að þessu sinni. Liðin eigast við öðru sinni á Nou Camp á sunnudag og verður sá leikur einnig sýndur beint á Sýn. 17.8.2006 21:50