Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forráðamenn Espanyol kæra Barcelona Forráðamenn spænska knattspyrnufélagsins Espanyol sendu spænska knattspyrnusambandinu kærubréf skömmu fyrir fyrri leik liðsins gegn Barcelona í meistarakeppninni í gær, því þeir segja granna sína hafa brotið reglur FIFA þegar þeir tefldu þeim Xavi og Carles Puyol fram í leiknum. 18.8.2006 17:30
Ósáttur við vinnubrögð Real Madrid Arsene Wenger er lítt hrifinn af vinnubrögðum stjórnar spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid og segir endalausar yfirlýsingar félagsins um leikmannakaup koma sér afar illa fyrir leikmenn annara liða. 18.8.2006 17:15
Tony Parker fingurbrotinn og missir af HM Leikstjórnandinn Tony Parker getur ekki leikið með Frökkum á HM í körfubolta sem hefst í Japan á morgun eftir að í ljós kom að hann er fingurbrotinn. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir franska landsliðið sem mætir gríðarlega sterku liði Argentínu strax í fyrsta leik sínum á morgun. Parker hefur þegar verið beðinn um að snúa aftur í herbúðir San Antonio Spurs í Bandaríkjunum, þar sem hann mun fá læknismeðferð. 18.8.2006 16:45
Beiðni Juventus vísað frá Ítalska knattspyrnufélagið Juventus hafði ekki erindi sem erfiði í dag þegar forráðamenn þess áttu lokafund með ítalska knattspyrnusambandinu þar sem þeir reyndu að fá dóm félagsins mildaðan. Juventus þarf því að hefja leik í B-deildinni þar í landi með 17 sig í mínus eins og staðfest var fyrir dómi á dögunum. 18.8.2006 16:37
James, Wade og Anthony fyrirliðar Mike Krzyzewski, þjálfari körfuboltalandsliðs Bandaríkjanna, hefur útnefnt þá LeBron James, Dwyane Wade og Carmelo Anthony sem fyrirliða liðsins á HM sem hefst í Japan á morgun. Þremenningarnir komu allir inn í NBA deildina árið 2003 og eru stigahæstu leikmenn bandaríska liðsins í þeim fimm undirbúningsleikjum sem það hefur spilað að undanförnu. 18.8.2006 16:18
Holyfield ætlar að keppa aftur Fyrrum heimsmeistarinn í þungavigt, Evander Holyfield, hefur enn ekki sagt sitt síðasta í hringnum og ætlar að bjóða upp á eina endurkomuna enn. Holyfield hefur ekki barist síðan árið 2004, en þá tapaði hann svo illa að hnefaleikaleyfið var tekið af honum í New York. 18.8.2006 15:59
Villenueve ræðst hart að Schumacher Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Kanadamaðurinn Jacques Villenueve, er harðorður í garð Michael Schumacher hjá Ferrari og kallar hann lygara og bragðaref sem aldrei muni ná að festa sig í sessi sem goðsögn í íþróttinni vegna þessa. 18.8.2006 15:45
Spilum aldrei aftur á Amsterdam mótinu Sir Alex Ferguson segir að það komi ekki til greina að lið Manchester United spili aftur á árlegu æfingamóti í Amsterdam eftir að þeir Paul Scholes og Wayne Rooney uppskáru þriggja leikja bann í ensku úrvalsdeildinni fyrir að láta reka sig af velli í leik gegn Porto á mótinu á dögunum. 18.8.2006 15:15
Emerton framlengir við Blackburn Ástralski landsliðsmaðurinn Brett Emerton hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn. Emerton gekk í raðir Blackburn frá hollenska liðinu Feyenoord árið 2003 fyrir 2,2 milljónir punda og er sjötti leikmaðurinn á skömmum tíma sem framlengir samning sinn við félagið, sem náði frábærum árangri í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. 18.8.2006 14:58
Grönholm í forystu Heimamaðurinn Marcus Grönholm hefur nauma forystu á heimsmeistarann Sebastien Loeb þegar eknar hafa verið 6 fyrstu leiðirnar í Finnlandsrallinu. Loeb hefur verið gjörsamlega óstöðvandi það sem af er tímabili rétt eins og undanfarin ár, en Grönholm er til alls líklegur á heimavelli sínum. 18.8.2006 14:34
Við viljum fá Hargreaves Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur staðfest að félagið hafi mikinn hug á að fá enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves í sínar raðir frá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen. 18.8.2006 14:26
Heiðar á pari í Svíþjóð Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason er á pari eftir tvo fyrstu hringina á sænsku mótaröðinni í golfi sem fram fer á Haverdal vellinum. Heiðar lék á 71 höggi í dag eða einu höggi undir pari, en hann var á höggi yfir pari í gær. Heiðar er þó nokkuð langt frá efstu mönnum á mótinu. 18.8.2006 14:20
Dirk Kuyt stóðst læknisskoðun Hollenski landsliðsframherjinn Dirk Kuyt hefur staðist læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool og er því formlega genginn í raðir félagsins frá Feyenoord. Kaupverðið er talið vera um 10 milljónir punda. 18.8.2006 14:15
Verður ekki með um helgina Varnarmaðurinn Ashley Cole hjá Arsenal verður ekki í leikmannahópi liðsins um helgina þegar það mætir Aston Villa í opnunarleik sínum í úrvalsdeildinni, þó hann sé heill heilsu og vilji spila. Þetta er vegna þeirrar miklu óvissu sem ríkir um framtíð hans hjá félaginu, en Cole hefur lengi verið orðaður við Englandsmeistara Chelsea. 18.8.2006 13:33
Ég smellpassa inn í Norrköping Sóknarmaðurinn Garðar Gunnlaugsson gekk í raðir sænska liðsins Norrköping fyrir skömmu og er að koma sér fyrir þar ytra. Hann hefur farið vel af stað í sænska boltanum og skorað tvö mörk í þeim þremur leikjum sem hann hefur leikið til þessa. Hann var ekki lengi að finna fjölina og segist smellpassa inn í liðið. 18.8.2006 00:01
Barcelona lagði Espanyol Barcelona er í ágætum málum í meistarakeppninni á Spáni eftir 1-0 sigur á grönnum sínum í Espanyol í fyrri viðureign liðanna í kvöld, en leikurinn fór fram á heimavelli Espanyol. Ludovic Giuly skoraði sigurmark Barca rétt áður en flautað var til leikhlés eftir frábæran undirbúning Ronaldinho, en Eiður Smári Guðjohnsen fékk ekki tækifæri með liðinu að þessu sinni. Liðin eigast við öðru sinni á Nou Camp á sunnudag og verður sá leikur einnig sýndur beint á Sýn. 17.8.2006 21:50
Chelsea kærir fyrrum eiganda Forráðamenn Englandsmeistara Chelsea hafa sent enska knattspyrnusambandinu formlega kvörtun vegna niðrandi ummæla og ásakana fyrrum eiganda félagsins Ken Bates í sinn garð. Bates er í dag eigandi Leeds United sem leikur í fyrstu deild. 17.8.2006 21:39
Kanu til Portsmouth Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur gengið frá eins árs samningi við Nígeríumanninn Kanu, sem áður lék til að mynda með Arsenal og West Brom. Kanu er 31 árs gamall og er fimmti leikmaðurinn sem Harry Redknapp kaupir í sumar. Redknapp er í miklum vandræðum með meiðsli framherja sinna og því ætti Kanu að reynast honum happafengur nú rétt fyrir upphaf leiktíðar á Englandi. 17.8.2006 21:14
Barcelona yfir í hálfleik Barcelona hefur yfir 1-0 gegn Espanyol þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna um meistarabikarinn á Spáni. Það var Ludovic Giuly sem skoraði mark Börsunga á 43. mínútu eftir glæsilegan undirbúning Brasilíumannsins Ronaldinho. Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona og kemur vonandi við sögu í síðari hálfleik. Leikur kvöldsins er sýndur beint á Sýn, líkt og síðari leikur liðanna á heimavelli Barcelona á sunnudaginn. 17.8.2006 20:50
Heiðar Davíð á höggi yfir pari Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason úr Kili lék fyrsta hringinn á sænsku mótaröðinni á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari í dag. Keppnin fer fram í Haverdal í Svíþjóð og er efsti maður eftir fyrsta dag á sex höggum undir pari. 17.8.2006 20:43
Samningar í höfn við Indanapolis Nú er ljóst að Formúla 1 verður áfram í boði í Bandaríkjunum, í það minnsta í eitt ár í viðbót, eftir að forráðamenn Indianapolis-kappakstursins náðu samkomulagi við Bernie Ecclestone um mótshald þar á næsta ári. 17.8.2006 20:18
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið mætir Espanyol í meistarakeppninni á Spáni sem er árleg viðureign Spánar- og bikarmeistaranna. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. 17.8.2006 20:12
Chimbonda verður áfram hjá Wigan Franski landsliðsbakvörðurinn Pascal Chimbonda segist muni verða áfram í herbúðum enska úrvalsdeildarliðsins Wigan, en hann fór fram á að verða seldur frá félaginu eftir síðasta leik liðsins í vor. Leikmaðurinn hefur verið orðaður við Tottenham í allt sumar, en staðfesti í samtali við Sky-sjónvarpsstöðina í dag að hann færi hvergi. 17.8.2006 18:36
Fluttur á sjúkrahús í gær Jens Lehmann var fluttur á sjúkrahús í Schalke í gærkvöld eftir að hann var nálægt því að falla í yfirlið þegar hann snæddi kvöldverð með félögum sínum í landsliðinu að loknum æfingaleik við Svía. Lehmann reyndist vera með of lágan blóðsykur og fékk að fara heim að lokinni læknisskoðun. Hann kom til Englands í dag þar sem hann mun gangast undir frekari skoðun áður en hann byrjar að æfa með Arsenal á ný. 17.8.2006 17:15
Eiður Smári í leikmannahópi Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen verður í leikmannahópi Spánar- og Evrópumeistara Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Espanyol í meistarakeppninni sem markar upphaf keppnistímabilsins þar í landi. Þeir Gianluca Zambrotta og Lilian Thuram eru einnig í leikmannahópi Barcelona, en þeir komu til félagsins fyrir skömmu líkt og Eiður Smári. 17.8.2006 16:56
PGA-mótið í beinni á Sýn í kvöld PGA-meistaramótið í golfi sem fram fer á Medinah-vellinum í Illinois hefst í kvöld og hest bein útsending frá mótinu klukkan 21:50. Það er Phil Mickelson sem á titil að verja á mótinu síðan í fyrra, en auk hans eru skráðir til leiks flestir af sterkustu kylfingum heims. Þetta er síðasta risamót sumarsins á PGA-mótaröðinni og Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. 17.8.2006 16:45
Keppnin um Austurlandströllið hafin Í morgun hófst austur á Vopnafirði keppnin um titilinn Austurlandströllið, en þar keppa sín á milli sterkustu aflraunamenn landsins úr röðum IFSA Ísland. Þegar þetta er ritað eru jötnarnir að etja kappi í drumbalyftu á Mjóeyri á Eskifirði og lýkur dagskrá dagsins í Neskaupstað klukkan 18 þar sem keppt verður í dekkjaveltu við Norðfjarðarvöll. 17.8.2006 16:30
Barcelona - Espanyol í beinni í kvöld Fyrsti alvöruleikur Eiðs Smára Guðjohnsen með Evrópumeisturum Barcelona verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld klukkan 20. Hér er á ferðinni viðureign Spánar- og bikarmeistara Barcelona og Espanyol. Það verður hinn óviðjafnanlegi Guðjón Guðmundsson sem lýsir leiknum og hefst útsendingin klukkan 19:50. 17.8.2006 15:53
Enn eitt tapið hjá U-16 Íslenska piltalandsliðið U-16 ára tapaði í dag sjötta leiknum sínum í röð í A-deild Evrópumótsins sem fram fer á Spáni þegar liðið lá fyrir sterku liði Grikkja 95-68. Grikkir höfðu yfir 36-25 í hálfleik. Sigmar Logi Björnsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 14 stig. 17.8.2006 15:37
Diarra er efstur á óskalistanum Ramon Calderon, forseti spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid, segir það algjört forgangsatriði fyrir félagið að landa afríska miðjumanninum Mahamadou Diarra frá franska liðinu Lyon. Real hefur einnig mikinn áhuga á að fá Jose Reyes frá Arsenal, en þó komi það ekki til greina nema Arsenal samþykki að selja hann á hóflega upphæð. 17.8.2006 15:00
Spilaði meiddur á HM Jens Lehmann hefur gefið það upp að hann hafi spilað meiddur í hverjum einasta leik sínum fyrir hönd Þjóðverja á HM í sumar, því takkaskórnir frá Adidas sem þýsku leikmönnunum hafi verið skipað að spila í, hafi meitt sig. 17.8.2006 14:30
Nýr samningur í sjónmáli fyrir Beckham Forráðamenn Real Madrid segja stutt í að samningur David Beckham verði framlengdur við félagið og gæti nýr samningur náð allt fram til ársins 2009. Beckham gekk í raðir Real árið 2003 og líkar lífið vel á Spáni með fjölskyldu sinni. Hann mætti raunar of seint á æfingu liðsins í gærkvöldi eftir að hafa verið í heimalandi sínu að fylgjast með leik Englendinga og Grikkja og gæti átt yfir höfði sér sekt vegna þessa. 17.8.2006 14:15
Bruce Bowen fer ekki á HM Varnarjaxlinn Bruce Bowen frá San Antonio Spurs fékk það leiðinlega hlutskipti í gær að verða síðasti maðurinn sem ekki náði inn í landsliðshóp Bandaríkjamanna fyrir HM í körfubolta sem hefst í Japan um helgina. Það er því ljóst hvaða 12 menn skipa bandaríska landsliðið að þessu sinni, en liðið hefur ekki orðið heimsmeistari síðan 1994. 17.8.2006 14:00
Besti sigur Andy Murray á ferlinum Breski tennisleikarinn Andy Murray náði því sjaldséða afreki í gær að leggja besta spilara heims, Roger Federer, að velli í leik þeirra á Cincinnati Masters-mótinu 7-5 og 6-4. Þetta var aðeins annað tap hins óviðjafnanlega Federer á árinu. 17.8.2006 13:30
Áherslubreytingar á komandi leiktíð Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu hefur farið þess á leit við leikmenn, þjálfara og dómara að fallið verði frá þeim sið að spyrna boltanum út af vellinum þegar leikmaður liggur meiddur á vellinum. Þess í stað verði dómara fengið það hlutverk að meta hvenær stöðva þurfi leik vegna meiðsla hverju sinni. 17.8.2006 13:00
Kuyt á leið til Liverpool Hollenski landsliðsframherjinn Dirk Kuyt á nú aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun svo hann geti gengið í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool. Enska félagið hefur komst að samkomulagi við Feyenoord um kaupverð og vildi leikmaðurinn ólmur ganga til liðs við þá rauðu. 17.8.2006 12:39
Owen gæti misst af leiktíðinni Glenn Roader er mjög hæfilega bjartsýnn á endurhæfingarferli framherja síns Michael Owen og segir að í versta falli gæti farið svo að hann spilaði ekki einn einasta leik á keppnistímabilinu sem hefst um helgina. Owen meiddist illa á hné á HM og er nú undir höndum lækna. 17.8.2006 12:28
Fer fram á sölu frá Bayern Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves er sagður eiga fund með forráðamönnum Bayern Munchen í dag, þar sem hann muni fara fram á að verða seldur frá félaginu til Manchester United. Enska liðið ku hafa mikinn áhuga á að fá Hargreaves í sínar raðir, en hann er nýbúinn að framlengja samning sinn við þýska liðið og ólíkt þykir að hann fari fyrir minna en 13 milljónir punda. 17.8.2006 12:22
Gallas vill enn fara frá Chelsea Franski landsliðsmaðurinn William Gallas hefur ítrekað að hann vilji finna sér nýtt félag til að spila fyrir á næstu leiktíð. Þetta sagði hann við franska miðla eftir sigur Frakka á Bosníumanna í gærkvöldi. 17.8.2006 12:10
Fyrsti sigur FH í sumar FH-stúlkur unnu í gærkvöld sinn fyrsta sigur í Landsbankadeild kvenna þegar þær lögðu lið Þórs/KA á heimavelli sínum í Kaplakrika 3-2. Sigurinn dugði FH þó ekki til að komast upp úr botnsæti deildarinnar, en liðið situr á botninum ásamt norðanliðinu með 3 stig, en hefur lakari markatölu. 17.8.2006 08:15
Stoltur af 100 leikjum Landsliðsfyrirliði Spánar, Madrídingurinn Raul Gonzalez, sagði í samtali við spænska fjölmiðla eftir leikinn gegn Íslandi í fyrrakvöld að hann væri stoltur af 100 landsleikjum sínum fyrir Spán. "Ég var mjög hamingjusamur og stoltur," sagði kappinn. "Það er mjög mikilvægt fyrir mig að hafa náð þessum áfanga. Það var synd að úrslit leiksins hafi ekki verið betri en þetta var erfitt fyrir okkur." 17.8.2006 00:00
Newcastle eða Celtic? Newcastle United og Glasgow Celtic eru bæði talin vera að berjast um danska miðjumanninn Thomas Gravesen sem leikur með Real Madrid. 17.8.2006 00:00
Meiddist lítillega á ökkla Fernando Torres, leikmaður Atletico Madrid á Spáni, meiddist lítillega í leik Íslands og Spánar á Laugardalsvelli í fyrrakvöld. Hann snerist á ökkla í fyrri hálfleik en hélt engu að síður áfram. 17.8.2006 00:00
Strákarnir gerðu það sem við lögðum fyrir þá Steve McClaren var mjög sáttur við leik sinna manna í kvöld þegar hann stýrði enska landsliðinu til 4-0 sigurs á Grikkjum í sínum fyrsta leik sem landsliðsþjálfari. Hann sagði sína menn hafa gert allt sem hann lagði upp með fyrir leikinn. 16.8.2006 22:15
Þjóðverjar lögðu Svía 3-0 Fjöldi vináttulandsleikja í knattspyrnu var á dagskrá í kvöld. Þjóðverjar unnu góðan 3-0 sigur á Svíum með tveimur mörkum frá Miroslav Klose og einu frá Bernd Schneider. Þetta var fyrsti leikur nýja landsliðsþjálfarans Joachim Löw, sem þegar var kominn á milli tannana á þýsku pressunni fyrir leikinn. Þrátt fyrir að vera án flestra lykilmanna sinna úr vörninni síðan á HM, kom það ekki að sök og sigur Þjóðverja mjög öruggur í Gelsenkirchen í kvöld. 16.8.2006 21:06